Tíminn - 10.02.1973, Qupperneq 19
Laugardagur 10. febrúar 1973
TÍMINN
19
LANDSLIÐSNEFND-
IN Á VILLIGÖTUM...
— gerði þrjdr breytingar d landsliðinu, sem leikur í dag gegn
Grúsíumönnum. Breytingar sem verða ekki til batnaðar.
HIN NÝJA landsliösnefnd i hand-
knattleik kom heldur betur á
óvart, þegar hún tilkynnti lands-
liðið sem leikur siðari leikinn
gegn úrvalsliði Grúsiu. Þrjár
breytingar voru gerðar á liðinu,
sem lék fyrri leikinn. Þeir Hjalti
Einarsson, FH, Axel Axelsson,
Fram og Agúst ögmundsson, Val,
Hljómskóla-
hlaup ÍR
fer fram
d morgun
HLJÖMSKALAHLAUP IR fer
fram i 2. sinn i vetur nk. sunnu-
dag, 11. febrúar, og mun það hefj-
ast eins og venjulega kl. 14.00.
Keppendur voru ekki sérlega
margir i 1. hlaupinu, og þvi er nú
búizt við fleiri keppendum,
einkanlega þegar tekið er tillit til
þess, að hlaupið er nú liður i
keppni IR-inga við IFK Norrköp-
ing úr fjarlægð, sem nú stendur
sem hæst.
Hlaupið er enn sem fyrr, opið
öllum piltum og stúlkum, körlum
sem konum, sem áhuga hafa á að
kanna úthald sitt og starfsgetu
hjartans, mikilvægasta liffæri
likamans.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að mæta timanlega til
skráningar og númeraúthlutunn-
ar, helzt eigi siðar en kl. 13,30.
voru settir út, en i staðinn fyrir þá
leika þeir Birgir Finnbogason,
FII, Stefán Gunnarsson, Val og
Magnús Sigurðsson, nýliði úr Vik-
ing. Það er greinilegt að lands-
liðsnefndin er strax komin á villi-
götur.
Eftir leikinn á fimmtudags-
kvöldið, kom strax i ljós á leik
landsliðsins, að það mætti gera
miklar breytingar, liðið lék
þröngan sóknarleik, þar sem
flestir útispilararnir reyndu að
brjótast i gegnum miðjuna. Þá
reyndu þeir að troða knettinum
inn á linu, á leikmenn i vonlaus-
um færum. Knötturinn var sjald-
an látinn ganga út á kantana, þar
sem Sigurbergur og Gunnsteinn
voru. En þeir eru mjög góðir
gegnumbrotsmenn inn úr horn-
um.
Þessar þrjár breytingar veröa
ekki til batnaðar, inn kemur linu-
maður Stefán Gunnarsson og úti-
spilari Magnús Sigurðsson, en
hann er þannig leikmaður, að
hann fer einnig inn á miðjuna til
að skjóta — þá er hann ekki
þekktur fyrir að gefa linusending-
ar.
Landsliðsnefndin hefur greini-
lega valið Magnús i liðið, vegna
þess að hann er vinstrihandar-
skytta. Gerir nefndin honum
nokkurn greiða með þessu vali?
Þvi er fljótsvarað, alls engan.
Magnús hefur ekki náð sér á strik
i handknattleiknum i vetur, hann
hefur litið leikið með Vikingslið-
inu og er greinilega i öldudal. Þaö
má benda á það, að tveir vinstri-
handarleikmenn, eru teknir fram
yfir Magnús i Vikingsliðinu, það
eru þeir Stefán Halldórsson og
Viggó Sigurðsson.
Það er greinilegt, að landsliðs-
nefndin nýja byrjar sinn feril
ekki glæsilega, hún er strax kom-
in með vinnubrögð, sem fáir
botna i. Hún virðist vera búin að
gleyma handknattleiksmönnum,
eins og Viðari Simonarsyni.
Brynjólfi Markússyni, Páli
Björgvinsyni, Ingólfi Óskarssyni
og Agústi Svavarssyni, en hann er
okkar bezta vinstrihandarskytta i
dag.
Leikurinn við Grúsiu hefst kl.
15.00 i Laugardalshöllinni i dag.
Grúsiumenn leika einn aukaleik
hér á landi, þeir leika gegn FH á
sunnudaginn i iþróttahúsinu i
Hafnarfirði og hefst leikurinn kl.
17.00 — SOS
60 í Breið-
holtshlaupi
1. BREIÐHOLTSHLAUP IR á
þessu ári fór fram sl. sunnudag 4.
febr. i ágætisveðri. Brautin var
að visu nokkuð hál á köflum og
sagði það til sin i timum þátttak-
endanna, sem alls urðu 60 talsins.
Hlaupið gekk mjög vel og var
lokið 11 min. eftir að 1. hlauparirin
lagði af stað. Margt manna var að
horfa áhlaupiö og hvöttu þeir hinu
ungu hlaupara mjög.
Bezta tima einstaklinga hlutu
þau Olafur Haraldsson 3:02 min,
og Dagný Pétursdóttir 3:28 min.
MÁTTI HRÓSA HAPPI AÐ
FÁ EKKI KÚLU í HÖFUÐIÐ
— Gunnlaugur Hjálmarsson, varð fyrir sérkennilegri
lífsreynslu í V-Þýzkalandi 1957, er hann var staddur þar
með ÍR-liðinu, sem lék fjóra leiki gegn Zagreb, sama
liðinu og kemur hingað í boði KR
EINS OG VIÐ höfum sagt frá, þá
er væntanlegt hingað til landsins
eitt sterkasta félagslið Evrópu I
handknattleik, Zagreb frá Júgó-
slaviu. Liðið er ekki með öllu
óþekkt Islenzkum handknatt-
leiksmönnum, þvi að Fram lék
gegn þvi i alþjóðamóti I Vestur-
Þýzkalandi 1970. Þá lék iR-liöiö
fjórum sinnum gegn Zagreb 1957,
þegar liðið var i keppnisferðalagi
i V-Þýzkalandi Þá ferðaðist ÍR-
liðið með Zagreb-liðinu um
GUNNLAUGUR „Labbi” —
vældi eins og sirena á lögreglubíl.
Þýzkaland i rúmlega viku — tóku
þátt i mótum i mörgum borgum
Þýzkalands. Fyrirkomulagið á
mótunum voru þannig, að ÍR,
Zagreb lið frá þeirri borg, sem
var leikið i ásamt einu öðru v-
þýzku liðu, tóku þátt I mótunum.
Leikið var þannig að allir léku við
alla 2x25 min. leiki, þannig að
liðin léku þrjá leiki yfir kvöldið,
samtals sex leikir. Leikir ÍR og
Zagreb fóru þannig, að tveir
enduðu með jafntefli 5:5 og
Zagreb vann hina tvo 6:5
I þessari keppnisferð, lentu IR-
ingar i miklu ævintýri. Þegar þeir
voru staddir i Köln, komu þeir
upp um skartgripaþjófa og
flæmdu þá burt af staðnum.
Nokkrir leikmenn úr IR-liðinu
voru staddir á breiðgötu, þegar
þeir heyrðu brothljóð innarlega i
heldur þröngri og dimmri hliðar-
götu — sáu þar bil bakka að
búðarglugga. Þeir gerðust for-
vitnir og hlupu af stað, til að sjá
hvað væri að ske. Gunnlaugur
Hjálmarsson, hinn kunni hand-
knattleiksmaður úr IR, hljóp
fyrstur og setti hendurnar upp að
munni sér og vældi eins og sirena
á lögreglubil. Honum brá heldur i
brún, þegar honum var litið bak
við bilinn — þá horfði hann inn i
iskalt byssuhlaup og einn inn-
brotsþjófurinn skipaði honum
fyrir á þýzku. Gunnlaugur lét sér
fátt um finnast og hélt förinni
áfram og reyndi að koma sér úr
hættu
En fljótlega komu hinir IR-
ingarnir á staðinn og fólk fór aö
þyrpast að úr öllum áttum.
Byssumaðurinn hélt öllum áhorf-
endunum i skefjum með byss-
unni, á meðan félagar hans
„hreinsuðu” búðargluggann —
siðan stukkur þeir inn i bilinn og
brunuðu út i myrkrið.
Tveimur dögum siðar, var 1R-
liðið statt i Wiesbaden. Þá var
aðalfrétt dagblaðanna þar um
þjófnaðinn i Köln og að þjófarnir
hefðu verið handteknir i Wies-
baden þá um nóttina. Þjófnaður
þessi var talinn hinn stærsti i
Þýzkalandi i fjölda ára. IR-
ingunum þótti það einkennileg til-
viljun, að þjófarnir hefðu fundizt i
sömu borg og þeir voru i — eftir
að hafa verið vitni að sjálfum
skartgripaþjófnaðinum mikla i
Köln.
Þegar Gunnlaugur varspurður
um atvikið i skuggasundinu,
þegar hann kom fyrstur að þjóf-
unum, sagði hann — „Sjálfur
geröi ég mér ekki grein fyrir
fiflsku minni, þegar ég hljóp inn
götuna með óhljóðum. Ég hefði
svo sannarlega getað fengið
byssukúlu i hausinn — en byssu-
maðurinn virtist hafa mannlegar
taugar, þvi að hann sendi ekki
kúlu i gegnum hausinn á mér. Ég
veit ekki hvernig það hefði farið,
ef þetta hefðu verið forhertir
glæpamenn”. A þessu sést, að
Gunnlaugur hafði heppnina með
sér. Hann mátti hrósa happi, að
hafa ekki fengið kúlu i hausinn.
Þetta atvik verður Gunnlaugi
örugglega lengi minnistætt — þvi
að það er ekki á hverjum degi,
sem Islendingar horfa upp i
isköld byssuhlaup. SOS
Aðalfundur
AÐALFUNDUR hinnar nýstofn-
uðu skiðadeildar Fram verður
haldinn n.k. mánudagskvöld 12.
febr. i Alftamýrarskóla og hefst
stundvislega kl. 20.30. Félagar
eru beðnir að mæta. Venjuleg
aðaifundarstörf. Stjórnin.
ENSK KNATT-
SPYRNA Á BOÐ-
STÓLUM UM
PÁSKANA
— Keflvíkingar efna til hópferðar til London
SOS, Reykjavik— Vegna inikillar
eftirspurnar og fjölda áskorana,
hafa Keflvikingar ákveöið að efna
til hópfcrðar til London um
páskana 14-21 apríl n.k. Aö sjálfs-
sögðu vcrður horft á knattspyrnu
og verzlað, þegar það á við. Mat-
seðillinn yfir knattspyrnuleiki I
Lundúnaborg þess sjö daga litur
þannig úr:
Laugardagurinn l lapril
Arsenal — Tottenham
C. Palace — Ipswich
West Ham — Leeds
Þrir leikir, sem verða örugg-
lega spennandi. Sá leikur, sem
verður mest i sviðsljósinu, er
leikur liðanna frá Norður-
London, Arsenal og Tottenham,
sem fer fram á hinum fræga leik-
velli Arsenal Highbury.
Miðvikudagurinn IK.april
Tottenham — Derby
Föstudagurinn 20. april
C. Palace — Leicester
West Ham — Southampton
Laugardagurinn 21. april
Tottenham —Leicester
Chelsea —Southampton
Eins og sést á þessu, þá hafa
þátttakendur i hópferðinni mögu-
ieika á að fara á heimavelli allra
1. deildarliðanna deildar liðanna
frá London. Einnig geta þeir
skroppið ogséðleiki i2. deild, t.d.
Q.P.R. gegn Luton og Millwall.
Verð farmiða er kr. 16.300
fyrir þátttakanda og i honum er
innifalið flugfar, hótelherbergi
með sér baði og sjónvarpi og
enskur morgunverður (ekki
færður i rúmið). Þá er möguleiki
að framle.ngja ferðina um einn
dag gegn vægu verði.
Allar upplýsingar i þessa ódýru
og skemmtilegu ferð, veitir Loft-
leiðaumboðið Keflavik, simi 1804
Tottenham réði
ekki við Derby á
White Hart Lane
— meistararnir sýndu sitt rétta andlit
og unnu 3:5. Rogers Davies skoraði
„hat trick" og lék frábærlega.
SA LEIKMAÐUR, sem hcfur ver-
ið mest I sviðsljósinu I ensku
knattspy rnunni, undanfarnar
vikur, er hinn ungi og cfnilegi
framlinuspilari Derby, Rogers
Davies, sem er aðeins 21 árs.
Ilann á allan heiður af þvl að
Derby er komiö I 16-liða úrslit I
bikarkeppninni. A miðvikudags-
kvöldiö átti hann frábæran leik
meö Derby, þegar liðið lék gegn
Tottenham á White Hart Lane —
hann breytti stöðunni úr 1:3 I 4:3
fyrir Derby, með þremur ,,hat
trick” glæsilegum mörkum og
áöur en leik liðanna lauk, skoraöi
Derby eitt mark I viðbót og sló
þar meö Tottenham úr hikar-
keppninni — lokatalan varð 5:3.
Tottenham-liðið byrjaði vel i
leiknum, fljótlega var staðan orð-
in 2:0 fyrir Lundúnaliöið, en
Hector minnkaði muninn i 1:2 —
þá kom mark frá Mike England,
l:3úr vitaspyrnu. Rogers Davies,
lét þá að sér kveða og jafnaði 3:3
rétt fyrir leikslok. Þurfti þá að
framlengja leikinn. Rogers
Davies kemur þá Darby yfir 3:4.
Á lokaminútum leiksins reyndu
leikmenn Tottenham að jafna og
voru allir leikmenn liösins komn-
ir i sókn, en þá fór eins og svo oft
vill verða — Derby náði skyndi-
upphlaupi og Hector skoraöi þá
fimmta mark meistaranna oe
sigurinn var kominn i örugga
höfn.
Aðrir leikir i bikarkeppninni,
sem voru leiknir i vikunni, fóru
þannig:
C. Palace—Sheff. Wed. 1:1
Man. City—Liverpool 2:0
Tottenham— Derby 3:5
Cardiff—Bolton 1:1
Reading-Sunderland 1:3
Manchester City átti ekki i
erfiðleikum meö efsta liöið i 1.
deild, Liverpool, þegar liðin
mættust á Maine Road. City var
allan leikinn betra liðið og sigur-
inn sanngjarn. Mörk liðsins skor-
uðu þeir Bell og Booth. Liverpol -
liðið, sem hefur leikið undir getu
undanfarið, virðist komið i mik-
inn öldudal og verða leikmenn
liðsins að taka á honum stóra sin-
um, ef þeir ætla að vera með i
8 baráttunni um meistaratitilinn I
ár. Liðið leikur á heimavelli i dag
gegn Arsenal i 1. deild, og spáum
við þvi, að liðiö tapi sinum fyrsta
leik á heimavelli á keppnistima-
bilinu og missi þar með forustuna
i deildinni til Arsenal, en
Lundúnaliðið virðist vera að
sækja i sig veörið.
Eftirtalin lið hafa dregizt sam-
an i 5. umferð bikarkeppninnar,
sem veröur leikinn 23. febrúar:
Man. City—Sunderland
Coventry—Hull
Leeds—W.B.A.
Bolton eða Cardiff—Luton
Carlisle—Arsenal
Wolves—Millwall
Derby—QPR
Sheff. Wed. eða C.
Palace—Chelsea
Eins og sést, þá eru miklar lik-
ur á að 1. deildarliðin komist auð-
veldlega i 8-liða úrslitin. —SOS.
Kevin Hector, átti góðan leik
gegn Snurs.