Tíminn - 04.08.1972, Page 8
8
TÍMINN
Föstudagur J. ágúst 1!(72
120 ÞÚSUND MANNS ÚT A
ÞJÓÐVEGINA UM HELGINA
OV-ÞÓ-Reykjavik
I kvöld hefjast samkomur og
mót sem efnt hefur veriö til um
verzlunarmannahelgina og eru
þau fleiri og fjölbreyttari en
nokkru sinni fyrr. Blaðamenn
Timans hafa tekiö saman greina-
búta um allt þaö helzta sem
skeður um þessa helgi og kennir
þar ýmissa grasa. Meöal annars
kemur fram að búist er viö allt að
40 þúsund bilum á vegum lands-
ins og reiknað er meö, aö 120. 000
manns, rúmlega helmingur
þjóðarinnar, fari út á þjóðvegina i
lengri eða skemmri tima.
20.000 manns í Húsafelli?
Viðamesta skemmtunin verður
vafalaust i Húsafellsskógi, þar
sem Ungmennasamband Borgar-
fjarðar stendur fyrir hinni árlegu
sumarhátið. I fyrra voru þar á
milli 15 og 20 þúsund manns og
haldisl veðrið sæmilegt, má telja
nær öruggt, að sú tala haldist
nokkurn veginn sú sama.
Korráðamenn hátiðarinnar (og
UMSB) segjast vera viðbúnir tií
að taka á móti allt frá 1000 til
20.000 gestum og má búast við, að
útgjöld, vegna mótsins, sem i
fyrra voru tæpar3 milljónir, auk-
ist töluvert.
Knginn vafi er á, að Sumarhá-
tiðin i Húsafelli verður fjölmenn-
asta samkoman þessa helgi;
nægir að ganga fjölfarnar götur
til að heyra ungt fólk hvarvetna
tala um Húsafell, Húsafell og aft-
ur Húsafeli. Aðstandendur Sum-
arhátiðarinnar stila samkomuna
aðallega upp á að vera fjölskyldu-
samkomu og á yfirlitskorti, sem
UMSB hefur gefið út, kemur i ljós
að á svæðinu verða þrennar fjöl-
skyldutjaldbúðir og aðeins einar
eingöngu ætlaðar unglingum.
Kngu að siður má telja fullvist, að
meirihluti gesta á Húsafellsmót-
inu verði ungt fólk og unglingar.
A blaðamannafundi nýlega, þar
sem forráðamenn UMSB ræddu
um og kynntu Sumarhátiðina ' 72,
viðurkenndu þeir, að vissulega
væri hætta á, að ölvun yrði tölu-
verð og áberandi, en þó sögðust
þeir ekki hræðast slikt. A Sumar-
hátiðinni i fyrrasumar var minn-
sta ölvun, sem um getur á Húsa-
fellsmóti og er þvi ekki hægt að
vonast til annars, en að hún fari
enn minnkandi.
I mótsskrá fyrir mótið nú um
helgina, ritar Vilhjálmur Kinars-
son, sambandsstjóri UMSB, grein
um mótið i fyrra og segir hann
þar meðal annars. að töluverð
óvissa hljóti alltaf að rikja um
slikar samkomur, komi þar til
bæði fjárhagslega hliðin svo og
vcðrið. Siðan segir Vilhjálmur
orðrótt:
,,Auk þess bættist sl. sumar viö
óviss þáttur, sem af öðrum toga
er spunninn: uppfærsla á sam
komum, sem höfða til fjöldans, án
þess að nein sambærileg vinna
væri lögð i undirbúning og hvers
kyns viðbúnað. Það eina, sem
sambærilegt mátti kallast, voru
auglýsingar og fréttir i fjölmiðl-
um. sem virtust svo helteknir af
eins konar hlutleysisstefnu eða
..jafnaðarmennsku", að ekki
mætti greina satl og rétt frá stað-
reyndum.''t lok greinar sinnar
segir Vilhjálmur svo:
,,Knn einu sinni mun UMSB
freista þess, að halda menningar-
lega sumarhátið. Þar verður ekk-
ert til sparað lil að glæsileg
skemmtiatriði geti farið vel og
skipulega lram.
Fer almenningur ekki að skilja
það, að algert áfengisbann er
nauðsyn á slikum samkomum?
Von okkar er sú, að ábyrgir
aðilar skilji, áður en það er um
seinan, hvers virði það er að stað-
ið sé að þessum málum. ekki að-
eins á einum stað heldur og alls
staðar á landinu. með ábyrgum
hætti."
Skemmtiatriði á Húsafellsmót-
inu verða með svipuðu sniði og
áður, gestir verða þiggjendur ein-
göngu. enda segja UMSB-menn
að annað hafi reynzt vonlaust.
Dansað verður á þremur pöll-
um öll kvöldin, þar verður
iþróttakeppni. fallhlifastökk,
varðeldur, flugeldasýning, fim-
leikasýning. hátiðarræða hjá
Hagalin og hvorki meira né
minna en 6 hljómsveitir
skemmta: Ingimar Kydal. Trú-
brol, Stuðlatrió, Nafnið, Roof
Tops, Náttúra og auk þess Lúðra-
sveit Stykkishólms. Þess utan
skemmta Rió trió, Magnús &
Jóhann. Omar Ragnarsson,
Sigurður Rúnar Jónsson og fleiri.
Vaglaskógur: 10-12
þúsund manns
Norðlendingar munu sennilega
flestir fará i Vaglaskóg um
verzlunarmannahelgina. þar sem
haldið verður mikið mót á vegum
margra aðila. Hefst það strax i
kvöld, föstudagskvöld. óopinber-
lega þó. þvi að það verður ekki
sett formlega fyrr en á laugar-
dagskvöld.
Við ræddum við Svein Krist-
jánsson. mótsstjórann. en hann er
fulltrúi IOGT i undirbúnings
nefndinni. Sagðist Sveinn búast
við,að allt að 13.000 manns kæmu
á mótið ef vel viðraði. i fyrra
hefðu sótt það um 10.000 manns og
allir farið heim mjög ánægðir.
Þvi hefðu aðstandendur mótsins
lagt töluvert meira i það, sem
hefst i kvöld. og vonuðust að sjálf-
sögðu til, að það yrði til að auka
fjölda samkomugesta.
Dansleikir verða öll þrjú kvöld-
in i Vaglaskógi og eru það hljóm-
sveitirnar Roof Tops og Hunang,
sem leika i Brúarlundi.
Til skemmtunar verða danskir
fimleikaflokkar, Jón Gunnlaugs-
son, sem jafnframt verður kynnir
mótsins, mæðginin Sigriður og
Reynir Schioth, Hörður Torfason,
varðeldur. flugeldasýning-. Arni
Johnsen. sem auk þess flytur
aðalræðuna á sunnudag. Karius &
Baktus (Borgar Garðarsson og
Margrét Guðmundsdóttir) söng-
trióiö Litið eitt, knattspyrna og
fleira. Séra Þórhallur Höskulds-
son sér um helgistund eftir hádegi
á sunnudeginum og klukkan 16-18
þann dag verður unglingadans-
leikur, þar sem hljómsveitin
Hunang frá Akureyri leikur.
— Og að sjálfsögðu, sagði
Sveinn Kristjánsson að lokum. —
er áfengisneyzla bönnuö og mun
verða bæði sjúkravakt og lög-
regla fyrir á staðnum ef illa fer,
en auðvitað vonumst viö til að svo
fari ekki.
Þau félög, ser að mótinu i
Vaglaskógi standa, eru eftirtalin:
Héraðssamband Þingeyinga.
Iþróttabandalag Akureyrar,
Ungmennasamband Eyjafjarðar,
Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju,
IOGT, Skátafélag Akureyrar og
auk þess eru Æskulýðsráð Akur-
eyrar og Félag áfengisvarna i
Kyjafirði til stuðnings fyrr-
greindum félögum.
Sveinn sagðist ekki telja, að
ölvun yrði vandamál á þessu
móti, i fyrra hefði hún ekki verið
meiri en svo, að ekki tæki að ræða
það.
Um veðurwildi hann að sjálf-
sögu engu spá, en benti á, að allt-
af væri logn i Vaglaskógi — þrátt
fyrir. að þar gæti orðið hvinur i
trjám.
Engin lögregla
i Galtalækjarskógi.
lslenzkir ungtemplarar standa
fyrir bindindismóti i Galtalækar-
skógi um helgina og hefst það
formlega á morgun. 1 kvöld verð-
ur þó dansleikur i skóginum og er
það hljómsveitin Svanfriður, sem
leikur.
I fyrra voru rúmlega 5000
manns i Galtalækjarskógi og
segjast forráðamenn mótsins bú-
ast við nokkuð fleirum nú — og
eru vissir, haldist veðrið jafn
yndislegt og það hefur verið und-
anfarna tvo daga.
Engin lögregla verður i Galta-
lækjaskógi, þar hefur að sögn
ungtemplara aldrei þurft á lög-
reglu að halda og sjá þeir sjálfir
um nauðsynlega gæzlu.
Til skemmtunar veröa dans-
leikir með Svanfriði og Stormum,
sem leika gömlu dansana, ómar
Ragnarsson og Þrjú á palli
skemmta, setið verður við varð-
eld og horft á flugeldasýningu,
Bindindisfélag ökumanna stend-
ur fyrir góöaksturkeppni, Jónas &
Einar syngja. Edda Þórarins-
dóttir sér um barnatima, Gisli og
Gordon koma fram og Hafsteinn
Þorvaldsson, formaður Ung-
mennafélags íslands flytur hátið-
arræðuna. Séra Björn Jónsson i
Keflavik sér svo um helgistund.
A öll mótin verða sætaferöir frá
Umferðarmiðstöðinni og er nánar
getið um þær i auglýsingum
framkvæmdaaðila mótanna.
,,Iílóm” einkenni þjóð-
hátiðarinnar i Vest-
mannaeyjum.
Þjóðhátiðin i Vestmannaeyjum
verður haldin á hefðbundinn hátt,
og verður þessu sama formi hald-
ið allt til þjóðhátiðarársins 1974.
Hermann Einarsson, fréttarit-
ari Timans i Vestmannaeyjum,
sagði,að það væri lþróttafélagið
Þót; sem sæi um hátiðarhöldin að
þessu sinni. Þórsmenn hafa efst i
huga aö menn skemmti sér i sátt
og samlyndi að þessu sinni. Þess
vagna er nú búið að skreyta
Herjólfsdal með blómum og rós-
um.
Þjóðhátiðin i Eyjum hefst á
föstudaginri með lúðrablæstri,
þar á eftir veröur guðsþjónusta,
séra Jóhann Hliðar prédikar^ kl.
16 veröur miðdegisskemmtun i
Herjólfsdal. Þar koma fram Tóti
trúöur, Sigga Maja, Þrír
flamingó dansarar og Karl Ein
arsson. — Þessu næst verður sýnt
bjargsig af Fiskhellanefi og á eft-
ir veröur barnadans, hljómsveit-
in Eldar leikur fyrir dansi.
Fyrir kvöldmatinn verður knatt
spyrnukeppni, en eftir kvöldmat-
inn hefjast skemmtiatriði, sem
nefnast Kátt er i Fjallasal. Þar
koma fram m.a. hljómsv. .
Haukar, Þorvaldur Halldórsson,
Rió trió, Þrir flamingó dansar
ar, Guörún A. Simonar. Tóti
trúður, Leikfélag Vestmanna
eyja og Þrjú á palli, siðan veröa
dansleikir á báðum pöllunum, og
kl. 24 verður brenna á Fjósakletti
og flugeldasýning.
Á laugardeginum veröur margt
til skemmtunar, en þá hefst dag-
skráin kl. 14 með þvi að Lúðra-
sveit Vestmannaeyja leikur, kl.
14.30 verður hátiðarræðan flutt,
þessu næst verða iþróttir og kl. 16
hefst miðdegisskemmtun i
Herjólfsdal. Þar koma fram
Ómar Ragnarsson, Tóti trúður,
Rió trió og Leikfélag Vestmanna-
eyja. A eftir þessu verður háður
knattspyrnuleikur milli unglinga-
landsliðsins og Noregsfara IBV.
Barnadans er svo kl. 17.30 og nú
eru þaö EYmenn, sem leika fyrir
dansi. Kl. 20.30 hefst Kátt er i
Fjallasal, þar koma fram m.a.
hljómsveitin Haukar, og Karl
Einarsson. Siðan verða dans
leikirá báðum pöllum tíl kl. 04, en
kl. 24 veröur flugeldasýning.
Sunnudagurinn hefst með létt-
um lögum i Dalnum kl. 14, þessu
næst verður miðdegisskemmtun i
Herjólfsdal og um kvöldið verður
dansað á báöum pöllunum.
Reiknaö er með, að á þriðja
þúsund manns heimsæki þjóð-
hátiðina i Vestmannaeyjum að
þessu sinni.
Lifandi manntafl i
Atlavik.
Austfirðingar munu, sem áður,
fara i Atlavik um verzlunar-
mannahelgina en þar verður
Ungmenna- og Iþróttasamband
Austurlands meö skemmtun. í
Atlavik byrjar dagskráin kl. 10 á
laugardagsmorgun, og stendur
hún að mestu óslitið til kl. 01
aðfaranótt sunnudags, er dans
leikjunum lýkur. Á sunnudaginn
hefst dagsskráin kl. 14 og verður
þar margt um að vera, þekktir
skemmtikraftar koma fram, og
lifandi manntafl verður. Ekki var
ákveðiö i gær, hverjir það yrðu,
sem stýrðu hinum lifandi tafl
mönnum. Á sunnudagskvöldiö
verða dansleikir, og það er hljóm-
sveit Ólafs Gauks og Amon R? frá
Neskaupstað, sem leika fyrir
dansi báða dagana.
Aðstaöa fyrir ferðamenn hefur
verið bætt á ýmsan hátt i Atlavik
á undanförnum árum, og nú er
reiknað meö, að allt að 6 þús.
manns komi i vikina. En i Atlavik
hefur veriö gifurlegur feröa-
mannastraumur undanfariö,
enda hefur veðrið á Austurlandi
verið með eindæmum gott i
sumar.
011 meöferð áfengis er strang-
lega bönnuði Hallormsstaðaskógi
á meðan á hátiðinni i Atlavik
stendur.
Larsen og Friðrik á Laug-
arvafni.
Héraðssambandið Skarphéðinn
verður með útiskemmtun á
Frh. á bls. 6
l&Ttlufuud/
Ferðafatnaður á alia fjölskylduna.
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
fást hjá okkur.
AUSTURSTRÆTI