Tíminn - 10.02.1973, Blaðsíða 10

Tíminn - 10.02.1973, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Laugardagur 10. febrúar 1973 Brúbhjón mánaöarins, Bryndis Gunnarsdóttir og Jón Hjörtur Gunnlaugsson. 1 baksýn er máiverk af sýni kannast brúöurin vel viö af heimaslóöum sinum. öræfajökli og Lómagnúpi, en þaö út- Timamyndir: Gunnar „ÆTLI VID FLYTJUM STRAXÁ ARNARNESID VV Ekki alls fyrir löngu var dregið í annað sinn um hver yrðu „brúðhjón mánaðarins” hjá Timanum. Maja vandaði sig geysilega, er hún dró i þessu mikilsverða happdrætti, og er hún loks hætti að gramsa i körfunni, og rétti úr hnefanum, var þar að finna miða með tölunni 8. Brúðhjónin, sem það númer höfðu borið reyndust, er að var gáð, vera Bryndis Gunnarsdóttir og Jón Hjörtur Gunnlaugs- son, en þau voru gefin saman af séra Frank Halldórssyni i Neskirkju á aðfangadag jóla. Við hljótum þvi að álykta að 8 sé happatalan þeirra, a.m.k. þangað til annað verður ásannað. Hér er brúðarm vndin af þeim Bryndisi og Jóni Hirti. Tii að kynnast þessum ungu hjónum eilitiö og kynna þau iesendum héldum viö blaða- maður og ijósmyndari heim til þeirra, þar sem þau búa aö Soga- vegi 26. Þó að húsakynni, séu fremur þröng, þá er öllu smekklega og haganlega fyrir komið, og það fer ekki hjá þvi, aö um mann fari ein- hvers konar veilíöunartilfinning, um leið og inn er gengið. Auk þess eru húsbændur gestrisnir og hinir skrafhreifnustu, svo aö stutt dvöl, verður ennþá styttri fyrir bragðið. Það er þvi margt, sem hægt hefði veriö aö spyrja, um- fram það, sem fram kemur, enda þótt taliö berist viða. Það finnst bezt þegar farið er að tiunda upp það helzta, sem farið hefur i milli. En eigi að siður verður hér reynt, að veita lesend- um Timans ofurlitil kynni af þessum ungu og lifsglöðu hjónum, sem hafa komiö sér fyrir þarna i kjallaranum að Sogavegi 26, og hafið með þvi búskap sinn og sambúö, sem vonandi endist um eilifð. Skjóttor gengið til dyra, er við kveðjum þeirra eitt siðdegi, og húsráðendur bjóða strax til stofu eftir að hafa fært okkur úr yfir- höfnum. Okkur verður að sjálf- sögðu fyrst fyrir að spyrja, hvað þeim finnist um að vera brúðhjón mánaðarins. — Nú alveg ágætt, hvað annað? segja þau bæði brosandi. Það munar nú um minna en 25.000 krónur svona upp úr þurru. — Eruð þið nokkuð búin að ákveða, i hvað þið ætlið að verja upphæðinni? — Nei, en mig langar til að athuga um útvarpstæki hjá þess- um verzlunum, sem gefa okkur kost á að verzla hjá sér, segir Jón Hjörtur. Við eigum hérna ágætis sjónvarpstæki og plötuspilara, en útvarpið vantar. Annars er það náttúrulega fjölmargt, sem mann langar til að eignast, og þarf að eignast, svona á fyrstu búskapar- árunum, en það tekur náttúrulega allt sinn tima.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.