Tíminn - 26.09.1972, Page 5
Þriðjudagur 26. september 1972.
TtMINN
5
Margt manna heimsótti Einar Agústsson utanrikisráðherra á laugardaginn, á fimmtugsafmæli ráöherrans. Bárust honum margar gjafir og
kveðjur víðsvegar að, og meðal annars kom eitt skeyti á rússnesku. í þakkarræðu, sem Einar Agústsson hélt á heimili slnu, sagði hann frá
þessu skeyti, og þá jafnframt, að hann hefði f fyrstu ekki skilið neitt I þvi nema töluna 50. Sagðist ráðherrann hafa haldiö, að þarna væri á
ferðinni ein af mörgum orðsendingum I sambandi við 50 mllna fisk veiðilögsöguna. En þegar búið var að kalla rússnesku-mann utanrikis-
ráðuneytisins til, kom I ljós, að I skeytinu var Gromyko utanrikis ráðherra Sovétrikjanna að óska starfsbróður sinum til hamingju með
50 ára afmælið, en ekki að senda neina orðsendingu um 50 milurnar. Myndin var tekin, þegar Einar Agústsson var aö segja frá sovézka
skeytinu, og þakka viðstöddum fyrir gjafir og heillaóskir I tilefni dagsins. Aður hafði forsætisráðherra, ólafur Jóhannesson, formaöur
Framsóknarflokksins, afhent Einari forkunnarfagurt Kjarvalsmálverk frá Þingvöllum, málað 1933, sem var gjöf frá vinum og
samherjum. (Timamynd G.E.)
77/ heimilis
þarfa - ekki
áfengis
blöndunar
A aöalfundi Kvenfélagasam-
bands Gullbringu- og Kjósarsýslu
var samþykkt ályktun, þar sem
„skorað er á landsmenn að hag-
nýta berjafeng sinn til heimilis-
þarfa, en láta hann ekki Afengis-
verzlun rikisins i té til blöndunar
i áfenga drykki”
Aðalfundurinn var haldinn i
Gagnfræðaskóla Garðahrepps 6.
sept. sl., en á fundinum voru 45
kjörnir fulltrúar frá 12 kvenfélög-
um I Gullbringu- og Kjósarsýslu,
og var ályktunin um krækiberin
samþykkt samhljóða.
Ályktun þessi á rót sina aö
rekja til þess, að I fyrrahaust
keypti Afengisverzlun rikisins
krækiber til nota til blöndunar á
krækiberjalikjör. Var ekki mjög
mikið magn þá, og seldist fram-
leiðslan upp á skömmum tima.
í haust auglýsti svo Afengis-
verzlunin, að hún myndi kaupa
krækiber til notkunar við gerð
krækiberjalikjörs, og barst
Afengisverzluninni mikið magn
af krækiberjum. Kilóið var keypt
á 60krónur, og munu margir hafa
komið með þó nokkurt magn, og
þénað i hlutfalli við sölumagn.
Starfsfólk Áfengisverzlunar-
innar hefur að undanförnu unnið
að þvi að hreinsa og pressa berin,
og liður vart á löngu áður en
krækiberjalikjör verður aftur til
sölu i útsölum Afengisverzlunar-
innar.
Að lokum má geta þess, að
þetta er ekki I fyrsta sinn, sem
konurnar i Kvenfélagasambandi
Gullbringu- og Kjósarsýslu hafa
látiðbindindismál til sin taka, þvi
þær hafa gert ályktun um hætt-
una(sem þvi er samfara aö leyfa
bruggun og sölu á áfengum bjór
hérlendis.
hirðuleysi. Vegfarandi getur auð-
vitað ekki um það dæmt, hvort
þeir menn, sem ekki búa sóma-
samlega um hey sin, eiga sér ein-
hverja afsökun. En tjón kalla þeir
yfir sig, ef heyið drýpur og meira
eð minna af þvi fer i súginn. En
eins og ég hef þegar tekið fram,
þá er það afsökun, sem ég visa á
bug, að menn hafi meira en nóg
hey. — JH
„Meira en nóg hey - því
vísa ég á bug”
- segir Halldór búnaðarmálastjóri
— Sjálfsagt hafa aldrei verið
jafnmikil hey á landinu og núna I
haust, sagði Halldór Pálsson
búnaðarmálastjóri, er Timinn
átti tal við hann, nýkominn norð-
an úr landi. Sunnan lands og vest-
an eru þau að vísu miklu meiri að
magni en gæðum, en norðan lands
og austan fékkst afbragðsfóöur.
En þó að mikil hey sé til i landinu^
þá eru þau ekki ofmikil. Hugtakið
,,of mikil hey” er ekki til«:,Það
getur aldrei gerzt, sagði búnaðar-
málstjóri.
Eins og allir vita, sagði
búnaðarmálastjóri enn fremur,.
hafa túnin sifellt verið að stækka
að undanförnum, en vegna kals
og áfalla hefur það ekki komið
frarri i auknum heyfeng. Nú eru
kalskákirnar grónar, og I ljós
kom, að hin kaldari sumur, er á
undan eru gengin, hafa safnazt
fyrir i jarðveginum áburðarefni,
sem komu jurtunum að notum,
þegar betur áraði til grassprettu.
Túnin hafa sprottið til fyllstu
nytja i ár. Það er þvi engin furða,
þótt heyfengurinn sé mikill.
Samt hafa ekki verið slegin öll
tún á Suðurlandi, og það finnst
mér litt afsakanlegt. Það hefðu
alltaf átt að vera einhver ráð til
þess að koma grasinu i vothey, ef
menn hefðu einbeitt sér að þvi.
Ég get ekki heldur látið hjá liða
að minnast á það, sem ég sá sums
staðar i norðurferðinni, að illa er
gengið frá heyjum á sumum bæj-
um. Þau eru ekki nógu vel borin
upp, og þaðer ekki girt i kringum,
svo að skepnur komast að þeim.
Það er likast þvi, að sumir þess-
ara manna hafa ekki lært að búa
um hey til geymslu úti.
Sumir þessara manna búa
kannski við fólkseklu og annriki,
en aðra bagar trassaskapur og
Stöðva ber tafar- og skilyrðis-
laust þá öldu hermdarverka
- sem gengið hefur yfir heiminn í vaxandi mæli,
sagði Haraldur Kröyer í dagskrárnefnd S.Þ.
KJ—Reykjavik.
— Islenzka sendinefndin telur,
að Allsherjarþingið myndi skjóta
sér undan þeirri ábyrgð, sem á
þvi hvilir, ef það verður ekki við
þessari beiðni framkvæmdastjór-
ans og freisti þess að finna lausn á
vandanum, hversu erfitt sem það
kann að reynast, sagði Haraldur
Kröyer, fastafulltrúi islands hjá
Sameinuðu þjóðunum, við um-
ræðum um tillögu Kurt Waldheim
framkvæmdastjóra samtakanna
um nýjan dagskrárlið 27. Als-
herjarþingsins um ráðstafanir
gegn hryðju- og hermdarverkum.
Tillaga Waldheims var samþykkt
með atkvæðum 15 rikja, en sjö
riki greiddu atkvæði gegn tillög-
unni og tvö sátu hjá. 1 samræmi
við málflutning fastafulltrúa Is-
lands, greiddi island atkvæði með
tillögunni, og flutti ræðu — að
höfðu samráði við hinn Norður-
löndin.
Auk þess, sem sagt er i upphafi
fréttarinnar, sagði Haraldur
Kröyer m.a. samkvæmt fréttatil-
kynningu utanrikisráðuneytisins:
„Þjöðir Norðurlanda eru ein-
dregið þeirrar skoðunar, að
stöðva beri tafarlaust og skil-
yrðislaust þá öldu hermdarverka,
sem gengið hefir yfir heiminn i
vaxandi mæli, hvort sem flug-
vélarán er um að ræða, morð eða
manndráp. Gegn slikum hryðju-
verkum verða einstök riki að
berjast, ekki siður en alþjóðleg
samtök, svo sem Sameinuðu
þjóðirnar. lslenzka þjóðin og
þjóðir allra Norðurlanda myndu
undrast, ef Sameinuðu þjóðirnar
neituðu að vera við þeirri ósk
framkvæmdastjórans, að taka
mál þetta á dagskrá og a.m.k.
ræða hryðjuverk þau, sem for-
dæmd eru um gjörvalla veröld.
Allsherjarþingið getur tvimæla-
laust skilgreint hvers konar að-
gerðir það eru, sem við viljum
fordæma og hindra. Fulltrúi
Frakklands ræddi þetta mikil-
Framhald á bls. 19
Safnaðarheimili í Grensássókn
i fyrradag var vígt félagsheimili Grensássafnaðar, þar sem messað mun verða næstu árin. Fór
vigslan fram hátiðlegum hætti að viðstöddum allmörgum bæjarprestum og fjölda safnaðarfólks. Hér
sést biskupinn, Sigurbjörn Einarsson, vigja félagsheimilið til hins tviþætta hlutverks, er það mun gegna
næstu árin. Að neðan sést yfir samkomusalinn.
Ljósmynd: TIMINN — GE.