Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 48

Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 48
36 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR AÐ MÍNU SKAPI LÁRA BRYNDÍS EGGERTSDÓTTIR, ORGANISTI OG SÖNGKONA Frumflytur óperu í Þýskalandi TÓNLISTIN Ég hlusta aðallega á klass- íska tónlist og á orðið rosalega stórt safn af geisladiskum. Einn diskur með Ellý Vilhjálms er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og er spilaður reglulega á mínu heimili. Kærastinn minn hlustar mikið á gamalt rokk, Deep Purple og fleira sem ég kemst ekki hjá að hlusta á en í bílnum kveiki ég á Skonrokki. BÓKIN Nú er ég að lesa Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov, ein- hver voðalega fræg bók sem ég stal af bróður mínum því mig vantaði eitthvað að lesa á meðan ég var í útlöndum. Mér finnst hún ágæt, rosalega súrreal- ísk. Annars hafði ég mjög gaman af Hringadróttinssögu og er að verða búin með ritsafn Gunnars Gunnarssonar vegna þess að það er til heima hjá mér. BÍÓMYNDIN Karlakórinn Hekla er mynd sem ég hef séð oftar en nokkra aðra. Við vinkonurnar vitnum í hana daginn út og inn en ég hef líka farið í margar kórferðir sjálf. Mér finnst Diddú alveg yndisleg þegar hún syngur Næturdrottninguna enda alveg brilljant húmor í þessari mynd. Ég er lítil bíó- manneskja og á hvorki sjónvarp né vídjó en ég á foreldra og bróður sem ég heimsæki ef mig langar að sjá eitthvað sérstakt. Síðast sá ég Shrek 2 í bíó sem var reyndar frábær skemmtum. BORGIN Kærastinn minn var að út- skrifast sem læknir og við erum ný- komin úr útskriftarferð í Taílandi. Þá stoppuðum við einn dag í Bankok og gerðum allt sem hægt er að gera á ein- um degi. Þar er grautur af allra þjóða kvikindum, fólkið var alveg yndislegt en hitinn langt yfir 30 gráður og því gjörsamlega óbærilegur. Við fórum í siglingu um bakgarða borgarinnar, rölt- um um chinatown, borðuðum á veit- ingastað á 61. hæð og skruppum svo á barinn sem var ofan á húsinu. Nýlega var opnað lestarkerfi um háloftin þar sem var rosalegt og borgin er ofboðs- lega falleg og snyrtileg. BÚÐIN Skóbúðir eru í miklu uppá- haldi hjá mér, ég held ég eigi eitt par úr hverri skóbúð bæjarins. Þó á ég færri en ég vildi og fleiri en kærasti minn telur nauðsynlegt. Annars finnst mér útivistarbúðir alltaf skemmtilegar. VERKEFNIÐ Ég var að klára söngnám sem ég hef stundað undanfarin ár. Af því tilefni erum við fimm söngvarar að æfa nýja óperu eftir Þorkel Sigur- björnsson. Við förum til Þýskalands þar sem óperan verður frumflutt og haldn- ir verða tvennir tónleikar. Einnig er ég að leysa af í Hallgrímskirkju og spila í brúðkaupum og jarðaförum. Nemendur hugleiðslu- og jóga- meistarans Sci Chinmou munu standa fyrir hugleiðslunámskeiði um helgina. Að sögn Eymundar Matthíasar- sonar, sem er einn af um tuttugu nemendum Chinmou hér á landi, er námskeiðið haldið til að kynna jóga- og hugleiðsluiðkun og hversu góð áhrif hún geti haft á fólk. Kenndar verða aðferðir sem geta komið að góðum notum við hugleiðslu. „Við hvetjum fólk til að setja sér markmið í lífinu og reyna að átta sig á hvað það vill í raun og veru,“ segir Eymundur. „Síðan kemur í ljós hvort hug- leiðslan getur hjálpað því að ná þeim markmiðum. Við kennum fólki meðal annars að ná betra valdi á einbeitingu sinni.“ Eymundur segir að námskeið sem þetta hafi verið haldið undan- farin ár og þúsundir manns hafi látið sjá sig. Vonast hann til þess að sem flestir kynni sér hugleiðsluna um helgina. Námskeiðið, sem er ókeypis, verður haldið í Tónskóla Sigursveins á móti Gerðubergi í Breiðholti á föstudag klukkan 20 og aftur á laugardag og sunnudag, milli 15 og 17. ■ ■ HUGLEIÐSLA EYMUNDUR MATTHÍASSON Eymundur hefur stundað hugleiðslu í 20 ár og segist hafa haft ákaflega gott af því. R&B tónlistarmaðurinn Usher hefur tekið að sér aðalhlutverkið í nýrri kvikmynd sem verður fram- leidd af MTV-sjónvarpsstöðinni. Upphaflega ætlaði MTV að gera mynd með Usher sem átti að heita Confessions, eftir nýjustu plötu hans sem hefur selst í 4,8 milljónum eintaka í Bandaríkjun- um. Ekkert varð hins vegar af því. Usher sést næst á hvíta tjaldinu í myndinni Ray sem fjallar um Ray Charles sem lést fyrir skömmu. Hann hefur áður leikið í myndun- um The Faculty, Light it Up og She’s All That. ■ Söng- og leikkonan Jennifer Lopez segist ekki stunda það að gifta sig sem oftast eins og fjöl- miðlar hafa haldið fram. Hún segist hafa fengið ósanngjarna meðferð hjá blaðamönnum. „Þeir láta eins og ég sé „rað- brúður“ eða eitthvað slíkt,“ sagði hún í viðtali við tímaritið In Style. Lopez, sem verður 35 ára á næstunni, gekk upp að altarinu í þriðja sinn 5. júní með söngvar- anum Marc Anthony. Fyrsta hjónaband hennar var árið 1997 með þjóninum Ojani Noa og það annað í röðinni var fjórum árum síðar með dansaranum Chris Judd. Lopez hefur einnig átt í um- töluðum ástarsamböndum við rapparann Sean Combs og leikar- ann Ben Affleck. Þess má geta að núverandi eiginmaður hennar skildi við fyrrverandi eiginkonu sína aðeins viku áður en hann kvæntist Lopez. ■ Lopez er engin „raðbrúður“ Usher í nýrri mynd USHER Usher lætur sér ekki nægja að gefa út metsöluplötur. Hann leikur einnig í kvikmyndum þegar góð hlutverk bjóðast. Með einbeitinguna í fyrirrúmi Rokksveitin Papa Roach gefur út sína þriðju plötu, Getting Away with Murder, 31. ágúst. Mörg lög af plötunni hafa fengið að hljóma á tónleikum sveitarinnar í sumar og hafa móttökurnar verið mjög góðar. Fyrsta plata Papa Roach, Infest, sló umsvifalaust í gegn er hún kom út fyrir fjórum árum. Næsta plata, Lovehatetragedy, sem kom út tveimur árum síðar olli aftur á móti vonbrigðum. „Viðbrögðin sem við höfum fengið frá aðdáendum okkar eru þau að P-Roach séu komnir aftur,“ sagði Jacoby Shaddix, forsprakki sveitarinnar, í nýlegu viðtali. ■ PAPA ROACH Rokksveitin sló í gegn fyrir fjórum árum með plötunni Infest. Þriðja platan á leiðinni ■ TÓNLIST ■ KVIKMYNDIR ■ TÓNLIST JENNIFER LOPEZ Eigum við ekki að vona að Jennifer Lopez hafi loksins fundið lífsförunaut sinn. ÚTIMÁLNING OG VIÐARVÖRN Ferðaklúbbur eldri borgara DAGSFERÐ 23. JÚLÍ Fjallabaksleið syðri - Álftavatn - Emstrur - Fljótshlíð. Verð kr. 4.400 Nokkur sæti laus. Upplýsingar og skráning hjá Hannesi Hákonarsyni í síma 892 3011

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.