Tíminn - 22.08.1972, Side 15
Þriðjudagur 22. ágúst 1972
TÍMINN
15
Umsjón;Alfreö Þorsteinsscn
Hægt og sígandi stefnir Fram að titlinum
- hefur 16 stig eftir jafntefli við Keflavík í gærkvöldi, 1:1
Fram hcfur það eins og Bobby
Fischer”, varð einverjum að orði
i gærkvöldi eftir jafnteflisleik
Fram og Keflavikur í 1. deildar
keppninni, og átti við, að Fram
léti sér heldur nægja hálfan
vinning en engan f göngu sinni að
isiandsmeistaratitlinum. Og vfst
er um það, að Fram nálgast titil-
inn, hægt og sigandi, enda þótt
litill meistarabragur hafi verið
yfir leik liðsins i gærkvöldi.
Veðrið átti sinn þátt i að eyði-
leggja leikinn, suð-austan
strekkingur með skúrum. Og það
væru öfugmæli að halda þvífram,
að leikmenn liðanna hafi nokkru
Staðan og
markhæstu
leikmenn
Staðan i 1. deild eftir leikinn i
gærkvöldi er þessi:
Fram 10 6 4 0 23:13 16
Akranes 11 6 1 4 22:16 13
Keflav. 11 3 5 3 18:20 11
Breiðab. 11 4 3 4 10:15 11
Vestm. 9 4 2 3 23:18 10
Valur 9 2 4 3 15:15 8
KR 10 3 2 4 14:15 8
Vik. 11 2 1 8 5:18 5
Markhæstu leikmenn 1. deildar
eru:
Eyleifur Hafsteinss., 1A 10
AtliHéðinss. KR 8
Tómas Pálsson, IBV 8
sinni náð að ylja áhorfendum,
sem hirðust i stúkunni i nepjunni.
Jú, einu sinni reyndar. Þökk sé
Eggert Steingrimssyni hinum
smávaxna en leikna útherja
Fram. A 13. minútu fyrri hálf-
leiks skoraði hann gullfallegt
mark af löngu færi, sem hafnaði
efst i hægra horni Keflavikur-
marksins, gersamlega óverjandi
fyrir Þorstein Ólafsson, mark-
vörð. Glæsilegt mark, sem gaf
litið eftir glæsimarki Eyleifs
Hafsteinssonar i leik Akraness og
Vals á sunnudaginn. Þetta mark
Eggerts tryggði Fram annað
stigið i leiknum, en aðeins
tveimur minútum áður höfðu
Keflavikingar skorað sitt eina
mark og var Jón Ólafur þar að
verki.
Það merkilega var, að Fram
tókstekki að hagnýta sér vindinn
i siðari hálfleik, þegar liðið lék
undan honum á nyrðra markið.
Keflvikingum tóks aö skora sitt
mark undan vindi, en Fram átti
sárafá tækifæri i siðari hálf-
leiknum. Enda þótt Keflvikingar
hafi skorað undan vindum, léku
þeir betur á móti vindi — alveg
eins og Fram — en tókst ekki að
skapa sér verulega hættuleg tæki-
færi.
Bæði liðin skoruðu mark, sem
dæmt var af. Keflvikingarskoruðu
strax á þriðju minútu, en dómari
leiksins, Rafn Hjaltalin frá Akur
eyri, dæmdi markið af sökum
rangstöðu. Fram skoraði mark
seint i fyrri hálfleiknum, og kom
mörgum á óvart, að það skyldi
dæmt af, en dómarinn taldi, að
leikmenn Fram hefðu spyrnt
knettinum úr höndum Þorsteins
markvarðar. Rafn dómari var i
ágætri aðstöðu til að fylgjast með
atvikum, og hefur sennilega séð
• •
JOFNUNARMARK EY-
LEIFS KÓRÓNAÐI
SKEMMTILEGAN 0G
OPINN LEIK
framlínur Valsmanna og Skagamanna fengu
að njóta sín í leiknum, sem endaði 2:2
Valsmenn og Skagamenn gerðu
jafntefli 2:2 i mjög opnum og
skemmtilegum leik á sunnudag-
inn, knötturinn gekk markanna á
milli og sáust oft mjög góðir kafl-
ar og leikfléttur hjá liðunum.
Varnir liðanna eru ekki sterkar
og gerði það sitt, til að gera leik-
inn skemmtilegan, þvi að hættan
við mörk liðanna gerði það að
verkum að liðin sem eiga mjög
liflegar framlínur, fengu að njóta
sin i leiknum.
En nú skulum við lita á minnis-
blaðið og renna yfir hættulegustu
tækifæri leiksins, sem fram fór á
Laugardalsvellinum:
2. min.Hörður Helgason, varði
vel hörkuskot sem kom á markið
úr þvögu.
10. min.Bjarga Akurnesingar á
linu.
12. min. Þórir Jónsson , skorar
(1:0) fyrir Val, mikil þvaga skap-
ast inn i vitateig Skagamanna,
knötturinn berst til Þóris, sem
þrumaði knettinum i netið.
20. min.Alexander Jóhannsson,
kemst einn inn fyrir vörn Skaga-
manna og átti aðeins eftir mark-
vörðinn Hörð Helgason, en honum
brást bogalistin og skaut beint i
fangið á Herði.
24. min. Sigurður Dagsson, ver
glæsilega skot frá hinum unga og
skemmtilega Karli Þórðarsyni.
35. min. Skagamenn ná upp
mjög hættulegri skyndisókn, sem
endaði með skoti frá Eyleifi Haf-
steinssyni, i hliðarnetiö.
36. min. Eyleifur leikur
skemmtilega upp miðjan völlinn
og útað endalinu, i staðinnfyrirað
skjóta eins og sumir hefðu eflaust
gert— þá gaf hann góða sendingu
fyrir markið til Teits Þóröarson-
ar, sem átti ekki i erfiðleikum að
renna knettinum I markið og
jafna 1:1.
42. min. Hörður Helgason,
bjargaði glæsilega skoti frá nafna
sinum Hilmarssyni i Val.
43. mín. ingvar Elísson, skaut
að því er virtist hættulegu skoti af
löngu færi — Hörður Helgason,
hafði hendur á knettinum, en
missti hann óvænt frá sér —
knötturinn hrökk til Alexanders
Jóhannssonar, sem va einn og
óvaldaður inn i markteig — hann
var ekki lengi að þakka fyrir sig,
með þvi að senda knöttinn i netiö
og Valsmenn voru þvi aftur búnir
að taka forustuna i leiknum 2:1.
Siðari hálfleikur:
Skagamenn náðu smám saman
völdum á leiknum og sóttu mun
meira i siöari hálfleik, heldur en
Valsmenn. Engin mjög hættuleg
tækifæri sköpuðust fyrstu 20 min.
i hálfleiknum, þó var oft ógnað
skemmtilega og samspil liöanna
var oft upp á það allra bezta.
22. min.Eyleifur áttiskalla i slá
og þaðan hrökk knötturinn til
Karls Þórðarsonar, sem var I
dauða færi inni i markteig. En öll-
um til undrunar skaut Karl beint I
betur hvað gerðist en áhorfendur.
1 heild var leikurinn i gærkvöldi
ekki upp á marga fiska. Af
einstökum leikmönnum bar mest
á Elmari Geirssyni, hinum
sprettharða leikmanni Fram,
sem alltaf er hættulegur.
Rafn Hjaltalin, dómari, gerði
hlutverki sinu ágæt skil, en var
fullharður við „kollega” sinn
Magnús Pétursson, þegar
Magnús þaut inn á völl og greip
fram fyrir hendur dómarans með
þvi að stöðva leikinn upp á sitt
eindæmi. Auðvitað hafði Magnús
ekkert leyfi til að gera slfkt, en
Rafn hefði átt að láta sér nægja
að áminna Magnús innan dyra
dómaraherbergisins, með
„respekt” dómarastéttarinnar i
huga. —alf.
Valsliðið ásamt þjálfara sinum Stefáni Sandholti.
(Timamynd Róbert)
YFIRBURÐASIGUR VALSSTULKNANNA
- sigruðu fslandsmótið í handknattleik utanhúss 10. árið í röð
Valsstúlkurnar höfðu mikla
yfirburði i Islandsmótinu i
handknattleik utanhúss og
sigruðu Fram I úrslitaleiknum
með 18 mörkum gegn 7. Er
þetta 10. árið i röð, sem Valur
verður Islandsmeistari i
kvennahandknattleik utan-
húss og er sérstök ástæða til
að óska Valsstúlkunum til
hamingju með það afrek. Liö
þeirra virðist i mjög góðri æf-
ingu og hefur á að skipa mörg-
um góðum einstaklingum.
Nægir þar að nefna systurnar
Sigrúnu og Björgu, Ragnheiði
Blöndal og Björgu Jónsdóttur
frá Húsavik, sem er ein
skemmtilegasta handknatt-
leiksstúlka okkar um þessar
mundir. Auk þess eru i liðinu
yngri stúlkur á uppleið, t.d.
Svala Sigtryggsdóttir, sem
nýlega vakti mikla athygli á
alþjóðlegu handknattleiks-
móti i Sviþjóð og var kosin
bezta handknattleikskona
mótsins.
Fram-liðið hefur oftast ver-
ið sterkara á undanförnum ár-
um, þegar það hefur mætt Val
i úrslitaleik. Hvort tveggja
var nú, að mikil forföll voru i
liðinu — sex fastar liðskonur
dveljast erlendis i sumar — og
liðið virðist æfingalitið. Oddný
Sigsteinsdóttir og Helga
Magnúsdóttir voru þær einu,
sem virtust geta veitt Vals-
stúlkunum viðnám.
Mótið var háð i porti Austur-
bæjarskólans. Keppt var i
tveimur riðlum og sigraði Val-
ur með miklum yfirburðum i
a-riðlinum, en Fram átti i
nokkrum erfiðleikum með að
vinna b-riðilinn, gerði til að
mynda jafntefli við Viking i
siöasta leiknum, 1:1, sem er
nokkuð óvenjuleg markatala i
handknattleik. I sjálfum úr-
slitaleiknum lék aldrei neinn
vafi á, hvort liðið væri betra —
Valur eða Fram — þvi aö i
hálfleik var staðan 10:2 Vals-
stúlkunum i vil.
— alf.
I
|
I
I
Sá er grimmur á svipinn..Jóhannes Edvaldsson, skallar knöttinn fyrir markiö. Þröstur Stefánsson og
Jón Gunnlaugsson, fylgjast meö. (Timamynd Róbert)
lappirnar á Sigurði Dagssyni.
24. min. Skagamenn bjarga
skoti frá Þóri Jónssyni á linu.
30. min. Eyleifur skoraöi eitt
fallegasta mark, sem sézt hefur á
Laugardalsvellinum. Skot hans af
20 m færi var hreint stórkostlegt
og Siguröur Dagsson átti enga
möguleika aö verja, enda reyndi
hann ekki viö skotiö, sem small i
þverslá, þaöan kastaöist knöttur-
inn á marklinuna og þeyttist þaö-
an upp undir þaknetið. Þvilikt
jöfnunarmark og fagnaðarlæti,
því aö allir sem sjá svona mörk,
geta ekki annað en klappaö.
Valsliðiö og Akurnesliðið náöu
oft góöum sóknarleik og voru
Eyleifur Hafsteinsson (ÍA) og
Þórir Jónsson (Val) potturinn og
pannan i samleik liðanna. Dóm-
ari I leiknum var Halldór B.
Hafliðason og dæmdi hann vel.
— BB