Tíminn - 24.12.1972, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.12.1972, Blaðsíða 3
Sunnuclagur 24. desember 1972 TÍMINN 3 SKINNUM Á UPPBOÐI I LONDON ALLT AÐ 60% HÆKKUN Á MINKA Rafmagnsskömmtun Ó-Reykjavík Minkaskinn voru boðin upp á vegum Hudson Bay og Annigs Ltd. i London i þessari viku. Á þessu desember uppboði voru seld 885 þúsund minkaskinn, og voru þau alls staðar að úr heiminum. Frá Skandinaviu komu um 300 þúsund skinn. Það er mjög athyglisvert við þetta uppboð, hvað verð 5 minkaskinnum hefur hækkað mikið frá desember uppboðinu i fyrra, og i sumum tilfellum nemur hækkunin allt að 60% og var hvergi minni en 15%. Skúli Skúlason umboðsmaður Hudson Bay á fslandi. sagði i viðtali við blaðið, að iþettasinn hefðu aöeins verið seld 1700 skinn frá Islandi, islenzku skinnin færu ekki almennt á markaðinn fyrr en á stærsta uppboð ársins, sem haldið er i febrúar. Af svörtum skinnum voru 83 þúsund til sölu og seldust um 93% þeirra. Fyrir skinn af karldýri fékkst 7.53 pund eða um 1770 krónur samkvæmt nýja genginu og er þaö um 15% hækkun. Fyrir skinn af læðu fengust 4.54 pund eða um 1067 kr, og er það hækkun, sem nemur 40% 7700skinn af hvitminki voru til sölu og seldust öll. Meðalverð á karldýrsskinnunum var 8.84 pund, cða 2077, kr. ,sem er 35% hækkun frá þvi i fyrra. Fyrir skinn af læðu fengust 5.88 pund eða 1380 krónur, og hér er hækkunin frá þvi i fyrra hvorki meira né minna en 60%. 49 þúsund safirskinnn voru til sölu og seldust 79% af þeim, Fyrir skinn af karldýri fékkst 7.43 pund eða 1746 krónur, og er það svipað verð og i fyrra. Læðurnar stððu sig öllu betur þar, eins og raunar i öllum skinnaflokkunum, en fyrir skinn af læðu fékkst að meðal- tali 4.42 pund eða 1039 krónur og er það 12,5% hækkun. Af tegundinni Black cross voru 20 þúsund skinn i framboði og seldust þau öll. Fyrir skinn af karldýrum fékkst að meðaltali 8.40 pund eða 1974 kr., sem er 25% hækkun og fyrir skinn af læðu 5,20 pund eða 1222 kr. sem er 35% hækkun. Ein skinnategundin heitir „perla” og á uppboðinu voru 14000 skinnaf þeirri tegund til sölu, og seldust þau svo til öll. Skinn af karldýri seldust fyrir BSI Afgreiðsla allra sérleyfis- bifreiða sem aka til og frá Reykjavík. AAiðstöð allra hópferða Pakkaflutningur Söluturn - Veitingastofa Nætursala - Næturbenzín Bifreiðastöð íslands Umferðamiðstöðin — Sími 22300 6.76 pund eða 1588 kr, en það er 15%) hækkun og skinn af læðu seldust fyrir 4.65 pund, eða 1092 kr., og er það 45%> hækkun. Þeir flokkar, sem hér eru að framan taldir, eru allir fram- leiddir á islandi og ætti þvi hljóðið i islenzkum minkaeigendum að fara batnandi. Stærsta uppboð ársins fer fram i febrúar og verða þá á boðstólnum milli 10 og 15 þúsund skinn frá Islandi. Stp—Reykjavik. Um það bil, er blaðið fór i prentun um hádegi i gær. barst sú tilkynning frá Rafmagnsveitunni, að i dag. aðfangadag, yrði skömmtun á rafmagni á tima- bilinu milli kl. 7.00 og 24.00. A mesta álagstimanum, þ.e. milli kl. 16.00 og 18.00jverður straum- laust i 1 klst. i senn og straumur látinn i té i 45 minútur þess á milli. Á öðrum timum á aðfanga- dag verður straumlaust i 1 klst. i senn og straumur látinn i té 1 til 2 klst. þess á milli. ttreka ber. að ekki er unnt að láta vita fyrirfram á hvaöa timum straumlaust verður i ein- stökum hverfum. Ekki var heldur kleift i gær að segja til um, hvenær viðgerð lyki. Stóð mest á þvi að koma línunum þremur yfir Hvitá og getur það tekið alllangan tima, jafnvel einn dag með hverja linu. Eins og komiðhefur fram áður, eru þyrlur notaðar við þessar aðgerðir. Þótt rafmagnsskömmtun verði á jóladag, má búast við, að hún verði nokkuð rýmri heldur en á aðfangadag, þar sem jóladagur er venjulega ekki mjög álags- þungur. KAUPFELAG Vestmannaeyja VESTMANNAEYJUM óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þakkar viðskiptin á liðnum árum KAUPFÉLAG Ólafsfjarðar ÓLAFSFIRÐI óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þakkar viðskiptin á liðnum árum Nesti h.f. er opið í dag Bílveitingastofur kl. 9-4 — Benzínafgreiðsla kl. 9-3 Nesti i Fossvogi — Nesti við Elliðaár — Nesti á Ártúnshöfða Nesti h.f. óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla KOAAIÐ í NESTI VERZLIÐ í NESTI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.