Tíminn - 22.08.1972, Side 17
ÞriiVjudagur 22. ágúst 1972
TÍMINN
17
A myndinni sést Eiríkur Þorsteinsson, senda knöttinn i netiö hjá Breiðablik. Fyrir aftan hann sést Þorhallur Jónasson, en hann gaf knöttinn til
Eiriks, eftir að hafa leikið upp kantinn. (Timamynd Róbert)
RANGSTÖÐUMARK VAR NÆR BÚ-
IÐ AÐ FELLA VÍKINGSLIÐIÐ
Það var á elleftu stundu, að
Vikingsliðið tók við sér gegn
Breiðablik á laugardaginn, þegar
liöin mættust á Laugardals-
vellinum. Víkingsliðið, sem átti
allan leikinn var undir 0:1 þegar
11 min. voru til leiksloka — en þá
tók liðið heldur betur við sér,
Eirikur Þorsteinsson, skoraði þá
jöfnunarmarkið og þremur min.
siðar skoraði hann sigurmarkið,
með stórglæsilegu skoti frá vita-
teig. Vikingsliðið sýndi stórgóða
knattspv rnu i leiknum gegn
Breiðablik og leikmenn liðsins
léku leikmenn Breiðabliks sundur
og saman. Undruðust menn
mikið yfir þvi, að þarna væri
botnliðið að leika gegn einu af
toppliðunum, og hvernig gæti
staðið á þvi að Breiðabliksliðið,
eins léregt og það er, væri komið
með 11 stig i 1. dcild. Eftir gengi
leiksins, átti Vikingsliðið að sigra
með svona 4-5 marka mun, en
framlinumennirnir voru ekki á
skotskónum, eins og svo oft áður
og glopruðu þeir mörgum dauöa-
færunum úr höndunum á sér.
Fyrsta færið.sem Vikingsliðið
fékk i leiknum kom strax á 4.
min./þá skaut Hafliði Pétursson,
fram hjá i dauða færi. Vikings-
liðið, sem lék á móti sterkum
vindi, sýndi stórgóða knattspyrnu
og liðið sótti nær stanzlaust að
marki Breiðabliks. En það var
ekki Vikingsliðið, sem skoraði
heldur Breiðablik, en Þór
Hreiðarsson, skoraði mark liðsins
á 20. min. Markið var greinilegt
rangstöðumark, knötturinn var
gefinn fram til Þórs, sem var 2-3
metra fyrir innan Vikings-
vörnina, hann tók við knettinum
og brunaði fram, lék á Diðrik og
sendi knöttinn i mannlaust mark-
ið. Það var greinilegt að
Vikingarnir voru ekki ánægðir
með markið, enda ekki nema von,
það sáu allir að það var rangstaða
á Þór, nema linuvörðurinn og
dómarinn.
Strax eftir markið náðu
Vikingar sókn, sem endaði með.
stangarskoti, Stefán Hall-
dórsson, fékk knöttinn inn i
markteig og i staðinn fyrir að
skjóta strax, þurfti hann aðeins
að leika sér með knöttinn og gaf
varnarmönnum Breiðabliks
góðan tima til að nálgast sig og
þrengja svo að að sér, að hann
var kominn i mjög vonda
aðstöðu, þegar hann spyrnti i
stöngina að utanverðu. Ekki
virtist heppnin vera með Stefáni i
leiknum, þvi að á 37. min. hitti
hann ekki knöttinn i dauða færi
inn i markteig, markið var
algjörlega mannlaust.
i siðari hálfleik sóttu Vikingar
stift með vindinn i bakið, á 8. min.
skaut Hafliði þrumuskoti, sem
var bjargað á linu og á 17. min.
átti Hafliði skot, sem stefndi i
netið, en á siðustu stundu hljóp
Breiðabliksmaður fyrir skotið,
knötturinn hrökk i hann og i horn.
Aftur var Breiðabliksmaður að
flækjast fyrir skoti frá Viking á
33. min. En þá lenti gott skot frá
Gunnari Erni Kristjánssyni, i
varnarmanni Breiðabliks.
Minútu siðar, var enginn varnar-
maður Breiðabliks að flækjast
fyrir skoti frá Eiriki Þorsteins-
syni og lenti þvi skot hans i
markinu. Aðdragandinn að
markinu var þannig: Þórhallur
Jónasson, lék laglega upp kantinn
— lék á varnarmann og brauzt
upp að endamörkum, þar sem
hann gaf knöttinn fyrir markið til
Eiriks, sem átti ekki i erfiðleikum
með að senda knöttinn i netið.
Min. siðar átti Eirikur skot sem
markvörður Breiðabliks, Ólafur
Hákonarson varði, en hann missti
knöttinn aftur til Eiriks, sem var i
ágætu skotfæri, en áður en honum
tókst að skjóta, skutlaði ólafur
sér á bakið á honum með þeim
afleiðingum að Eirikur féll og
missti knöttinn frá sér. Þarna var
greinileg vitaspyrna, en dómar-
inn lét leikinn halda áfram, eins
og ekkert hefði i skorizt.
Eirikur Þorsteinsson, var aftur
á ferðinni á 37. min — hann fékk
laglega sendingu út við vitateig,
án þess að hugsa sig um, þrumaði
hann knettinum að marki — stór-
glæsilegt skot hans lenti i
markinu algjörlega óverjandi.
Mjög laglega gert hjá Eirki og
ættu aðrir leikmenn Vikings að
taka þessi tilþrif Eirfks sér til
fyrirmyndar, þvi að það marg
borgar sig að skjóta strax að
marki, þegar leikmenn fá knött-
inn i góðum færum — ekki allt af
að þurfa að gæla við knöttinn og
ætla svo að skjóta þegar mót-
herjar eru búnir að loka markinu.
Leiknum lauk með sigri
Vikings 2:1 og var sá sigur frekar
lengi á leiðinni — áhorfendur voru
farnir að halda, að Vikingsliðið
ætlaði að fara að tapa enn einum
leiknunvsem liðið átti meira i. En
á elleftu stundu vöknuðu Vikingar
til lifsins og sigurinn var þeirra.
Til hamingju Vikingar! Vikings-
liðið var mjög liflegt i leiknum og
það má segja að liðið hafi átt
allan leikinn — Breiðabliksliðið
átti aðeins eitt skot á Vikings-
markið og lenti það i markinu.
Allir leikmenn Vikingsliðsins eiga
skilið hrós fyrir leik sinn — knött-
urinn var látinn ganga á milli
manna, en það eina sem vantar
ÓV—Reykjavik
Það var svo sannarlega engin
reisn yfir þeirri knattspyrnu, sem
Vestmanneyingar og KR sýndu i
Vestmanncyjum á sunnudaginn.
Lcikurinn var hinn fúlasti og
liöfðu leikmenn bersýnilega
engan áhuga á að sýna góða
knattspyrnu. ÍBV voru þó betri
og áttu meira i leiknum, þannig
að líkast til hafa úrslitin, 2:1,
verið réttlát.
Leikurinn var þófkenndur
framan af og þrátt fyrir mörg
góð tækifæri, skoraði hvorugur
aðilinn mark lengi vel en á 23
minútu skoraði Tómas Pálsson,
bezti maður IBV, fyrsta mark
leiksins, geysilega fallegt mark.
Tæpum 10 minútum siðar skoraði
Atli Þór Héðinsson eina mark KR
og virtist viö það færast mikill
baráttuhugur i leikmenn.
Sá baráttuhugur birtist þó þvi
hjá liðinu, er að það notar litið
kantana.
Breiðabliksliðið var ekki upp á
marga fiska, leikmenn þungir og
seinir. Það er óskiljanlegt að
þetta lið skuli vera komið með 11
stig i 1. deild. Eini maður liðsins,
sem á hrós skilið, er markvörður-
inn Ólafur Hákonarson, en hann
bjargaði liðinu frá stórtapi.
Dómari var Sveinn Kristjáns-
son og dæmdi hann þolanlega,
hann má kannski vera á meiri
hreyfingu. SOS
miður eingöngu i þvi, að
leikurinn harðnaði og varð rudda-
legri. Vestmanneyisku knatt-
spyrnumennirnir eru geysilega
sterkir strákar og spiluðu fast
þannig að KR-ingar voru sannar-
lega ekki öfundsverðir. Auk þess
var völlurinn blautur mjög eftir
miklar rigningar fyrir helgina,
þannig að i lokin var hann orðinn
allsherjar svað og kom nokkrum
sinnum fyrir, að boltinn stöðvað-
ist á upptættri torfu eða þá ein-
hverri holunni, sem torfurnar
skildu eftir sig.
Siðari hálfleikur var jafnvel
enn leiðinlegri og liðu heilar 40
minútur án þess að mark væri
skorað. Það var Tómas Pálsson,
sem aftur skoraði fyrir IBV og
var það heldur ódýrt mark, sem
markvörður KR-ingar hefði auð-
veldlega getað bjargað en mann-
greyinu hefur kannski verið kalt.
Sem dæmi um þessa bragð-
Akureyr-
ingar styrkja
stöðu sína
í 2. deild
Tveir leikir voru leiknir i 2.
deild um hclgina og breyttu þeír
litið stöðunni i deildinni. Akur-
eyringar unnu Hauka i Hafnar-
firði á laugardaginn 3:1 i miklum
rokleik. Staðan i halfleik var 1:0
fyrir Ilauka, en í siðari hálfleik
höfðu Akureyringar vindinn i
bakið og skoruðu fljótlega þrjú
m örk.
Armann sigraði Völsunga á
Melavellinum á sunnudaginn 3:1.
Fyrsta markið skoraði Jón
Hermansson úr viti, en dæmt var
á hendi og fannst mönnum það
mjög strangur dómur. Siöan
bætir Sigurður Leifsson öðru
marki fyrir Armann. Hermann
Jónsson, skorar mark Völsunga
og Bragi Jónsson, skorar þriðja
mark Ármanns.
Staðan i 2. deild:
Akureyri 11 9 2 0 38:10 20
FH 10 7 3 0 26:9 17
Völsungar 11 5 3 3 22:18 13
Þróttuc 9 3 4 2 17:15 10
Ármann 9 3 1 5 12:21 7
Selfoss 9 3 0 6 15:18 6
Haukar 11 2 0 9 12:24 4
fsafjörð. 8 0 1 7 5:33 1
Það má segja að Akureyringar
hafi nú styrkt stöðu sina svo vel i
deildinni, að litið sem ekkert
komi til með að stöðva þá. Þeir
eiga eftir þrjá leiki, tvo heima
gegn Völsungum og Þrótti, einn
úti gegn Armann. FH-liðið á eftir
fjóra leiki, tvo heima gegn fs-
firðingum og Ármanni og tvo úti
gegn Völsungum og Þrótti.
Vestmannaeyjum
daufu knattspyrnu, má geta þess,
að skemmtilegasta atvik leiksins
varðþegar Höröur Markan stökk
á boltann, lenti á honum með
hælinn og rann siðan eftirhonum
öllum á bakhlutanum. Undir
leikslok áttu ÍBV tvö góð skot á
galopið markið en bæði árangurs-
laus.
Dómari var Hinrik Lárusson og
stóð sig prýöilega en linuverðir
voru úr Vestmannaeyjum, einnig
starfi sinu vel vaxnir. Linuverð-
irnir, sem mótanefnd hafði upp-
haflega skipað á þennan leik, til-
kynnti forföll á sunnudags-
morgun og munu Vestmanneyi-
ngar hafa átt i einhverju stappi
við að fá menn i starfið. Ástæður
forfölluöu linuvarðanna munu
hafa verið heldur ómerkilegan og
sauð reiðin illilega i sumum.
KR-ingarnir voru heldur geð-
vondir á leiðinni heim.
Þeir yngstu létu veðrið
ekki á sig fá
Heill hópur ungra og áhuga-
samra kylfinga, mættu i ein-
hverju versta veðri sem komið
hefur i langan tima hér á Suður-
landi s.l. laugardag til að taka
þátt i opnu móti, sem haldið var á
velli GK i Hafnarfirði. Þetta var
JUNIOR DUNLOP OPEN, sem
nú fór fram i annað sinn, en til
hennar gefur Dunlop umboðið á
Islandi, Austurbakki h/f vegleg
eignar og farandsverðlaun.
Keppt var i tveim flokkum-
unglinga og drengja- og voru
keppendur um 30 talsins. Létu
þeir ekki veðrið hafa áhrif á sig
heldur lék hver sem betur gat, og
sumir þeirra hreint stórglæsi-
lega, eins og t.d. þeir Sigurður
Thorarensen og Magnús Birgis-
son, sem léku i yngri flokknum.
Úrslit urðu annars þessi:
Unglingaflokkur (15 til 18 ára)
Ægir Ármannss. GK 170 högg
Sigurður Hafsteinss, GR 177
högg
Elias Helgason, GK 178högg
Drengjaflokkur (14 ára og
yngri)
Sigurður Thorarensen, GK 151
högg
Magnús Birgisson, GK 158
högg
Hálfdán Karlsson, GK 171högg
Þess skal getið, að yngri pilt-
arnir léku af kvennateigum, sem
eru örlitið nær holu á mörgum
stöðum en þeir teigar, sem þeir
eldri slógu upphafshöggin frá. En
fyrst við á annað borð erum að
minnast á kvennateiga, er rétt að
minna kvenfólkið á að á velli GK
fer fram n.k. sunnudag opin
kvennakeppni.
Bæjarstjórinn í Hafnar-
firði sigraði i sveitar-
stjórakeppninni
Hin árlega keppni sveitastjóra
á svæðinu frá Reykjavik til
Hafnarfjarðar fór l'ram á velli GK
i Hafnarfirði i siðustu viku. Þar
mætast árlega sveitarstjórarnir
af þessu svæði ásamt hjálpar-
mönnum sinum, og slær þá hver
sem betur getur.
Fyrirkomulagið er þannig, að
þeir slá annað hvert högg á móti
hjálparmanninum, sem hvað úr
hverju fara nú að verða fyrir, þvi
hinir eru margir hverjir orðnir
nokkuð vissir á að hitta boltann-
a.m.k. i öðru hverju höggi.
Úrslitin nú urðu þau, að
bæjarstjórinn i Hafnarfirði
Kristinn Ó. Guðmundsson sigraði
á 53 höggum. En hann hafði sér
til aðstoðar einn þann „stæði-
legasta” úr GK. Pétur Auðuns-
son. Annar var sveitastjórinn úr
Garðahreppi. Garðar Sigurgeirs-
son ásamt Jóhanni Eyjólfssyni,
hinum siunga öldungi á 55
höggum. Þriðji var svo bæjar-
stjórinn i Kópavogi, Björgvin
Sæmundsson, ásamt Ólafi
Tómassyni á 58 höggum. Siðan
kom oddviti Bessastaðahrepps,
Eyþór Stefánsson, ásamt Júliusi
R. Júliussyni á 62 höggum., og
loks sérstakir gestir mótsins,
Hjálmar Vilhjálmsson ráðu-
neytis.st. ásamt formanni Golf-
sambands Islands, Páli Asgeir
Tryggvasyni. — klp —
LEIÐINDAÞÓF f KULDfl 0G TREKK
- ÍBV vann KR 2:1 í bragðdaufum leik í