Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 6
6 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR Frumniðurstöður úr skýrslu um spillingu á Íslandi birtar: Lítil spilling en margt er að varast STJÓRNSÝSLA Lítil spilling er á Íslandi en stjórnvöld þurfa þó að huga betur að öllum reglum til að fyrir- byggja slíkt í framtíðinni. Þetta er frumniðurstaða Greco, samstarfs- hóps nokkurra Evrópuríkja, sem metur og berst gegn spillingu innan opinberrar stjórnsýslu. Skýrslan í heild sinni hefur ekki verið birt og verður ekki fyrr en ís- lensk stjórnvöld hafa svarað fyrir- spurnum hópsins en lykilniðurstöð- ur eru þær að meðan löggjafinn taki á ólögmætum gróða og opinber stjórnsýsla sé gegnsæ sé ástæða til að skoða nánar reglur þær og lög er í gildi eru. Meðal annars þarf að setja siðareglur í stjórnsýslunni og setja reglur hvað varða skyldur op- inberra starfsmanna að tilkynna um ólögmætar eða ótilhlíðilegar ákvarðanir. Í framhaldi af því þurfi að huga að vernd þeirra sem til- kynna um slíkt athæfi. Þess er vænst að íslensk stjórn- völd framkvæmi þessi tilmæli fyrir lok næsta árs. „Ég hef ekki kynnt mér þessar niðurstöður til hlítar en mér sýnist þeir benda á svipuð atriði og við höfum gert áður,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. „Við gerðum úttektir á flestu því sem Greco skoðaði og ég get tekið undir það litla sem ég hef heyrt varðandi gagnrýni þeirra.“ ■ Makalausar konur eru óvelkomnar í Húsafell Tveimur konum um þrítugt, annarri ófrískri, var vísað frá Húsafelli þar sem þær þóttu of unglegar og líklegar til drykkjuláta. Aðeins barnafólki er tryggður aðgangur að svæðinu. Staða annarra er metin hverju sinni. FERÐAMÁL Tveimur ungum konum var vísað úr Húsafelli síðastliðið föstudagskvöld þar sem svæðið væri aðeins ætlað fjölskyldu- fólki. Eigandi svæðisins segir reglurnar nokkuð fastmótaðar. Fólki með börn sé veittur að- gangur og staða annarra metin hverju sinni. Þær Rebekka Kristín Garð- arsdóttir, flugfreyja hjá Flugfé- lagi Íslands, og vinkona hennar höfðu gist í Ólafsvík kvöldinu áður en vildu komast á skjólsæl- an stað og völdu Húsafell. Þeim var vísað burt þar sem svæðið væri ekki fyrir unglinga. „Við manninn sagði ég við værum tvær einar í bíl. Við værum ekki með áfengisdropa í bílnum og hann mætti skoða í kælistöskurnar ef hann vildi. Það vildi hann ekki og hann vildi ekki sannreyna aldurinn þrátt fyrir að ég segði honum að við værum að verða þrítugar báðar, háskóla- menntaðar og þar að auki önnur ólétt. Þá sagði hann: Stelpur það er búið að reyna þetta til þrautar. Hingað koma ekki inn nema fjöl- skyldur,“ segir Rebekka og bætir við hann hafi sagt að þó þær væru tvær núna myndi vinunum fjölga og partíhaldið hefjast. „Við héldum í fyrstu að þetta væri grín og ætluðum ekki að trúa því að við þyrftum að enda á að keyra burt.“ Bergþór Kristleifsson, eig- andi Húsafells, þekkir ekki til- fellið en segir rekstraraðila reyna að meta fólk jafnóðum og það komi á svæðið. „Við erum að reyna að búa til ímynd um Húsa- fell sem fjölskyldustað og verðum að reyna að afmarka okkur þannig.“ Rebekka veltir fyrir sér af hverju ekki sé hægt að hafa fastar reglur eða aldurstakmark svo fólk keyri ekki á þriðja tíma í Húsafell upp á von og óvon um gistingu. Bergþór segir erfitt að vísa fólki frá og mistök geti orðið. „Mér þykir þetta leiðinlegt og erfitt að bera fram málsbætur í sjálfu sér annað en það að við erum að reyna að fylgja þessari [fjölskyldu]stefnu.“ Bergþór býður þeim stöllum að koma síð- ar með börnum sínum. Þær enduðu á að tjalda á Kleppjárnsreykjum.“Vorum að elda, tjalda og grilla einum og hálfum tíma seinna. Við vorum sofnaðar klukkan hálf ellefu,“ segir Rebekka. gag@frettabladid.is ■ EFNAHAGSMÁL VEISTU SVARIÐ? 1Í hvaða rafstöð kom upp eldur í fyrra-dag? 2Hvar í Reykjavík var nokkrum önd-um rænt á þriðjudaginn? 3Knattspyrnusamband Katar hefurrekið landsliðsþjálfarann Philippe Troussier. Hvaða liði stjórnaði hann í lokakeppni HM fyrir tveimur árum? Svörin eru á bls. 22 FRÁ ALÞINGI Stjórnvöld þurfa að skerpa á lögum og reglum varðandi hugsanlega spillingu í stjórnsýslunni. HÚSAFELL Á LAUGARDAGSKVÖLDI Staðurinn er aðeins ætlaður fjölskyldu- fólki. Þar fá unglingar ekki aðgang segir Bergþór, eigandi staðarins. Staða þeirra sem komi án barna sé metin hverju sinni. REBEKKA KRISTÍN GARÐARSDÓTTIR Segir ótækt að geðþóttaákvarðanir ráði því hverjir fái að tjalda í Húsafelli. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71,16 0,00% Sterlingspund 131,1 -0,84% Dönsk króna 11,76 -0,96% Evra 87,42 -0,97% Gengisvísitala krónu 122,72 0,01% Kauphöll Íslands - hlutabréf Fjöldi viðskipta 242 Velta 1.038 milljónir ICEX-15 3.087 -0,14% Mestu viðskiptin Actavis Group hf. 495.040 Burðarás hf. 99.225 Landsbanki Íslands hf. 95.213 Mesta hækkun Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna 1,57% Medcare Flaga 0,78% Og fjarskipti hf. 0,58% Mesta lækkun Austurbakki hf -18,03% Nýherji hf. -6,85% Hampiðjan hf. -4,20% Erlendar vísitölur DJ* 10.167,3 0,2% Nasdaq* 1.895,2 -1,1% FTSE 4.377,3 0,9% DAX 3.877,5 1,0% NIKKEI 11.433,8 1.56% S&P* 1.107,2 -0,1% * Bandarískar vísitölur kl. 17. LAUNAVÍSITALAN HÆKKAR Launavísitala hagstofu Íslands hækkaði um 0,6 prósent á milli maí og júní. Á síðustu tólf mán- uðum hefur vísitalan hækkað um 5,1 prósent.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.