Tíminn - 18.01.1973, Blaðsíða 16

Tíminn - 18.01.1973, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 1S. janúar l!)7:i Al.AN STKVKNSON — hinn snjalli markviirftur Burnley átti st'órkost- lef'an leik f'ef'n Liverpool. Ilann bjai f'afti lifti sinu frá stórtapi. Stevenson réði ekki við skalla- bolta Toshack - Liverpool sigraði Burnley léttilega á Anfield 3:0 Livcrpool-liðið sýndi það og sannaði, að liðið cr nú það allra be/.ta á Knglandi, þegar það sigraði loppliðið i 2. deild, Burnley, 2:0 á An- lield á þriðjudagskvöld- ið i 2. umlerð bikar- keppninnar. John Tos- haek er nú búinn að ná sér eftir meiðslin, sem liafa háð honum að undaniörnu, — hann skoraði tvö lagleg mörk með skalla. Þriðja markið skoraði Peter Cormack. Alan Steven- son, hinn snjalli mark- vörður Burnley og enska landsliðsins undir 22ja ára aldri, sýndi snilldar leik og kom i veg fyrir stórsigur ,,The Iled’s” llvað eftir annað b'jarg- aði hann snilldarlega. í bikarkeppninni Aðrir leikir i 3. umferðinni fóru þannig: Grimsby—Preston 1: :0 Huddersfield—Carlisle 0 : 1 Nott. Forest—W.B.A. 1: 1 Sunderland—Notts County 2: 0 Barnett—QPR 0 :3 Bristol City—Portsmouth 4: : 1 John Toshack, hinn snjalli leik- maður Liverpool, sem var keypt- ur frá Cardiff, er nú kominn i fjórða sæti yfir markhæstu menn á Englandi. Þess má geta, að hann hefur ekki leikið alla leiki Liverpool vegna meiðsla i hné. Listinn yfir markhæstu leik- mennina i 1. deild litur þannig út: Martin Peters, Tottenham 19 J. Richards, Wolves 17 B. ,,Pop” Robson, West Ham 17 John Toshack, Liverpool 15 MacDonald, Newcastle 15 Don Rogers, Crystal Palace 15 John Radford, Arsenal 14 Bob Latcford, Birmingham 13 John Tudor, Newcastle 13 Martin Chivers, Tottenham 13 Rondey Marsh, Man. City 13 Markhæstu leikmennirnir i 2. deild eru þessir: Don Givers, QPR 18 Alf Wodd, Millwall 14 Bob Qwens, Carlisle 13 Brian Joicey, Sheff. Wed. 13 JOHN TOSHACK —er nú búinn að ná sér eftir meiðslin. hann skoraði tvö mörk mcð skalla gegn Burnley og tryggfti lifti sinu góftan sigur. Kristinn Jörundsson þjálfar og leikur með Völsungum í sumar - öll 2. deildarliðin búin að ráða sér þjálfara fyrir sumarið. Völsungar fá góðan liðsstyrk, Kristinn og Magnús Torfason leika með Völsungum Kristinn JÖrunds- son, hinn kunni knatt- spyrnumaður úr Fram og körfuknatt- leiksmaður úr ÍR, mun ekki leika knatt- spyrnu með Fram i sumar, þvi að hann hefur ráðið sig sem þjálfara 2. deildarliðs Völsunga frá Húsa- vik. ,,Marka Kiddi”, eins og hann er kallaður i Ileykjavik, mun einnig leika með Völsungum. Það er ekki að efa, að Krist- inn kcmur til með að styrkja lið Völsunga i 2. dcild. Kristinn er marksækinn leikmað- ur og hefur undanfar- in ár verið markhæsti leikmaður íslands- meistara Fram. Kristinn Jörundsson Annar kunnur knattspyrnu- maftur hefur einnig gengift i lift Völsunga. Það er Magnús Torfason, fyrrverandi lands- liðsmaður frá Keflavik, en hann er nú tannlæknir á Húsa- vik. Þá leikur Arnar Guð- laúgsson (áður Fram) með Völsungum, og með liðinu leika margir ungir og efnilegir knattspyrnumenn. Mikill áhugi er fyrir knatt- spyrnu á Húsavik, og hafa leikmenn Völsunga mikinn hug á að vinna 2. deild i sumar og tryggja sér sæti i 1. deild. Það eina, sem skyggir á áhug- ann hjá Húsvikingum, er það, að knattspyrnurnenn staðar- ins æfa og leika við slæmar að- stæður. Knattspyrnuvöllur staðarins er mjög slæmur, og það hefur ekkert verið gert fyrir hann i mörg ár. Nú þegar lið Húsvikinga á möguleika á að komast langt i knattspyrnunni, má bæjar- stjórnin taka það til athugunar að skapa viðunandi aðstöðu fyrir knattspyrnumenn sina. öll 2. deildarliðin eru nú bú- in að ráða þjálfara fyrir sumarið. örn Steinsen verður með FH, Þorsteinn Friðþjófs- son verður með Hauka, Steinn Guðmundsson þjálfar Selfoss, Jóhannes Eðvaldsson þjálfar Þrótt, Neskaupstað, Eggert Jóhannesson verður með Ar- mann , Guðbjörn Jónsson þjálfar Þrótt Rvk. og Teodór Guðmundsson og Pétur Bjarnason verða með Viking. Nokkrir af islandsmeisturum i borfttennis 1971. STÓRMÓT í BORÐTENNIS HALDIÐ Á LAUGARDAG — búast má við mjög skemmtilegri keppni Laugardaginn næstkomandi þann 20. verður fyrsta stórmót ársins i borðtennis. Mót þetta, ARNARMÖTIÐ, er nú haldið i annað sinn, en það er upprunið að tilhlutan þeirra Grétars Norðfj. og Georgs Braithwait, sem báðir eru starfsmenn hjá Sameinuðu I I h.......................... þjóðunum. Að þessú sinni eru skráðir 40 keppendur til leiks, en aðeins er keppt i einliðaleik karla. Upphaflega var aldurstakmarkið til þátttöku 18 ár, en vegna þess, hve margir góðir og upprennandi piltar eru yngri, taldi stjórn Arnarins ekki rétt að útiloka þá frá keppni, þar sem ennerekkert sérmót fyrir unglinga. Eru þvi 2-3 frá hverju félagi þátttakendur nú. t fyrra sigraði Gisli Antonsson Armanni, óvænt en glæsilega, i Arnarmótinu en hann var aðeins 17 ára. Gisli lagði að velli marga þeirra, sem fremstir hafa staðið i iþróttinni hér, og verður gaman að fylgjast með honum nú, en hann mun reyna að verja titil sinn að þessu sinni. Af þeim 40, sem skráðir eru til leiks, eru allir sigurvegarar frá siðasta tsl. móti, bæði i einliðaleik og tviliða- leik karla og unglinga, t.d. þeir Björn Finnbj. Ragnar Ragnars, Ólafur Ólafs. og Gunnar Þór Finnbj. úr Erninum og Hjálmar Aðalsteinsson KR, svo einhverjir séu nefndir. Má reikna með skemmtilegri keppni, og viðbúið er, að ungu mennirnir, t.d. Hjálmar og Gunnar Þór komi til með að setja strik i reikninginn hjá eldri kempunum. Hjálmar og Gunnar voru báðir á borð- tennisskóla erlendis í sumar sem leið og hafa tekið gifurlegum framförum. Mótið hefst i Höllinni (aðalsal) kl. 3.30 stundvislega og mun standa fram til 6.30. Spilaðir verða 3-5 leikir i hvert sinn, eða þar til annar aðilinn hefur unnið þrjá leiki, og verður útsláttar fyrirkomulag, þ.e. keppandi hef- ur lokið keppni eftir eitt tap. Hús- ið verður að sjálfsögðu opið fyrir áhorfendur á meðan keppni stendur yfir. AUGLÝSINGA símar Tímans

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.