Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.07.2004, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 22.07.2004, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 22. júlí 2004 FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF. Borgartúni 34, sími 511 1515 netfang: outgoing@gjtravel.is heimasíða: www.gjtravel.is Akstur og sigling 01.-12.09. Siglt til Danmerkur og ekið um Danmörku og Þýskaland. Flogið heim frá Frankfurt. Verð: 105.300,- á mann Beint flug til Zürich 08.-14.08. Verð aðeins 22.700,- innif. skattar og þjónustugjöld IAA bifreiðasýningin í Hannover 23.-27.09. Verð: 83.100,- á mann Opið: mán.–fim. 9–23.30 fös. 9–00.30 lau.–sun. 10–00.30 Leigjum út VHS og DVD myndir í tvo sólarhringa Einnig VHS og DVD tæki Tilvalið í sumarbústaðinn Sunnumörk 2 (nýja verslunarmiðstöðin í Hveragerði) Finni í Krákunni: Maður verður að vera kátur Fagurt sumarkvöld við sunnanverð- an Breiðafjörð. Sólin er að skríða fram hjá Kirkjufellinu og stefnir í sjóinn yfir Melrakkaey. Þótt orðið sé áliðið kvölds telur Finni veitinga- maður í Krákunni í Grundarfirði ekkert sjálfsagðara en að reiða fram humarsúpu og aðrar himnesk- ar kræsingar handa hungruðu lang- ferðafólki. „Við afgreiðum ferða- menn með mat alveg þar til við lok- um og höfum lent í að vera að mat- reiða handa þeim klukkan þrjú að nóttu. Það er leiðinleg kynning fyrir land og þjóð að einungis sé hægt að drekka á nóttunni en ekki fá neitt að borða,“ segir hann. Aðspurður segir hann opið í Krákunni til 1 öll kvöld og 3-4 um helgar. Þá eru stundum böll. „En hér eru yfirleitt aldrei læti,“ segir Finni. „Ef einu sinni þarf að setja mann út þá kemur hann ekki hér inn aftur og það fréttist,“ bætir hann við. Finni ólst upp á Siglufirði en hefur lengst af búið í Grundarfirði. „Reyndar erum við hjónin búin að flytja þrisvar til Reykjavíkur en komum alltaf til baka,“ segir hann. Nú hafa þau verið þar samfleytt frá 1991, þá keyptu þau húsið sem Krákan er í að nokkru leyti hálf- klárað og það var í 24. sinn sem þau byggðu eða gerðu upp hús. Við erum búin að taka til hendinni enda er hjónabandið gott. Við höfum aldrei haft tíma til að rífast,“ segir Finni og hlær. Hann er smiður að mennt og kveðst hafa byrjað fjórtán ára að læra hjá móðurbróður sínum. „Hann gerði allt vel sem hann gerði og við nemendurnir komumst ekki upp með neitt fúsk heldur,“ segir hann. Vandvirknina hefur Finni fært yfir í veitingareksturinn því allt virðist ganga smurt á Krákunni. Það er bara hann sjálfur sem ekki gengur smurt, heldur stingur illi- lega við. Spurður um ástæðuna svarar hann glettinn. „Þetta byrjaði þegar ég var í fimleikum, ungur maður. Mér hefur verið tjaslað sam- an aftur og aftur. Ég tel að ef ég dræpist þá væru þeir svo hræddir um að missa völdin, hvort sem væri uppi eða niðri. Því hef ég fengið að vera kyrr. Maður verður að vera kátur. Helmingurinn af þessu lífi er að vera kátur.“ gun@frettabladid.is Nýtt tjaldstæði í Keflavík: Stílað uppá flugfarþega Nýtt tjaldstæði er sprottið upp í Keflavík í grennd við Leifsstöð, ásamt upplýsingamiðstöð ferða- manna með svefnpokagistingu á efri hæð. Tjaldstæðið er rekið af Alex ferðaþjónustu í tengslum við gistiaðstöðu í móteli, töskugeymslu og bílahús og er á hægri hönd áður en komið er að hringtorginu þar sem beygt er upp á völl, (miðað við að komið sér frá Reykjavík). „Hér er fullt að gera því mörgum þykir gott að gista hér nóttina áður en farið er í flug og þá fyrstu eftir að lent er,“ segir Guðmundur Þórir Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Alex. Hann upplýsir líka að um 500 bílar fari um bílahúsið á mánuði. Mótelið hefur hann rekið í tvö ár. Þar er opið allan sólarhringinn og boðið upp á morgunverð. Herbergin þar eru sjö talsins, mismunandi stór. Upplýsingaþjónustan er opin frá klukkan 8 til miðnættis. Þar eru meðal annars seldar bækur og kort sem koma ferðamönnum vel. Guð- mundur Þórir segir skipulagt tjald- stæðahald lagt af niðri í bæ í Kefla- vík eftir að þetta nýja kom í gagnið. „En kannski verður tjaldað þar á ljósanótt eða af öðrum sérstökum tilefnum,“ tekur hann þó fram. ■ „Mörgum þykir gott að gista hér nóttina áður en farið er í flug og þá fyrstu eftir að lent er,“ segir Guðmundur Þórir. Tjaldstæðið er á bak við húsið sem geymir bíla, upplýsingamiðstöð og mótel. Það er afmarkað með grjóti. „Manni finnst leiðinleg kynning fyrir land og þjóð að einungis sé hægt að drekka á nóttunni en ekki fá neitt að borða,“ segir Finni hress.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.