Tíminn - 10.02.1973, Síða 13

Tíminn - 10.02.1973, Síða 13
Laugardagur 10. febrúar 1973 TÍMINN 13 r Wiiww . I ...... -*■'■■;■■■■■■■■ Ctgefandi: Framsóknarfíokkurfnn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór^:: arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson,; Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaös Timans).|::: Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislasoin,. Ritstjórnarskrif-:;:: stofur í Kddubúsinu viö Lindargötu, símar 18300-18306^ Skrifstofur i Bankastræti 7 — afgreiðslusfmi 12323 — auglýs-:;:| ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurisimi 18300. Askriftargjald::;: 225 krónur á mánuöi innan lands, i lausasölu 15 krónur ein-j takið. Blaðaprent h.f. Síðari vandinn Með samkomulagi þvi, sem náðst hefur á Alþingi um stofnun viðlagasjóðs vegna Heimaeyjargossins, hefur verið leystur að sinni annar þáttur þess vanda, sem hlýzt af þessum stórfelldu nattúruhamförum. Fjár- öflun hefur verið tryggð vegna þess tjóns sem bitnar sérstaklega á Vestmannaeyingum. Hinn þáttur vandamálsins, sem er tjón sjálfs þjóðarbússins er hins vegar óleystur, en sá vandi getur átt eftir að verða engu minni en hinn fyrri. Fyrstu fréttirnar af þvi tjóni bárust landsmönnum i gærmorgun, þegar frétta- maður hljóðvarpsins skýrði frá því, að nú væru skip hlaðin loðnu farin að sigla fram hjá Vest- mannaeyjum og þyrftu sennilega að fara alla leið til Reykjavikur. öllum ætti að vera ljóst, að undir þessum kringum stæðum, verður þjóðarbúinu það enn nauðsynlegra en ella, að fullur vinnufriður haldist. Tjón Þjóðarbúsins af völdum Heimeyjargossins veldur þvi einnig að þvi verður stórum örðugra en ella að fást við þau vandamál, sem fylgja vaxandi verðbólgu. Það var með þessar staðreyndir i huga, sem rikisstjórnin reyndi að fá samkomulag á Alþingi um lausn beggja þessara vandamála þannig, að samtimis yrðu gerðar ráðstafanir vegna tjóns Vestmannaeyinga og tjóns þjóðar- bússins. Samkomulag náðist aðeins um lausn fyrra vandamálsins og er það þakkarvert út af fyrir sig. En stjórnarandstaðan fékkst ekki til að sinna siðara vandamálinu. Hún virðist hugsa á þá leið, að hana varði ekki um þjóða- hag, þrátt fyrir hið stóra og óvænta áfall, sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir, heldur sé það verkefni rikisstjórnarinnar og flokka hennar, að hugsa um það. Blöð stjórnarandstöðunnar láta jafnvel i það skina, að hér sé raunverulega ekki um neitt vandamál fyrir þjóðarbúið að ræða. Slikur málflutningur dregur vitanlega ekki úr þvi, að verkfall helzt á togaraflotanum með þeim afleiðingum, að flestir togararnir eru nú stöðvaðir og að stærsti togari landsins Bjarni Benediktsson, sem forráðamenn Reykjavikur tóku nýlega á móti með mikilli viðhöfn, kemst ekki úr höfn. Þetta eru vissu- lega alvarleg tiðindi. Undir þeim kringum stæðum, sem nú eru, ætti það ekki siður að vera mál stjórnarand- stöðu en stórnarflokka að mæta þvi tjóni, sem þjóðarbúið verður fyrir af völdum Heimaeyj- argossins. Sá skilningur er nú áreiðanlega rikur hjá þjóðinni, að nú séu þeir timar á íslandi, að setja eigin þjóðarhagsmuni ofar flokks- hagsmunum. Góð tíðindi Það er ánægjulegt að 26 þingmenn á Banda- rikjaþingi hafa lagt fram tillögu um, að fisk- veiðilandhelgin verði færð úr 12 i 200 milur. Þetta er ný feönnun um þá þróun, sem er að verða i heiminum i þessum efnum. Hér er nýi timinn á ferðinni og hann á ekki aðeins eftir að tryggja íslendingum til fulls 50 milna mörkin, heldur mun viðtækari rétt til verndar fiski- miðum. Þvi má ekkert undanhald verða nú. Þ.Þ. Vladimir Lomeiko fréttastjóri: Fjölmiðlar ráða miklu um framtíð Evrópu Þeir eiga að stuðla að auðlegð mannlegra samskipta Moskvu húskóli Höfundur þessarar greinar er einn af frétta- stjórum rússnesku frétta- stofunnar Novosti (APN). 1 grein þessari ræöir hann um viðhorf Rússa til fjöl- miðla og málflutnings þeirra varðandi aukið sam- starf i Evrópu. Greinin boöar að ýmsu leyti nýtt viðhorf og gæti það breytt miklu, ef rússneskir fjöl- miðlar fylgdu þvl eftir i verki, og þó einkum, ef skipti á upplýsingum og hugmyndum gætu orðið frjálsari jafnt austan tjalds sem vcstan. EVROPA er skipt. Mörg okkar fæddust, þegar þetta fyrirbæri var þegar söguleg staðreynd, aðrir urðu vitni að tilorðningi þess. En allir hafa lifað við þær aðstæður, sem af þessari skiptingu skapast. Sjálf hefur hún öll eftirstriðs- árin skapað heilt kerfi að áróðurssklisjum og sérstæðan hugsanagang, sem byggir á gjörsamlega andstæðum hug- myndum og frumstæðri hölfun i austur og vestur. Kalda striðið frysti um lang- an aldur pólitiska og félags- lega hugsun i álfunni. Þetta var isöld fyrir marga þá, sem starfa við fjölmiðla og þvi fór fjarri að samvizka allra stæð- ist þá prófun. Veruleiki kalda striðsins hafði mjög neikvæð áhrif á félagslega vitund. En nú þeg- ar við teljum, að hinir verstu timar séu liðnir, þá vottum við verðuga virðingu þeim starfs- bræðrum okkar, sem héldu á miðju kuldaskeiði lifi i góðri trú á betri framtið. Stoltir af óbugandi anda evrópskrar menningar hugsum við til þeirra, sem stóðust þær freist- ingar að bruna eftir isi striðs- ins, en mokuðu þess i stað skafla og kynntu bál gegn nepju gagnkvæmrar tor- tryggni. TRÚ ÞEIRRA var réttmæt. Um nokkurra ára skeið hefur Evrópa lifað endurnýjunar- skeið. Hugmyndir friðar, gagnkvæms skilnings og sam- starfs eru mörgum ekki leng- ur forboðinn ávöxtur. Við er- um vitni að þessum breyting- um sem Evrópumenn, og sem fulltrúar fjölmiðla erum við virkir þátttakendur i þeim. 1 þessum skilningi berum við sérstaka ábyrgð á þeirri upp- skeru, sem sáð hefur verið til i Evrópu. Það er ekki aðeins undir rikisstjórnum og al- menningi komið, hvort menn uppskera velmegun og sættir eða hið beizka brauð von- brigða og fjandskapar — held- ur og þvi, hvernig fjölmiðlar fræða notendur sina, hvernig þeir móta afstöðu til þeirrar þróunar, sem fram er að fara. Þegar um er að ræða örlög Evrópu i nútið og framtið get- ur ekki verið um neinar hlut- lausar upplýsingar að ræða. Ef við látum stjórnast af vilja til að vernda og þroska evrópska menningu, ófor- gengileg andleg verðmæti, af vilja til að koma á gagnkvæm- um skilningi i nafni friðar og framfara, þá ættum við að keppa að þvi einu að finna lausnir, sem allir hlutaðeig- andi geta sætt sig við. ÞETTA jafngildir ekki hug- myndarfræðilegri einingu. Hver og einn aðhyllist sinar skoðanir og rétt til að halda þeim fram. Hér er um það að ræða, að samkeppni og árekstrar hugmynda fari fram á grundvelli þeirrar einu viðleitni — að tryggja farsælt og friðsamlegt samfélag manna og þjóða i álfunni. Meö öðrum orðum — sú hug- myndafræðilega barátta, sem fram fer um fjölmiðla, ætti að fara fram á almennt viður- kenndum grundvelli friðsam- legrar sambúðar rikja, sem búa við mismunandi þjóð- skipulag. Við litum svo á, að friður og öryggi i Evrópu skuli hvila á þeim meginreglum, að landamæri séu friðhelg, riki skipti sér ekki af innanlands- málum annarra, á sjálfstæði, jafnrétti og höfnun vald- beitingar. Ef við höfum hug á að koma i veg fyrir að álfan skiptist i andstæðar fylkingar með vax- andi hættu á beinum átökum, þá ættum við að taka upp þá stefnu að leita að sameiginleg- um grundvelli fyrir öryggi i Evrópu. Sovézkir blaðamenn hafa lagt út á þessa braut, sem leið- ir til uppbyggingar nýrrar Evrópu friðar, öryggis og samstarfs. Þvi styðjum við þær aðgerðir sem draga úr spennu, viðurkenna raunveru- leika eftirstriðsáranna og niðurstöður, sem náðst hafa með tvihliða og marghliða samningum. GILDISTAKA samninga Sovétrikjanna og Póllands við Vestur-Þýzkaland, fjórvelda- samkomulags um Berlln, samnings um samskipti þýzku rikjanna — allt er þetta raun- tækt framlag til eðlilegs ástands i Evrópu. Arangurs- rik þróun samstarfs milli Sovétrikjanna og Frakklands er góð sönnun á möguleikum góðs grannskapar Evrópu- rikja. Við fögnum bættum samskiptum við Vestur- Þýzkaland og fylgjum eftir öllu þvi jákvæðu, sem tekið er upp i samskiptum okkar við Finnland, Italiu, Norðurlönd o.fl. En það væri barnalegt að telja að þessi þróun væri þeg- ar komin á lokastig. Reyndar er hún aðeins að byrja að styrkjast i átökum við þá, sem af ýmsum sökum tefja fyrir lausn óleystra vandamála i álfunni og hafa ekki gefizt upp við að snúa þróun mála við. EN ÞÓ þessi öfl séu sterk og þrjózk, vinnur timinn gegn þeim. Og við trúum þvi, að á öryggismálaráðstefnu Evrópu, sem sósialisk riki hafa lengi hvatt til, muni klukka álfunnar slá i lang- þráðum hádegisstað, og Evrópuþjóðir geta hafizt handa um aö fylgja eftir áætl- un um frið, sættir og samstarf á sviði efnahags- og menn- ingarmála. Fjölmiðla biður mikið hlut- verk við að færa þessa stund nær. Angur af þvi frumkvæði, Framhald á bls. 27

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.