Fréttablaðið - 22.07.2004, Blaðsíða 46
34 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Kammerhópurinn Krummi,
sem er skapandi sumarhópur á
vegum Hins Hússins heldur
lokatónleika í Iðnó. Á efnisskránni
má finna íslenska rímnadansa og
þjóðlög ásamt austur-evrópskum
tregatónum.
21.00 Tónleikar í KlinK og BanK
undir heitinu, Hæfileg hreyfing
er holl fyrir líkamann, en heila-
sellurnar? Meðal þeirra sem spila
eru HOD, Flís, MegaLúðrasvit
KlinK og BanK og pönkbandið
Fohús Forsetans.
21.30 B-SHARP leika í Deiglunni,
Akureyri.
22.00 Tenderfoot halda tónleika á
Kaffi List.
Hljómsveitin Mannakorn heldur
tónleika á Græna Hattinum á
Akureyri.
Dúndurfréttir spila best of Pink
Floyd og Led Zeppelin á Gauk á
Stöng
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Alþjóðleg samsýning ungra
myndlistarmanna sem eiga það
sameiginlegt að búa eða hafa
búið í Madrid á Spáni opnuð í
Menningarsalnum í Hrafnistu í
Hafnarfirði. Sýningin stendur til
17. ágúst.
17.00 Stormur í vatnsglasi, Áslaug
Arna Stefánsdóttir sýnir vídeóverk
í Deiglunni, Akureyri.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Með íslenskuna að vopni,
hagyrðingakvöld er haldið í
íþrótthúsinu á Vopnafirði.
22.00 Dj Lilja spilar á Dátanum á
Akureyri. MTV tónlist verður á öll-
um tjöldum.
Hljómsveitin Miles from nowhere
skemmtir á Ara í Ögri í kvöld.
Hljómsveitin Bítlarnir leikur á Hverf-
isbarnum.
„Við erum að fara spila saman í
fyrsta skipti síðan á útgáfutón-
leikum okkar fyrir um hálfu ári.
Ég og Addi höfum báðir verið í
námi í vetur, ég í Finnlandi og
hann í Amsterdam, þannig að við
erum að halda upp á að vera
komnir heim,“ segir Baddi, einn
af meðlimum sveitarinnar For-
gotten Lores.
Sveitin ætlar að halda þrenna
tónleika næstu daga. Þá fyrstu í
kvöld í Reykjavík, á Akranesi á
morgun og þá þriðju á laugardags-
kvöldið á Akureyri. „Þetta verður
bæði nýtt og gamalt efni í bland.
Við tökum eitthvað af gömlu plöt-
unni en auðvitað eitthvað nýtt
líka,“ segir Benni, einn af meðlim-
um sveitarinnar en hljómsveitin er
skipuð auk þeirra Badda, Adda og
Benna, Birki og Didda.
„Þetta er eiginlega hálfgert
djamm fyrir okkur að koma hing-
að heim og halda nokkra tónleika.
Við höfum heldur enga þörf fyrir
að æfa eitthvað því það dugir að
horfa hvor á annan og þá kemur
þetta allt saman,“ segir Addi.
Aðspurðir segja þeir félagar
hip hoppið vera í uppsveiflu þessa
dagana eftir nokkra lægð. „Þó að
allar útvarpsstöðvarnar virðist
vera of góðar til að spila hip hopp
þá eru alltaf að koma fram ný
bönd þannig að það er fullt í
gangi,“ segir Baddi.
Tónleikarnir í kvöld eru á
Pravda bar og opnar húsið klukkan
20. Strákarnir ætla að byrja
snemma að spila eða um 21.30. Á
morgun verða tónleikar í Hvíta
húsinu á Akranesi og á laugardag í
Græna hattinum á Akureyri. Húsið
opnar fyrir þá tónleika klukkan 22.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
19 20 21 22 23 24 25
Fimmtudagur
JÚLÍ
■ TÓNLEIKAR
■ LJÓSMYNDASÝNING
VIÐEY
Gönguferðir öll þriðjudagskvöld
kl 19:30.
Fjölskyldudagar á sunnudögum.
Ljósmyndasýning í skólahúsinu um
Viðey á fyrri hluta 20. aldar.
Tuttugu ný fræðsluskilti í þorpinu.
Minnum á listaverk Richard Serra, nýjan
upplýsingabækling, ókeypis hjólalán,
grillaðstöðu, tjaldstæði, veitingasölu, fjölda
gönguleiða, óspillta náttúru og friðsæld.
Nánari upplýsingar:
arbaejarsafn.is,
videy@rvk.is og s: 693-1444.
FORGOTTEN LORES
Benni, Baddi, Birkir, Addi og Diddi. Hljómsveitin verður með tónleika í Reykjavík, á Akranesi og Akureyri næstu þrjá daga.
Uppsveifla
í hip hoppinu
„Myndirnar á sýningunni eru af
fólki í fötum frá listamanninum
Jóni Sæmundi sem er að gera
frábæra hluti með fatalínuna
sína Dead,“ segir Nína Björk
Gunnarsdóttir sem opnar aðra
ljósmyndasýningu sína í gallerý
Iðu, Lækjargötu klukkan sjö í
kvöld. Sýningin mun standa yfir
í tvær vikur og er hún opin gest-
um og gangandi.
Sýningin samanstendur af
fimm svart-hvítum myndum af
fólki sem er flest úr menningar-
og listageiranum. Nína tók
myndirnar inni á skemmtistaðn-
um 22 þar sem áðurnefndur Jón
Sæmundur hefur hannað her-
bergi sem Nínu finnst geggjað,
veggirnir alsettir hauskúpum.
„Mér fannst passa best að hafa
sama bakgrunn á öllum myndun-
um, þó karakterarnir séu öðru-
vísi,“ segir Nína. Nína segir að
engir tveir sjái sömu
manneskjuna sömu augum og
því kallar hún sýninguna Með
eigin augum.
„Ég hef fundið mig í ljós-
mynduninni. Ljósmyndunin er
besta leiðin til þess að túlka
fólk,“ segir Nína sem er búin að
stunda ljósmyndun í tvö ár, aðal-
lega hjá hinum ýmsu tímaritum.
Nína heldur fljótlega utan til
Danmerkur þar sem hún mun
stunda ljósmyndanám næstu
fimm mánuðina. ■
Með eigin augum
NÍNA BJÖRK
Finnst skemmtilegast að taka myndir af fólki og tísku.