Tíminn - 26.01.1973, Side 1
HOTEL LOFTIfH?#? I
" Hotel Loftleiðir býður gestum
sinum að yelja á milll 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa lika ibúðir til boða.
Allur búnaður miðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL.
Brunnin og hrunin hús I Kirkjubæ vift hraunjaöarinn.
Timamynd: Kári.
Kirkjubæjargígur nær
jafnhár Helgafelli
Tilraun gerð til þess að ýta upp varnargarði
KJ—Vestmanna-
eyjum.
Búslóðaflutningar hóf
ust fyrir alvöru frá
Heimaey i gærdag, og
var þar aðallega um að
ræða fjölskyldur, sem
höfðu ráð á bátum. öll
möguleg farartæki voru
notuð til að flytja bús-
muni ofan úr bænum og
niður á bryggju, allt frá
barnavögnum til stórra
vörubila. Ákvörðunar-
staður manna var mjög
óljós: ,,Við ætlum bara
eitthvað,” sögðu skip-
verjar á bátunum, sem
fréttamaður Tímans
ræddi við.
VIKUR DYNUR Á BYGGÐINNI
t Vestmannaeyjum féll i gær-
kvöidi meiri aska og vikur en á
öllum timanum, sem liöinn var
áður, siðan gosið hófst. Yfir bæinn
rigndi stöðugt vikri. Það buldi og
glumdi i öllu, og menn kviðu þvi
mjög ef hvessti af þeirri átt, sem
bæri vikurinn yfir bæinn. Það er
til marks um, hviiikt magn hefur
fallið, aö þungt er orðiö fyrir fæti
og litlir bilar eiga erfitt með að
komast áfram. Fólk, sem kom til
Eyja i gær, hraðaði sér sem mest
það mátti að komast aftur I bát-
ana og burtu. Það var óhugnaöur
i mönnum.
Sæsimaskipið er komið og
liggur við Eiöiði reiðubúið að
skerast I leikinn,ef sæsimastreng-
irnir fara i sundur. Verið er að
styrkja tennur tveggja jarnýtna,
sem nota á tii að búa til varnar-
garöa gegn hraunrennslinu.
Um miðjan dag i gær breyttist
gosiö á Heimaey nokkuö, mun
meiri aska kom þá upp úr gignum
mikla, en sem betur fer, er veður
kyrrt,og stóð strókurinn beint upp
i loftið. Veðurstofan spáði suð-
austanátt og voru visindam. og
aðrir mjög uggandi yfir þvi. Var
það einkum vegna hins aukna
öskugoss, sem menn voru
kviðnir, og þvi var spáö, að héldi
öskugosinu áfram og áttin yrði
suöaustlæg, yrði ekki verandi
utan dyra i Vestmannaeyjakaup-
stað. Almannavarnir hafa gert
ráðstafanir i sambandi ■ við þetta,
og er búiðað flytja mjög mikið af
gasgrimum til Eyjanna.
Jafnframt þvi, sem gosiö varð
meira öskugos,stækkaði aðalgig-
urinn til noröurs og hlóöst austur-
barmur hans mjög upp og er nú
orðinn nær jafnhár Helgafelli.
Með þvi jókst hættan á frekara
hraunrennsli I vesturátt — yfir
Framhald á 5. siðu.
Eysteinn Jónsson, forseti Sameinaðs þings, um atburðina
í Vestmannaeyjum:
Munu hafa mjög mikil áhrif
á störf Alþingis á næstunni
Atburðirnir I Vestmanna-
eyjum hljóta að hafa mikil
áhrif á störf alþingis á næst-
unni, þvi hér hefur brostið um
sinn ein styrkasta stoðin i at-
vinnulifi landsmanna, svo
stórfellt hefur verið framlag
Vestmannaeyinga til þjóðar-
búsins, — sagði Eysteinn
Jónsson, forseti Sameinaðs
Alþingis, við upphaf fundar I
sameinuðu þingi i gær, en þá
kom þingið saman til fundar
eftir jólaleyfi.
Nánar segir frá ávarpi
Eysteins Jónssonar og störf-
um Alþingis á þingsiðu bls. 8.