Tíminn - 18.01.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.01.1973, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. janúar 19711 TÍMINN 3 Keppa Fischer og Spasski í vor? — Sovézkir skákmenn tefla við úrval allra annarra þjóða á móti í Hollandi Fái Boris Spasski, fyrrverandi heimsmeistari i skák, leyfi sovézkra yfirvalda til að taka þátt i skákmóti i Hollandi i maimánuði n.k., munu þeir Fischer og hann leiða þar saman hesta sina, tæpu ári eftir hið sögulega einvigi, sem þeir háðu i Reykjavik. Vafasamt er talið, að Rússar leyfi Spasski að fara og hætta á, að hann tapi enn fyrir Fischer. Spasski hefur verið gagnrýndur harðlega i Pravda fyrir að hafa ekki undirbúið sig nægilega vel fyrir heimsmeistaraeinvigið og að hafa ekki einbeitt sér við skák- irnar,þegar á hólminn var komið. Fremsti skákgagnrýnandi Svoétrikjanna Aléxander Kotov, Nú eru Danir farnir að velta fyrir sér hvort til greina kemur, að næsta heimsmeistaraeinvigi i skák, sem halda á 1974, verði haldið i Danmörku. Politiken skýrir svo frá s.l. sunnudag, að 32 ára gamall framkvæmdamaður, Thorkild Kristensen i Arósum bjóðist til aö leggja fram l.millj. danskra króna, eða meira, til að næsta einvigi þeirra Fischers og Spasskis verði háð i Kaupmanna- höfn eða Arósum. Danska skáksambandið er farið að velta málinu fyrir sér og hafa farið bréf á milli þess og dr. Euwe, forseta Alþjóðaskáksam- bandsins. Fyrrgreint blað telur nokkrarlikur á ,að keppnin verði haldin i Danmörku, en dýrt verður það. Fischer neitar að tefla i Sovétrikjunum, svo ekki verður einvigið háð þar. Rússar vilja ekki, að keppt verði um heimsmeistaratitilinn i Banda- sagði, að Spasski hefði misreikn- að sig hrapallega i skákunum við Fischer. Rússar héldu heimsmeistara- titlinum i 35 ár, eða þar til Spasski missti hann til Amerikanans Fischers. Siðan hefur hann ekki tekið þátt i alþjóðlegum mótum. Tilkynnt var, að hann ætti að keppa á Mallorca i siðasta mán- uði, en þegar til kom, mætti hann ekki. 1 mai mun hollenska skáksam- bandið halda upp á 100 ára afmæli sitt með miklu móti, sem háð verður i Groningen. Þangað senda Rússar sina sterkustu skákmenn til að keppa við úrval skákmanna allra annarra landa. rikjunum, þar sem auglýsinga- skrumið þar er þeim ekki að skapi. Næturklúbbar i Las Vegas hafa boðið offjár til að taka keppnina að sér, en skákmenn hafa litinn áhug á þeim. Nokkur riki i Rómönsku Ameriku hafa boðið að sjá um heimsmeistara- keppnina, en tæpast mun hún fara fram i þeim heimshluta af stjórn- málalegum ástæðum, að þvi er Politiken telur. Fer nú hringurinn að þrengjast nokkuð, og telja Danir, af venju- legu litillæti sinu, að góðar likur séu á að komast i sviðsljósið með þvi að halda heimsmeistara- einvigið i skák á danskri grund. Framkvæmdamaðurinn ungi, sem ætlar að leggja fram fé til þess að slfkt verði mögulegt, kom til Reykjavikur s.l. sumar og fylgdist með keppni i Laugar- dalshöllinni og varð svo hrifinn, að hann gaf Bent Larsen, sem Verður þar þvi mikið mannval og liklegt, að Rússar leggi alla áherzlu á að hefna harma sinna frá s.l. sumri, og sýni veröldinni, aö þeir eigi beztu skákmenn heims, þrátt fyrir missi heims- meistaratitilsins i Reykjavik. Forseti hollenska skák- sambandsins, Wim Ruth, sagði i siðustu viku, að ekki væri vist, hvort Spasski mundi tefla á fyrsta borði Sovétmanna. Að minnsta kosti hefði hann ekki fengið stað- festingu á þvi enn, sem komið er. En Rússar hefðu mikinn áhuga á þessu móti og sýndu góðan sam- starfsvilja i undirbúningi þess. Spasski hefur sagt kunningjum sinum að hann hafi mikinn áhuga einnigvar staddur þar, umboð til að hefja samningaumleitanir um að halda næsta einvigi i Danmörku. 1 sama blaði og nú skýrir frá þessum tiðindum, gætti ekki litillar vorkunnar i garð Is- lendinga s.l. vor, er verið var að undirbúa siðustu heimsmeistara- keppni. Þá var skýrt frá þvi, að nokkur lönd byðust til að halda keppnina og þau talin upp, og að þeirri upptalningu lokinni var skotið aftan við „jafnvel litla Is- land” teldi sig i röðum þeirra þjóða, sem teldu sig þess um- komnar, að sjá um l'ramkvæmd heimsmeistarakeppni, sem jafn- vel Dönum dytti ekki i hug að gera tilraun til að halda hjá sér. Var þetta skrifað áður en ákvörðun var tekin um, hvar halda ætti keppnina. Það er altént munur að eiga menneins og Thorkild Kristinsen að. OÓ. á að taka þátt i mótinu, e n endan- leg ákvörðun um það væri i höndum sovézkra yfirvalda. Fischer er við sitt gamla hey- garðshorn og heimtar rúmar fjór- ar milljónir króna fyrir að taka þátt i mótinu, en að sjálfsögðu mun hann tefla á fyrsta borði móti skákmeisturum Sovétrikj- anna. Hollenska skáksambandið hefur þegar boðið honum helming upphæðarinnar fyrir þátttöku, og segir talsmaður þess, að góðar vonir séu til, að ónafngreindur aðili greiði honum hinn helming- inn. OÓ (■uðslcinn Einarsson Guðsteinn Einarsson í Grindavík lézt í fyrrinótt Guðsteinn Einarsson hrepp- stjóri i Grindavik og forstjóri Hraðfrystihúss Grindavikur h.f. lézt i fyrrinótt 73 ára að aldri. Guðsteinn var fæddur 26. ágúst 1899 á Húsatóftum i Grindavik, sonur hjónanna Einars Jónsson- ar, hreppstjóra, og Kristinar Þor- steinsdóttur. Hann var skipaður hreppstjóri i Grindavik árið 1928, og fram- kvæmdastjóri Ilraðfrystihúss Grindavikur var hann frá þvi það varstofnað árið 1941. Hann var i hreppsnefnd árin 1926 — 27 og siðar oddviti á árunum 1937-1947. Sýslunefndarmaður var Guð- steinn frá árinu 1947. Tvö rit komu út eftir Guðstein: Frá Vala- hnúk til Seljabótar og frá Suður- nesjum. Guðsteinn var tvi- kvæntur. Elsie Jónsdóttir hét fyrri kona hans, en hún lézt árið 1935. Siðari kona hans var Sigrún Rakel Guðmundsdóttir frá Isólfs- skála, og lifir hún mann sinn. Víetnamnefndin boðar til liðsfundar Vietnamnefndin boðar til liðs- fundar á fimmtudagskvöld 18. jan. kl. 8.30 i Stúdentaheimilinu við Hringbraut. Fundarefni: 1. Undirbúningur mótmælaað- gerða laugardaginn n.k., en 20. janúar verður alþjóðlegur mót- mæladagur gegn striðsrekstri Bandarikjanna i Indókina. 2. Ákveðið hefur verið að vikka út skipulagsform Vietnam- nefndarinnar með myndun FNL- hópa, þ.e. starfshópa til stuðnings FNL, þjóðfrelsisfylkingunni i Suður-Vietnam. Skorað er á allt stuðningsfólk við baráttu Vietnama gegn bandarisku heimsvaldastefnunni að fjölmenna á þennan liðsfund. % KEA hefur útgáfu félagsmálablaðs A árinu 1937, i kaupfélags- stjóratið Vilhjálms Þór, hóf KEA útgáfu á fréttablaði, sem bar nafnið „KEA-fregnir um félags- mál”. Útgáfa þess féll þvi miður niður eftir tiltölulega skamman tima. Það hefur hins vegar léngi verið ljóst, að i sivaxandi fyrir- tæki sem KEA, með margar ólik- ar starfsgreinar og mikinn fjölda Bæjarstjórn Vill veginn Víkurskarð Bæjarstjórn Húsavikur hefur lýst sig samþykka tillögum nefndar um framtiðarvegarstæði milli Akureyrar og Fnjóskárbrú- ar, og mælir með þvi fyrir sitt leyti, að veginum verði valinn staður um Lcirurnar norðan flug- vallar við Akureyri og þaðan um Svalbarðsströnd og Vikurskarð að Fnjóskárbrú. Bæjarstjórnin skorar jafnframt á stjórnendur samgöngumála að hraða framkvæmdum við vega- lagningu þessa, svo sem framast er unnt, og haga áfangaskiptingu og lagningu slitlags i samræmi viö nefndarálitið. Þá vekur bæjarstjórnin og at- hygli á þvi að sem fyrst verði að ljúka endurbyggingu vegarins um Kinn, frá Krossi að Skjálf- starfsfólks, sem dreift er um hin- ar mörgu starfsstöðvar félagsins við Eyjafjörð, er sterk þörf fyrir fréttamiðil, sem geti þjónað þvi hlutverki að dreifa upplýsingum til starfsfólksins um hinar ýmsu ákvarðanir stjórnar og forráða- manna félagsins, þannig að starfsfólkinu megi vera kleift að fylgjast með þvi, sem efst erá Húsavíkur: austur um - og endurbætur á leiðinni um Kinn og Ljósavatnsskarð andafljótsbrú hjá Ófeigsstöðum. Eins og vegurinn er nú á þessu svæði, lokast hann strax i fyrstu snjóum, og miklum erfiðleikum er bundið að ryðja hann sökum þess, hve lágur hann er. Með til- komu nýju Skjálfandafljótsbrú- arinnar hjá Fosshóli hefur fæðzt möguleiki til að vinna að endur- byggingu Kinnarvegar án þess að valda öngþveiti i samgöngumál- um héraðsins. Þá telur bæjar- stjórnin og rétt að taka fram, að vegurinn um Ljósavatnsskarð sé einnig mikill farartálmi á vetr- um, enda hafi ekki vsrið gerðar á honum teljandi endurbætur um áratuga skeið. baugi hjá félaginu á hverjum tima. Ennfremur hefur það verið ljóst, að skort hefur reglubundið upplýsingastreymi til fjölmiðla og þá ekki sizt blaðanna, sem gef- in eru út hér norðanlands. Á stjórnarfundi félagsins 25. sept. s.l. voru fræðslumálin rædd á breiðum grundvelli, en þar lágu meðal annars fyrir tillögur fræðsiunefndar félagsins, sem skipuð er þeim Gunnlaugi P. Kristinssyni, sem er formaöur nefndarinnar, Hirti E. Þórarins- syni, bónda á Tjörn og formanni stjórnar KEA, og Guðriði Eiriks- dóttur skólastjóra á Laugalandi. A fundinum var meðal annars samþykkt að hefja að nýju útgáfu „KEA-fregna” i formi fjölritaös eða Offsetprentaðs fréttabréfs, sem dreift yrði meðal starfsfólks félagsins, svo og fjölmiðla, þann- ig að efni bréfsins bærist einnig til félagsmannanna. Leitazt verður við að láta bréfið koma út mánaðarlega, og eigi sjaldnar en annan hvern mánuð, en til þess að misskilningi verði forðað skal fram tekið, að „Félagstiöindi” félagsins halda áfram að koma út i svipuðu sniði og undanfarin ár fyrir aðalfund félagsins vor hvert. Umsjónarmaður með útgáfu „KEA-fregna” verður Gunnlaug- ur P. Kristinsson, en kaupfélags- stjóri ábyrgðarmaður. DANIR VILJA HALDA HEIMSMEISTARAKEPPNINA I SKAK 1974 Breiðholtshverfi Óhug hefur slegið á ibúa Breiðholtshverfis eftir hina óhugnanlegu atburði, sem þar urðu um helgina. Einkum veldur það mönnum áhyggjum, hve löggæzla er slæleg i þessu stóra og fjöl- ■nenna hverfi. Krefjast ibúarnir skjótra úrbóta I lög- gæzlumálum, svo sem eðlilegt er. A fáum dögum hafa fjórir menn vcrið fluttir úr Breiðholtshverfi á sjúkrahús, limlestir og særðir af völdum ofbeldisverka, og siðast I gær var ofbcldismaður numinn þaðan á brott, cn þá var lögregla skjót á staðinn, vegna þess að lögreglubill er nú að staðaldri i hverfinu eftir voða- verkin um siðustu helgi. i þcssu hverfi veröur að koma sérstök varðstöð iögreglu, þvi að það tekur lögreglu óratima að koma frá öðrum varðstöðvum i hverfiö, og iögregian kemur þvi ekki fyrr cn seint um siðir og veitir þvi lilla vernd ibúum þarna, þegar atburðir gerast, sem krefjast skjótrar hjálpar lög- reglu. Tillaga borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Það cr talið nauðsynlegt að liafa sérstaka varðstöð i Ár- bæjarhverfi og dregur enginn i efa þá þörf, en cnn rikari þörf er á varöstöð i Breiöhoits- liverfi, sem teygir sig um vitt svæði, og er mannfleira en Ár- bæjarhvcrfi, og tiðni afbrota þar i hverfinu hcfur rcynzt miklu meiri en i öðrum hvcrfum borgarinnar. Þeir at- burðir, sem gerðust um siðustu helgi, valda þvi, að enginn mun treysta sér til aö standa gegn kröfum um bætta löggæzlu i hverfinu iengur. Ilér verður lika að gera viöhlitandi úrbætur. Þess vegna hafa borgarfuiltrúar Framsóknarflokksins i Kcykjavik ákveðið aö flytja lillögu uin það a borgar- stjórnarfundi i dag, að borgar- stjórn beini þeim ákveðnu til- mæium til lögrcglustjórans i Reykjavik að iöggæzla I Breiðliol tsh verfinu verði aukin þcgar i staö, og komið verði sem fyrst upp löggæzlu- slöð i þessu hverfi meö svipuðu sniði og nú er i Ár- bæjarh verfi. Þvi hefur verið svarað, að lögrcgian i Keykjavik hafi ekki fengið samþykkta hjá l'járveitingavaldinu þá aukningu á lögregluliði Keykjavikur, sem lögreglu- stjóri fór fram á. Það er rétt, að mcð hrcytingunum á lögunum um tekjustofna sveitarfélaga var löggæzlu- kostnaði létt af sveitar- félögunum og liann færður yfir til rikissjóðs, þess vegna er það rikisstjórn og Alþingi, sem ákveða fjárvcitingar til iöggæziumála. Ilitt er lika rétt að mönnum hafa þótt skattarnir sinir nokkuð háir, og þess vegna reynir fjár- veitingavaldið að stilla þessum útgjöldum nokkuð i hóf. Menn verða að gera sér það Ijóst að stórauknar fjár- veitingar til löggæzlumála þýða hækkun skatta á almenn- ingi. Þvi riður á, að löggæzlu- málunum sé sem bezt fyrir komið, og skipulag þeirra að- lagað breyttum aöstæöuni og þörfum hverju sinni. Með þvi að skipuleggja iöggæzluliðið, sem skynsamlegast eftir þörf- um, eins og þær eru metnar á hverjum tima, og gera það sem bczt virkt, má stilia fjölg- un lögreglumanna i nokkurt Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.