Tíminn - 18.08.1972, Page 3
Föstudagur 18. ágúst 1972
TIMINN
3
Friðrik Ólafsson skrifar
um fimmtándu skákina
Hv.: Spasský.
Sv.: Fischer.
Sikileyjarvörn.
1. e4 ,
Nú virðast hafa orðið hlut-
verkaskipti með kempunum.
Spasský leikur ávallt kóngs-
peði fram i fyrsta leik, Fischer
hins vegar drottningar-
biskupspeðinu.
1,— c5
2. Rf3 dtí
3.d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 atí
6. Bg5 etí
7. f4 Be7
Fram að þessu hefur skákin
teflzt á sama hátt og þær 7. og
11., en hér breytir Fischer út
af. Hann álitur hollast að láta
„peðsránsafbrigðið” 7. —, Db6
8. Dd2 Dxb2 eiga sig um sinn,
en það endaði með ósköpum i
11. skákinni.
8. Df3 ,
Skákin fylgir nú troðnum slóð-
um i Najdorf-afbrigðinu (sem
byggist á 5. —, a6 leiknum).
8, — Dc7
9. 0-0-0
Þessi byrjun leiðir að jafnaði
til mikilla átaka og skemmti-
legra sviptinga, þar sem
minni háttar yfirsjón getur
skipt sköpum með teflendum.
Sérhver leikur krefst gaum-
gæfilegrar ihugunar.
9. — Rbd7
Reynslan hefur sannað, að
þetta er öruggasta framhald
svarts. 9. —, b5 er ekki tima-
bært i þessari stöðu vegna t.d.
10. Bxf6, Bxf6 11. Bxb5+!,
axb5 12. Rdxb5, ásamt 13.
Rbxd6+ og sv. er illa beygður.
10. Bd3
Hér sveigir Spasský nokkuð af
alfaraleiðum. Skarpasta
framhald hvits um þessar
mundir er talið 10. g4, sem er '
„þrælstúderað” fram i 20.
leik, ef ekki lengra. Spasský
vill beina skákinni inn á fá-
troðnar slóðir, án efa vel
undirbúinn. Þeir, sem vilja
kynna sér fræðin nánar, er
bent á byrjanabækurnar.
10, — b5
11. Hhel Bb7
12. Dg3
Mjög athyglisverð er manns-
fórnin 12. Rd5!, sem Kúbu-
maðurinn Jiminez kom fyrst-
ur á framfæri gegn Mecking i
Palma de Mallorca 1970, og
Júgóslafinn Velimirovic hefur
siðar notað með góðum
árangri. Heimsmeistarinn
virðist ekki trúaður á rétt
mæti þessarar fórnar. Leikur
hans hér er hnitmiðaður og
áreiðanlega liður i undirbún-
ingi hans fyrir skákina.
Drottningunnier vikið úr skot-
linu svarta biskupsins á b7 og
hv. hótar nú 13. e5.
12,— 0-0-0
Svarti kóngurinn er öruggast-
ur á drottningarvængnum,
eins og málum er nú háttað.
13. Bxf6!
Fischer á úr vöndu að ráða og
tekur það til bragðs að fórna
peðinu á g7 til að skapa sér
gagnfæri. Beinast virðist
liggja við, að svara siðasta
leik hvits með 13. —, Bxf6, en
hvitur skapar sér þá stór-
hættuleg sóknarfæri með 14.
Bxb5 o.s.frv. Eftir 13. —, gxf6
lendir svartur einnig i erfiðri
aðstöðu vegna 14. f5. Fischer
álitur peðsfórnina skársta úr-
ræðið.
13. — Rxf6
14. Dxg7 Hdf8
15. Dg3
Drottningin dregur sig út úr
landhelgi svarts að lokinni
árangursrikri ránsferð.
15, — b4
16. Ra4
Djarfleg ákvörðun er rétt, eins
og framhaldið sýnir. Riddar-
inn verður nokkuð utangátta á
a4, en gripur engu að siður inn
i atburðarásina.
16. — Hhg8
17. Df2 Rd7
Þegar hér var komið sögu
hafði Spasský notað u.þ.b. 50
minútur af umhugsunartima
sinum, en Fischer drjúgum
meiri tima eða 1 klst. og 25
minútur.
18. Kbl Kb8
Fischer fýsir ekki að vinna
peðið til baka, þar eð Spasský
næði þá vænlegum sóknarfær-
um: 18. —, Rc5 19. Rxc5, dxc5
20. Rf3, Dxf4 21. De2, Dd6 22.
Spassky
Friðrik
Fischer
Bc4, Db6 23. Re5! og hv. stend-
ur mjög vel.
19. c3
Eina ráðið til að gera
riddarann aftur að nýtum
manni.
19. — Rc5
20. Bc2 bxc3
Svartur græðir ekkert á 20. —,
Rxa4 21. Bxa4, bxc3 vegna 22.
Hcl og hvitur fær gott tafl.
21. Rxc3
Þar með er riddarinn orðinn
nýtur maður að nýju og
Spasský getur litið framtiðina
björtum augum. Biskupar
svarts vega þó nokkuð upp á
móti meiri liðsafla hvits.
21. — Bf6
22. g3 h5
23. e5! ?
Ákaflega tvieggjuð atlaga eins
og fljótlega kemur i ljós. Stað-
an opnast nú mjög, en ekki
Spasský i hag, eins og hann
virðist hafa álitið. Það er auð-
veltað vera gáfaður eftir á, en
manni sýnist ótrúlegt annað
en Spasský hefði getað tryggt
aðstöðu sina betur, áður en
hann lagði til atlögu.
23. — dxe5
24. fxe5 Bh8!
Ekki 24. —,Bxe5 25. Rdb5,
axb5 26. Rxb5, Db6 27. Hxe5 og
hvitur. Svartur biður þess
vegna með að drepa peðið á
e5, en það er dæmt til að falla,
áður en langt um liður.
25. Rf3 Hd8
Nú fer áhrifamáttur svörtu
biskupanna brátt að segja til
sin.
26. HxH+ HxH
Svartur hótar nú m.a. 27. —,
Rd3 sem skapar hviti örðug
úrláusnarefni. Spasský ákveð-
ur að hleypa öllu upp.
27. Rg5! ? Bxe5!
Fischer er fljótur að gripa
tækifærið.
28. Dxf7
Ekki 28. Rxf7, Bxc3 29. Rxd8,
Bxel og sv. vinnur.
28. — Hd7
Kemur i veg fyrir drottning-
arkaup og, blæs til atlögu gegn
hvita kóngnum.
29. Dxh5
Spasský virðist undarlega
kærulaus um þær hættur, sem
nú steðja að kóngi hans. Var-
legra var að skáka á f8 með
drottningunni og leika siðan
30. Rge4.
29. — Bxc3
30. bxc3 Db6+
31. Kcl
Eftir 31. Kal, Hd2 væri hvit-
ur i úlfakreppu.
31. — Da5
32. Dh8+ Ka7
33. a4
Nú er negum blöðum um það
að fletta, að Spasský berst fyr-
ir lifi sinu. Hvita staðan er
ekki bjargvænleg.
33. — Rd3+
34. Bxd3 Hxd3
Það er nánast kraftaverk, að
Spasský skuli takast að kom-
ast heill á húfi úr þessum
darraðardansi.
35. Kc2! Hd5 (?)
35. —, Hd8 er afgerandi. Ég
eftirlæt lesendum að finna
vinningsleiðina.
36. He4!
Spasský er hertur i margra
áratuga baráttu og hann veit
hvernig tefla skal vörnina. Nú
getur Fischer tekið riddarann
á g5, en hann vill meira.
36, — Hd8 (?)
37. Dg7
Yfirsást Fischer þessi leikur,
sem bjargar Spasský frá
bráðum dauða?
37. — Df5
38. Kb3 Dd5+
39. Ka3 I>d2
30. Hb4 Dcl +
Spasský lék biðleik i þessari
stöðu og koma ekki aðrir leikir
til greina en 41. Kb3 eða 41.
Hb2. Ekki verður séð i fljótu
bragði að Fischer eigi meira
en jafntefli i þessari stöðu.
Skemmtileg skák en ekki
gallalaus. Alagið er farið að
segja til sin!
FÖ.
Biðstaðan
ABCDEFGH
15. skákin fór í bið:
VINNUR FISCHER EÐA HELD-
UR SPASSKÍ JAFNTEFLI?
- Fox krefst 150 millj. kr. skaðabóta af Fischer vegna samningsrofs -
ET-Reykjavík.
15. einvigisskákin, sem tefld
var I gær, fór i bið eftir 40 leiki.
Fischer hefur betri stöðu, en óvist
er um úrsiitin.
Skákin hófst á Sikiieyjarvörn
og fékk Spasskí betra tafi upp úr
byrjuninni. Spasski hóf sókn á
kóngsvæng, en skildi drottningar-
vænginn eftir iitt varinn. Fischer
sá sér leik á boröi og hóf gagn-
sókn, sem leiddi til algerra stöðu-
yfirburöa hans. Sem fyrr segir.
Skákin fór i bið og verður bið-
skákin tefld i dag kl. 2,30.
Þótt byrlega blási fyrir Fischer
á taflborðinu, á áskorandinn i vök
að verjast annars staðar. Chester
Fox hefur nú stefnt honum fyrir
samningsrof og krefst skaðabóta,
sem nema 1,7 millj. dollara eða
i50 miiij. isl. króna! Það skiptast
þvi á skin og skúrir i lifi skák-
snillingsins þessa dagana.
Fischer forðast eitraða
peðið
Spasski hefur 15. einvigis-
skákina með e4,sem er vist eftir-
lætisleikur beggja keppenda.
Fischer, seinn að vanda, svarar
c5 og skákin siglir hraöbyri fram
á við með Sikileyjarvörn i bakið.
5. leikur svarts beinir henni i far-
veg Najdorf-afbrigðis, og kliður
fer um salinn: Ætli framhaldið
verði eins og i 11. skákinni, þegar
Spasski lék Fischer svo grátt, að
áskorandinn missti drottningu
eftir 24 leiki eða svo!
En Fischer forðast eitraða
peðið á b2 og leikur i 8. leik
traustara afbrigði Dc7 i stað Db6
áður. (Sú saga er sögð um banda-
riskan blaðamann, sem hingað
kom, að hann hafi sýnt mikinn
áhuga á „hinu eitraða peði”.
Náunginn kunni litið fyrir sér í
skák, en var snarlega kenndur
manngangurinn. Hann var alls
ekki ánægður með kennsluna.
„Hvaða peð af þessum 16 er
eitrað? Hvar er eitraða peðiö?”
spurði manngarmurinn i si-
fellu.)
Áskorandinn I erfið-
leikum — heims-
meistarinn nær peði
110-leik hugsar Fischer sig um
lengi. Ýmsir skákspekingar
spreyta sig á að spá fram i
timann hér i pressuherberginu.
m.a. Ingi R.,Larry Evans og
Robert Byrne. Niðurstaðan er á
eina leið: Fischer á úr vöndu að
ráða. Enn liður timinn og
áskorandinn er enn djúpt hugsi —
óvenjulegt fyrirbæri! Svo birtist
leikur hans á sjónvarps-
skerminum: langhrókun.
Spasski hremmir riddara
Fischers á f6 eins og hungraður
úlfur. Enn hugsar áskorandinn,
nú i u.þ.b. 20 minútur. Á meðan
gizka spekingar á framhaldið.
Flestir telja, að tvennt komi til
greina: Annaðhvort að drepa með
biskupnum (sem fljótlega er úti-
lokað) eða að drepa með g-
peðinu. Þá allt í einu gellur við
rödd hrópandans i eyðimörkinni:
„Kannski hann drepi bara með
riddara!” Og það stendur heima,
Fischer leikur svo, e.t.v. til að
þóknast hinum góðkunna ljós-
myndara Bjarnleifi Bjarnleifs-
syni, en uppástungan var hans.
Spasski er ekki seinn á sér að
taka peðið, sem honum býðst. Og
enn á ný lyftist brúnin á forsvars-
mönnum Skáksambandsins, þvi
að heimsmeistarinn stendur ó-
neitanlega betur að vigi.
Framhaid á 5. siðu.
Viðurkenning
Færeyinga
Rikisstjórnin undirritaði i
fyrradag samkomuiag við
Færeyinga um undanþágu-
heimiidir til handa færeyskum
fiskiskipum innan nýju 50
miina fiskveiðilögsögunnar
við tsland.
Skv. samkomulaginu veröur
skipum, sem skrásett eru i
Færeyjum, heimilt að stunda
iinu- og handfæraveiðar á
svæðinu milli 12 og 50 milna
innan fiskveiðilögsögunnar,
en skulu hlita sömu reglum og
isienzk skip við sams konar
veiðar. Skuiu forráðamenn
færeyskra skipa sækja um
veiðileyfi til islenzkra yfir-
vaida og felst þvi i þessu sam-
komulagi viðurkenning Fær-
eyinga á 50 milna fiskveiðilög-
sögu tslands.
Einvígi aldarinnar
Skákeinvigið hefur vakið
mikla athygli og mikið er ritað
um það og islenzk málefni i er-
lend biöð.
Skáksamband tslands sýndi
af sér mikla dirfsku er það
réðst i það að standa fyrir
þessu einvigi, sem nefnt hefur
vcrið einvigi aldarinnar. Þetta
er mikið fyrirtæki og
kostnaðarsamt og eins og öll
þjóðin hefur fylgzt með hefur
gengið á- ýmsu og erfiðleikar
Skáksambands islands oft
verið miklir. Með lagni og
iempni hefur Skáksamband-
inu þó tekizt að sigia milli
skers og báru. Standa vonir til
að talsvert hafizt upp I kostn-
að, en reiknaö hefur verið með
einhverjum bókhaldslegum
halla i fyrstu lotu. óbeinn hag-
ur tslendinga af þessu einvfgi
er hins vegar óreiknaniegur.
lians mun lengi gæta og
standa ófáir aðiiar i þakkar-
skuld viö forystumenn Skák-
sambands tslands.
Alþýðublaðið er ekki
lengur í höndum
Alþýðuflokksins
Aiþýðublaðið hefur haldið
þvi fram, þrátt fyrir opinberar
augiýsingar um annað, að Al-
þýðubiaðiö sé i eigu Alþýðu-
fiokksins. t Lögbirtingarblað-
inu, sem út kom i fyrradag er
tilkynning tii hlutafélagaskrár
frá Aiþýðublaðsútgáfunni h.f.
Þar eru eigendur blaðsins upp
taidir. Þeir eru Axel i Rafha,
Asgeir forstjóri Innkaupa-
stofnunarinnar og Benedikt
Jónsson framkvæmdastjóri
Hiimis h.f., er gefið hefur út
Vikuna. Konur þessara dánu-
manna eru einnig skráðar
hluthafar.
1 rauninni er það Sveinn
Eyjóifsson, framkvæmda-
stjóri Visis, sem er hinn eigin-
legi útgefandi Alþýðubiaðsins.
Hann er ekki skráöur eigandi
Aiþýöublaðsins að visu, en
hann er eigandi Hilmis h.f.
ásamt Axei I Rafha og fleir-
um.
t tilkynningunni i Lögbirt-
ingarbiaðinu til hlutafélaga-
skrár er Alþýðuflokkurinn
hvergi nefndur á nafn, hvað þá
Gylfi, og eru fyrri fréttir Tim-
ans um herleiðingu Alþýðu-
blaðsins i ihaldsherbúðunum
þvi I rauninni staðfestar þar
með opinberri tilkynningu.
—TK