Tíminn - 03.09.1972, Síða 5
Sunnudagur 3. september 1972
TtMINN
5
SKALLAGRÍMS-
GARÐURINN í
BORGARNESI
40 ÁRA
A þessu ári er Skallagrims-
garður i Borgarnesi fjörutiu ára.
1 upphafi stóðu tvö félög i Borgar-
nesi að garðinum, en það voru
Kvenfélag Borgarness og Ung-
mennafélagið Skallagrimur, og
auk þess lagði Borgarneshreppur
fram 400 krónur i stofnfé til kaupa
á landinu. Fyrstu árin starfaði sin
nefndin frá hvoru félaginu að
málefnum garðsins, en árið 1938
keypti Kvenfélag Borgarness hlut
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
U.M.F. Skallagrims, og hefur sið-
an átt og rekið garðinn af eigin
framtaki. —
Siöan þetta gerðist hefur land-
svæöi garðsins stækkað um helm-
ing,auk þess sem þar hafa bætzt
við ýmis mannvirki. Á þessu ári
er t.d. verið að byggja gróðurhús,
sem kostar 500.000 krónur, og er
með þessari framkvæmd hug-
myndin að fullnægja að mestu
þörfum Borgnesinga hvað blóma-
sölu snertir.
Rekstur garösins hefur með
árunum orðið kostnaðarsamur,
en félagið hefur allmörg undan-
farin ár notið styrkja hans vegna
frá riki, sveitarfélagi og sýslu auk
fleiri aöila. Og i tilefni 40 ára af-
mælisins á þessu ári hafa garðin-
um borist margar og góðar gjafir,
sem félagið þakkar af alhug.og
hafa létt mjög undir rekstri
garðsins og fjárfestingu. Enn
hvila þó nokkrar skuldir á
gróðurhúsbyggingunni, en þeir
sem annast rekstur garðsins eru
bjartsýnir á framtiðina.
Innan félagsins hefur frá upp-
hafi starfað sérstök garðnefnd,
sem séð hefur um daglegan rekst-
ur garðsins og eftirlit. Nefndin
hefur jafnan ráðið stúlkur til
starfa i garðinum yfir sumar-
mánuðina, en nú á þessu ári hefur
starfað þar lærður garðyrkju-
maður. Formaður garðnefndar
Kvenfélags Borgarness hefur frá
upphafi verið Geirlaug Jónsdótt-
ir, og eru hennar störf i þágu
garðsins ómetanleg og verða
seint fullþökkuð.
Skallagrimsgarður eins og þar var umhorfs fyrir nokkrum árum.
Mest seldi hvíldarstóll
inn á Norðurlöndum
Bólstraðir með ekta leðri og áklæði
Framleiðandi stálgrindar: Stáliðjan h.f
Bólstrun: Bólsturverkstæði Skeifunnar
Einkaleyfi á islandi: Skeifan h.f.
mm
KJÓRGARÐI SÍMI. 16975
Suður
ísólá
komandi
vetri
Kanaríeyjaferðir Flugfélagsins hefjast
að nýju I nóvember. í vetur mun Flug-
félagið enn gefa fólki kost á ódýrum
orlofsferðum til hinna sólríku Kanarí-
eyja.
Reynsla tveggja undanfarandi ára
hefur sýnt, að ferðirnar hafa notið
mikilla og vaxandi vinsælda, enda eru
farpantanir þegar teknar að berast I
ferðirnar næsta vetur. Einnig hafaýms-
ar stofnanir og fyrirtæki nú hug á því
að stuðla að vetrarorlofi starfsfólks
síns með þessum ferðum.
Kanaríeyjaferðirnar verða á hálfsmán-
aðar og þriggja vikna fresti frá 9. nóv-
ember. Brotfarardagar verða 9. og 30.
nóvember, 14. og 28. desember, 18.
janúar, 1. og 15. febrúar, 1. og 22.
marz, 5. og 19. apríl.
Farþegar geta valið á milli dvalar-
staða I höfuðborginni LAS PALMAS
eða á baðströndinni PLAYA DEL
INGLÉS, þar sem reyndir íslenzkir
fararstjórar eru farþegum til aðstoð-
ar. Skipulagðar verða ferðir um eyj-
arnar og til Afríku.
KANARÍEYJAR ÚTI FYRIR AFRÍKU-
STRÖNDUM ERU SKEMMRA UNDAN
EN MENN ÍMYNDA SÉR. SEX TÍMA
ÞOTUFLUG í HÁSUÐUR, ÚR VETR-
ARKULDA í HEITT SÓLRÍKT SUMAR-
VEÐUR.
FARPANTANIR HJÁ SKRIFSTOFUM
FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐS-
MÖNNUM ÞESS.
^ FLUGFELAG /SLA/VDS