Tíminn - 18.08.1972, Blaðsíða 7
Föstudagur 18. ágúst 1972
TÍMINN
7
Snýr sér frá geimferðum
að trúboði
James B. Irwin geimfari,
lagöi nýlega geimferðirnar á
hilluna fyrir fullt og allt, og
sömuleiðis hætti hann störfum i
bandariska flughernum. Hann
hefur ákveðið að helga sig út-
breiðslu kristinnar trúar i fram-
tiðinni, en að þvi er hann sjálfur
segir, urðu geimferðirnar til
þess að hann fór að hugsa meira
um trúmál, en hann hafði gert
fram til þess tima. Þegar hann
var kominn út i geiminn og
horfði r til jarðarinnar, gerði
hann ser betur grein fyrir þvi
en áður, hversu litilmótlegur
maðurinn er i raun og veru
miðað við allt, sem drottinn
skapaði i upphafi vega. Hann
ætlar sem sagt að boða með-
bræðrum sinum kristna trú i
framtiðinni, og telur sig hafa
meiri möguleika en áður á þvi
að sannfæra þá um mikilleik
drottins.
BÍIhræin fjarlægö
Mikil herferð hefur staðið yfir
undanfarið ár i þeim tilgangi að
fjarlægja gamla bila og bilhræ,
sem hafa legið hér og þar i ná-
grenni Lyon i Frakklandi.
Einnig hafa bilakirkjugarðar
verið hreinsaðir. Nær þessi
hreinsunarherferð til um 120
kilómetra svæðis allt kringum
borgina. Á þessu eina ári hafa
34.710 bilar verið fluttir á brott
og færðir til hreinsunarstöðva,
sem mala þá mélinu smærra og
bræða siðan, en þessar stöðvar
eru aðallega á ítaliu. Hverjum
þeim, sem koma með ónýtan bil
var heitið sex dollurum eða um
720 krónur, en peningarnir,
sem i þetta fóru, komu frá
rikinu sjálfu, þvi meiningin er,
að svipuð herferð verði farin
annars staðar i Frakklandi og
siðar um allt landið. Verður þá
safnað fé til þess að standa
straum af þessum útgjöldum
með þvi að leggja sömu upphæð
á söluverð hvers nýs bils, sem
seldur verður i landinu.
Leikararnir og stríðið
Margir bandariskir leikarar
láta stjórnmál mikið til sin taka.
Þeir eru eindregnir stuðnings
menn hinna ýmsu forsetaefna
og margir þeirra hafa lika tekið
virkan þátt i baráttu fólks gegn
styrjöldinni i Vietnam. Leikar-
inn Charlton Heston réðst
nýlega á leikkonuna Jane Fonda
fyrir baráttu hennar gegn
Oövenjuleg
bygging
Borgin Neviges syðst i Ruhr-
héraðinu hefði aldrei orðið
þekkt utan Þýzkalands, ef arki-
tektinn Gottfried Böhm hefði
ekki reist þar óvenjulega bygg-
ingu. Þetta er kirkja, sem reist
hefur verið fyrir pilagrima, sem
koma til borgarinnar, og
sannarlega er byggingin
óvenjuleg útlits, eins og sjá má
á þessari mynd. Kinverski
biskupinn Chang Tso-huan vigði
kirkjuna.
mun drottningin hafa gert, og
fengið heldur dræmar undir-
tektir. Þesss vegna hefur hún
sagt sem svo, — þá segi ég bara
af mér. Ef drottningin segir af
sér, þarf hún ekki að spyrja
stjórnina um mannsefnið og
álitiðá honum. Hér er svo mynd
af hollenzku prinsessunum.
Lengst til vinstri er Christina,
siðan er Margriet og siöast
Irene, og svo sjáið þið hér lika
mynd af latæka
pianóleikaranum.
styrjöldinni þar eystra. Hann
sagðist ekki skilja, hvernig hún
hefði allt i einu orðið eins konar
hernaðarsérfræðingur og taldi,
að henni væri annað betur
gefið. Þá sagði hann ennfremur,
að hann hefði alltaf kosið
forsetaefni Demókrata fram til
þessa, en nú væri svo komið, að
hann ætlaði sér að styðja Nixon
forseta i kosningunum, þar sem
hann væri orðinn uppgefinn á
þvi fólki, sem alltaf væri að
dæma aðra og mótmæla i
landinu. Hann sagði, að sér væri
fyrir mestu, að stjórn forsetans
væri ákveðin, og hans boði
skyldi hlita.
★
Þjónusta borgar sig
Borgaryfirvöld i Paris hafa
komizt að þeirri niðurstöðu, að
þjónusta við almenning geti
borgað sig. Undirritaður hefur
verið verksamningur við fyrir-
tæki, sem ætlar að reisa 1500
strætisvagnaskýli, og siðan á að
koma fyrir simum i hverju
skýli. Skýlin munu ekki kosta
borgina neitt, þar sem gert
verður ráð fyrir, að selt verði
pláss fyrir tvö auglýsingaskilti i
hverju skýli. Siðan er búizt við,
að miklir peningar renni til
simans vegna almenningssima-
tækisins i hverju skýli.
Júlíana segir af sér
Miklar likur eru á þvi, að
Júliana Hollandsdrottning segi
af sér áður en langt um liður, og
þá er það af ást... og fyrir
ástina.... Mörgum dettur þá lik-
lega Bernhard prins i hug, en
hann kemur þessu máli alls ekki
við, heldur verður þetta fyrir
Christinu dóttur hennar.
Christina hefur dvalizt i
Quebec, þar sem hún hefur
stundað söngnám, og þar hefur
hún orðið ástfangin i ungum
fátækum pianóleikara, Emile
Bourrée. Drottningin hefur veitt
leyfi til þess að að dóttirin megi
giftast fátæka pianóleikaranum
sinum. En samkvæmt lögum og
reglum verður drottningin aö
spyrja stjórn landsins, hvort
hún fallist á mannsefnið. Það
H/Pkl/L — Mig langar i eitthvað af
— Þú átt bara að segja ,,]á en nýtizku fötum, en verðið má vel
ekki ,,ég varð”. vera gamaldags.
DENNI
DÆMALAÚSÍ
Vertu nú ekki að æsa hana upp
aftur, ég er rétt búin að róa hana.
Þetta er bara tilraun. Við skulum
rulla pappirnum upp aftur á
eftir.