Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 4
4 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR Ríkisendurskoðun stendur við skýrslu sína um framkvæmd fjárlaga árið 2003: Athugasemdum vísað til föðurhúsa EFNAHAGSMÁL Ríkisendurskoðun vísar athugasemdum fjármála- ráðuneytis vegna umdeildrar skýrslu um framkvæmd fjárlaga árið 2003 að mestu til föðurhús- anna og stendur við flest það sem þar stóð. Þetta kemur fram í bréfi Sigurðar Þórðarsonar ríkisendur- skoðanda til ráðuneytisins en alls setti ráðuneytið út á níu atriði í upphaflegri skýrslu Ríkisendur- skoðunar. Viðurkennir Sigurður að um þrjár villur hafi verið að ræða í skýrslunni en eftir standi engu að síður sú gagnrýni að mikilvægt sé að bæta fjármálastjórn stofnana ríkisins. Nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir umframkeyrslu í rekstri allra ríkisfyrirtækja og stofnana til að möguleiki sé á að markmið ríkisstjórnarinnar um hallalausan rekstur náist. Í bréfinu kemur einnig fram sú ósk að öll gagnrýni á Ríkisendur- skoðun sé sett fram með sann- gjörnum og málefnalegum hætti enda sætti stofnunin sig við rétt- mæta gagnrýni með sama hætti og stjórnvöld. ■ Arafat er sagður bera ábyrgðina Jasser Arafat, forseti Palestínu, sætir nú harðari gagnrýni en hann er vanur. Þing Palestínu ályktaði gegn honum og enn bólar ekkert á lausn á deilunni um yfirstjórn öryggismála. Andaveiðar í Laugardal: Borgaryfirvöld bregðast við PALESTÍNA, AP „Arafat ber stærstan hluta ábyrgðarinnar á mistökun- um. Arafat forseta mistókst og palestínsku stjórninni mistókst. Palestínsku stjórnmálahreyfing- unum hefur mistekist,“ sagði þingmaðurinn og ráðherrann Qadoura Fares um þá stöðu sem komin er upp í palestínskum stjórnmálum. Deilan um stjórn öryggismála í Palestínu virðist engan enda ætla að taka og frekar er útlit fyrir að hún versni heldur en hitt. Palestínska þingið brá út af venju sinni og gagnrýndi Jasser Arafat forseta. Þingið samþykkti ályktun þar sem það gekk gegn vilja hans og lagði til að hann samþykkti afsagnar- beiðni Ahmed Qureia forsætis- ráðherra. Það hefur hann neitað að gera hingað til. Þingið lagði einnig að Arafat að skipa nýja stjórn sem væri betur til þess fallin að fara með völd en stjórn Qureia. Gagnrýnt hefur verið að Arafat hafi ekki gefið ríkisstjórn- um landsins tækifæri til að stjórna þar sem hann hefur neitað þeim um að fara með stjórn löggæslumála. Átökin eru ekki einskorðuð við Gaza þó upphaf átakanna megi rekja þangað. Palestínskum embættismanni var rænt á Vesturbakkanum en sleppt nokkru síðar. Fram að þessu höfðu mannrán og uppþot tak- markast við Gazasvæðið. Khaled Mashaal, leiðtogi Hamas sem er búsettur í Sýr- landi, setti sig í samband við Ara- fat í gær og lagði hart að honum að koma á friði á Gaza. Símtalið þykir til marks um þann óróleika sem hefur gripið um sig vegna deilna síðustu daga. Ef símtal Mashaal er undanskilið hefur Hamas haldið sig til hlés meðan fylkingar í Fatah-hreyfingu Arafats hafa deilt og átt í bar- dögum innbyrðis. Enn hefur ekkert skýrst hverj- ar lyktir verða á deilu Arafats og Qureia. Arafat neitar að taka afsögn Qureia gilda en Qureia kveðst aðeins gegna starfi for- sætisráðherra þar til annar hefur verið skipaður í hans stað. ■ BORGARMÁL „Við höfum ekki orðið vör við stórfelldan andaþjófnað en það virðist tíðkast í einhverjum mæli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður umhverfis- og heilbrigð- isnefndar Reykjavíkurborgar. Nokkrum öndum var stolið af hópi manna með net við litla tjörn í Laugardal í fyrradag, en margir lesendur hafa hringt í Fréttablaðið vegna fréttar þess um málið og sagst hafa orðið varir við slíkt atferli. „Veiðar eru ekki leyfðar í lendum borgarinnar og það ætti öllum að vera ljóst,“ segir Katrín. „Við hljótum að skoða þessi mál nánar, en ég veit ekki hvaða tök við höfum á að bregðast við þessu.“ Hún segir að af og til fái borgar- yfirvöld kvartanir um andaþjófnað en ekki mikið og segir að kannski viti fólk ekki hvert það eigi að leita. Þetta sé hins vegar eitthvað sem borgaryfirvöld vilji fá að vita til að geta brugðist við. ■ Þýskir sóðar: Dreifa rusli í Tékklandi PRAG, AP Tékkneska lögreglan ætlar að leita af handahófi í þýsk- um bifreiðum við landamæri Tékklands til að sporna við því að þeir fleygi rusli meðfram tékk- neskum þjóðvegum. Ákveðið var að grípa til þess- ara ráðstafana þar sem það stórjókst að rusli væri fleygt með- fram vegum í norðurhluta lands- ins skammt frá landamærunum við Þýskaland, eftir að Tékkland gekk í Evrópusambandið. Í kjöl- far þess var dregið úr eftirliti við landamærin. Að sögn yfirvalda í Tékklandi er sóðaskapur Þjóð- verja viðvarandi vandamál. ■ UTANRÍKISRÁÐHERRARNIR Vonir standa til að Indland og Pakistan geti leyst úr ágreiningi. Pakistan og Indland: Funda um Kasmír PAKISTAN, AP Utanríkisráðherrar Indlands og Pakistan funduðu í gær á ráðstefnu ríkja í Suðaustur-Asíu. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um Kasmír-hérað og sögðu fundinn hafa einkennst af hreinskilni og velvilja. Samskipti landanna hafa verið stirð vegna Kasmír-héraðs í rúmlega hálfa öld. Undanfarna mánuði hafa ríkin sýnt þónokkra viðleitni til að leysa ágreining sinn og allar líkur eru á að framhald verði á samningaviðræð- um. Indland og Pakistan eru stærstu ríkin í Suðaustur-Asíu og búa bæði yfir kjarnorkuvopnum. ■ Frakkar dæmdir: Ólöglegur stuðningur STRASBORG, AP Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa komist að þeirri niðurstöðu að franska ríkis- stjórnin hafi með ólögmætum hætti stutt starfsemi franska símafyrir- tækisins France Telecom. Ríkisstjórn Frakklands hét því árið 2002 að koma í veg fyrir gjald- þrot fyrirtækisins. Þetta telja sam- keppnisyfirvöld hafa verið ólögmæt- an ríkisstuðning enda jók yfirlýsingin möguleika France Telecom á að verða sér út um fjármögnun á markaði. Þá er talið að félagið hafi fengið ólögmætan stuðning í gegnum hag- stæðar skattareglur. Bæði ríkisstjórn Frakklands og fyrirtækið hyggjast áfrýja úrskurðinum. ■ ■ ÍRAK ,,Palest- ínska þing- ið brá út af venju sinni og gagn- rýndi Jasser Arafat for- seta. Ertu sátt/ur við niðurstöðu fjölmiðlamálsins? Spurning dagsins í dag: Ætlarðu að sækja skipulagða útihátíð/skemmtun um verslunar- mannahelgina? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 45% 55% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is IYAD ALLAWI Fé til höfuðs forsetans er hugsanlega ekki frá al-Zarqawi. Fé til höfuðs Allawi: Ekki frá al-Zarqawi EGYPTALAND, AP Óvissa ríkir nú um hvort hryðjuverkaforinginn Abu Musab al-Zarqawi hafi í raun stað- ið fyrir því að setja fé til höfuð Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks. Verðlaunféð til höfuðs Allawi var kynnt í yfirlýsingu samtaka sem nefnast Herdeild Khaled bin al-Waleed og segjast tengjast sam- tökum al-Zarqawi sem hefur staðið fyrir árásum í Írak. Í gær birtist hins vegar yfirlýsing frá þekktum tengli við al-Zarqawi þar sem lýst er furðu á sumum yfirlýsingum al- Waleed án þess þó að sérstaklega sé tilkynnt hvaða yfirlýsingar það eru. Múslimar voru líka hvattir til að vara sig á lygum. ■ SKOTIÐ Á SJÚKRAHÚS Eldflaugum var skotið á sjúkra- hús í Bagdad með þeim afleiðing- um að tveir hið minnsta létu lífið og fimm særðust. Tveir þeirra sem særðust voru í lífshættu í gærkvöldi. RÍKISENDURSKOÐANDI Embættið hefur svarað athugasemdum fjármálaráðuneytisins vegna skýrslu um framkvæmd fjárlaga árið 2003. BERAST Á BANASPJÓT Forsætisráðherrann og forsetinn hafa deilt harkalega. Nú hefur þingið hvatt forsetann til að skipa nýja stjórn með meiri völd en sú gamla. ENDUR Í LAUGARDAL Borgaryfirvöld hvetja fólk til að láta vita ef það verður vart við veiðar í borgarlendum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.