Tíminn - 03.12.1972, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 3. desember 1972
Fjölskyldu-
SKEMMTUN
i Súlnasal Hótel Sögu i dag — sunnu-
daginn :J. desember — kl. 3 og 9 e.h.
BAItNASKEMMTUN KL. 3 E.H.
Kynnir Pálmi Pétursson kennari.
Skemmtiatriði:
1. Telpnakór öldutúnsskóla.
2. Þórhallur Sigurðsson, skemmtir.
3. Halla Guðmundsdóttir og Hjalti
Rögnvaldsson, skemmtiþáttur.
4. Dans. Ragnar Bjarnason og hljómsveit
láta börnin dansa. Jólasveinar koma i
heimsókn með lukkupoka.
Á barnaskemmtun: Glæsilegt leikfanga-
happdrætti með 400 vinningum.
SKEMMTUN KL. 9 E.H.
Kynnir Gunnar Eyjólfsson.
Skemmtiatriði:
Ávarp: Frú Hulda Á Stefánsdóttir.
1. Sólskinsbræður syngja með undirleik
Áslaugar Helgadóttur.
2. Róbert Arnfinnsson og Valur Gislason
flytja samtalsþátt úr „Sjálfstæðu fólki”.
3. Maria Markan og Tage Möller rifja upp
gamla söngva.
Á kvöldskemmtun: 250 vinninga skyndi-
happdrætti. Margir glæsilegir munir, m.a.
Hugferð til Kaupmannahafnar (FI).
Aðgöngumiðar seldir laugardaginn kl. 2-4 og við inngang-
inn.
Borð tekin frá um leið. Verð aðgöngumiða fyrir börn kr.
50.00, fullorðna kr. 100.00. — Aögangur kl. 9 er kr. 200.00.
Ath: Aðgöngumiði kvöldsins gildir sem
happdrættismiði. Dregið kl. 12. Vinning-
ur: Ferð til Mallorca með Ferðaskrifstof-
unni úrvali.
Húsið opnað kl. 7 fyrir matargesti. —
Dansað til kl. 1. — Hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar.
öllum ágóða af skemmtununum verður
varið til kaupa á húsmunum, vinnu- og
leiktækjum til heimila félagsins.
Fjáröflunarnefnd
Styrktarfélags
VÁNGEFINNA.
Lk I I m DAS-pronto
til heimavinnu, sem ekki þarf að brenna í
ofni. Einnig litir, vaxleir og vörurtil venju-
legrar leirmunagerðar.
STAFN H.F.
UMBOÐS-OG HEILDVERZLUN
Brautarholti 2 — Sími 2-65-50.
Árelíus Níelsson:
UÓS í KIRKJUM
Eitt af þvi, sem gerir Dan-
mörku ógleymanlegasta i hugum
og minningum margra er
klukknahljómurinn, sem bókstaf-
lega bergmálar um allt landið um
miðaftansleytið á hverjum degi.
Þessi hljómur gefur hverri
minningu frá þessu fagra
menningarlandi einhvern mildan
blæ og bendir ofar hinu hvers-
dagslega inn i veröld fegurðar og
elsku og svo hefur verið i margar
aldir.
Stundum hef ég óskað, að ís-
land gæti eignazt slikan hljóm,
sem gæti bergmálað i eyrum og
vitund gesta frá framandi lönd-
um löngu eftir að landið væri
horfið augum þeirra.
En sú ósk getur sjálfsagt aldrei
rætzt. Island er ólikt Danmörku.
Fjöll þess og firnindi, lautir og
leiti, auðnir og öræfi mundu kæfa
slika óma löngu áður en úr yrði
samfelld hljómkviða eins og i
Danmörku.En annað gæti komið
i ómanna stað, sem yrði Islandi
og minningum héðan eins mikils
virði eins og klukknahljómurinn
Danmörku. Og það er ljósið, ljós-
ið, sem einmitt skin skærast i
skammdegismyrkrinu.
Einn af æskuvinum minum,
maður að vestan, sem alltaf hefur
unnað kirkju og kristni heilshug-
ar, mun nú hafa ritað biskupi
landsins bréf, þar sem hann segir
á þessa leið: „Æskilegt væri, að
flestar eða allar kirkjur á íslandi
væru upplýstar i skammdeginu,
þótt ekki væri nema að hluta, til
dæmis turnarnir, til jákvæðra
áhrifa fyrir þjóðina”.
Og enn segir hann: „Ljós i
kirkjum okkar i skammdeginu
mundi efla kirkjuna og vera i
mörgum tilfellum leiðarljós veg-
farendum bæði á sjó og landi. Ef
til vill ættu þessi ljós kirkna að
vera i öðrum lit til aðgreiningar
frá oðrum ljósum”.
Ég er þessum vini minum al-
gjörlega sammála. Á sum^in er
tsland ljóssins heimur, „nóttlaus
voraldar veröld”, sem skáld hafa
nefnt Thule — Sólarey og sól-
skinsparadis i Atlantshafi. A
veturna er hins vegar valdi
myrkranna vart takmörk sett,
þótt ljós, sem unnið er úr foss-
anna skrúði bægi skuggum brott
úr borg og bæ nú orðið. Og sú
ljósadýrð er svo mikil t.d. um
jólaleytið hér i Reykjavik, að
ungur Vesturheimsmaður, sem
hér dvaldi árlangt, en hafði ferð-
azt viða um sitt land, Bandarikin,
sagðist aldrei hafa séð svo sam-
fellda ljósadýrð ibúðarhúsa, sem
hér um jólin og reyndar enga bet-
ur lýsta borg.
Svona vel hefur tekizt að bægja
skuggunum á braut af vegum og
úr hýbýlum fólksins i þessu ann-
ars mikla náttmyrkranna landi.
En samt er langt frá, að eins
hafi heppnazt að hrekja myrkrið
og mæðu þess og ótta úr hugar-
fylgsnum. Þar gætu kirkjuljósin
átt sitt hágöfuga hlutverk og þar
hafa margir sýnt skilning og fórn-
fýsi og gefið upplýsta krossa og
tákn.
Eitt er vist, kirkjan er vigð til
þjónustu við þann Meistara á
vegum mannkyns, sem hefur
hlotið nafnið: Ljós heimsins.
Engum hefur enn tekizt, þrátt
fyrir stöðuga viðleitni systranna
svörtu: Heimsku og Grimmdar
að svipta hann þessum heiðurs-
titli.
Og jólin minna öllu öðru fremur
á þetta ljós, sem skin i myrkrun-
um öllum á vegum jarðarbarns.
En þau minna einnig á hann sem
leiöarljós.fyrírmynd allra i öllum
atvikum og frelsara frá böli og
syndum, sé honum leyft að lýsa
þannig er ljóminn bak við kross-
inn, ef rétt er á litið.
Fáir unna ljósi og vori heitar en
íslendingar, og er það ekki furða.
Hér var ljósið munaður i baðstof-
um fyrri alda og við það voru
skráðar bækur, sem enn geyma
speki, fegurð og sannleika. Ein
ljóstýra i litlum glugga var vörð-
ur um innsta kjarna fslenzkrar
menningar gegnum öll skamm-
degismyrkur aldanna. Og hvergi
birtist sá ljómi betur en frá kirkju
og hennar þjónum, þrátt fyrir öll
mistök þeirra og misskilning.
Það á þvi sannarlega við, að
kirkjurnar beri ljós i skammdegi,
sem helzt yrði samfelldir geislar
frá bæ til bæjar, frá byggðarlagi
til byggðarlags, eins og bergmál
kirkjuklukknanna i Danmörku.
Slikt mundi hæfa tslandi vel og
þeim, sem þar hafa um aldir
gerzt ljósberar og leiðarljós.
Einn af beztu sonum íslenzku
kirkjunnar, Valdemar Snævarr
sagði um hana þessar táknrænu
hendingar:
„Hún er sem viti lifs á leiðum
er logar stillt og rótt
og vegamerki á háum heiðum
og himinljós um nótt”.
Sannarlega gætu upplýstar
kirkjur i skammdegismyrkrum
ókominna ára og alda gert þessi
orð að lifi, helgum þætti i menn-
ingu Islands. — Hlustið þvi á boð-
skap þessa vinar að vestan um
ljós i kirkjunni.
Ég vil skora á alla, sem hlut
eiga að máli og framkvæmdaafl
hafa, biskup, sóknarnefndir,
kirkjuráð og kirkjuhaldara að
kveikja ljós kirknanna i sem
fyllstum skilningi nú strax á þess-
um jólum, útvega viðeigandi ljós
og ljósabúnað sem allra fyrst
undir yfirskriftinni: „Kveikjum
ljós i kirkjum íslands”.
ARMULA 7 - SIMI 84450
Jóla-
fötin
nýkomin
Vesti og buxur (sett) í
stærðum 3-10.
Buxurá telpur og drengi.
Skyrtur, geysilegt úrval.
Slaufur, bindi, úlpur,
jakkar og margt fleira.
Klæðskeraþjónusta.
Póstsendum.
Laugavegi 71, sími 20141
Kjötverzlun
TOMASAR
Ætlið þér að senda œttingja eða
VINIERLENDIS
hangikjöt eða annað hnossgœti?
Ef þér viljið spara yður hlaup og erfiði
leysum við allan vandann
fyrir yður á nokkrum mínútum
I Kjötverzlun Tómasar, Laugavegi 2, getiö þér valiö O
matinn, fengiö hann pakkaöan og sendan á áfanga- -
staö — hvar sem er i heiminum. U/®
Viö pökkum hangikjötinu i loftþéttar umbúöir og
göngum frá öllum öörum mat á viöeigandi og vS'
öruggan hátt. V/,
Við önnumst siöan sendinguna — og getur viðskipta-
vinurinn greitt flutningskostnaöinn i verzluninni.
Þannig getiö þér sparaö yður mörg spor í önnum
jólamánaöarins.
Kjötverzlim