Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 2
2 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR ÁFRAM Í ÍRAK Pólsk stjórnvöld hafa í hyggju að halda hermönnum sínum í Írak þrátt fyrir útgefnar hótanir Evrópuarms al-Kaída um hryðjuverk í Póllandi verði her- aflinn ekki kallaður heim. Forsæt- isráðherra landsins lýsti því yfir í gær að Filippseyingar hefðu gert mistök með því að kalla heim her- afla sinn til þess að bjarga lífi filippseysks gísls. 900. HERMAÐURINN LÁTINN Vegasprengja varð hermanni að bana norður af Bagdad í gær. Hann er 900. bandaríski hermaður- inn sem lætur lífið í Írak síðan ráðist var inn í landið í mars á síðasta ári. Uppþotum milli her- manna og íraskra vígamanna hefur fækkað nokkuð síðan í apríl þegar 135 hermenn létu lífið. MIÐAUSTURLÖND, AP Ísraelar hyggjast í engu fara eftir óskum allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna. Alls- herjarþingið samþykkti með miklum meirihluta atkvæða ályktun þar sem þrýst er á Ísraela að virða úrskurð Alþjóðadómstólsins í Haag um að hætta framkvæmdum við vegginn sem þeir eru að reisa milli sín og Palestínumanna, á palestínsku landsvæði. Ályktun allsherjarþingsins var samþykkt með 150 atkvæðum gegn sex en tíu ríki sátu hjá. Þar með eykst enn þrýstingur á Ísraela um að hætta byggingu veggsins sem sagður er brjóta gegn alþjóðalögum. „Ég vona að alþjóðasamfélagið haldi áfram að leita allra ráða við að fá Ísraela til að fara að ályktunum Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Saeb Erekat, ráðherra í palestínsku stjórninni, eftir að niðurstaða allsherjarþingsins lá fyrir. Á sama tíma héldu framkvæmdir við byggingu veggsins áfram á land- svæðum Palestínumanna. Verka- menn reistu átta metra háa steypufláka í Abu Dis, palestínsku úthverfi Jerúsalem. ■ Deilt um ákvörðun ríkisstjórnarinnar Deilur milli stjórnar og stjórnarandstöðu um hvort hægt sé að fella úr gildi fjölmiðlalögin sem forseti synjaði án þess að leggja þau undir þjóð- aratkvæðagreiðslu. Stjórnarandstaðan segist reiðubúin til samvinnu. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn stækkar: Rússibani í Laugardalinn BORGARRÁÐ Bygging sjávardýra- safns og vísindasafns í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal er í skoðun. Borgar- ráð samþykkti í gær að auglýsa eftir samstarfsaðilum til þess að þróa garðinn og næsta nágrenni hans. Fjölskyldu- og húsdýragarð- urinn mun fá úthlutað tveimur lóðum við Suðurlandsbraut, sunnan garðsins. „Talað er um að Fjölskyldu- og húsdýra- garðurinn fái þetta land fyrir framtíðarstækkun garðsins,“ segir Ingvar Sverrisson, for- maður stjórnar garðsins. „Nú hefur borgarráð samþykkt að stjórn garðsins leiti að áhuga- sömum aðilum um að byggja upp starfsemi tengda garðinum á þessu landsvæði.“ Þá voru opnuð útboðsgögn vegna rússibana og parísarhjóls fyrir garðinn í gær, að sögn Ingvars. „Við viljum halda áfram að þróa þessa tívolí- pælingu sem við höfum verið að vinna með.“ Hugmyndir eru einnig uppi um að samstarfsaðilarnir til- vonandi bættu aðstöðuna sem byggð verði upp en Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn leigi hana af þeim. „Þeir gætu þá í leiðinni leitað að áhugasömum aðilum til þess að koma inn í starfið með sér,“ segir Ingvar og bendir á að margar hugmyndir séu í gangi. „Það gæti til dæmis verið garð- yrkjutorg með lífrænt ræktað grænmeti.“ ■ AFTURKÖLLUN Deilt var um það á Alþingi í gær hvort ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fella úr gildi fjölmiðlalögin sem forseti synjaði staðfestingar 2. júní í stað þess að leggja þau undir þjóðar- atkvæðagreiðslu. Þingmenn stjórnarandstöðunn- ar héldu því fram að stjórnskipu- legur vafi væri á því hvort unnt sé að kippa máli, sem forseti hefur synjað staðfestingar og skotið til þjóðarinnar, úr ferli þjóðar- atkvæðagreiðslu. Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar sem mælti fyrir breytingartillögunum um fjölmiðlalögin svokölluðu, sagði að ástæðan fyrir því að ríkis- stjórnin hefði valið að afturkalla lögin og hætta við að setja ný lög væri sú að ekki hefði náðst sátt um fjölmiðlamálið. Ástæðan hefði ekki verið að það væri ekki stjórn- skipulega hægt. „Vegna þess ágreinings sem verið hefur um málið og í ljósi þess að málinu var teflt fram sem sérstakri sáttar- gjörð af hálfu ríkisstjórnarinnar og engin sátt hefur tekist um það, meðal annars vegna þess að stjórnarandstaðan hefur þráast við og neitað að taka þátt í efnis- legri umræðu um fjölmiðlalögin, leggur meirihlutinn til að að svo komnu máli verði ekki fest í lög ný skipan um þetta mál,“ sagði Bjarni. Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók undir þetta sjónarmið og sagði Alþingi heimilt „hvenær sem er að leggja fram lagafrumvarp um öll þau lög sem eru í gildi“. Össur Skarphéðinsson sagði að ríkisstjórnin hefði gjörtapað málinu. „Ríkisstjórnin hefur tapað sínu hundrað daga stríði gagnvart þjóðinni, alveg eins og þegar Napóleon fór frá Elbu til Waterloo og stóð frammi fyrir gjörtapi. Þetta mál er Waterloo ríkisstjórn- arinnar og frá því mun hún aldrei komast. Þessi ríkisstjórn er þrotin kröftum. Hún logar af innbyrðis deilum,“ sagði Össur. Össur sagði að stjórnarand- staðan væri reiðubúin til sam- starfs um undirbúning að laga- setningu um fjölmiðla. Gera ætti ráð fyrir því að undirbúningurinn tæki tvö til þrjú ár. Frumvarpið var afgreitt til þriðju umræðu í gærkvöldi og mun hún hefjast kl. 10 í dag. Búist er við því að málið verði afgreitt frá Alþingi í dag. Hvorugur formanna stjórnar- flokkanna var viðstaddur þing- fund í gær. Halldór Ásgrímsson var fjarverandi vegna dauðsfalls í fjölskyldunni en Davíð Oddsson, var á sjúkrahúsi þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna staðbundins æxlis í nýra. sda@frettabladid.is Tékknesk kona: Lést í um- ferðarslysi LÖGREGLUMÁL Tékknesk kona lést í umferðarslysi á Vatnsnesvegi í Vestur-Húnavatnssýslu í gær- kvöldi. Fimm voru í bílnum og var einn fluttur alvarlega slasaður með þyrlu á sjúkrahús. Aðrir voru fluttir til aðhlynningar á heilsu- gæslustöðina á Hvammstanga. Konan, sem var tæplega fer- tug, var á ferðalagi hérlendis ásamt manni sínum. Tildrög slyss- ins voru þau að ökumaður missti stjórn á bifreiðinni í beygju á malarvegi með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar og valt. Bifreiðin er gjörónýt. ■ Forsætisráðherra á sjúkrahúsi: Gallblaðra og nýra fjarlægt FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð Oddsson forsætisráðherra gekkst undir að- gerð í gær vegna staðbundins æxli á hægra nýra. Davíð var lagður inn á Landspítalann við Hringbraut aðfaranótt miðviku- dags vegna gallblöðrubólgu og kom meinið í ljós við rannsókn. Gallblaðra forsætisráðherra var fjarlægð sem og nýra hans í skurðaðgerð, en aðgerðin gekk að óskum. Halldór Ásgrímsson gegnir störfum forsætisráðherra í fjarveru Davíðs, en ekki er ljóst hvenær hann snýr aftur til starfa. ■ ■ EVRÓPA ■ ÍRAK „Það er úr vöndu að ráða ef endur bæjarins fara að hverfa unnvörpum.“ Katrín Jakobsdóttir er formaður umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Nokkuð mun vera um að öndum sé stolið af tjörnum borgarinnar. SPURNING DAGSINS Katrín, er þetta andamál vandamál? Fundur Alþjóða- hvalveiðiráðsins: Deilt um veiðiaðferðir SJÁVARÚTVEGUR Dýraverndunar- sinnar fagna ákaft þeirri ákvörð- un Alþjóðahvalveiðiráðsins í gær að leita mannúðlegri aðferða við hvaladráp en hvalveiðiþjóðir nota í dag. Var tillagan samþykkt þrátt fyrir áköf mótmæli hvalveiði- þjóða sem halda því öll fram að hvalir látist samstundis með þeim sprengiskutlum sem notaðir eru. Ýmis mál voru tekin fyrir í gær og verður fundað áfram í dag vegna stærstu málanna. Urðu heit- ar umræður um tillögu þess efnis að leyfa aftur hvalveiðar í atvinnu- skyni eftir 18 ára hlé en mikið ber enn milli þeirra sem það styðja og hinna sem á móti eru. ■ EIFFELTURNINN RÝMDUR Um 4.200 manns var skipað að hafa sig á brott úr Eiffelturnin- um í París eftir að sprengjuhótun barst. Sprengjuleitarsveitir mættu á svæðið en fundu ekkert grunsamlegt. Turninn var því opnaður aftur tveimur tímum eftir lokunina. BANVÆNT PÚRTVÍN Fimm létust og tíu voru fluttir veikir á sjúkra- hús í rússneska bænum Sudogda eftir að hafa drukkið ódýrt púrtvín. Talið er að vínið hafi verið eitrað og hefur verið hafin lögreglurannsókn á framleiðslu og sölu vínsins. VEGGURINN RÍS Ísraelar héldu áfram að reisa vegginn þrátt fyrir ályktun allsherjarþings SÞ. Ísraelar halda áfram byggingu veggsins: Hunsa vilja Sameinuðu þjóðirnar FRÁ ALÞINGI Í GÆR Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, sagði að ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin hefði valið að afturkalla lögin og hætta við að setja ný lög væri sú að ekki hefði náðst sátt um fjölmiðlamálið. PARÍSARHJÓL Sambærilegt parísarhjól við það sem áætlað er að rísi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Gert er ráð fyrir 28 metra háu parísarhjóli í dalnum. STRÆTISVAGNINN Vagninn rann yfir hringtorg og út á golfvöll við Borgarholtsbraut. Strætisvagn í Kópavogi: Rann stjórn- laus út af UMFERÐARÓHAPP Mannlaus strætis- vagn fór af stað frá biðstöðinni við Hamraborg í Kópavogi um sexleytið í gærdag og rann stjórn- laus sína leið. Hann fór meðal annars yfir hringtorg og yfir á Borgarholtsbraut, hvar hann lauk ferð sinni út á golfvelli bak við Gerðarsafn. Engar skemmdir urðu en bíll var fenginn til að draga strætis- vagninn af golfvellinum. Sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Kópavogi gleymdi bílstjórinn að setja vagninn í handbremsu með fyrrgreindum afleiðingum. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI DAVÍÐ ODDSSON Aðgerðin á Landspítalanum gekk að óskum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.