Tíminn - 18.08.1972, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.08.1972, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 18. ágúst 1972 200 metrarnir syntir í víti SB-Reykjavik Tuttugu ferðalangar, islenzkir og erlendir, sem staddir voru i Mývatnssveit á mánudaginn, brugðu sér i sund i Viti og létu mjög vel af. Tveir fslendinganna piltur og stúlka notuðu tækifærið og syntu 200 metrana og fullyrða þeir, að sundið sé löglegt. Liklega er þetta i fyrsta sinn, sem 200 metrarnir eru syntir i Viti. Háskólafyrir- lestur um dróttkvæði Prófessor dr. og dr. phil. h.c. Hans Kuhn frá Kiel mun flytja opinberan fyrirlestur i boði Háskóla tslands mánudaginn 21. ágúst 1972,kl. 5.00 siðdegis i 1. kennslustofu. Fyrirlesturinn nefnir próf. Kuhn: „Uni skipun orða i drótlkvæðum hætti.” Fyrirlesturinn verður fluttur á islenzku og er öllum heimill aðgangur. Landsins ipróðnr - ýóar hróðnr BfiNAÐARBANKI ISLANDS HELLESENS HLAÐIÐ ORKU..... Bréf frá lesendum NÚ ER NÓG KOMIÐ Ég er einn þeirra mörgu, sem hefi verið svo lánsamur að sjá ts- land verða sjálfstætt riki og i öruggri höfn innan Sameinuðu þjóðanna. Ég hugsa til baka, þeg- ar við fengum okkar eigin fána. Ég hugsa til baka, þegar allir flóar og firðir voru fullir af fiski. Ég hugsa til bændanna við vikur og voga, sem höfðu ekki nema smákænur til að afla sjávarfanga, sem var lifs- spursmál fyrir afkomu sveitanna og okkar smáu kaupstaða. Allt gekk þetta vel, þar til togararnir komu og fóru að sýna getu sina við landið. Þeir eyðilögðu meira en þeir öfluðu og margt bænda- býlið við vikur og voga fór i eyði og heilu firðirnir. Svona voru grunnmiðin leikin. Og hvað gera þessar stóru riku þjóðir til að bæta okkur tslending- um þennan mikla skaða? b m iBll B Bb iHf ffl.BiH.ljli Ég hef heyrt að þeir séu að safna peningum. Ekki ætla þeir að nota þá peninga til fiskræktar. Nei ekki aldeilis. Ekki hvarflar að þeim að bæta fyrir gömul brot, sem erú mikil. Nei, ekki er svo góðu að heilsa úr þeirri átt. Þeir safna peningum til annars. Þeir peningar eru lagðir til höfuðs menningarlifi og mannsæmandi afkomu á þessu eyriki með lyga- áróðri gegn okkur. Það eru launin, sem islenzka þjóðin fær frá þessum elskulegu vinaþjóðum. Gleymt er þegar gleypt er. tslenzka þjóðin hefur oft fórnað miklu til að koma mat- vælum til sveltandi þjóða. Laun- in eru skráð nú i blöð og timarit stórveldanna. Ekki er þar minnzt á það, þegar togararnir voru að eyðileggja uppeldisstöðvarnar og eyða heilum byggðarlögum með rányrkju, sem ekki er hægt að bæta fyrir nema á löngum tima. Skelfiskur er mörg ár að vaxa og hvað bindur annað i lifkeðju sjávarins. Togari sem hefur stolizt inn fyrir mörkin getur valdið þvi tjóni, sem aldrei verður hægt að bæta fyrir með peningum eða sektum. Nú er nóg komið Bretar góðir. Hingað og ekki lengra. Þið hafið ekki tapað á samskiptunum við okkur, en við höfum haft af ykkur þungar búsifjar. Er ekki rétt að fara að koma meira jafn- vægi á i samskiptunum? Þ. Einar/Jónsson Kópavogur Höfum opnað aftur gæzluvellina við Hábraut og Hliðargarð, eftir gagngerðar breytingar. Félagsmálaráð. SUMAR- LEYFI Sumarleyfi eru hverjum manni nauðsynleg tilbreyting frá önn og áhyggjum. Það er því mikilvægt, að þau verði fólki til sem mestrar ánægju og hressingar. Landið okkar býr yfir endurnýjandi krafti á víðáttum tiginna öræfa og í fögr- um, blómlegum byggðum. Fá héruð eru veðursælli en Eyjafjörður. Frjósöm mold hans stendur undir blómlegum búskap og góðum efna- hag. Reisuleg bændabýli vekja ferðamanninum nýja trú á glæsta framtíð íslands. Akureyri er hin sjálfkjörna bækistöð gesta héraðsins, og hefur upp á flest það að bjóða, sem hugurinn girnist. Kjósið þér útilíf eru tjaldstæðin tilbúin. Sundlaug, íþrótta- svæði og gönguleiðir til allra átta, hvort sem er með sjó fram eða til fjalla. Söfnin í bænum bjóða gestinum margs konar fróðleik og nána snertingu við fortíðina, t. d. Minja- safnið og hús skáldanna Davíðs, Matthíasar og Nonna. Þéir, sem hneigjast að verklegum framkvæmdum, geta hér kynnzt nútíma iðnaði hjá verksmiðjum samvinnuhreyf- ingarinnar, en hún á hér öruggt vigi. Kaupfélag Eyfirðinga býður upp á alhliða þjónustu. Það er því ekki nauðsynlegt að íþyngja sér með of miklum farangri i sumarleyfisferð til Akureyrar. Hinar ýmsu við- skiptadeildir KEA sjá yður jöfnum höndum fyrir öllu, sem viðkemur ferðalögum, hvort sem um er að ræða útivist og tjaldbúðalíf, eða húsnæði og fæði i bænum. í öllum bæjarhverfum finnið þér kjörbúðir vorar, sem fúslega aðstoða yður við val lystugra og nærandi matvæla í nest- ið. Og mörgum þykir handhægt og gott að fá sér heitan mat á Matstofu KEA og nýlagaðan kaffisopa. Þeir, sem hærri kröfur gera, kjósa að búa á Hótel KEA og neyta þar veizlumatar að eigin vali. Kaupfélag Eyfirðinga óskar yður góðs og endurnærandi sumarleyfis og vill með þjónustu sinni stuðla að því, að svo megi verða. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AKUREYRI AÐALSKRIFSTOFA: HAFNARSTRÆTI 91-93 - SlMI (96)21400 (SAMBAND VIÐ ALLAR DEILDIR)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.