Tíminn - 22.08.1972, Síða 1

Tíminn - 22.08.1972, Síða 1
IGNIS FRYSTIKISTUR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 í IERA næn- skápar RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Simar 18395 & 86500 Innan tiöar mun nýja brautin yfir Hellisheiði, úr Hveradölum og allt niður á láglendi vestan Hveragerðis, komast i gagnið. Þá verður hætt að fara Kamba eins og gert hefur verið æðilengi og fljótfarið yfir Hellisheiði. Bugir verða þó eftir sem áður á veginum, þar sem hann liggur niður á láglendið, og ef til vill kviðir einhver bilstjórinn þvi að honum verði hált undir hjólum i þessum bugum, þcgar ising leggst á veginn. Þess er þó að gæta, að betur verður um veginn búið heldur en enn orðið. Hann verður breiðari en annars staðar i bugunum, þar sem . hann þykir viðsjárvcrðastur, og grindur á vegarbrún, ef illa kynni að fara. (Ljósmynd: ísak Jónsson.) ALLT FUÐRAÐI UPP Á P/2 KLUKKUSTUND Seint á sunnudagskvöldið brunnu allar byggingar, íbúðar- hús og útihús, að Þrándarstöðum i Eiðaþinghá til kaldra kola á hálfri annarri klukkustund, en hcy stórskemmdist af vatni og eldi. Fjórum börnum, sem gengin voru til náða á efri hæð ibúöarhússins, tókst með naumindum að bjarga. A Þrándarstöðum bjuggu til skamms tima Jóhann Valdórsson og kona hans, Hulda Stefánsdóttir frá Stakkahlið. 1 fyrra létu þau meginhluta búsins i hendur syni sinum og tengdadóttur, Stefáni og Guðleifu Benediktsdóttur, en höfðu þó áfram nokkurn búskap sjálf. Er tjón það, sem feðgar og fólk þeirra hefur orðið fyrir, gifurlega mikið, þvi að allt var lágt vótryggt, og hey óvátryggt með öllu. Byggingum var á þann veg háttað, að ibúðarhús var tveggja hæða, en sambyggð við það voru gripahús og hlaða, allt að mestu leyti úr timbri. Brann þarna alit, sem brunnið gat nema heyið. Enginn veit, hvort eldurinn kom upp i ibúðarhúsinu sjálfu eða i millibyggingunni, sem tengdi það við gripahúsin. — Það var ljótt um að litast á Þrándarstöðum, þegar ég kom þangað eftir hádegi, sagði frétta- ritariTimans á Egilsstöðum, Jón Kristjánsson. Þar stóð ekki neitt uppi, nema fjárhúsveggirnir, og Frh. á bls. 6 Landhelgis- myndin send um allan heim KJ—Reykjavík Alls hafa nú 40 eintök verið gerð af landhelgisinyndinni The living Sea, sem rikis- stjórnin hefur látiö gera til kynningar á málstað tslands I landhelgismálinu. Myndin var frumsýnd i London miðvikudaginn 16. ágúst s.l. Hannes Jónsson blaðafulltrui fylgdi myndinni úr hlaði með erindi um land- helgismálið og á eftir svaraði blaðafulltrúinn spurningum um landhelgis- málið frá blaðamönnunum 30, sem viðstaddir voru frumsýningu myndarinnar. Siðar um daginn kom Hannes Jónsson svo fram i þrem sjónvarpsfréttaþáttum auk eins útvarpsþáttar, og blöð skýrðu frá myndinni og málstað tslands i landhelgis- málinu daginn eftir. Myndin var frumsýnd daginn áður en alþjóðadómstóllinn i Haag kvað upp úrskurð sinn, og hefur frumsýning myndar- innar og kynningin á land- helgismálinu þennan dag eflaust haft þau áhrif að sjónarmið tslands komu fram i fjölmiðlum, jafnframt þvi sem skýrt var frá bráða- birgðaúrskurðinum og dregnar ályktanir af honum. Alls hafa 24 sjónvarps- stöðvar viða um heim pantað myndina til sýningar, auk þess sem gerðir voru sér- stakir samningar við BBC um sýningu myndarinnar og sjónvarpsmyndafyrirtækið UP-ITN, en það fyrirtæki sendir efni til um 200 sjón- varpsstöðva viða um heim. Sendiráð tslands i Brössel, Washington, Osló, París, Bonn , Kaupmannahöfn, Stokkhómi og London, og ræðismannsskrifstofan, i New York og fastafulltrúi tslands hjá EFTA i Genf, hafa fengið myndina til sýninga. ATTATIU SJ0NVARPS- STÖÐVAR MEÐ LAUG- ARVATNSSKÁKINA KJ—Reykjavík Það er ckki ofsögum sagt af skákáhuganum sem nú breiðist út um allan heim, vegna heims- mcistaraeinvígisins i Reykjavik. Þannig tók kvikmyndagerðar- fyrirtækið Vfðsjá i Kópavogi kvikmynd af þvi, þegar Friðrik Ólafsson og Bent Larsen tefidu með lifandi mönnum á Laugar- vatni um verzlunarmanna- lieigina, og hafa nú um 80 sjón- varpsstöðvar viða um heim pantað eða fengið stutta mynd af Laugarvatnsskákinni til sýningar. Gisli Gestsson hjá Viðsjá sagði i viðtali við Timann i gær, að hann væri nýbúinn að fá skeyti frá BBC-sjónvarpsstöðinni i Eng- landi, sem annaðist klippingu og dreifingu myndarinnar. „Þeir sögðu mér, að áttatiu sjónvarps- stöövar væru ymist búnar að sýna myndina eða panta hana til sýningar”, sagði Gisli”, og er þetta með betri dreifingu á einni mynd, sérstaklega þegar þess er gætt, að stöðvarnar urðu að panta hana sérstaklega”, bætti hann við. „Ég kom mér íyrir á þaki á Rússajeppa, þegar ég tók myndina, en auk þess sem þessi þriggja minútna mynd sýnir taflið, sýnir hún einnig Laugar- vatn og sagt er frá Laugarvatni sem skólásetri og hvildarstað)’ sagði Gisli Gestsson. Stórmeistararnir Friðrik Ólafs- son og Bent Larsen tefldu Laugarvatnsskákina Þetta eru eintt leifar bygginganna á Þrándarstöðum. Menn eru hér niðri I hlööutóftinni að moka heyinu upp • (Ljósmynd: Jón Kristjánsson)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.