Tíminn - 23.03.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Föstudagur 23. marz. 1973
★
Dóttir Ingmars
Bergman Ijósmynda-
fyrirsæta í London
Anna heitir hún Bergman-
Brown og er dóttir sænska kvik-
myndagerðarmannsins Ingmar
Bergman. Menn segja, að hún
likist föður sinum nokkuð, að
minnsta kosti augnaráðið, sem
hún sendir þeim, sem við hana
tala. Það er rétt eins og verið sé
aö tala við föðurinn. Anna er 23
ára gömul, og yngst fjögurra
barna Ingmars Bergmans og
Ellen Bergman, sem hefur getið
sér frægðar fyrir dansasamn
ingu. Þau Ellen og Ingmar voru
gift á fimmta áratug aldarinn-
ar, og var Ellen önnur kona Ing-
mars. Með Ellen átti Ingmar
helming þeirra barna, sem hann
nú á, Evu 27 ára, Jan 26 ára,
Mats 24 og svo önnu. Anna á
heima i London, og hefur búið
þar undanfarin sjö ár. Hún er
gift lögreglumanni, og á einn
son, Mikael, sem er fimm ára
gamall. Hún hefur starfað lengi
sem ljósmyndafyrirsæta. Fólk
fór fyrst að veita önnu eftirtekt
fyrir alvöru, þegar hún tók upp
aftur eftirnafnið Bergman, en
lengi vel hafði hún viljað kom-
ast af án þess að notfæra sér
frægð föðursins. önnu finnst
sjálfri, að hún sé gjörólik
föðurnum, og segir, að sé eitt-
hvert systkinanna likt honum,
þá sé þaö bróðir hennar Jan. En
þótt hún sé ekki lik honum i út-
liti, segist hún vita, að hún likist
honum á öðrum sviðum. Til
dæmis er hún álika kaldhæðin
og Ingmar, og hún hefur sömu
grundvallarafstöðu til lifsins og
hann, það er að búast aldrei við
of miklu. Anna og maður hennar
og sonur búa i fjögurra her-
bergja ibúð i Mið-London. Hún
hefur aldrei getað fellt sig við
kuldann og rakann i þessari
miklu borg, og kúrir fyrir fram-
an arininn, þegar hún getur
komið þvi við. Þegar Anna var
17 ára fór hún til London og
nokkrum árum siðar giftist hún
æskuvini sinum Peter Brown.
Siðan fæddist Mikael, og Anna
og spænsk vinkona hennar, opn-
uðu dagheimili i sameiningu,
þvi þær gátu ekki hugsað sér að
hafa ekkert fyrir stafni. Þegar
Anna fékk vinnu sem ljós-
myndafyrirsæta hringdi hún til
föður sins, sem hún annars hef-
ur mjög litið saman við að
sælda, og spurði hann, hvort
hann hefði nokkuð á móti þvi, að
hún notaði Bergmans-nafnið.
Hann sagði, að það væri siður en
svo, honum þætti eiginlega vænt
um það. Hjónaband önnu og
Peters er mjög frjálslegt. Þau
eiga bæði sina eigin vini, og
Anna fer oft út með vinum sin-
um, og Peter spyr aldrei neinna
spurninga. Það er samkomulag
þeirra á milli, að þau skuli gera
það, sem þau vilja, svo lengi
sem þau særa ekki hvort annað.
Ekki segist Anna geta hugsað
sér betri eiginmann en Peter.
Hann hjálpi henni mjög mikið
við heimilisstörfin, og hann sé
einstaklega þolinmóður og góð-
ur við son þeirra. Anna segir, að
sér hafi gengið vel sem ljós-
myndafyrirsætu, og hún hafi
meira að segja fengið kvik-
myndatilboð, þó ekki frá föður
sinum. — Ég er ánægð með að
vera ljósmyndafyrirsæta, og læt
mér það nægja, i bili að minnsta
kosti, segir hún að lokum.
Ný flugvallargjöld
í París
Ákveðið hefur verið að leggja ný
flugvallargjöld á ferðamenn,
sem fara um flugvellina i og við
Paris. Þessi gjöld verða fram-
vegis þrir frankar (um 60 kr)
fyrir þá, sem yfirgefa landið, en
einn franki fyrir þá, sem fljúga
milli staða innan Frakklands.
Ætlunin er að nota þá peninga,
sem koma inn með þessum
gjöldum til þess að greiða ibú-
um i nánd við flugvelli skaða-
bætur vegna óþæginda af há-
vaða, sem alltaf er i grennd við
stóra flugvelli. Einnig er ætlun-
in að hljóðeinangra skóla og
sjúkrahús á sömu slóðum, en
talið er vist að hreinlega verði
að kaupa húseignir af sumum
húseigendum og gefa þeim kogt
á að flytjast i burt til hljóðlátari
staða.
DENNI
DÆMALAUSI
Sjáðu, þú getur verið sætur lika
ef þú vilt. Hver vill það?