Tíminn - 18.01.1973, Qupperneq 20
Ilafsteinn Jóscpsson
Söfnuður-
inn safnaði
25 þús.
krónum
- til handa Hafsteini
Jósepssyni
Klp-Reykjavik
Um fátt hefur meira veriö talaö
a.m.k. hér í Reykjavik og ná-
grenni, að undanförnu en skot-
árásina i Breiðholti s.l. sunnudag,
þar sem sakiaus maöur varð fyrir
skoti og missti annan fótinn.
Fólkiö ræddi fyrst um hetjulega
framgöngu hans og félaga hans,
þegar byssumaðurinn réöst inn á
heimilið, þar sem fyrir voru börn
og konur, en siðan hefur það rætt
um, hvaða bætur þessi maður geti
fengið. t ljós hefur komið, að þær
eru ekki miklar, a.m.k. ekki i
augum þeirra, sem hafa mikil
auraráð.
Nú hafa nokkrir aðilar farið af
stað með fjársöfnun til handa
Hafsteini Jósepssyni, enda var
vitað mál, að margir vildu láta
eitthvað af hendi rakna honum til
aöstoðar. Vitað er um, að á
nokkrum vinnustöðum hefur ver-
ið safnað i sjóð handa honum og
fjölskyldu hans, og hafa dagblöð-
in tilkynnt, að þau muni taka við
framlögum.
Fyrstir til að leggja í sjóð
handa Hafsteini voru meðlimir i
Filadelfiusöfnuðinum i Reykja-
vik. A samkomu, sem haldin var
s.l. sunnudagskvöld, eða nokkr-
um klukkutimum eftir slysið, var
tekin kærleiksfórn, eins og það er
kallað i söfnuðinum. Var gengið
um með bauk meðal safnaðar-
gesta, og safnaðist i hann yfir 25
þúsund krónur.
Hafsteinn erekki i söfnuðinum,
en vinnufélagi hans og vinur er
það, og mun hann hafa staöið fyr-
ir þessu. Þess má geta hér að lok-
um, að tekið verður á móti fram-
lögum til hjálpar Hafsteini á af-
greiðslu Timans i Bankastræti 7.
Allt í óvissu um
frið á næstunni (
Fimmtudagur 18. janúar 1978
— N-Víetnamar skemmdu Da Nang-flugvöll
NTB-Washington og Saigon
Stjórnin í Suður-Víetnam vjsaði
i gær á bug öllum fréttum um, að
vopnahlé yrði gert á næstunni.
Upplýsingamálaráðuneytið sagði
um frétt CBS-sjónvarpsins, um að
friðarsáttmáli yröi undirritaður á
morgun, að hún ætti ekki við nein
rök að styðjast. Bandariska her-
stjórnin i Saigon skipaði i gær öll-
um hernaðarráðgjöfum banda-
riskum i S-Vietnam að yfirgefa
vigstöðvarnar, ef á þá yrði ráðist.
Þessi skipun mun vera i þvi
skyni að fyrirbyggja mannfall i
þeim bardögum, sem búizt er við,
að muni blossa upp, ef vopnahlé
verður tilkynnt. Þá munu báðir
aðilar reyna að vinna sem mest
landssvæði, áður en vopnahléið
gengur i gildi.
Talsmenn stjórnar Nixons i
Washington lögðu i gær alla
áherzlu á að visa á bug fregnum
um, að ný vandamál hefðu skotið
upp kollinum i sambandi við
friðarsáttmála. Ekki létu þeir þó
neitt uppi um, hvernig málin
stæðu, eða hvenær gæti veriö, aö
sáttmáli yrði undirritaður.
Fjölmiðlar i Bandarikjunum
héldu þvi fram, að bjartsýnin inn-
an Hvitahússins hefði minnkað
talsvert siðan i fyrradag, þegar
Nixon tilkynnti, aö allar loftárás-
ir á N-Vietnam hefðu verið
stöðvaðar. Menn minnast þess, að
i fyrradag afsannaði Ziegler,
blaðafulltrúi Nixons, allar fréttir
um, að friðarsáttmálinn yrði
undirritaður fyrir laugardag og
að Kissinger færi ekki til Parisar i
vikunni.
Aðrir talsmenn stjórnarinnar
hafa tekið upp hanzkann fyrir
Ziegler og segja, að það hafi verið
nauösynlegt fyrir Nixon að biðja
hann að draga úr vangaveltum
um undirritun, en þeir leggja
áherzlu á, að engin vandamál séu
komin upp.
Eftir að loftárásirnar á N-Viet-
nam voru stöðvaðar, juku banda-
riskar flugvélar árásir sinar á
skotmörk i Laos og S-Vietnam.
N-Vietnamar réðust i gær-
Fara yfir Fjarðarheiði
á fólksbílum
morgun á hinn stóra herflugvöll
Bandarikjamanna i Da Nang og
léku hann svo illa, að honum var
lokað. Tvær flugvélar skemmd-
ust. Þá sprengdu þeir upp brú
eina skammt frá Saigon og skutu
niður þyrlu og sprengjuflugvél á
svipuðum slóðum. t frétt frá
Hanoi segir, að n-vietnamskt
stórskotalið hafi á undanförnum
fimm dögum skotið á þrjú banda-
risk herskip undan ströndum N-
Vietnam, með þeim afleiðingum,
að þau loguðu. Bandariska her-
stjórnin hefur enn ekkert um
þetta sagt.
Fjárhagsáætlun
Akureyrar rædd
Fjárhagsáætlun Akureyrar er
til fyrri- umræðu i Bæjarstjórn
Akureyrar i dag. Heildartekjur
eru áætlaðar 307.2 milljónir
króna.en voru á siðustu fjárhags-
áætlun 264 milljónir. Er þvi um að
ræða 16% hækkun á tekjuhlið
áætlurtarinnar.
Aætluð útsvör og aðstöðugjöld
hækka úr 153 milljónum i 184.7
milljónir króna, og er það 21%
hækkun.
KJ—Reykjavik.
— Það er ekki algengt, að
fólksbilar sunnan af fjörðum séu
á ferðinni á Seyðisfirði um hávet-
ur, en sú er nú raunin um þessar
mundir, sagði Ingimundur
Hjálmarsson á Seyðisfirði i gær.
Þykkvibær:
Kartöflur
tíndar ár
og síð
SG-Þykkvabæ
Héðan eru nú daglega flutt milli
20 og 30 tonn af kartöflum til
Reykjavikur, og eru allir uþp-
teknir við að tina þær ár og sið og
alla tið. Það eru nefnilega fleiri
handtök, sem þarf að hafa við
kartöflurnar, en kaupandinn get-
ur imyndað sér, þegar hann tekur
pokann i kjörbúðinni. Auk allrar
umönnunar yfir sumarið, þegar
búið er að setja niður, taka upp-
skerustörfin drjugan tima, og
vetrartimann er svo unnið að
flokkun, sekkjun, vigtun og merk-
ingu kartaflnanna.
Menn eru hér allir með góðar
geymslur.sem varðveita vel góða
uppskeru frá haustinu. Hjá ein-
staka manni gerir þó ákveðin
sveppategund vart við sig, og
veldur skemmdum á þann hátt,
að svartir blettir koma fram og
vaxa inn i kartöfluna. Sveppur
þessi er alþekktur um alla
Evrópu, og hafa hvergi fundizt
þau ráð, sem duga til að ráða
niðurlögum hans, en tjón af hans
völdum er allmikið árlega.
Fjarðarheiði var rudd á dögun-
um, og hefur verið fær öllum bil-
um siðan. Telst þetta til algjörra
undantekninga, en svo er veður-
farinu fyrir að þakka, að heiðin er
nú fær. 1 fyrravetur var farið fyr-
ir heiðina á bilum að vetrarlagi,
en venjan hefur verið sú undan-
farin ár, að Fjarðarheiði hefur
verið lokuð frá þvi fyrir jól og
fram á vor. Ef ekki hefur verið
snjór til trafala, hefur heiðin ver-
ið ófær vegna aurbleytu.
Mestan hluta vetrarins hafa
Seyðisfirðingar og aðrir þvi þurft
að skrönglast til og frá
kaupstaðnum i snjóbilum, og allir
aðdrættir ofan af Héraði hafa
einnig farið fram með snjóbilum.
Snjóbilarnir hafa á siðari árum
orðið þægilegri og harðskreiðari,
en þeir eru þó engin framtiðar-
lausn á samgöngum yfir Fjarðar-
heiði að vetrarlagi.
7V2 millj.
lesta af
sprengjum
NTB-Washingon
Frá 1965 og til áramótanna
siðustu vörpuðu bandarískar
flugvélar nærri hálfri áttundu
milljón lesta af sprengjum yf-
•ir svæði i SA-Aslu, en þaö er
þrisvar og hálfum sinnum
meira en bandariskar flugvél-
ar vörpuðu i siðari heims-
styrjöldinni. Þessar tölur eru
frá bandariska varnarmála-
ráðuneytinu.
Ekki var nema tólfta hluta
af þessu magni varpað yfir
Kóreu á sinum tima. A sl. ári
var varpað niður 1.084.359
lestum af sprengjum, en það
er ekki mesta magn á einu ári
i Vietnamstríðinu, þvi bæði
1968 og 1969 var magnið 1,4
milljónir lcsta. Ekki var i
skýrslunni sundurliðað,
hversu miklu magni af
sprengjum var varpað á hvert
land i SA-Asiu.
Vildu hærra kaup -
rændu forstjóranum
NTB-Pamplona
Forstjóra iðnfyrirtækis i Pam-
plona á Spáni var i gær rænt.
Fjórir vopnaðir menn voru þar að
verki, og hefur sjálfstæðis-
hreyfing Baska sent frá sér til-
kynningu, þar sem hún lýsir
ábyrgð verknaðarins á hendur
sér, og sé þetta gert til að styðja
verkamenn fyrirtækis forstjórans
i kröfum sinum um hærri laun.
Forstjóranum var rænt frá
heimili sinu á miðvikudagsnótt-
ina, eftir að kona hans og börn
voru lokuð inni i vinkjallara húss-
ins. Ræningjarnir fóru með for-
stjórann á burt i hans eigin bil,
sem siðar fannst yfirgefinn um 80
km. i burtu, skammt frá landa-
mærum Frakklands.
1 kröfum ræningjanna, sem
sendar voru frá Biarritz i Frakk-
landi, sagði, að 100 verkamenn,
sem reknir hefðu verið frá fyrir-
tækjum forstjórans ættu að
endurráðast, launin að hækka,
leyfin á launum að lengjast og
sjúkradagpeningar að greiðast,
ef forstjórinn yrði látinn laus að
nýju.
Ellsberg-réttarhöldin að hefjast:
ATHYGLIN BEINIST Á NÝ AÐ
HUGSANAGANGI NIXONS
NTB-Washington
Réttarhöldin yfir Daniel Ells-
berg og Anthony Russo um hinar
svokölluðu Pentagonskýrslur eru
nú að hefjast i Los Angeles, nitján
mánuðum eftir að bandariska
stjórnin reyndi árangurslaust að
fá nokkra fjölmiðla til að hætta
við að birta leyniskýrslur um
striðsreksturinn i Vietnam.
Þeir Ellsberg og Russo hafa
lýst þvi yfir, að réttarhöldin séu
nýtt tækifæri til að ráðast á stefnu
Bandarikjanna i Vietnam og
beina athygli fólks að þeim
hugsanagangi og þvi mati, er að
baki stefnunni lá á sinum tima.
Ákæran er i 15 atriðum, þ.á.m.
samsæri, njósnir og þjófnaður á
opinberum eignum. Búizt er við,
að réttarhöldin taki að minnsta
kosti tvo mánuði.
íslenzkir dýrgripir
á uppboði í Höfn
NTB-Kaupmannahöfn.
Bréf frá islandi til vinkaup-
manns i Kaupmannahöfn, sent
árið 1859, er einn þeirra dýr-
gripa.sem skipta mun um eig-
anda á frimerkjauppboði i
Kaupmannahöfn 6. fcbrúar
nk. A þessum tíma voru fri-
merki ekki enn komin i al-
menna notkun i Danmörku.
Dönsk póstyfirvöld hafa
rannsakað bréfið og ábyrgj-
ast, að það sé ósvikið, því aft-
an á þvi er móttökustimpill.
Slík bréf eru orðnir mjög verð-
inætir safngripir, og búist er
við, að þetta seljist á einar 90
þúsund isl. krónur.
A uppboöi þessu verður citt-
livað af mjög sjaldgæfuin is-
len/.kum frimerkjum, svo og
dönskum. Tvö þeirra munu
vera um 125 þúsund króna
virði, en á uppboðinu vcrða
alls seld frimerki fyrir einar
niu milljónir.
Heimild
til
verkfalls-
boðunar
ERL-Reykjavik
Skipstjóra- og stýrimanna-
félagið Verðandi i Vestmannaeyj-
um ákvað á fundi sinum i fyrra-
dag að veita stjórn og trúnaðar-
mannaráði félagsins heimild til
að boða til vinnustöðvunar. Sam-
þykktin var gerð einróma,en ekki
hafa verið teknar frekari
ákvarðanir, en stjórn Farmanna-
og fiskimannasambands Islands
mun fá málið til meðferðar siðar,
ef verkfall verður ákveðið.
Nauðgunarmál
í Bolungavík
Talið er . að sextán ára gamalli
mállausri stúlku hafi verið
nauögaö i Bolungavik á mánu-
dagskviildiö var. Hefur slikur at-
burður ekki gerzt þar um slóðir
siðan á dögum fyrirmyndar
Halldórs Laxness að ólafi
Ljósvikingi, verði annars talið, að
þá hafi veriö um nauðgun að
ræða.
Farið var með telpuna til
læknisskoðunar á Isafjörð, þegar
upp komst, hvað gerzt hafði, en
vegna málleysis sins á hún að
sjálfsögðu örðugt með að tjá sig.
Við áttum i gær tal við Einar
Þorsteinsson, yfirlögregluþjón i
Bolungarvik, er haft hefur með
höndum frumrannsókn i málinu,
og kvaðst hann ekkert geta látið
uppi um það að svo stöddu. Væri
setudómari á leið vestur, og
kvaðst Einar búast við, að hann
kæmi vestur siðla kvölds eða
snemma nætur.
Tveir aðkomumenn i Bolunga -
vik eru orðaðir við þennan at-
burð, annar útlendingur, en að
sjálfsögðu verður ekkert fullyrt
um sekt þeirra, fyrr en fullnaðar-
rannsókn hefur farið fram.