Tíminn - 03.12.1972, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 3. dcscniber 1972
Magnús (lcstsson.
Ny bok: Mannlíf og mórar í Dölum
„Mannllf og mórar i Dölum”
heitir samsafn af sögum og fróð-
leik, sem varðveitzt hefur i minni
manna i Dalasýslu. Magnús
Gestsson safnaði.
Mest eru þetta frásagiiir af
mönnum, sem ekki bundu bagga
sina sömu hnútum og aðrir sam-
ferðamenn, en voru eftirminni-
legir höfðingjar, hver á sinn sér-
stæða hátt.
Segir frá slysförum og svaðil-
förum, merkum draumum og
sýnum, fylgjum og mögnuðum
draugum, sagnir eru um álaga-
bletti og útburði og langur þáttur
er um Sólheimamóra.
Flest hefur þetta gerzt á tima-
bilinu frá þvi nokkru fyrir alda-
mótin og fram á fimmta tug þess-
arar aldar.
Bókin er gefin út hjá Skuggsjá,
er 264 blaðsiður meö nafnaskrá og
efnisyfirliti.
Hjarðarfellsætt
- rit Þórðar Kárasonar
Nýlcga er komið út mikið
ættartölurit, lljarðarfeilsætt, sem
Þórður Kárason lögregluþjónn
hefur tekið saman. i ritinu kynnir
höfundur afkomendur Þórðar
Jónssonar á Hjarðarfelii,(>—7 ætt-
liði til þessa árs, alls um 2500
niðja. Enn er þessi ætt fjölmenn á
Snæfellsnesi, þó dreifð sé nú um
iand allt. Þá er hún einnig fjöl-
menn i Norður-Ameriku.
Saman við niðjatalið er blandað
visum og frásögnum um mæta
menn og kjarnakonur vestur þar.
Sagnamenn og ritsnillingar hafa
lýst þessu fólki, m.a. séra Arni
Þórarinsson og Þórbergur: ,,Hjá
vondu fólki” og Oscar Clausen:
„Með góðu fólki” og i fleiri ritum
hans.
t bókinni eru yfir 600 manna-
myndir, þar af nokkrar frá 19.
öld. Ennfremur mynd af Selja-
nessmóra, sem raunar var ekki
Snæfellingur, heldur slæðingur á
Ströndum. Maður af Hjarðar-
fellsætt festi hann á filmu fyrir
nær 40 árum.
1 bókinni eru ættartöluform,
Þórður Kárason.
með sýnishornum handa þeim,
sem vilja á einfaldan og hentugan
hátt safna upplýsingum um ættir,
frá forfeðrum til núlifandi kyn-
slóðar. Einnig er þeim ófæddu
ætlaður þar staður.
Ný bók:
Prófasts-
sonur
segir frá
„Prófastssonur segir frá”
heitir bók, sem Ingólfur
Kristjánsson hefur fært i letur
eftir forskrift Þórarins Arnason-
ar frá Stórahrauni. Séra Arni
Þórarinsson prófastur, faðir Þór-
arins, er ein frægasta sagnaper-
sóna siðari tima. Þórarinn hefur i
rikum mæli erft frásagnargleði
föður sins, hann er hreinskilinn i
bezta máta og glettni i frásögn er
honum i blóð borin.
Auk foreldra sinna segir Þórar-
inn frá kunnum mönnum, sem
komu á æskuhfeimili hans, s.s.
Einari Benediktssyni, Vilhjálmi
Stefánssyni, Ingimundi fiðlu og
Oddi sterka af Skaganum.
Þetta er hispurlaus og
skemmtileg bók, hlý og umtals-
góð um náungann, létt og oft
gamansöm lýsing á lifi góðs sögu-
manns og mikils fjölda samferð-
armanna.
Skuggsjá gefur bókina út og er
hún 208 blaðsiöur, prýdd
myndum.
Ný bók:
Fornar byggðir á
hjara heims
„Fornar byggðir á hjara
heims” heitir ný bók eftir Poul
Norlund. Dr. Kristján Eldjárn
þýddi. Bókin segir sögu landnáms
á Grænlandi og skýrir frá vexti og
viðgangi byggðanna og loks falli
þeirra. Frásögnin er alþýðleg og
auðlesin, en styðst þó hvarvetna
við beztu heimildir. Einkanlega
eys höfundur af brunni þeirra
miklu fornleifarannsókna, sem
hann og aðrir hafa gert i ts-
lendingabyggðum á Grænlandi.
Bókin hefur orðið mjög vinsæl og
verið þýdd á margar tungur, m.a.
á grænlenzku. Bókin er 154 blað-
siður i nokkuð stóri broti. I henni
I)r. Kristján Eldjárn.
er fjöldi mynda og uppdrátta tsa-
foldarprentsmiðja gefur út.
Ný barnasaga:
Dvergurinn
Dormí-
Lúr-Í-Dúr
„Dvergurinn Dormi-Lúr-t-
Dúr” heitir barnasaga eftir Þóri
S. Guðbergsson. Greinir þar frá
undarlegum ævintýrum Péturs
og Lisu-og samskiptum þeirra við
dverginn Dormi-Lúr-t-Dúr. Þau
komast til undralandsins og
verða margs visari.
Höfundurinn, Þórir S. Guð-
bergsson, er mörgum kunnur af
fyrri bókum sinum. Nægir þar að
nefna söguna um Kúbb og Stubb,
sem byggð er á samnefndu leik-
riti, en er nú ófánanleg. Þórir hef-
ur skrifað margar bækur fyrir
unglinga, en einnig fyrir yngstu
kynslóðina i Æskunni.
Þórir S. Guðbergsson.
t nýju bókinni eru spurningar
aftan við hvern kafla um efni
kaflans. Sigrid Valtingojer teikn-
aði myndir i bókina og á kápu.
Bókin er 69 blaðsiður.
Ógnvaldur skíðaskálans
SB—Heykjavik
Út er komin þriðja bók hins
unga rithöfundar Einars Þor-
grimssonar, sem kvaddi sér
hljóðs árið 1970 með „Leyni-
hellinum”. Nýja bókin heitir
„Ögnvaldur skiðaskálans”.
Greinir þar frá 1. bekk gagn-
fræðaskóla eins, sem heldur
glaður og reifur i helgarskiða-
ferðalagi. Ferðalagið breytist þó
fljótlega i æsispennandi baráttu
við óþekkta veru, sem ógnar lifi
og limum ferðalanganna. Bókin
er hörkuspennandi frá upphafi til
enda og þvi kjörið lestrarefni
fyrir unga pilta.
Auk áðurnefndra tveggja bóka,
hefur Einar skrifað
„Leyndardóma eyðibýlisins”,
sem kom út fyrir siðustu jól.
Nýja bókin er 124 blaðsiður, gefin
út af höfundi.
Eiiiar Þorgrtmsson
Ljóðabók
Kára Tryggvasonar:
Til uppsprettunnar
„Til uppsprettunnar" heitir ný
ljóðabók eftir Kára Tryggvason
og er það tuttugasta bók hans.
Flestar bóka hans eru barnasög-
ur og hefur ein þeirra, Disa á
Grænalæk verið gefin út þrisvar.
Af fyrri ljóðabókum Kára má
nefna Yfir Ódáðahraun, Hörpur
þar sungu og Sunnan jökla. t nýju
bókinni eru 45 ljóð og skiptast þau
i tvo flokka: Orð og atvik og Hug-
leiðingar. Bókin er 73 blaðsiður,
tsafoldarprentsmiðja hf. gaf út.
Kári Tryggvason.
Félag
tamningamanna
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn 9. des. nk. i
Kristalssal Hótel Loftleiða og hefst kl. 10 fh.
Ný bók
eftir Theresu Charles:
Þeir, sem
hún unni
„Þeir, sem hún unni” heitir
nýjasta bókin eftir Theresu
Charles, A bakhlið bókarinnar
stendur, að höfundur hafi enn
einu sinni hitt naglann á höfuðið.
Enn á ný hefur henni lánazt, að
skrifa skáldsögu, sem er svo yfir-
þyrmandi spennandi, að aðeins
vinsælustu bækur sjálfra hennar
komast þar i samjöfnuð við. Enn
á ný geta þvi aðdáendur hennar
glaðzt við lestur heillandi ástar-
sögu, sem er hvort tveggja i senn,
hrifandi fögur og hlaðin drama-
tiskri spennu.
Útgefandi er Skuggsjá, bókin er
170 blaðsíður og Andrés
Kristjánsson þýddi, eins og fyrri
bækur höfundar.
Rýmingarsala
Vandaðir nýir svefnbckkir
nú aðeins kr. 3.500.
Nýir svefnsófar kr. 5.500
(llálfvirði).
Nýir hjónasvefnbekkir 110
cm. breidd kr. 5.500. Sófa-
sett, _ gjafverð, vandað
áklæði. Seijum svamp eftir
máli.
Sendum gegn póstkröfu.
Notið tækifærið
Sólaverkstæðið,
Grettisgötu 69, simi 20676.
Opið til kl. 9.
Jólii
%>> skeiðarnar '
komnar
TVÆR STÆRÐIR
Verð kr. 495,00
Verð kr. 595,00
Sent gegn
póstkröfu
GUÐMUNDUR Xj
ÞORSTEINSSON N*
Gullsmiður vs
Bankastræti 12
X Sími 14007 ^
jFRÍMERKI — MYNT
Kaup — >ala
Skrífið eftir ókeypis
vörulista.
Frímerkjamiðstöðin
Skólavörðustíg 21 A|
Reykjavík