Tíminn - 10.02.1973, Page 18

Tíminn - 10.02.1973, Page 18
18 TÍMINN Laugardagur 10. febrúar 1973 geta beðið. Það tekur að minnsta kosti mánuð að gera frumdr.. Nei, ég fer ekki. Ekki einu sinni til Milanó”. „Hann fór til Milanó og var þar i þrjá daga”, sagði Fanney. Rob hafði tekið litla suður- herbergið fyrir vinnustofu. Það var sólrikt og þar var gott næði, þótt herbergið væri litið. „Viltu ekki hafa útsýni?” spurði Fanney. „Nei, ég þarf bara fjóra veggi”, sagði Rob. „Skrifborð?” Fanney leitaði meðal húsgagna maddömu Menyhinis. 1 dagstofunni var skrifborð úr hnotu með fylltum rósum. Það liktist ekki vinnu- borði. „Það er ekki um annað að ræða”, sagði Fanney. „Ég vil ekki skrifborð, heldur venjulegt borð”, hafði Rob sagt og tekið eldhúsborðið, sem börnin urðu hneyksluð á. Fanneyju þótti lika nóg um. „Er það vegna þess að það er ekki i stil við hitt?” spurði Rob. En hún átti ekki við það. Fanneyju fannst allt á heimilinu komið á annan endann, ef eldhús- borðið var tekið. „Þú ert allt of heimilisleg”, var Margot vön að segja við Fanneyju. „En ég vil vera húsleg”, hafði Fanney sagt og setið við sinn keip. „Hvað ætli Celestina segi?” spurði Fanney. „Kaupa annað borð”, sagði Rob. Þetta var eitt dæmið um ''íirðuleysið, sem hafði haldið inn- reið sina. Það, sem Fanney kall- aði röð og reglu, var fokið út i veður og vind”. „Kallaðu ekki á mig i hádegisverð”, sagði Rob. „En þú verður að borða". — „Ég fæ mér eitthvað, þegar ég er búinn”. „Þú getur haldið áfram eftir hádegismatinn”. „Ég gæti þaö ekki”, sagði Rob. „Þaþ er nógu erfitt að byrja einu sinni. En að byrja tvisvar væri morð”. „En langar þig ekki til þess að vinna?” „Auðvitað”, sagði Rob . „Hvers vegna ekki?” „Þú verður að borða eitthvað”. — „Giulietta getur fært mér Panino”. — Panino er brauðhnúð- ur með svinakjöti i. „Giulietta, en ekki þú”, sagði Rob. — Það eru ekki meðmæli með mér”, sagði Fanney. „Jú, það er einmitt það. Ég tek ekkert eftir Giuliettu, Fanney, ef þú elskar mig, þá lofaðu mér að vera i friði”. Það var i fyrsta sinn, sem Fanney komst i kynni við starf, sem varð að ganga fyrir öllu: mat, drykk og svefni. Henni hafði fundizt Darrell leggja hart að sér bæði i hernum, og þegar hann var sendiboði, en hann hafði ákveðinn vinnutima, þó að hann yrði stund- um að taka með sér aukastörf vegna annarra og fara að heiman með stuttum fyrirvara. Rob lok- aði sig oft inni i vinnuherberginu og vann hvildarlaust heilan dag. Stundum greip hann eirðarleysi, og þá varð hann að fara á kreik. Oft stóð hann heila klukkustund á ströndinni hjá vatninu, horfði á öldurnar og lét smásteina fleyta kerlingar eða gekk fram og aftur i garðinum. Fanney lærði að yrða ekki á hann og láta sem hún tæki ekki eftir honum. Hún lofaði hon- um aö vera einum. „En hvað um þig?” hafði Rob spurt, áður en hann hóf vinnuna. „Hvað ætlar þú að gera, ein klukkustundum saman?” „Það sem þú sagðir mér”, svaraði Fanney. „Ekkert”. Allan þennan tima hafði hún hangið i Rob. Þaö var eins og hun gæti ekki losnað við þreytuna. „Ég hef verið að pakka niður, siðan um jól”, hefði hún getað sagt. „Fyrst fyrir börnin, sem ég var að senda af stað i skólann i siðasta sinn. Ég vissi það, þó að þau vissu það ekki. Siðan Stebbings, þar sem enginn vissi, um ástæðuna, nema Gwyneth. „Fara frá Stebbings? Ogsetjastaði ibúð i Lundúnum. Ertu gengin af vitinu/” hrópuðu Anthea og Margot. Nú vissu þær, hvað bjó á bak við þögn Fanneyj- ar. „Það var léttara fyrir Darr- ell”. „Siðan til Skotlands til þess að pakka niður i húsi isabellu frænku, litla gráa, kuldalega steinhúsinu með gluggabor- unum, sem minntu á dökk augu. Það er skrýtið, að þetta skyldi allt vera hvað á eftir öðru, hugsaði Fanney með sér.' Húsið hennar ísabellu, þar sem ég hafði átt heima frá þvi að ég var barn og þangað til ég gifti mig, Stebbings og börnin. Það var eins og ég væri að pakka niður allri ævi minni. Þar er engin furða, þótt ég sé þreytt”. Rob hafði brugðið i brún, þegar hann sá, hvað hún var orðin mögur. — Mér brá ekki siður þegar ég sá hvað þú hafðir lagt mikið af, sagði Fanney. — Ég hef alltaf verið heldur grannholda. Þú ættir að vera bústin. Ég er ekki heldur með dökka bauga undir augunum. Rob var vanur að bera langan stól og púða út á grasflötina, áður en hann tók til starfa. Þar lá Fanney i sólinni allan morguninn og lét sig gróa saman eins og hún orðaði það i huganum. Þó að maður hafi verið slitinn i tætlur, grær maður saman aftur. Þegar Ronato hafði kvatt þau i garðinum siðasta kvöldið gekk Fanney yfir grasflötina og snerti eitt af gömlu oliutrjánum undrandi. Rætur þess höfðu sprengt moldarköggla upp úr grassverðinum. Stofninn var sprunginn upp að miðju, boginn og skakkur, og gegnum rifurnar sást i þurran hvitan viðinn, en tréð bar enn laufkrónu sina, sem Fanneyju var farið að þykja vænt um, oliublöðin, sem sýndust ýmist græn eða silfurlit eftir þvi sem vindurinn feykti þeim til. Þetta gamla skaddaða tré mundi gefa af sér oliuber ár eftir ár, blómstra og bera ávöxt i þögn og... Ég hef æðrazt of mikið, hugsaði Fanney með sér. Ekkert hljóð barst til hennar nema frá vatninu og veginum. Arum var dýft i vatnið, þegar Mario ýtti bátnum sinum frá landi, þvottur barinn á tréborðum i fjörunni fyrir framan sveita- setrið eða hótelið, þar sem konurnar i þorpinu, Giulietta eða vinnustúlkurnar á hótelinu voru að þvo. — Það eru ekki mörg þvottahús á Italiu, — hafði Renato sagt við Fanneyju. öðru hvoru heyrðist i utanborðshreyfli, þytur af hraðbáti, og á klukku- tima fresti heyrði hún til gufu- skipanna, sem fóru fram hjá á leiðinni frá Riva til Limono og Macesine. Stundum voru kölluð kveðjuorð niðri við vatnið. Rödd Celestinu gali við, þegar hún hrópaði til Giacomino eða Giuliettu, póstkonunnar eða slátrarans með hvitu húfuna og svuntuna eða til mjalta- konunnar, sem var i dökku brúnröndóttu pilsi meö sjal á herðum og skýluklút eins og bóndakona og flutti mjólkina i gömlum vínflöskum „tappa- lausum, svo að rykið kæmist ofan i þær,” sagði Fanney. — Það er ekki sérlega hreinlegt, sagði Rob en maddama Menghini hefur drukkið þessa mjólk i þrjátiu ár, og hún lifir enn og hefur góöa heilsu. t Stebbings hafði ekkert farið fram hjá Fanneyju. Hér skildi hún ekki einu sinni hvað var sagt, og ekkert kom henni við. Hún hafði hvorki pantað kjötið né mjólkina. Celestina hugsaði um heimilið. Frá veginum barst stöðugur umferðardynur. Rob kvartaði undan þvi, að bilarnir væru of margir, en Fanney sagði, að þetta væri aðeins fjarlægur niður. Ef stormurinn var ekki of hvass, heyrði Fanney kirkju- klukkurnar hljóma kvölds og morgna og um miðjan daginn. t hverju þorpi var falleg kirkja með turni og brúnu helluþaki, en að innan voru kirkjurnar skreyttar málverkum og mar- mara. Kirkjurnar sýndust of stórar og veglegar i samanburði við þorpin — Þú ættir að sjá þær á sunnudögum, sagði Rob. Stundum voru klukku- hringingarnar eins og daufur ómur, og öðru hvoru heyröi hún aðeins til kirkjuklukkunnar i Malcesine, en það var eins og þær færðu frið og ró. Þegar þær hringdu um hádegið, lét Celestina Ciuliettu færa Fann- eyju miðdegisverð út á stein- borðið á grasflötinni. Klukkan tólf var bleiki steinbekkurinn heitur af sól. Oft kom Celestina sjálf með kaffið og stóð siðan og talaði við Fanneyju blending af ensku, þýzku og itölsku með allskonar bendingum og handapati. Fanney hefði getað lært ósköpin öll um fjölskyldu Celestinu, það sem á dagana dreif i striðinu og hjóna- band hennar. En Fanney lét þetta allt fara inn um annað eyrað og út um hitt. Celestina kom henni ekki við. Eftir hádegisverðinn fékk Fanney sér blund, stundum i grasinu undir kýprustrjánum .Hún hlustaði á öldugjálfrið, þangað til hún sofnaði. Þú litur út eins og þú hafir ekki sofið i marga mánuði, sagði Rob við Fanneyju. — Ég svaf illa i marga mánuði. — Þú getur sofið Lárett Lóðrétt 1) Dökka,- 5) Svik,- 7) 950,- 9) Skessa,- 2) AL- 3) Nei,- 4) Ganga.- 11) Eiturloft,- 13) Gast,- 6) Maurar,- 8) Snæ,- 10) Grein.- 14) Hlunnindi.- 16) Marra,-12) Úlfa.-15) Urg,-18) Eins,-17) Aflaga.-19) Lifnar.- El,- Lóðrétt 1) Land.-2) Hasar.-3) Glöð.- 4) Pril.- 6) Saumur,- 8) Fæðu,- 10) Hrapa,- 12) Forn borg.- 15) Avana.- 18) Skáld.- Ráðning á gátu No. 1330 Lárétt 1) Slanga,- 5) Lea,- 7) Es,- 9) Isma.- 11) Snú,- 13) Tau,- 14) Sælu.-16) RR,- 17) Frera.- 19) Baglar,- Ég ætla að fá'j Þeir brenndu einn. Snúið J kofa okkar. aftur ) Við förum með Morimenn.C þör, Dreki. 111 ilii 1 1 Laugardagur 10. febrúar 13.00 Óskaiög sjúklinga. Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.40 tslenzkt mál. Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag. flytur þáttinn. 15.00 Þetta áttu að vita. Nýr mánaðarlegur spurningaþáttur. I fyrsta þætti er spurt um iþróttir. Til svara eru Hallsteinn Hinriksson, Brynjólfur Ingvarsson, Jónas Hall- dórsson og gestir i útvarps- sal. Dómari: Atli Steinars- son. Stjórnandi: Jónas Jónasson. 15.35 Kvintett i Es-dúr (K542) eftir Mozart. Vladimir Asj- kenazý og félagar úr Blás- arasveit Lundúna leika. 16.25 Veðurfregnir. Stanz. Arni Þór Eymundsson og Pétur Sveinbjarnarson sjá um þáttinn. 16.45 Sidegistónleikar. 17.40 Útvarpssaga barn- anna: „Yfir kaldan Kjöl” eftir Hauk Ágústsson. Höfundur les (3) 18.00 Létt lög. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 20.55 Smásaga: „Sveitasæla” eftir H.E. Bates. Anna Maria Þórisdóttir þýddi. Jón Aðils leikari lés. 21.35 Gömlu dansarnir. Folke og ^ke Lundquist leika. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. 23.55 Fréttir i stuttu máli. 1111 itllll 1 17.00 Þýzka i sjónvarpi Kennslumyndaflokkurinn Guten Tag. 11. og 12. þáttur. 17.30 Skákkennsia Kennari Friðrik Ólafsson. 18.00 Þingvikan Þáttur um störf Alþingis. Umsjónar- menn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 18.30 iþróttir Umsjónarmaður ómar Ragnarsson. 20.00 Fréttir 20.20 Veður og augiýsingar 20.25 Heimurinn minn Banda- riskur gamanmyndaflokk- ur. Þýðandi Guðrún Jör- undsdóttir. 20.50 Fuglar við ósa Dónár. Norsk mynd um hið fjöl- skrúðuga fuglalif i óshólm- um Dónár. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. (Nord- vision — Norska sjónvarp- ið) 21.05 Kvöldstund I sjónvarps- sal Gunnar Gunnarsson, Jón A. Þorisson, Linda Bjarnadóttir og Steinþór Einarsson taka á móti gest- um og kynna skemmti- atriöi. Meðal gesta eru Alan BrecI„Hljómar” og Linda Gísladóttir. 21.35 Hamingjuhúsið Norsk kvikmynd um málarann fræga Edvard Munch, ævi hans og listaverk. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Norska sjón- varpið) 22.00 Nelló og hundurinn hans (A Dog of Flanders) Banda- risk biómynd frá árinu 1959, byggð á sögu eftir Ouida. Leikstjóri James B. Clark. Aðalhlutverk David Ladd, Donald Grisp, Theodore Bikel og Ulla Larsen. Þýð- andi Óskar Ingimarsson. Myndin gerist i Belgiu og greinir frá ungum dreng, sem býr hjá afa sinum i sveit skammt frá Antwerp- en. Gamli maðurinn lifir af mjólkursölu til borgarinnar og drengurinn hjálpar hon- um við flutningana. Dag nokkurn finna þeir hund við veginn, yfirgefinn og illa leikinn. Drengurinn tekur hann heim með sér og hjúkrar honum. Hundurinn verður brátt uppáhalds- félagi drengsins og gerir honum margan greiða áður en lýkur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.