Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 43
31FIMMTUDAGUR 22. júlí 2004
ar
gu
s
04
-0
40
5
Guðjón Jónsson er ungur leik-
stjóri sem nýlega tók til starfa hjá
framleiðslufyrirtækinu Spark en
fyrsta verkefni hans þar hefur
vakið talsverða athygli. Sjón-
varpsauglýsing Umferðarstofu
sem nú dynur á skjánum var hug-
myndasmíði Bjarneyjar Hinriks-
dóttur hjá Hvíta húsinu en leik-
stjórn í höndum Guðjóns. Útkom-
an er áhrifamikil og mögnuð, ekki
síst vegna lagsins Vísur Vatns-
enda- Rósu, í flutningi Ragnheiðar
Gröndal.
Guðjón starfaði sem auglýs-
inga- og myndbandaleikstjóri hjá
Norðurljósum áður og á heiður af
verðlaunuðum myndböndum við
Írafárslögin Allt sem ég sé og
Fáum aldrei nóg. „Þetta er fyrsta
stóra auglýsingaverkefnið mitt og
tekur á málefni sem hægt er að
nálgast frá mörgum hliðum. Hvíta
húsinu tókst vel til og boðskapur-
inn, hægðu á þér, er einfaldur.
Hraðakstur er algengasta orsök
banaslysa í umferðinni og því
mikilvægt að ná til ökumanna. Ég
hafði mikla trú á verkefninu enda
vonlaust að leikstýra ef mann
skortir áhuga. Ég hef nokkrum
sinnum verið þvingaður til að
vinna verkefni sem ég hefði helst
viljað sleppa við og afraksturinn
varð það vandræðalegasta sem ég
hef gert.“ Guðjón segir þó alla
aðila ánægða með útkomu Um-
ferðarstofu-auglýsingarinnar. ■
Bandaríska blaðið Us Weekly held-ur því fram að Michael Jackson
eigi von á fjórburum. Samkvæmt
frétt blaðsins réð popparinn
leikkonu til þess að gangast und-
ir glasafrjógun. Samkvæmt frétt-
inni skrifaði leikkonan honum
bréf til þess að styðja hann í laga-
baráttu hans og leiddu bréfa-
skriftir þeirra til þess að hún sam-
þykkti að bera börn hans. Engin
veit þó hver þessi kona á að vera.
Talsmenn Jacksons neita
því þó að hann eigi von
á fjórburum en vildu
ekkert tjá sig um málið
frekar.
Leikkonan KirstenDunst hefur víst
sagt upp kærasta
sínum, leikaranum
Jake Gyllenhaal,
vegna anna. Stjarna
þeirra beggja hefur
risið all verulega
eftir að þau
byrjuðu sam-
an og nú hafa
þau víst eng-
an tíma fyrir
hvort annað.
Dunst er að
komast í hóp
v i n s æ l u s t u
l e i k k v e n n a
H o l l y w o o d
eftir gífurlega velgengni Spider-Man
myndanna. Gyllenhaal er víst í sárum
yfir skilnaðinum.
MADONNA Í KANADA
Söngkonan vinsæla Madonna er um þessar mundir á tónleikaferð um heiminn til að
kynna sína nýjustu plötu. Hér tekur hún dansspor á tónleikum í Toronto í Kanada.
Minnir á banaslys
■ SJÓNVARP
GUÐJÓN JÓNSSON
Leikstýrði auglýsingu Umferðarstofu.
■ TÓNLIST
Smáskífubox með Duran Duran
Hljómsveitin með sítt að aftan,
Duran Duran, ætlar að gefa út
smáskífubox með lögum frá
árunum 1986–1995 sem kallast
einfaldlega Singles 2. Kemur
það út þann 13. september næst-
komandi.
Áður hefur komið út smá-
skífubox með lögum frá árunum
1981 til 1985. Í nýja boxinu verða
meðal annars lögin Notorious, All
She Wants og Ordinary World.
Fimm upprunanlegir meðlimir
Duran Duran, þeir Simon Le Bon,
John Taylor, Andy Taylor, Roger
Taylor og Nick Rhodes, vinna nú
hörðum höndum að sinni fyrstu
plötu saman síðan Ragged and
the Seven Tiger kom út árið 1983.
Sveitin fór í tónleikaferð um
Bretland fyrr á þessu ári og
spilaði á Brit-verðlaunahátíðinni.
Þar var hún heiðruð fyrir fram-
lag sitt til tónlistarheimsins. ■
DURAN DURAN
Er um þessar mundir í hljóðveri við upptökur á sinni fyrstu plötu með upprunanlegum
meðlimum í 11 ár.
FRÉTTIR AF FÓLKI