Tíminn - 23.03.1973, Page 20
Föstudagur 23. marz. 1973
I I I I
MERKIÐ, SEM GLEÐUR
Hittumst i haupfélaginu
Gistió á gódum kjörum
#HnfEÉ»
n
^GOÐI
L J ft/rir tfóiUtn nmt
^ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
Þaft cr þröng á þingi í kring um fæöingardeildina I skólastofunni.
ÞETTA GETUR HEITIÐ LIFANDI KENNSLAI
ÚTUNGUN INNI í SKÓLA-
STOFU í GARÐAHREPPI
nemendurnir, enda var þetta sér-
staklega fyrir þá gert.
Svoboda
endurkjörinn
forseti
NTB, Prag — Lúövik Svoboda
var i gær einróma endurkjörinn
forseti Tékkóslóvakiu til næstu
fimm ára. Allir þingmenn lands-
ins 341 að tölu voru viðstaddir
kjör forseta.
Svoboda var eini fram-
bjóöandinn i forsetakosn-
ingunum. Hann var fyrst kosinn
forseti á Dubcektimabilinu árið
1968, og nýtur mikilla vinsælda
meðal þjóðarinnar. Svoboda
stjórnaði á sinum tima tékknesku
sveitunum, sem ásamt Rauða
hernum leystu Tékkóslóvakiu úr
hernámi nazista.
Fyrsta fimm ára timabili hans
sem forseta má skipta i þrjá
meginkafla, nefnilega hinn frjáls-
lynda Dubcektima, innrás Var-
sjárbandalagslandanna haustið
1968 og loks timabilið, sem á eftir
kom undir stjórn Gústafs Húsak
flokksleiðtoga, sem einkennzt
hefur af einstrengingslegu aftur-
hvarfi til fyrra skipulags.
NTB—Belfast.— Helztu leiðtogar
kaþólskra á Norður-lrlandi, bæöi
stjórnmálamenn og prestar,
hvetja nú hinn ólöglega hluta
irska lýðveldishersins til að lýsa
þegar i stað yfir vopnahléi
Með fárra stunda millibili sendi
sósialdemókratiski verkamanna-
flokkurinn og varnarnefnd borg-
ara, áhrifamestu samtök
kaþólska minnihlutans, honum
tilmæli um að leggja niður vopn.
Skæruliðar hafa ekki gert
vopnaðar árásir i fjóra daga, og
Bretar lita á það sem þegjandi
samþykki um vopnahlé. Lýð-
veldisherinn hefur ekki sent frá
sérálit a umbótatillögum Breta
viðvikjandi framtiðarstjórn N-lr-
lands.
Málsvarar sósialdemókratiska
verkamannaflokksins á N-Ir-
landi, en fylgismenn hans eru
kaþólskir, létu i gær i ljós var-
færna viöurkenningu á hvitri bók
brezku stjórnarinnar um framtið
N-lrlands.
Forystumenn flokksins telja til-
lögur hvitu bókarinnar horfa á
margan veg i framfaraátt, ef
miðað er viö þær aðstæður, sem
kaþólskir búa við nú, þótt ekki
væru þeiiánægðir með ýmis atriði
i henni.
Aðrir hópar hafa einnig lýst yfir
skilyrtum stuðningi við hvitu bók-
ina, en róttækustu mótmælend-
urnir hafa fordæmt hana, sem al-
gerlega óviöunandi fyrir ibúa
N-trlands.
Fulltrúar Verkamannaflokks-
ins lýstu vonbrigðum sinum yfir
að brezka stjórnin heTði ekki
stungið upp á að stofnað yrði
írlandsráð, sem fulltrúar Bret-
lands, irska lýðveldisins, og mót-
mælenda og kaþólskra á N-Ir-
landi ættu aðild að.
STJÖRNU ★ LITIR sh
Ármúla 36 AAálningarverksmiðja Sími 8-47-80
Leggja kaþólskir á N-írlandi
niður vopnin?
Þeir eru jákvæðir gagnvart hvítu bókinni
kennslustundum i átthagafræöi i
sex ára bekk.
— Otungun barst i tal i
skólanum, sagði Vilbergur
Júliusson skólastjóri við Timann,
þegar við spurðumst fyrir um
þessa nýjung i skólastarfinu, og
það varð úr, að fengum
útungunarvél aðláni. Þaö var Jón
Guðmundsson á Reykjum i Mos-
fellssveit, sem hljóp undir bagg-
ann og hjálpaði okkur um litla
útungunarvél, sem við erum hér
með.
Eggin voru átta, og Jón sagði
okkur, að ungarnir skriðu úr eggi
á nitjánda degi. Og það stóð
heima eins og vænta mátti —
ungarnir komu úr egginu á mið-
vikudag og fimmtudag.
Þetta getur verið þáttur i nýrri
námsgrein, samfélagsfræðum,
sagði Vilbergur skólastjóri að
lokum. Og ekki vantar áhuga hjá
börnunum. Ég held, að þaö séu sjö
hundruö börn, sem búin eru að
sjá, hvernig ungarnir koma úr
egginu. Það hefur verið stöðugur
straumur barna og unglinga, sem
vilja fylgjast með þessu, en engir
eru þó jafnáhugasamir og yngstu
Blandast Svíar og Norðmenn
í verkföllin í Danmörku
NTB, Kaupmannahöfn— Engar
tilraunir hafa veriö geröar til aö
hefja samningaviöræöur aöila I
vinnudeilunni i Danmörku. Þær
aögeröir, sem nú eru 1 undir-
búningi hjá báöum aöilum benda
þvert á móti til þess aö alþýöu-
sambandiö og vinnuveitenda-
sambandiö búi sig undir lang-
varandi vinnudeilu.
Gert var ráð fyrir aö alþýðu-
sambandiö boðaði siðdegis i gær
verkfall viðgerðarmanna við afl-
stöðvar og tæknímanna á flug-
völlum. Verkfallið geturhaft i för
með sér, aö Kastrup flugvöllur
verði óstarfhæfur eftir viku, þar
eð ekki verður nægilegt starfslið
til aö sinna flugvélunum. Einnig
verður alvarlegt ástand hvað
rafmagnsframleiðslu snertir.
Vinnuveitendur hyggjast beita
verkbanni meöal skrifstofu- og
verzlunarfólks, einkum i þeim
fyrirtækjum þar sem aörir
starfsmenn eru i verkfalli. Þvi
má lfta á þetta sem e.k. sparnað-
arráðstöfun vinnuveitenda. Þeir
losna þannig við að greiða laun
starfsmönnum fyrirtækja, sem
þegar eru lömuð af verkfalli.
Aðalstjórn samtaka verzlunar-
og skrifstofufólks sat á fundi
fyrripartinn i gær, og hefur til-
kynnt að á föstudag verði ákveðið
hvort samtökin fari i verkfall. Ef
það verður, fara 45.000 félagar i
verkfall i fyrstu lotu, en alls eru
Framhald á bls. 19
Og svo lyftir kennari lokinu af, og Vilbergur skólastjóri virðir ungana
fyrir sér, ásamt börnunum, þegar þeir brölta út úr skurninni.
—Tlmamynd: GE.
STUNDUM er haft orð á þvi, aö
kennslan I skólunum sé þurr og
þreytandi og I næsta litlum
tengslum viö llfið og umhverfiö.
Ekki þarf aö kvarta um siikt I
barnaskólanum I Garöahrepþi
þessa dagana, þvi aö þar hafa
ungar veriö aö koma úr eggjum I