Tíminn - 18.01.1973, Page 1
---------------------------- " \
ALÞÝÐU-
BANKINN HF.
WÖIEL LOFrífliBSf I
SUNDLAUGIN
er eitt af mörgu, sem ,,Hótel Loftleiöir"
hefur til síns ágætis og umfram önnur
hótel hérlendis. En þad býöur líka afnot
af gufubaöstofu auk snyrti-, hárgreiðslu-
og rakarastofu.
VISID VINUM A HÓTEL
LOFTLEIÐIR.
Afgreiðslubann á ísl.
fisk í Þýzkalandi?
— ákvörðun tekin í næstu viku
NTB-Bonn
Vestur-þýzka stjórnin mun til-
kynna i næstu viku, hvort hún
styöur tillögu fjögurra fylkja i
landinu, um að afgreiðslubann
verði sett á islenzkan fisk i eina
viku.
Fylkin fjögur, sem um ræðir,
eru Slésvik-Holtsetaland, Neðra-
Saxland, Hamborg og Bremen, og
hafa þau lagt fram tillöguna á
grundvelli þess, að þau álita Is-
lendinga brjóta alþjóðalög með
Framhald á bls. 19
Reynir Leósson.
REYNIR í SJÓN-
VARP ERLENDIS
KJ-Reykjavik
i morgun fór Reynir Leós-
son, aflraunamaðurinn nafn-
kunni, til útlanda, og mun
hann á næstunni ræða við full-
trúa crlendra sjónvarps-
stöðva, ásamt aðstoðarmönn-
um sinum.
Reynir sagði i viðtali við
Timann i gær, að ferðinni væri
heitið til Danmerkur, Sviþjóð-
ar, Englands og Þýzkalands.
Mun hann hafa meðferðis ein-
tak af kvikmyndinni, sem Vil-
hjálmur Knudsen hefur gert
um aflraunir hans að undan-
förnu. Ekki mun Reynir sýna
neinar verulegar aflraunir i
þessari ferð sinni, en þó getur
komið til greina að hann fari i
fangelsi og reyni að komast úr
rammgerðum klefum.
Svo sem kunnugt er, þá hef-
ur Reynir fengizt við uppfinn-
ingar, og m.a. hefur hann
fundið upp höggdeyfi á stýri
vörubifreiða. Var hann hjá
Volvoverksmiðjunum fyrir
nokkru, en þar er nú verið að
reyna þessa uppgötvun
Reynis.
I utanferðinni núna, mun
hann einnig koma við hjá
Volvo-verksmiöjunum og eiga
viðræður við ráðamenn þar.
Þeir, sem fara með Reyni,
eru Ásmundur Jóhannsson,
lögfræðingur á Akureyri, og
Baldur Þórisson, sölustjóri
hjá 01 og gos i Reykjavik, en
það fyrirtæki annast m.a.
dreifingu á Thule-öli. Við afl-
raunir sinar drekkur Reynir
mikið af Thule bjór, og segir
hann, að sér verði sérlega gott
af þvi eftir öll átökin.
Almennur fundur um þangvinnsluna vestra:
Heimamenn einhuga
um framkvæmdir
ÓIÓ—Króksfjarðarnesi
Almennur fundur var á þriðju-
dagskvöldið haidinn á Reykhól-
um um fyrirhugaða þang- og
þaraþurrkunarverksmiðju.
Sigurður Hallsson efnaverk-
fræðingur kom á fundinn og
skýrði frá þvi helzta, sem á góma
hefur borið i málinu.
Félagssamtök heimamanna,
Sjávaryrkjan, samþykktu einum
rómi að gerast aðili að hlutafélagi
þvi, sem stofna á til að annast
undirbúningsframkvæmdir við
verksmiðjuna. Fundarmenn lýstu
yfir ánægju sinni með skilning
rikisvaldsins á málinu og kváðust
vinna einhuga að framgangi þess.
Fundurinn var fjölmennur, og
kom þar ekki fram neitt atriði,
sem ágreiningur varð um, svo
mikill einhugur rikti.
Atvinnumálaráðherra mun
vera búinn að skipa tvo menn i
stjórn væntanlegs hlutafélags, og
munu þeir vera byrjaðir að
annast aðkallandi undirbúning,
svo sem athuganir á hafnar- og
vegastæði vegna verk-
smiðjunnar.
Handtökumál S.A.M.
fyrir Hæstarétti
JGK—Reykjavík.
I gær var tekið fyrir i Hæsta-
rétti mál það, sem Sigurður A.
Magnússon hefur höfðað gegn
fjármálaráðherra f/h rikissjóðs.
Forsaga þessa máls er sú, eins og
áður hefur verið rakið hér, að
hinn 21. desember 1968 var
Sigurður handtekinn af lögregl-
unni fyrir utan veitingahúsið
Sigtún, eftir að hafa setið þar
mótmælafund á vegum Grikk-
landshreyfingarinnar. Málið hef-
ur verið tekið fyrir í undirrétti, og
var rikissjóður þá sýknaður af
kröfunum.
Kröfur Sigurðar eru byggðar á
þvi, að hann hafi orðið fyrir ólög-
mætri handtöku, hafi orðið að
þola harðræði af hálfu lögregl-
unnar og orðið að þola ærumeið-
ingar i fjölmiðlum af hálfu yfir-
lögregluþjónsins i Reykjavik. Þá
er það skýrt tekið fram i mál-
flutningnum, að Sigurður hafi
enga ábyrgð borið á fundinum né
mótmælagöngunni, sem ákveðin
var eftir fundinn. Lögmaður
Sigurðar er Jón E. Ragnarsson.
Lögmaður f/h rikissjóðs,
Sigurður Ólason hrl., heldur þvi
fram, sem gagnrökum, að lög-
reglan hafi verið i fyllsta rétti, er
hún tók Sigurð fastan, og vitnar
til 74. greinar stjórnarskrárinnar
þvi til stuðnings. Þar segir, að
lögreglan megi fylgjast með og
banna mannsafnað, ef „uggvænt
þykir, að af þeim leiði óspektir”.
Þá heldur hann þvi fram, að þar
eð áfrýjandinn, þ.e. Sigurður A.
Magnússon hafi setið fundinn og
hlýtt á ályktanir hans og hafi
jafnframt verið i miðjum hópi
göngumanna, þegar gengið var út
úr húsinu, hafi hann þvi verið
fullgildur þátttakandi i þvi, sem
fram fór.
Kröfur lögmanns Sigurðar á
hendur rikissjóði eru 75 þús.
krónur i miskabætur og 7% árs-
vextir frá 21. des. 1968 til
greiðsludags, auk þess sem rikis-
sjóður greiði allan málskostnað.
Lögmaður rikissjóðs krefst
sýknunaraf þessum kröfum og að
málskostnaður greiðist af
áfrýjanda. Niðurstöðu dómsins er
að vænta innan skamms.
Hann er sjóklæddur eins og i ágjöf á fiskiskipi, enda er vossöm vinna að skera þang og koma þvi á bila,
hvort heldur er austur á Stokkseyri eða vestur I Reykhólasveit.
Skorið aftan úr 17.
togaranum í gær
Varðskip klippti á
báða togvira brezka tog-
arans Lunelda FD-134,
frá Fleetwood klukkan
18.25 i gærkvöldi. Lun-
elda var að veiðum 18.5
sjómilur innan
fiskveiðilögsögunnar á
Vopnafjarðargrunni.
Skipstjóra togarans
höfðu verið gefnar itrek-
aðar aðvaranir sem
hann sinnti i engu, og
voru þá togvírar togar-
ans skornir, þrátt fyrir
það að liann hefði ann-
ann togara sér til að-
stoðar og verndar við
veiðarnar. —Þetta var i
annað sinn á tæpum
sólarhring sem varðskip
klippir á vira brezks
togara.
Varðskipið Týr klippti i fyrsta
skipti á vira brezks togara i
fyrrakvöld, eftir harða viðureign
við togarann Vanessa GY 257.
Þeir Týsmenn skáru á annan
togvir togarans, svo liklega hefur
hann ekki tapað trollinu, en lang-
an tima hefur það tekið að hifa
allt inn á öðrum virnum.
Sex brezkir togarar höfðu veitt
Vanessa aðstoð við ólöglegar
veiðar út af Digranesi (á Vopna-
fjarðargrunni), og einn brezku
skipstjóranna gerðist meira að
segja svo djarfur að ætla að sigla
á varðskipið. Það var ekki fyrr en
skipherrann á Tý hafði sent menn
fram á hvalbak, þar sem
fallbyssu var komið fyrir i stað
hvalbyssu i haust, að brezku skip-
stjórarnir sex létu sér segjast, og
hættu að ógna varðskipinu.
Varðskipið hélt sig áfram i
nánd við togarann, og eftir itrek-
aðar aðvaranir um kvöldið \,ar
látið til skarar sk,riða gegn hon-
um, og skorið á annan togvirinn.
Skorið á hjá
17 togurum
Frá þvi landhelgin var færð út i
50 milur 1. september s.l. hefur
hinu áhrifarfka vopni viraklipp-
unum verið beitt 17 sinnum gegn
erlendum landhelgisbrjótum.
Fjórtán sinnum hafa brezkir tog-
arar orðið fyrir barðinu á klipp-
unum, en i tvö skipti hefur verið
skorið á hjá vestur-þýzkum tog-
urum. Hafa ýmist báðir eða ann-
ar togvirinn verið skorinn, en
þegar skorið er á báða virana,
missa togararnir trollið og það
sem þvi tilheyrir. Brezkir togara-
eigendur telja trollin um hálfrar
milljón króna virði.