Tíminn - 04.08.1972, Síða 5

Tíminn - 04.08.1972, Síða 5
Föstudagur 4. ágúst 1972 TÍMINN 5 Skiptar skoðanir um biðstöðuna Framhald af bls. 3. er mjög þekktur skákfréttamaður i heimalandi sinu. Hann skrifar fyrir timarit i Zagreb, en er auk þess afkastamikill rithöfundur. (Hann hefur skrifað alls 6 bækur, sem gefnar hafa verið út alls 12 sinnum i Júgóslaviu. Nýjasta bók hans fjallar m.a. um Fischer. Þá hefur hann gert kvikmynd og sjónvarpsþætti með áskorandan- um. Nu hefur hann i hyggju að skrifa bók um heimsmeistaraein- vigið i samvinnu við Tigran Petrosjan). Ég spyr Bjelica, hvort skáká- hugi sé almennur i Júgóslaviu.' ,,Já, næstum allir hafa áhuga á skák. Ahuginn er tvimælalaust meiri en i flestum öðrum lönd- um”. Þá vil ég fá vitneskju um vinsældir þeirra tvimenninganna i Júgóslaviu. ,,Ég þekki þá báða mjög vel”, segir Bjelica. „Þeir eru mjög vinsælir i Júgóslaviu, báðir tveir. Fischer hefur stóran aðdáendahóp, enda kaus hann að tefla i heimalandi minu, öðrum löndum fremur”. Ég kveð þennan viðkunnalega mann, enda fjölgar nú leikjunum. SPENNA FÆRIST YFIR — BIÐSTAÐA Uppskipti eiga sér stað og innan skamms er skákin orðin spenn- andi. Ég heyri það út undan mér i pressuherberginu, að Banda- rikjamaður hefur veðjað við landa sinn um úrslitin, — öruggur um, aö Spasski vinni ekki. Fischer er með betri tima, eins og venjulega. Og enn knýr hann heimsmeistarann i uppskipti; mönnum fækkar að sama skapi á taflborðinu. Eftir 25. leik telur IngiR að Fischer hafi heldur betri stöðu. Nú liður að 40. leik. Fischer hef- ur skiptamun á Spasski, en heimsmeistarinn hefur á móti tvö allsterk samstæð fripeð (svo not- að sé hárfint fagmál). Að loknum 40 leikjum fer svo þessi 10. einvigisskák i bið. Bið- skákin verður tefld kl. hálfþrjú i dag. S A G T U M BIÐSTÖÐUNA Ingi R. Jóhannsson: „Fischer hefur betri stöðu, eins og er.” William Lombardy: „Staðan er mjög flókin og á þessari stundu er engu hægt að spá um framhald- ið.” Guðmundur Sigurjónsson: „Ég hef ekki athugað stöðuna og á þvi erfittmeðaðtjá mig um hana. Þó hefur Fischer vissa möguleika, en á móti koma möguleikar Spasskis, a.m.k. til að halda jöfnu.” Diinitrije Bjelica: „Staða Fischers er betri, en það verður erfitt fyrir hann að vinna skákina.” Bent Larsen: „Dead lost for black! — Gjörtapað á svart. Þetta er aðeins spurning um aðferð eða tækni hjá Fischer að vinna þessa skák.” Svctozar Gligoric: „Fischer stendur betur að vigi. Ég get hins vegar ekki spáð um framhaldið.” Frank Brady: „Fischer á vinningsleið i þessari stöðu.” Friðrik ólafsson: „Það er erfitt að meta biðstöðuna. Ég tel, að hvitur eigi jafntefli, ef hann kærir sig um. Hins vegar er tvisýnt, hvort hvitur eigi vinningsleið — og ekki með öllu áhættulaust fyrir hann að reyna að knýja fram vinning.” SAMIÐ UM ÚTGÁFU NÝRRA MINNISPENINGA Skáksambandið hefur nú samið um sláttu nýrra minnispeninga. Samningar þar að lútandi voru undirritaðir i gær og sér Bárður Jóhannesson um gerð þeirra. Brúttóverðmæti þessara nýju peninga verður u.þ.b. 20 millj. kr„ á móti 7 millj. kr. brúttóverð- mæti eldri peninganna. Minnispeningarnir verða slegn- ir i gulli, silfri og bronsi. Á fram- hlið þeirra verða vangamyndir af keppendunum, Spasski og Fisch- er, en bakhliðin áletruð. Sýnis- horn af þessari nýju gerð liggur liklega frammi um næstu helgi og framleiðsla hefst þá i næstu viku. 1 lokin má geta þess að ekkert nýtt hefur gerzt i kvikmynda- þrætunni annáluðu. Þar rekur hvorki né gengur. Chester Fox hefur þó sagt flestum mynda- tökumönnum upp störfum, aðeins þrir kvikmyndatökumenn starfa áfram á hans vegum. Fox sagöi þó i gær, að myndatökumennirnir hefðu verið fúsir að biða átekta, reiðubúnir, ef á þyrfti að halda. Jón Sigurðsson, kaupmaöur i Framnesi i Breiðholti 3, fyrir framan borðið ihinni nýju verzlun sinni. (TImamynd:Gunnar) LOKS VERZLUN I BREIÐHOLTI III ÓV-Reykjavik 1 gærmorgun opnaði Jón Sigurðsson kaupmaður nýja verzlun i Breiðholti III og hefur þar með verið bætt úr brýnni þörf ibúa þar, en engin verzlun hefur verið i þeim hluta Breiðholts- hverfis til þessa. Varla þarf Jón að kvarta yfir fáum kúnnum i framtiðinni, þar sem reiknað er með að alls verði 13.000 manns i Breiðholtshverfi fullbúnu. Verzlunin nýja heitir „Fram- nes” rétteins og verzlun, sem Jón rak á Nesveginum i fjölda ára, og fást þar allar nauðsynlegar mat- vörur, nýlenduvörur, kjöt og mjólk. Framnes er glæsileg verzlun og er meðal annars i henni fullkomn- asta kælikerfi landsins, aðeins á skurðlækningadeild Borgar- sjúkrahússins er jafn fullkomið kerfi. BR0NC0 ’66 Til sölu er Bronco árgerð 1966 i mjög góðu ástandi. Upplýsingar i sima 12504 og 40656 eða 41013. Vélaverkstæði J. Hinriksson, Skúlatúni 6. Lokað vegna sumarleyfa 10. — 23. ágúst Vélvirkjar og rafsuðumenn óskast til starfa að loknum sumarleyfum. Simi 23520. Heimasimi 35994. AUGLÝSING UM GJALDDAGA 0G INNHEIMTU ÞINGGJALDA í KÓPAV0GI Skattskrá fyrir árið 1972 hefur verið lögð fram i Kópavogi og hefur gjaldendum ver- ið sendur álagningarseðill, þar sem til- greind eru gjöld þau, sem greiða ber sam- kvæmt álagningu 1972. Þinggjöld, sem greiða ber 1972, eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjald, slysatrygginga- gjald vegna heimilisstarfa, iðnaðargjald, slysatrygging- argjald atvinnurekenda skv. 36. gr. Iaga nr.. 67/1971, lif- eyristryggingagjald skv. 25. gr. sömu laga, atvinnuleysis- tryggingagjald, alm. launaskattur, sérstakur launaskatt- ur, kirkjugarðsgjald og iðnlánasjóösgjald. Samkvæmt ákvæðum i reglugerð nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. lög nr. 68/1971 og lög nr. 7/1972, ber hverjum gjaldanda að greiða álögð gjöld, að þvi frádregnu, sem greitt hefur verið fyrirfram, með 5 jöfnum greiðslum 1. ágúst, 1. sept., 1. okt., 1. nóv., og 1. desem- ber. Vanskil að hluta skv. framansögðu valda þvi, að allir skattar gjaldandans á gjaldárinu falla i eindaga 15 dögum eftir gjalddagann og eru lögtakskræfir ásamt kostnaði þ.á.m. dráttarvöxtum. Gjaldendum er skylt að sæta þvi, að kaup- greiðendur haldi eftir af kaupi þeirra til- skyldum mánaðarlegum greiðslum, enda er hverjum kaupgreiðanda skylt að ann- ast slikan afdrátt af kaupi, að viðlagðri eigin ábygð á skattskuldum starfsmanns. Kópavogi, 2.. ágúst 1972. Bæjarfógetinn i Kópavogi. VEGNA VERZLUNARMANNAHELGARINNAR HÖFUM VIÐ 0PIÐ TIL KL. 8 í KVÖLD Ú 'Jt U |/ i^f cyftusturstræti L0KAÐ Á LAUGARDAG

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.