Tíminn - 18.08.1972, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
F'östudagur 18. ágúst 1972
ón:Alíreð Þorsteinsso
3
I fyrra fór fram keppni i golfi,
sem vakti talsverða athygli
meðal þeirra sem fylgjast með
iþróttum yfirieitt. Var þetta
keppni handknattleiksmanna, en
þeir hafa á undanförnum árum
margir hverjir snúið sér að þvi að
leika golf yfir sumarmánuðina.
1 sumar hafa en fleiri bætzt i
þennan hóp, t.d. má stundum sjá
hálft 1. deildarlið tR, elta golf-
boita út um holt og hæðir og i
Hafnarfirði eru margir leikmenn
Hauka og FH á golfvellinum
þegar gott er veður.
Á mánudaginn kemur fer þessi
keppni handknattleiksmanna
fram i annað sinn. Hún verður að
þessu sinni á veili Hafnfirðinga og
hefst eftir kr. 17.00. Þeir sem
hafa rétt til þátttöku i þessari
keppni, eru leikmenn 1. og 2.
deildarliðanna ásamt stjórnar-
mönnum handknattleiks-
deildanna og öörum, sem vinna
að handknattleik. Keppt verður i
tveim flokkum. Byrjendur, eða
þeir sem ekki hafa fengið forgjöf
keppa sér, en hinir, sem lengra
eru komnir keppa i öðrum flokki.
Veitt veröa vegleg verðlaun og er
ætlast til að sem flestir hand-
knattleiksmenn og forustumenn
þeirra mæti i þessa keppni. ^
Meðal margra sem fengið hafa
„golf-bakteriuna” á þessu ári eru
starfsmenn Veitingahússins
Naust. Nokkrir þeirra fóru að
fikta viö golf i vor og hafa þeir
smitaö svo út frá sér á vinnu-
staðnum að nær allir karl-
mennirnir, sem þar starfa hafa
fengið sér golftæki og kúlur og
gengið i einhvern golfklúbb.
Til að sjá árangur af sumar-
æfingunum, héldu þeir i vikunni
mót og gáfu eigendur Nautsins
þeim vegleg verðlaun til að slást
um. ðrsiit urðu þau að Jóhannes
Gunnarsson, sem þegar er
kunnur handknattleiksmaður úr
1R, fór með sigur af hólmi, — tók
bæði bikarinn sem veittur var
fyrir fyrsta sætið með og án for-
gjafar.
f
M
OLYMPÍUNEFND
BRflUT LEIKREGLUR
Olympiunefnd lslands gerði
reginskyssu með þvi aö velja
jafnmarga fararstjóra á OL i
Miinchen og raun ber vitni.
Fyrir bragðið liggur iþrótta-
hreyfingin i heild vel undir
höggi manna, sem hafa allt á
hornum sér, þegar iþróttir eru
annars vegar. Og mennirnir,
sem völdust til fararstjórnar,
sæta aðkasti að ósekju, en mér
er óhætt að fullyrða, aö
næstum hver einasti þeirra
hefur fórnað miklum tima og
vinnu i þágu iþróttahreyfingar-
innarogætti þess vegna skiliö
„óskaferðina” til Miinchen,
ferð, sem er ekki lengur nein
óskaferð vegna þess umtals,
er orðið hefur siðustu daga.
Mistök Olympiunefndar
felast fyrst og fremst i þvi, að
hún hefur brotið leikreglur,
með þvi að velja of marga.
Hér gildir alveg sama lögmál
og þegar velja á knattspyrnu-
lið. Það eru e.t.v. 20 hæfir
knattspyrnumenn tilað leika i
meistaraflokksliði hjá einu
félagi, en eðli málsins sam-
kvæmt, komast ekki nema 11
leikmenn i liðið. Hinir, hversu
góðir, sem þeir kunna að vera,
verða að sætta sig við að vera
fyrir utan. Það er ekki hægt að
fjölga i liðinu, nema brjóta
leikreglur. Og það er einmitt
það, sem hefur gerst. Olym-
piunefnd féll i þá freistingu að
fjölga i liðinu, og sætir fyrir
það gagnrýni.
Þaö er ástæðulaust að
endurtaka frekar einstök at-
riði þeirrar gagnrýni, sem
fram hefur komið. Sumt af þvi
er orðum aukið, en i þessum
umræðum, hef ég saknað þess,
að ekki hefur verið bent á, að
ekki er ein einasta kona i
fararstjórahópnum. Ein
stúlka er i keppendahópnum,
og þess vegna hefði ekki verið
óeðlilegt, að ein kona hefði
verið meðal hinna 14 farar-
stjóra og þjálfara.
Það er svo út af fyrir sig
rétt, sem bent hefur verið á,
að val keppenda á OL er ekki
siður gagnrýnivert en val
fararstjóranna. Þessir 26
keppendur sem taka þátt i
leikunum, eru e.t.v. of margir
miðaö viö getu — eða getuleysi
— á alþjóðlegan mælikvarða.
En hugsjón OL er ekki ein-
göngu bundinn viö senitmetra
og sekúndustrið heldur einnig
þátttöku. Og við höfum ávallt
stefnt að þvi að vera með, eins
og fleiri smáþjóðir.
Bæði keppendum og farar-
stjórum fylgja beztu kveðjur,
en fyrstu islenzku
keppendurnir halda utan i
dag. -alf.
Halda utan
í dag
1 dag halda utan tveir af is-
lenzku Olympiuförunum utan.
Eru það þeir Bjarni Stefánsson og
Þorsteinn Þorsteinsson.
Halda þeir til Miínchen og 1
munu dveljast i Olympiu-þorpinu,
en á næstu dögum munu þeir taka
þátt i nokkrum æfingamótum til
undirbúnings sjálfum leikunum.
ÍSLANDSMOTKVENNA
UTANHÚSS ER HAFIÐ
Islandsmót kvenna utan-
húss (meistaraflokkur) hófst
s.l. þriðjudagskvöld, en mótið
er háð við Austurbæjarbarna-
skólann i Reykjavik. Verður
leikið á hverju kvöldi út þessa
viku,en úrslit fara fram á
sunnudaginn.
TJrslit i fyrstu leikjunum
urðu eins og hér segir:
Fram —UBK 6:5
ÍBK — FH 3:16
Armann — Grindav. 12:7
Keppnin i kvöld hefst kl. 19.
Meðal leikja þá verður leikur
Armanns og Vals, sem án efa
verður mjög spennandi.
Danskur úrvalsflokkur sýnir
fimleika og þjóðdansa hérlendis
Hér á myndinni sést einn fim-
leikamaðurinn sýna listir á hesti
- flokkur þessi „DANISH GYM TEAM” er talinn einn bezti í heimi, sýndi á OL-leikunum í Mexikó 1968
llér á landi er nú staddur úr-
valsflokkur danskra fimleika-
manna og kvcnna „DANISH
GYM TEAM", undir stjórn Erik
Flcnstad-Jansen frá Virum.
Flokkurinn sem hér er staddur,
er skipaður úrvals fimleikafólki,
sem er að hefja mikla
sýningarferð um heiminn og mun
fólkið sem skipar flokkinn (13
stúlkur og 13 karlmenn) sýna
fimleika(úndir tónlist) og danska
þjóðdansa i heimsreisunni, sem
tekur átta mánuði.
Flokkurinn mun sýna þrisvar
hér á landi, fyrsta sýningin er i
kvöld á Akureyri, þá mun
flokkurinn sýna i iþróttahúsinu i
Hafnarfirði á mánudagskvöld kl.
20.30. Siðasta sýning flokksins
verður svo i iþróttahúsinu á Sel-
tjarnarnesi á þriðjudagskvöld kl.
20.30. Verðið á sýningarnar er
stillt mjög i hóf og kostar aðeins
150 kr fyrir fullorðna og 50 kr.
fyrir börn. Þaö verður enginn
svikinn sem leggur leið sina til að
sjá þennan frábæra fimleika-
flokk sýna.
Héðan mun flokkurinn siðan
halda til Bandarikjanna og hefja
heimsreisuna fyrir alvöru.
Fyrsta sýning flokksins i Banda-
rikjunum, verður 8. september i
New York. Ferð flokksins i
Bandarikjunum lýkur svo 18.
desember. A ferðinni um Banda-
rikin mun flokkurinn ferðast um i
bilum með hjólhýsi i eftirdragi og
mun flokkurinn halda 67 sýningar
i skólum og skemmtigöröum.
Eftir áramót heldur flokkurinn
svo til Thailands og sýnir i Bang-
kok. Þaöan heldur flokkurinn til
Malajarikjasambandsins og
sýnir i Kúala-Lú-mpur. Siðan er
ferðinni heitið til Singapore,
Astraliu, Indónesiu og Hong
Kong.
Við há Timanum skruppum á
æfingu hjá flokknum á þriðju-
daginn i Alftamýrarskóla og
fengum að sjá nokkur sýningar-
atriði. Eigum við ekki nógu sterk
lýsingarorð yfir flokkinn, enda
ekki á hverjum degi, sem við
fáum að sjá einn bezta sýningar-
flokk, sem völ er á i heiminum.
Þegar við náðum tali af Ólav
Bollisager, iþróttakennara, en
hann sýndi lengi með flokknum
og er þar aö auki giftur islenzkri
stúlku, Þóru óskarsdóttur og
spurðum hann, hvort það væri
ekki eftirsótt i Danmörku, að
komast i flokkinn, sagði hann að
það væri valið úr svona 150 - 200
umsækjendum á ári hverju.
Aldur fimleikafólksins væri svona
frá 18-26 ára og væri aldrei sami
mannskapurinn ár eftir ár. Hann
sagði ennfremur að það væri
mjög erfitt að ferðast með svona
fimleikaflokk, þvi að sjaldan væri
fri, t.d. sýndi flokkurinn 16
sýningar á 22 dögum i september
n.k. i Bandarikjunum þess á milli
væri flokkurinn á æfingum og
einnig keyrslu á milli borga.
Þess má geta að flokkur þessi
hefur oft ferðast um heiminn áður
og er þetta 12 fimleikaflokkurinn
sem Erik Flenstad-Jansen hefur
stjórnað. Undir hans stjórn sýndi
„DANIS GYM TEAM ” við
setningarathöfnina á Olympiu-
leikunum i Mexikó 1968.
Að lokum má þess geta, að
flokkurinn sýnir ekki nema einu
sinni á Akureyri og tvisvar á Stór-
Reykjavikursvæðinu, og ættu
þeir sem hafa áhuga að sjá
þennan frábæra fimleika og þjóð-
dansaflokk, ekki að láta sig vanta
á sýningarnar, því að það er ekki
á hverjum degi, sem Islendingar
fá að sjá vel æfða fimleikamenn
og dansara sýna listir sinar. Ekki
höfum við þetta lengra en
minnum að lokum á máltækið:
„Sjón er sögu rikari.”
SOS.
Flokkurinn „DANISH GYM TEAM", sýnir, fimleika undir tónlist, meö boltum hringjum o.fl. Þá sýnir
flokkurinn dýnustökk, fjörugar leikfimisæfingar og þjóðdansa.