Fréttablaðið - 22.07.2004, Síða 45
Badly Drawn Boy: One Plus
One is One
„Á One Plus One is One sýnir kappinn á sér nokkr-
ar hliðar. Hann fer dýpra ofan í þjóðlagahefðina en
hann hefur gert áður en gleymir ekki að semja
grípandi lög. Þessi nýjasta afurð Badly Drawn Boy
inniheldur allt það besta sem ég hef heyrt frá
lopahúfumanninum loðna.“
BÖS
The Fiery Furnaces: Gallows-
bird's bark
„Miðað við að ég hef ekki enn hitt neinn sem
heldur vatni yfir tónleikum sveitarinnar á Hró-
arskeldu er ég byrjaður að draga þá ályktun að
þessi sveit njóti sín betur á tónleikum. Platan er
vissulega mjög áhugaverð, og góð, en snilldin lek-
ur ekki alveg af henni... maður þarf svolítið að hafa
fyrir því að nudda hana af.“
BÖS
The Flavors: Go Your Own Way
„Go Your Own Way er áreynslulaus poppplata með
sína kosti en hefur því miður ekkert nýtt fram að
færa. Bragðdauft er kannski besta orðið yfir hana.
Kaldhæðnislegt en engu að síður staðreynd.“
FB
!!!: Louden Up Now
„Það er skylda að hlusta á þessa plötu á fullum
styrk og þó þið þurfið að leggja töluvert á ykkur til
þess að finna þessa plötu, látið þá verða af því.
Louden Up Now verður án efa ein af plötum árs-
ins, !!! er bylting.“
BÖS
Velvet Revolver: Contraband
„Velvet Revolver kemur bara nokkuð á óvart, átti allt
eins von á að þetta væri aum tilraun gamalla rokk-
ara til að ná sér í smá aur enda hefur útkoman af
svoleiðis ævintýrum verið allt önnur en góð hingað
til. Contraband er hins vegar ágætis frumraun frá
Velvet Revolver sem er vonandi komin til að vera.“
SJ
Fear Factory: Archetype
„Archetype er ekkert meistaraverk, lumar bara á
sprettum hér og þar, en er mér þó meira að skapi
en fyrri verk hljómsveitarinnar.“
SJ
The Cure: The Cure
„Þetta er reiða hliðin á The Cure sem hefur fengið
að fljóta með í nokkrum lögum áður, en sem hef-
ur aldrei verið splæst á heila plötu. Þetta er hug-
rökk plata og tilraunir Ross Robinson ganga upp.
Besta og heilsteyptasta plata The Cure frá því að
Disintigration kom út árið 1989.“
BÖS
Janet Jackson: Damita Jo
„Óumdeilanlega hefur einlægnin verið víðs fjarri
þegar þessi plata, Damita Jo, var unnin. Maður sér
fljótlega í gegnum þunnan undirtón plötunnar og
sígild en dauðþreytt formúlan að selja Janet sem
kynlífstákn. Janet Jackson er fær í flest, sungið get-
ur hún, en hér gerir hún allrækilega í buxurnar.“
SJ
Sonic Youth: Sonic Nurse
„Á meðan Sonic Youth heldur áfram að hjakka í
sama farinu þá verður ást mín á sveitinni að vera
eins og til fjarskyldra frænda hjá mér í stað elskenda,
þannig er það nú bara. Fín plata, lítið meira en það.
Tími til þess að senda sveitina á rokkspítalann.“
BÖS
Method Man: Tical 0 - The
Prequel
„Þrátt fyrir nokkrar hlustanir er ekkert lag sem
kveikir af einhverju viti í mér, undirspilið er þunnt
og maður gerir ekki öflugt hip-hop á rappinu einu
saman, grunnurinn verður að vera góður. Og þegar
hvort tveggja bregst þá er fokið í flest skjól.“
SJ
Keane: Hopes and Fears
„Góður flutningur, góður söngur, góður hljómur og
ágætar útsetningar. Það er samt ekkert sem fangar
athyglina. Ullin er bara eins og á hinum kindunum,
augnaráðið jafn tómt og laust við alla dulspeki. Að
sama skapi er hún gjörsamlega laus við tilgerð og
óþarfa töffarastæla.“
BÖS
Shai Hulud: That Within
Blood Ill-Tempered
„Oft hafa aðrar hljómsveitir þreytt sams konar stíl
og útkoman oftar en ekki orðið frekar grautkennd.
Shai Hulud nær hins vegar að bjóða upp á breiða
flóru í lagasmíðum sínum án þess að þreyta hlust-
andann, eitthvað sem er greinilega ekki á allra
færi. Tónlist Shai Hulud er ævintýri líkust.“
SJ
Graham Coxon: Happiness in
Magazines
„Ég held barasta að við þurfum ekki að hafa neinar
áhyggjur af gleraugnagláminum honum Graham.
Að minnsta kosti gefa lokaorð plötunnar það í skyn
að hann hafi það bara fínt. Þar syngur hann af ein-
lægni við fallegt og einfalt píanóstef og gítarspil;
„Life, I Love You“. Fallegur endir á góðri plötu.“
BÖS
Beastie Boys: To the 5
Boroughs
„Þetta er því blygðunarlaust afturhvarf í gamla
starfshætti. Þessi gamli hljómur er yfir allri plöt-
unni, þannig að fyrir vikið virkar hún góð sem
heild. Þetta er þó frekar erfið plata þegar allt kem-
ur til alls, og krefjandi.“
BÖS
Slipknot: Vol. 3 (The Sublim-
inal Verses)
„Það sem stendur upp úr er tilraunamennska Slip-
knot á Vol. 3, eitthvað sem sveitin hefur ekki leyft
sér áður. Slipknot nær ekki að fullkomna stíl sinn á
þessari plötu en Vol. 3 lofar þó góðu fyrir það sem
koma skal.“
SJ
Birgir Örn Steinarsson
Freyr Bjarnason
Smári Jósepsson
FIMMTUDAGUR 22. júlí 2004 33
Ártúnshöfða • Borgartúni • Geirsgötu • Gagnvegi, Grafarvogi
Lækjargötu, Hafnarfirði, • Háholti, Mosfellsbæ • Stórahjalla, Kópavogi
ES
SO
K
D
-0
4.
20
04
-C
ok
e
m
ar
k
Ólafur Páll Gunnarsson, forseti
Popplands á Rás 2
„Ég er búinn að vera aðeins að hlusta
nýju plötuna hennar PJ Harvey sem
heitir Uh Huh Her og lofar góðu. Hún
tók hana upp sjálf heima hjá sér í Dor-
set á Englandi, hrá og einlæg plata. Svo
fékk ég í hendurnar í gær The
Libertines plötuna sem kemur
út 30. ágúst og heitir ein-
faldlega nafni sveitarinnar,
ég hef aðeins náð að renna
henni í gegn, sem og diski
sem fylgir nýjasta hefti tíma-
ritsins Mojo og ber
heitið The Roots of
Led Zeppelin. Safn-
plata með áhirfa-
völdum Zeppelin
eins og Howlin
Wolf, Robert
Johnson, Bert
Janch og Little
Richard. Á þessari
stundu er ég með nýj-
ustu plötu-snúðsins Sasha í eyrunum
en hann dj-ar á Nasa 1. ágúst, taka tvö.
Svo tók ég nokkrar gamlar Bob Dylan
plötur og The Clash um helgina. Það
var hressandi.“
Benedikt Reynisson, konungur
undirdjúpanna og umsjónar-
maður Karate, X-ið 977
„Ég hef verið að hlusta á fyrstu plötu
systrasveitarinnar CocoRosie, La Mai-
son De Mon Reve. Þær heita Bianca og
Sierra Cassady.
Þetta er án efa
ein angur-
værasta og
k r ú t t l e g a s t a
platan sem ég
hef heyrt á
þessu ári. Þær
syngja á köflum
eins og tvær
sjötugar svertingjakonur þó þær séu
aðeins rétt um þrítugt. Oft fitla þær á
skemmtilega naumhyggjulegan hátt við
rafræna tóna í bland við ljúft kassagítar-
gutlið. Það mætti réttilega kalla þær
Billie Holiday tuttugustu og fyrstu aldar-
innar með léttum Cat Power blæ.“
Gísli Galdur Þorgeirsson, tónlist-
armaður og plötusnúður
„Er búinn að vera í brjáluðu funk stuði
síðan að ég
frétti að von
væri á James
Brown til lands-
ins. Mæli með
James Brown:
Hot on the
one(live) tón-
leikaplata frá ár-
inu 1980 og er
tekin upp í Tokyo. Einnig eru James
Brown: Hot Pants frá árinu 1971,
James Brown: The Popcorn 1969 og
James Brown: Everybody’s Doin’ the
Hustle & Dead on the Double Bump
frá árinu 1975 góðar. Plötur sem að
koma þér bara í gott skap!“
| Á HVAÐ ERU GRÚSKARARNIR AÐ HLUSTA? |
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Enn er óvíst með komu skosku
rokksveitarinnar Franz Ferdinand
til Íslands. Búið var að tilkynna um
tónleika þeirra hér á landi í lok
desember en sveitin neyddist til
þess að breyta áformum sínum
vegna gífurlegra anna. Það er því
ekki enn búið að staðfesta að sveit-
in haldi tónleika hér á landi, þrátt
fyrir að áhugi liðsmanna sé svo
sannarlega til staðar.
Herra Örlygur, fyrirtækið sem
myndi standa fyrir innflutningn-
um, lofar fréttum um leið og þær
berast til þeirra.
Um nóg er að snúast hjá fyrir-
tækinu eins og er, enda undirbún-
ingur fyrir næstu Airwaves-hátíð
í fullum gír. Nýjasta nafnið sem
bættist við þá hátíð er raftónlist-
armaðurinn knái Four Tet, sem
unnendur sveita á borð við Lali
Puna og múm, ættu að kunna að
meta. ■
FRANZ FERDINAND
Sveitin vinsæla hefur ekki enn staðfest komu sína hingað til lands, þrátt fyrir fréttaflutning
þess efnis.
Óvíst með komu
Franz Ferdinand
Liam Howlett, forsprakki
Prodigy, sagði í viðtali við MTV2
sjónvarpsstöðina að þeir væru
væntanlegir til Íslands í október.
Ekki hefur fengist staðfest hver
það muni vera sem sér um inn-
flutninginn.
Engin erlend hljómsveit hefur
heimsótt Ísland jafn oft og
Prodigy. Þetta yrðu fimmtu tón-
leikar þeirra hér á landi, en áður
hafa þeir spilað í Laugardalshöll,
Kaplakrika, útihátíðinni Uxa við
Kirkjubæjarklaustur og á leyni-
legum tónleikum á Tunglinu,
skemmtistað sem var til húsa á
sama stað og þar sem Topshop fór
á hausinn við Lækjargötu.
Prodigy er við það að gefa út
sína fyrstu breiðskífu, Always
Outnumbered, Never Outgunned,
sem verður þeirra fyrsta í mörg
ár. Beðið er eftir henni með eftir-
væntingu. ■
Prodigy aftur
til Íslands?
PRODIGY
Eru við það að koma með endurkomu,
eftir langan tíma í burtu. Stoppa hugsan-
lega við á Íslandi.
PLATA VIKUNNAR
Frumraun bandarísku sveitarinnar The Fiery Furnaces er ansi áhugaverð. Þessi kom út
seint í fyrra en sveitin gaf nýverið út nýja plötu í heimalandi sínu.
Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is