Tíminn - 26.01.1973, Side 4
4
TÍMINN
Föstudagur 26. janúar 1973
Keisarinn að verða
blindur
Persar hafa löngum verið
áhyggjufullir vegna hjónabands
keisara sins og Farah Dibu
konu hans. En nú er ekki lengur
ástæða til sliks, þvi þau hjón
ætla að mæta saman mesta
vandamáli, sem steðjaö hefur
að þeim til þessa. Svo er mál
með vexti, að læknar hafa til-
kynnt keisaranum, að nú sé ekki
um annað aðræða fyrir hann en
gangast undir uppskurð á
augum, þvi hann er alveg aö
verða blindur. Það er hinn kunni
rússneski augnlæknir,
Zahkarov prófessor, sem
kveðið hefur upp þennan úr-
skurð. Sjón keisarans er orðin
mjög slæm og versnar með
hverjum deginum sem liöur.
Hann hefur samþykkt að
leggjast inn á sjúkrahús i
Teheran, og þar verður
uppskurðurinn framkvæmdur,
en sá, sem hann gerir er augn-
læknir frá West Palm Beach
sjúkrahúsinu i Florida,
prófessor Sayyad, sem ný-
kominn er til Teheran frá
Bandarlkjunum . Að
uppskurðinum loknum verður
keisarinn fluttur meö umbúðir
fyrir augunum á sjúkrastofu, og
þar eru tvö rúm. t ööru mun
keisarinn liggja, en i hinu kona
hans Farah Diba, sem hefur
ákveöið að sofa á sjúkrahúsinu
hjá manni sinum. Hún verður þó
að vera á daginn i keisara-
höllinni, þvi á henni munu allar
skyldur rlkisins hvila, á meðan
keisarinn er á sjúkrahúsinu. 4.
febrúar 1949 varð keisarinn
fyrir skammbyssuskoti, er
maöur nokkur gerði tilraun til
þess að ráða hann af dögum.
Keisarinn hélt lifi, en hins vegar
skaddaðist sjóntaugin svo
mikiö, að sjón hans hefur
hrakað stöðugt allt frá þessu at-
viki og fram tii þess dags. Arið
1964 rannsakaði prófessor
Sayyad keisarann, og sagði þá
þegar, að hann yrði að láta
skera upp augun, ef hann ætlaöi
að halda sjóninni. Keisarinn
vildi ekki sætta sig við þessi
málalok, en nú er svo komið, að
hann verður aö láta undan
læknunum, sem vita hvað þeir
syngja og leyfa að hann verði
skorinn upp, ef sjónin á ekki
gjörsamlega að hverfa.
►
Bezta gjöf frægrar
söngkonu
Alice Babs hefur verið þekkt
söngkona i Sviþjóð og reyndar
hér á landi lfka, og miklu viðar
um margra ára skeið. Hún kom
fyrstfram árið 1940 i „Swing it,
magistern” og alltaf siðan hefur
hún sungið opinberlega. Arið
1963 uppgötvaði Duke Ellington
Alice Babs, og sagði þá, að ekki
væri til nema ein Alice Babs.
Þótti mönnum það ekki svo litil
viðurkenning fyrir söngkonuna,
að þessi orð skyldu koma frá
hinum heimsfræga tóniistar-
manni. A sjötta áratugnum söng
Alice Babs með Ulric og Svend
og kölluðu þau sig Swe-Danes.
Vöktu þau mikla hrifningu um
allan heim. Þá hefur það einnig
gerzt, að Gústaf Sviakonungur
hefur útnefnt Alice hirðsöng-
konu Svia, og vakti það mikla
gleði meðal aðdáenda hennar i
Sviþjóð. I tuttugu og fimm ár
hefur Alice verið gift Nils-Ivar
og hún segir, að hún hafi svo
sannarlega verið heppin, þegar
hún hitti hann þvi annan eins
mann sé vart að finna og ekki sé
annað hægt en elska hann til
æviloka. Hér á myndinni sjáið
þið Alice Babs til hægri og
heldur hún i höndina á allra
beztu gjöfinni, sem lifið hefur
fært henni, að eigin dómi, litla
dóttursyninum, Rolf Niklas, 8
mánaða gömlum. Móðir hans
er Lillebabs, dóttir söng-
konunnar, og er hún einnig á
myndinni.
DENNI
DÆMALAUSI
,,Það er lögreglubill heima hjá
Den na”.
,,Hvcrs vegna koma þeir ENN
EINU SINNI heim með hann!”