Tíminn - 18.08.1972, Page 5
Föstudagur 18. ágúst 1972
TÍMINN
5
Framhald
af bls. 3.
Spurningin er aðeins, hvort þetta
nægi honum til vinnings.
Taflið snýst við —
enn einu sinni
Leikir hrannast upp og Spasski
virðist enn standa betur. 29.
leikur hann Dxh5 færir honum
enn eitt peö og hefur hann nú 2
peð umfram andstæðinginn. En
græðgin býöur upp á gagnsókn
Fischers á drottningarvæng.
Hann gripur lika gæsina meðan
hún gefst og stormar fram. Staða
heimsmeistarans lýkst upp og allt
1 einu nær áskorandinn undir-
tökunum, enn einu sinni.
Andrúmsloftið i Laugardals-
höllinni er vissulega þrungið
spennu á tiunda timanum.
Aðdáendur Spasskis trúa ekki
sinum eigin augum: Hann er með
2 peð yfir, en virðist samt ætla aö
tapa. Fylgismenn Fischers lifna
við, þ.á.m. bandarisku skák-
meistararnir i pressuherberginu.
Fischer sýnist sigurviss. í 36.
leik býðst honum biskup, en litur
ekki við honum. „Hann er sýni-
lega öruggur um sigur, þvi að ella
hefði hann drepið riddarann og
tryggt sér jafntefli.” Þetta eru
orð Inga R., en aðrir stara van-
trúaðir á stöðuna.
Eftir 40. leik fer skákin i bið og
flestir eru á einu máli um mögu-
leika i stöðunni: Möguleikarnir
eru Fischers megin. Spurning
hvort hann vinnur eða Spasski
heldur jafntefli.
Fischer stefnt
i New York
Chester Fox stefndi Róbert
FischerfyrirdómstóliNew York
i gær. Fox krefst skaðabóta úr
hendi Fischers vegna vanefnda
á samningum um kvikmyndun
heimsmeistaraeinvigisins.
Stefnufjárhæöin nemur hvorki
meira né minna en 1,7 millj.
dollurum (150 millj. isl. króna)
Ekki er enn afráðið hvort Fox
stefnir Fischer hér á landi, t.d
freistar þess að leggja löghald á
verðlaun áskorandans fyrir ein-
vigið.
Þá hefur borizt staðfesting frá
Romar s u ð u r - a f r i s k a
dávaldinum, á fyrra tilboði sinu.
Dávaldurinn býðst sem sagt til
þess að tefla við þá Spasski og
Fischer með bundið fyrir augu og
aöstoðarlaust. Hann legur 125
þús. pund undir (25 millj. isl.
krónur)
Fjárhagur S.í.
i deiglunni
Guðmundur G. Þórarinsson
forseti SI, sagði, nokkurt tap
fyrirsjáanlegt á einviginu. „Við
reynum hins vegar að draga úr
hallanum með ýmsu móti.” Hjá
Freysteini blaðafulltrúa fæ ég svo
upplýsingar um ýmsar leiðir.
Skáksambandið hefur nú samið
við bandariskt bókaforlag,
Warnes Publishing Inc í New
York, um útgáfu á pappirskilju
um einvigið. Úpplagið verður 250
þús. eintök og kostar kiljan lik-
lega 1,50 - 1,75 dollara. S1 hefur
þegar lagt fram sinn skerf til
útgáfunnar, sem kostar i heild 70
þús. dollara. Seljist eintökin upp,
nemur ágóði u.þ.b. 300 þús.
dollurum. S1 fær i sinn hlut 40%
þeirrar upphæðar, sem nemur
u.þ.b. 120 þús. dollurum (10 millj.
isl. krónum).
Þá hefur SI samið við Charles
Hi’Dalco, eiganda The
Chesshouse i New York um sölu á
ýmsum minjagripum frá ein-
viginu. Freysteinn var bjartsýnn
á fjárhag St og að tækist að koma
gripum þessum inn á Bandarikja-
markað.
Framhald
af bls. 1.
að þau yrðu ekki orðin reglulega
góð fyrr en eftir hálfan mánuð, en
þá yrði lika kominn góður berja-
vöxtur, ef engin áföll breyta
horfunum. 1 Austur-Barðastrand-
arsýslu eru krækiber komin vel á
veg. 1 Isafjarðardjúpi, þar sem
oft er mjög mikil berjaspretta,
eru aftur móti misjafnar horfur
að þessu sinni. Norðan Djúps er
að minnsta kosti litið um ber, var
okkur sagt á Skjaldfönn á Langa-
dalsströnd, og virðist sem berja-
visarnir hafi farið forgörðum i
vor.
Bezt að selja I
samlögum ef markaður
verður
Augljóst er af þvi, sem að
framan er sagt, að berjalöndin
munu geta gefiö talsvert af sér i
ár, verði þau ekki fyrir veruleg-
um hnekki núna siðari hluta
ágústmánaöar. Af þeim getur
Afengisverzlun rikisins bæöi
fengiö efni til vinnslu, sem hún
hefur lagt i kostnaö við að koma á
rekspöl, og eigendur berjalanda,
gert sér þau arðbær, ef þeir hafa
tima eða tómstundir til þess að
nytja þau.
Vert er að benda á það, aö
heppilegast er fyrir bændur að
hafa samlög um sölu á kræki-
berjum, sem Afengisverzlunin
kann aö kaupa, þar sem henni er
ekki fært aö veita smáslöttum
viðtöku.
Jón Rögnvalds
son látinn
Jón Rögnvaldsson einn
fremsti brautryöjandinn á sviði
garðyrkju og skógræktar á
Norðurlandi, andaðist 10. ágúst,
77 ára gamall. Hann var Fnjósk-
dælingur að uppruna, en fluttist á
barnsaldri að Fifilgerði i
Eyjafirði þar sem hann átti
heima meira en fimm áratugi.
Hann átti að baki merkilegan
og mikils verðan starfsferil, var
vakinn og sofinn við hugðarefni
sin og vann þeim allt, er hann
mátti i oröi og verki og rituðu
máli, enda sér þess viða stað.
Landbúnaðarráðuneytið um ummæli Björns Matthíassonar:
Niðurgreiðslur ekki framlagtil land-
búnaðar heldur hagstjórnaraðferð
Björn Matthiasson hagfræð-
ingur hélt þvi fram i erindi um
daginn og veginn i rikisútvarpinu
mánudaginn 14.ágúst, að 48% af
brúttó — tekjum bænda kæmu úr
rikissjóði, kr. 904 milljónir i
niðurgreiðslur landbúnaðarvara
innanlands,kr. 332 milljónir i út-
flutningsuppbætur og kr. 571
milljón i önnur útgjöld vegna at-
vinnugreinarinnar, semtals kr.
1817 milljónir.
Ráðuneytið telur ályktanir hag-
fræðingsins rangar og sér þvi
ástæðu til að gera athugasemdir
við fullyrðingar hans.
Ekki verður fallizt á að niður
greiðslur á landbúnaðarafurðum
verði taldar framlag til landbún-
aðarins, heldur eru þær hag-
stjórnaraðferð til áhrifa á verð-
lag og kaupgjald i landinu og þar
með framfærsluvisitölu. 1 þessu
skyni voru greiddar árið 1970,
eins og aður segir, kr 904
milljónir.
Samkvæmt rikisreikningi fyrir
sama ár voru heildarútgjöld á
vegum landbúnaðarráðuneytis-
ins, önnur en áðurnefndar
niðurgreiðslur, kr. 676.265.000.00.
I þeirri fjárhæð eru gjöld vegna
Jarðeigna rikisins, rannsóknar-
stofnana landbúnaðarins, veiði-
mála, skógræktar, landgræðslu
og fjölda margs annars, sem
engin rök eru fyrir að telja sem
hluta af gjöldum til bænda eða
sérstök framlög til atvinnu-
greinar þeirra, heldur framlög,
sem að mestu eru i þágu al-
þjóðar.
Árið 1970 voru greiddar upp-
bætur á útfluttar landbúnaðaraf-
urðir kr 332.146.000.00. Auk þess
má ætla að önnur gjöld rikissjóðs
til landbúnaðarins, sem hafa
áhrif á rekstur atvinnugreinar-
innar, hafi verið um kr. 200
milljónir. Þannig má telja að um
530 milljónum króna hafi verið
varið til að lækka framleiðslu-
kostnað og til greiðslu útflutn-
ingsbóta. Sé gengið út frá þeirri
tölu, nemur hún um 15% af
heildarverðmæti landbúnaðar-
framleiðslunnar þetta ár.
Til fróðleiks má geta þess, að
þegar samanburður vargerðurá
þvi fyrir nokkrum árum á vegum
Búnaðarnefndar, hve miklum
hluta sllkir styrkir næmu i
nokkrum nágrannalöndum
okkar, voru þeir taldir nema : 1
Bretlandi um 17% af brúttó-
tekjum bænda, i Vestur-Þýzka-
landi á milli 20 - 25% og i Noregi
var talið að um helmingur af
nettótekjum bænda kæmi frá
rikinu. Þá var talið, ef fylgt var
svipuðum útreikningi, að hér
kæmu um 15% af heildarverð-
mæti landbúnaðarvara úr rikis-
sjóði og virðist það vera svipað
nú.
ÍdagsbrunI
Igp'
Dagsbrúnarmenn
Á næstunni verða samningar Dagsbrúnar
sendir heim til félagsmanna. Þeir félags-
menn sem hafa flutt á sl. ári eða á þessu
ári, eru beðnir að tilkynna það skrifstofu
Dagsbrúnar hið fyrsta.
Einnig eru þeir sem ekki hafa fengið
kauptaxtana reglulega, beðnir að hafa
samband við skrifstofuna.
Verkamannafélagið Dagsbrún
Simar 13724,18392 og 19177
Úrvalstyólbaröar
Flestar gerbir ávallt
fyrirliggjandi
Ffjótog góÖ þjónusta
BÍLASPEGLAR gott úrval.
Ennfremur nýkomið:
FLAUTUR 6 og 12 volta
VIFTUR i bila, 6 og 12 volta
FÓTPUMPUR
FARANGURSSTREKKJARAR
ARMULA 7 - SIAAI 84450
Frá Sjúkrasamlagi Reykjavikur
ÓLAFUR TRYGGVASON, læknir,
hefur sagt upp störfum sem heimilis-
læknir frá og með 1. september 1972.
Þeir samlagsmenn, sem hafa hann að
heimilislækni, vinsamlegast snúi sér til
afgreiðslu samlagsins með skirteini sin og
velji nýjan heimilislækni.
Sjúkrasamlag Reykjavikur.
Bændur athugið
Óska eftir að kaupa góða jörð á Suðvestur-
landi.
Til greina kæmi há útborgun. Tilboð
merkt: Jörð 1344 sendist afgreiðslu blaðs-
ins fyrir 25. þm..
Nesprestakall
Sr. Páll Pálsson, sem er einn af fjórum
umsækjendum um prestakallið, messar i
Neskirkju nk. sunnudag 20. ágúst kl. 11 fh.
útvarpað verður á miðbylgju 212 metrar
eða 1412 k. hz.
Sóknarnefndin.
Bændahátíð
Föstudaginn 1. september verður bænda-
hátið Snæfellinga að Breiðabliki og hefst
kl. 21. Góð dagskrá.
Undirbúningsnefndin.