Fréttablaðið - 22.07.2004, Page 8
8 22. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
Microsoft verðlaunar fjárfesta:
Fimm þúsund millj-
arðar til hluthafa
SEATTLE, AP Microsoft hefur kynnt
áform sín um arðgreiðslur og upp-
kaup hlutabréfa næstu fjögur
árin. Áformin fela í sér að hluthaf-
ar fá í sinn vasa um 75 milljarða
Bandaríkjadala sem samsvarar
ríflega fimm þúsund milljörðum
íslenskra króna.
Microsoft fór að greiða út arð
til hluthafa í mars árið 2003 en
fram að því hafði allur hagnaður
félagsins verið notaður til fjár-
festingar eða sett í varasjóði. Sú
stefna Microsoft að greiða ekki
háan arð hefur löngum sætt gagn-
rýni enda er hagnaður af rekstrin-
um mjög mikill.
Talið er að ákvörðun stjórnar-
innar muni auka þrýsting á önnur
tæknifyrirtæki að skila hluta
hagnaðar aftur til hluthafa í stað
þess að fjárfestar þurfi aðeins að
treysta á hækkun hlutabréfa til að
endurheimta fjárfestingar sínar.
Bill Gates, stofnandi og helsti
eigandi Microsoft, mun fá ríflega
þrjá milljarða Bandaríkjadala í
sinn hlut – ríflega 250 milljarða ís-
lenskra króna. Hann hefur ákveð-
ið að það fé renni allt í góðgerða-
samtökin sem hann og kona hans
starfrækja. ■
VIÐSKIPTI Veldi Bykofjölskyld-
unnar í íslensku viðskiptalífi
hefur vaxið hratt og örugglega
undanfarin ár.
Á síðasta ári bættist versl-
anakeðjan Kaupáss í hóp
sterkra verslanakeðja Norvikur
sem er eignarhaldsfélag Byko.
Áætluð velta samsteypunnar er
24 milljarðar króna. Með kaup-
unum á Kaupási varð Norvik
önnur stærsta verslanakeðja
landsins á eftir Baugi.
Undir hatti Norvikur er
byggingavöruverslunin og timb-
ursalan Byko, raftækjaverslun-
in Elko, Nóatúnsbúðirnar, Krón-
an og 11-11 búðirnar. Undir hatt-
inum eru einnig verslanirnar
Intersport og Húsgagnahöllin.
Norvik á 100 prósent í þessum
fyrirtækjum. Jón Helgi Guð-
mundsson er aðaleigandi Norvik-
ur og á 96 prósent fyrirtækisins.
Hluta eignarinnar í Norvik á Jón
Helgi í gegnum Sia Solvina sem er
fjárfestingarfélag í Lettlandi. Þá
á Jón Helgi þriggja prósenta hlut
í KB banka sem er um sjö millj-
arða virði. Þá á Jón Helgi helming
í eignarhaldsfélaginu Oddaflugi
sem er þriðjungs eigandi að Flug-
leiðum.
Lykillinn að velgengni Jóns
Helga í viðskiptalífinu liggur í
traustum rekstri Byko. Fyrir-
tækið hefur skilað hagnaði árum
saman. Jón Helgi hefur byggt
aðrar fjárfestingar sínar á þeim
eignagrunni.
Í viðskiptalífinu er oft talað
um að menn séu ýmist góðir
rekstrarmenn eða fjárfestar.
Ferill Jóns Helga bendir til þess
að hann sé sterkur á báðum
sviðum.
Umfang viðskipta Byko nær
út fyrir landsteinana. Fyrirtæk-
ið rekur timburvinnslu í Lett-
landi, skógvinnslu í Rússlandi
og timbursölu í Bretlandi.
Taki Jón Helgi sér stöðu í
Íslandsbanka, þá má búast við
að hann nýti reynslu sína af
erlendum viðskiptum.
Þrátt fyrir að vera atkvæða-
mikill í viðskiptalífinu mörg
undanfarin ár hefur Jón Helgi
haldið sig til hlés og forðast
sviðsljósið. Verði framhald á
kaupum hans í Íslandsbanka
sem líkur benda til eru umsvif
hans í viðskiptalífinu orðin það
mikil að augu manna hljóta að
beinast að honum. Hann er þeg-
ar kominn í hóp allra stærstu
þátttakenda í íslensku viðskipta-
lífi. Kjölfestuhlutur í Íslands-
banka yrði til þess að festa hann
í sessi í hópi valdamestu manna
íslensks viðskiptalífs.
haflidi@frettabladid.is
SVONA ERUM VIÐ
KVIKMYNDAHÚSAFERÐIR
Á ÍBÚA
1991 6 %
1996 5,3 %
2001 5,3 %
REYKT Á ÍRLANDI
Aðsókn hefur aukist á krár sem bjóða upp
á reykingasvæði utandyra.
Reykingabann:
Sektað í
fyrsta sinn
DUBLIN, AP Írskur kráareigandi
hefur verið dæmdur til um það bil
150.000 króna sektargreiðslu
fyrir að brjóta gegn lögum um
reykingabann.
Padraig Folan neitaði að sjá til
þess að ekki yrði reykt á kránni
hans og braut þannig gegn lögum
sem tóku gildi í vor. Samkvæmt
því er bannað að reykja í atvinnu-
húsnæði. Bannið hefur einkum
verið gagnrýnt vegna þess að það
meinar fólki að reykja á krám og
veitingastöðum. Margir kráareig-
endur hafa kvartað undan því að
dregið hafi úr viðskiptum eftir að
reykingabannið tók gildi. ■
DÓMSMÁL Saksóknari hefur krafist
þess að 26 ára kona, frá Sierra Le-
one, verði dæmd í fimm til sjö ára
fangelsi fyrir innflutning á um
5.034 e-töflum sem hún var tekin
með í Leifsstöð þann tíunda júní
síðastliðinn. Saksóknari segir að
fimm til sjö ára fangelsi sé eðli-
legt miðað við fyrri dómafor-
dæmi.
Konan sem er barnshafandi
ber því við að hún sé vændiskona
og hafi komið hingað til lands til
að sinna viðskiptavini sem hún
hafi ætlað að hitta á Hjálpræðis-
hernum. Hún lýsir yfir sakleysi
vegna fíkniefnainnflutningsins,
segist ekki hafa vitað af fíkniefn-
unum í farangri sínum. Saksókn-
ara þótti skýring konunnar ekki
trúverðug, í útlöndum hafi hún
hitt viðskiptavini sína á fínum
hótelum en nú hafi hún átt að hitta
mann á hjálpræðishernum.
Í ákæru segir að fíkniefnin hafi
að verulegu leyti verið ætluð til
sölu og dreifingar hér á landi.
Þyngd fíkniefnanna var samtals
tæplega 907 grömm. Dómur fellur
í málinu á morgun. ■
Var tekinn með um 5.034 e-töflur:
Krefst fimm til sjö ára fangelsis
HELSTU EIGNIR
BYKOFJÖLSKYLDUNNAR:
Byko
Elko
Nóatún
Húsgagnahöllin
Krónan
11-11
Intersport
EIGN Í FÉLÖGUM:
Flugleiðir 16%
KB banki 3%
Íslandsbanki 5%
Veltir 24 milljörðum
Jón Helgi Guðmundsson er einn af öflugustu viðskiptamönnum þjóðarinnar. Veldi hans
hefur vaxið mikið undanfarin ár og sett hann í hóp valdamestu manna. Líkur eru á því að
hann sé á leið í kjölfestuhóp Íslandsbanka.
JÓN HELGI ER VÍÐA
Ítök Jóns Helga Guðmundssonar eru víða í íslensku viðskiptalífi. Hann ræður næststærstu verslanakeðju landsins og hefur auk þess verið útsjónarsamur og farsæll í fjárfestingum sínum.
BILL GATES ÁSAMT STEVE BALLMER OG JOHN CONNORS
Yfirmenn og eigendur Microsoft eiga von á vænri fúlgu. Bill Gates ætlar að gefa arð-
greiðslur næstu ára til góðgerðamála.
Ítalska
stjórnin gegn
Jóni Baldvin
Krefjast skýringa
á meðferð á Marco
– hefur þú séð DV í dag?
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
GÆÐAVARA – BETRA VERÐ!