Tíminn - 06.08.1972, Blaðsíða 17
Sunnudagur 6. ágúst 1972
TÍMINN
17
|Umsjón:fllfreð Þorsteinssor
- „Það er furðulegt að leikum, sem háðir eru í nafni lýðræðis, skuli
vera stjórnað af örfáum einræðisseggjum”, sagði Kekkonen.
Þá er farin að nálgast, sú stóra
stund, er Oly mpiueldurinn verður
tendraður, á Leikvanginum i
Miinchen. Þegar de Coubertin,
sem nefndur hefur verið faðir nú-
tima-Olympiuleikanna, hafði það
af að koma þeirn á, óraði hann
varla fyrir þeim framtiðar ósköp-
mn, sem cftir skapast i sambandi
við þessa leika.
Þau orð, sem eignuð eru Cou-
bertin, en eru raunverulega sögð
af Erkibiskupunum af
Pennsylvaniu, — að það sé ekki
mikilvægast að sigra, heldur að
vera með, — hafa löngu misst
gildi sitt. Það er orðin staðreynd,
að ólympiuleikarnir eru algjör-
lega notaðir sem áróðurstæki fyr-
ir stórþjóðirnar. Til þess að leik-
arnir missi ekki algjörlega gildi
sitt sem alþjóða iþróttamót, fá
smáþjóðirnar að vera með, og
stundum kemur það fyrir, að ein-
staklingur frá smáþjóð nær að
komast á pallinn, en það er sára-
sjaldan.
Uppi hafa verið raddir um
það, að slökkva hinn eilifa
Ólympiueld, að eilifu, og eru það
hin iþróttasinnuðu Norðurlönd,
sem þar eru fremst i flokki
Iþróttabandalag Osló borgar
hefur farið þess á leit, að Noregur
sendi engan þátttakanda á leik-
ana. Þó koma orð Urho Kekkon-
en, forseta Finnlands mest á
óvart, en Finnland hélt sem kunn-
ugt er ólympiuleikana 1952.
Kekkonen segir. — Það er furðu-
legt, að leikum, sem háðir eru i
nafni lýðræðis, skuli vera stjórn-
ar af nokkrum einræðisseggjum,
sem fara nákvæmlega sinu fram,
hvað sem hver segir. Hin svokall-
aða Alþjóða-ólympiunefnd
samanstendur af örfáum mönn-
um frá nokkrum þjóðum undir
forystu Avery Brundage, auðugs
Qhicagobúa.Þetta er ekki réttlátt,
þetta er svfvirða. Þeir aðilar, sem
sjá eiga um leikana eru Samein-
uðu þjóðirnar, sem aftur munu
fela UNESCO framkvæmdavald-
ið. A vetrarleikunum i Sapporo
skeði hneyksli, sem allir voru
ákveðnir i að þagga niður. í
Alþjóða-Ólympiunefndinni á
engin Austurrikismaður sæti, en
aftur á móti eiga Frakkar fulltrúa
þar. Var það til að geðjast þess-
um franska vini inum, sem
Brundage dæmdi Karl Schrans,
austurriska skiðakappann, frá
keppni, Schrans var of sterkur
fyrir frönsku skiðamennina. En
að Brundage hefði þorað að
hreyfa við Rússum eða A-Þjóð-
verjum það var af og frá. — Svo
mörg voru orð forsetans i ræðu,
sem hann hélt við hátiðarathöfn i
JyvSskylá háskólann i Mið Finn-
landi.
Þvi er spurningin sú. hvort
Ólympiuleikarnir séu úlfur i
sauðargæru. Smáþjóðirnar hafa
ekki möguleika á þvi að keppa við
stórþjóðirnar, þegar um það er að
ræða að framleiða iþróttamenn i
tilrauna og visindastofnunum.
En þrátt fyrir allt það sem áður
hefur verið sagt, hefur áhugi al-
mennings á Ólympiuleikunum
aukizt ár frá ári, og skulum við
vona, að það sé áhugi á hollustu
iþróttanna ásamt fleiru, sem þar
er að verki.
Þessi forskrif min hafa spunn-
izt af þvi, að kostnaður Þjóðverja
við Ólympiuleikana eru ,,einir
litlir” 72 milljarðar islenzkra
króna, og þvi timi til þess kominn
að sporna við þessum gengdar-
lausa peningaaustri, sem betur
mætti nota til uppbyggingar i
vanþróuðum löndum, þvi eins og
komiðhéfur fram hér i Timanum,
þá hættu grisku borgrikin öllum
væringum og orustum 10 mánuði
fyrir leikana, svo menn gætu æft
sig sómasamlega, svo mikil virð-
ing var borin fyrir Ólympiuleik-
unum. En i allri dýrðar og sýnd-
armennskunni, sem á sér stað á
okkar timum, til þess eins að
halda Olympiuleika, samanber
heimstyrjaldirnar tvær. Þvi tel
ég, að atvinnuhugsjón Forn
Grikkja i sambandi við Ólympiu-
leikana standi okkar „áhuga-
mennsku” langt um framar að
öllu leyti.
f.k.
::::
■■■■■■■■•■■■
Al Oerter konungur kringlukastaranna
gefur öðrum tækifærið
- hann hefur sigrað á fjórum OL-leikum í röð, en tekur ekki
þátt í OL-leikunum í Munchen
A Ólympiuleikunum i baráttan i kringlukasti yrðKmilli
Melbourne árið 1956 var það álit italans Consolini og Bandarikja-
margra „sérfræðinga” að aðal- mannsins Gordinen. Enginn
reiknaði með hinuml9 ára stú-
dcnt frá Bandarikjunum A1
Oerter. En þetta voru leikar
hinna óvæntu sigra. islending-
ar minnast án efa hinnar frá-
bæru frammistöðu Vilhjálms
Einarssonar i þristökki, þar
sem liann var handhafi Olympiu-
mets i tæpar :i klst. Það
var ekki fyrr en hið brasilíska
ofurmenni l)a Silva hafði skriðið
undir feld, og einbeitt scr, um það
bil þrjár klst. að honunt tókst að
stökkva sigurstökk sitt, og verja
Óiympiutitil sinn frá Helsingfors-
leikunum. En það er önnur saga.
Oerter lét ekki að sér hæða.
Hann setti nýtt Olympiumet og
kastaði kringlunni 56,35 m og
skauthinum „öruggu” sigurveg-
urum aftur fyrir sig. Oerter var
talinn einn af hinum sérstöku
bandarisku stúdentum, sem ekk-
ert þurftu annaö að gera, en að
æfa sig og ná árangri i sinni
iþróttagrein, þá yrðu þeim gefin
öll próf. Allavega var slikur áróð-
ur notaður af þjóðum andsnúnum
Bandarikjunum i pólitik.
Fátt fréttist af Oerter fram að
næstu Ólympiuleikum, sem
haldnir voru i Róm, höfuðborg
italiu. Þar, eins og oft áður, skeði
margt óvænt. italir eignuðust
þjóðhetju, 200 m hlauparann Ber-
utti. sem sýndi enga minnimátt-
arkennd gagnvart öllum stór-
stjörnunum og sigraði örugglega i
200 m hlaupi, án þess aö taka af
sér sólgleraugu sin. Blökkukonan
frá USA, Wilma Rundolph, átti'
þessa leika, með sinum afburða
hlaupastil og þremur gullverö-
launum. Og þarna kom mesti
kjaftaskur iþróttanna fyrst fram
á sjónarsviðið, hinn frábæri
hnefaleikari Muhammed Ali
(Cassius Clay), er sigraði i létt-
þungavigt. Og Oerter stóðst allar
árásir Dannek og félaga, og sigr-
aði kringlukastið á nýju Ólympiu-
meti 59,18 m.
Næst vikur sögunni til Tokio i
Japan. Þá var kominn framá
sjónarsviðið annar kringlukast-
ari frá Bandarikjunum, sem ógn-
aði veldi Oerters, en það var L.
Jay Silvester, major i banda-
riska hernum. Silvester hafði
unnið það ótrúlega afrek, að
kasta kringlunni 65,05 m, en met-
ið hafði verið dæmt af honum þar
sem völlurinn var lcm la*gri þar
sem kringlan lenti, en reglur
leyfðu. Var búizt við hörkukeppni
milli þessara aðila en Oerter var
ekki með neitt fum, þegar hann
Framhald á bls. 19
A myndinni sést A1 Oerter, þegar hann kastaði verðlaunakastið (gull)
aðeins 19 ára gamall á OL-leikunum i Melbourne.