Tíminn - 04.08.1972, Side 2
TÍMINN
Föstudagur 4. ágúst 1972
Seljum alia okkar t'ram-
leiðslu á
VERKSMIÐJUVERÐI
Prjónastofan Illiðarvegi
18 og Skjólbraut 6 — Slmi
40087.
Bréf frá
lesendum
#
iiimiiliiiiílllll
II
ffl'l
liiM18MMI ÍIim1Í,IIl
Tveir i höggi
Kæri Landfari!
Það er nú langt siðan ég sendi
TAIKO T 805
I stereo
I segul
bands
I tæki
í bílínn
fyrir
sumar
ferðalagið
3
T
ARMULA 7 - SIMI 84450
þér linur, og er máski „bættur
skaðinn”. Ég mun i þessum linum
sem fyrr, hlaupa úr einu i annaö,
og verður mér þá fyrst fyrir að
minnast á sjálfsagt mjög mein-
lega prentvillu i grein um efna-
hagsbandalagið, sem birtist á 13.
siðu Timast 26. júli. Þar stendur
m.a. „i 2. gr. bókunar nr. 6. áskil-
ur Efnahagsbandalagið sér rétt
til að láta ekki koma til fram-
kvæmda ákvæði varðandi tolla-
lækkanir á sjávarafurðum, nema
viðundandi lausn fengist á land-
helgismálinu. Vegna þessa
ákvæðis, lýsir rikisstjórn tslands
þvi yfir, að hún telur sér ekki fært
að fullgilda samninginn nema
Efnahagsbandalagið láti bókun
nr. 6. koma til framkvæmda.”
Mér skilst, að hér sé haft alveg
hausavixl á orðalaginu og það
verða i æpandi mótsögn við það
sem maður hefir lesið áður um
þetta mál, þvi það er einmitt
þessi varnagli sem Efnahags-
bandalagið hefir slegið, sem
skiptir okkur öllu.
En svo var það annað: Sem sé
„þjóðgarður Guðs almáttugs”.
Omar Valdimarsson skrifar
fjörlega grein um Flatey á
Breiðafirði með þessari yfir-
skrift, en þar kennir nokkurs mis-
skilnings. 1 fyrsta lagi er fyrir-
sögnin út i hött, þvi i slikum þjóð-
garði, sem gæti borið slikt heiti,
yrðu að finnast öll dýr, sem guð
hefur skapað, en það er nú
eitthvað annað en svo sé i Flatey^
þótt fjölskrúðug sé. Þar yrði lfka
að finnast allar tegundir af jurt-
um, smáum og stórum.
I öðru lagi er það mikið rang-
hermi, að timinn standi i stað i
Flatey frekar en annars staðar.
Þar hafa orðið geysilegar breyt-
ingar siðustu þrjá áratugina, þvi
miður flestar á þann veg, er til
hrörnunar telst, enda kveður
listaskáldið góða svo: „Það er
svo effitt að standa i stað, og
W s — ' ymmmrn
J ‘
SUMAR
LEYFI
Sumarleyfi eru hverjum manni nauðsynleg tilbreyting frá
önn og áhyggjum. Það er því mikilvægt, að þau verði fólki
til sem mestrar ánægju og hressingar. Landið okkar býr
yfir endurnýjandi krafti á víðáttum tiginna öræfa og í fögr-
um, blómlegum byggðum.
Fá héruð eru veðursælli en Eyjafjörður. Frjósöm mold
hans stendur undir blómlegum búskap og góðum efna-
hag. Reisuleg bændabýli vekja ferðamanninum nýja trú
á glæsta framtíð íslands.
Akureyri er hjn sjálfkjörna bækistöð gesta héraðsins, og
hefur upp á flest það að bjóða, sem hugurinn girnist.
Kjósið þér útilíf eru tjaldstæðin tilbúin. Sundlaug, íþrótta-
svæði og gönguleiðir til allra átta, hvort sem er með sjó
fram eða til fjalla. Söfnin í bænum bjóða gestinum margs
konar fróðleik og nána snertingu við fortíðina, t. d. Minja-
safnið og hús skáldanna Davíðs, Matthiasar og Nonna.
Þeir, sem hneigjast að verklegum framkvæmdum, geta
hér kynnzt nútíma iðnaði hjá verksmiðjum samvinnuhreyf-
ingarinnar, en hún á hér öruggt vígi.
Kaupfélag Eyfirðinga býður upp á alhliða þjónustu. Það
er því ekki nauðsynlegt að íþyngja sér með of miklum
farangri í sumarleyfisferð til Akureyrar. Hinar ýmsu við-
skiptadeildir KEA sjá yður jöfnum höndum fyrir öllu, sem
viðkemur ferðalögum, hvort sem um er að ræða útivist
og tjaldbúðalif, eða húsnæði og fæði í bænum. I öllum
bæjarhverfum finnið þér kjörbúðir vorar, sem fúslega
aðstoða yður við val lystugra og nærandi matvæla í nest-
ið. Og mörgum þykir handhægt og gott að fá sér heitan
mat á Matstofu KEA og nýlagaðan kaffisopa. Þeir, sem
hærri kröfur gera, kjósa að búa á Hótel KEA og neyta
þar veizlumatar að eigin vali.
Kaupfélag Eyfirðinga óskar yður góðs og endurnærandi
sumarleyfis og vill með þjónustu sinni stuðla að því, að
svo megi verða.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AKUREYRI
AÐALSKRIFSTOFA: HAFNARSTRÆTI 91-93 - SÍMI (96)21400 (SAMBAND VIÐ ALLAR DEILDIR)
mönnunum munar, annaðhvort
aftur á bak, ellegar nokkuð á
leið”.
Ó.V. verður það á, að rangfeðra
annan bóndann i Flatey, Jó-
hannes. Við hér vestra höfum
fyrir satt, að hann sé sonur Gisla
hreppstjóra i Skáleyjum, en ekki
Guðjónsson. Þá er það rang-
hermi, að fyrrum hafi dvalizt 400
manns i Flatey. Þvi þar munu
aldrei hafa átt heimilisfang sam-
timis fleiri en 200. Höfundur nefn-
ir þá, sem nú búi i Flatey. Hann
gleymir þó að geta feðga, sem
lengst hafa dvalizt i Flatey af
þeim, sem eru heimilisfastir þar
nú, nefnilega Arna Einarssonar
bátasmiðs, og Hafliða, sonar
hans.
Það er máski af þvi, að ég er
orðinn gamall, að mér þykir
niðurlag ritgerðarinnar ósæmi-
lega gáskafullt. Þar segir: „Það
er engu öðru likara en guð al-
máttugur hafi viljað marka sér i
Breiðafjarðareyjum dálitinn reit
handa sjálfum sér i ellinni”.
Ég þekki ekki hugsunarhátt
ungra manna nú á afstöðu þeirra
til guðdómsins. Sjálfur held ég, að
þessi blessaða vera, eða hvað það
nú er, sem við nefnum guð, hafi
engan aldur, þvi hún sé eilif og
óumbreytanleg.
Guðmundur Einarsson
á Brjánslæk
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustfg 3A. II. hæð.
Símar 22911 — 19255.
FASTEIGNAKAUPENDUR
Vanti yður fasteign, þá hafið
samband við skrifstofu vora.
Fasteignir af öllum stærðum
og gerðum fullbúnar og í
smíðum.
FASTEIGNASELJENDUR
Vinsamlegast látið skrá fast-
eignir yðar hjá okkur.
Áherzla lögð á góða og ör-
ugga þjónustu. Leitið uppl.
um verð og skilmála. Maka-
skiptasamn. oft mögulegir.
Önnumst' hvers konar samn-
ingsgerð fyrir yður.
Jón Arason, hdl.
Málflutningur . fasteignasala
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Hugsum
áður en viö
hendum 0