Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 12

Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 12
12 TÍMINN Laugardagur 7. apríl 1973. Umsjón: Elías Snæland Jónsson ALÞINGI Halldór E. Sigurðsson, fjdrmólaráðherra: LEYSUM VANDAMÁUN MED MANNDÓMI OG SAMHELDNI — gjaldeyrisstaða þjóðarinnar batnaði á síðasta ári — afkoma launþega hefur aldrei verið betri — atvinnulíf landsmanna er með miklum blóma og verðbólguvöxturinn ekki meiri en verið hefur undanfarfarið ár EJ-Reykjavik. — Ég hef sýnt fram á það hér, að gjaldeyrisstaða þjóðarinnar hefur batnað á siðasta ári, að afkoma launþega og kjör eru betri en þau hafa áður verið, að atvinnulif landsmanna er með miklum blóma og framkvæmdaviljinn með þjóðinni mjög mikill, og að vöxtur verðbólgunnar hefur ekki verið meiri en áður nema siður sé, þótt hann sé vissulega of mikill hér sem viða erlendis. Við höfum orðið fyrirverulegumáföllum á þessu ári, en með manndómi og samheldni mun okkur takast að komast út úr þeim vanda, sem við er að etja, — sagði fjármálaráðherra, Halldór E. Sigurðsson, á Alþingi i gær. Fjármálaráöherra flutti ræöu sina viö 3. umræöu I neðri deild um frumvarpiö um lánsheimild til rikisstjórnarinnar vegna framkvæmdaáætlunar fyrir áriö 1973. Ráöherra lagöi áherzlu á þá skoöun sina, að heppilegast væri aö afgreiöa framkvæmdaáætlun- ina meö fjárlögum, en svo heföi ekki verið undanfarin ár. Væri af- greiðsla hennar sizt siðar á ferö- inni nú en áöur. Þannig heföi hún veriö afgreidd 27. april 1966, 18. april 1967, 19. april 1968, 16.mai, 1969, 27. mai 1970, 6. apríl. 1971 og 17. mai i fyrra. Hann minnti á, aö þetta frum- varp hefði veriö lagt fram fyrir jólin, en ekki hlotið afgreiðslu þá. Það, sem einkum hefði dregið máliö, frá þvi þing kom saman eftir áramótin, væru náttúru- hamfarirnar á Heimaey, sem svo mjög hefðu sett svip sinn á afgreiðslu mála i þinginu það sem af væri þessu ári. Fjármunamyndunin 1972 Fjármálaráðherra sagöi, aö fjármunamyndunin á siöasta ári EJ—Reykjavík Rikisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um Iöniánasjóö, og mælti iðnaöarráöherra fyrir því f gær. Felur þaö f sér hækkun iöniána- sjóösgjaldsins úr 0.4% I 0.5%, og hækkun rikisframlags til sjóðs- ins. Felur lagabreytingin samtals i sér um 50 milljón króna aukn- ingu höfuöstóls Iðnlánasjóðs á þessu ári umfram þaö, sem ella heföi oröiö aö óbreyttum lögum. Tekjur af iönlánasjóðsgjaldinu hækka um 14 milljónir i ár og verða því 69 milljónir, en framlag rikissjóðs hækkar um 35 milljónir og verður þvi 50 milljónir. I greinargerð segir m.a. eftir- farandi um lánastarfsemi Iön- lánasjóðs: Vaxandi iðnaður krefst si- aukinna stofnlána og gegnir þvi Iöniánasjóður mikilvægu hlut- verki, en hann lánar einkum til hefði fariö um 390 milljónir fram úr þeirri áætlun, sem gerð var s.l. vor. Landbúnaður hafði farið um 200 milljonir fram úr áætlun, iðnaöur um 80 milljonir, flutn- ingstæki um 220 milljonir, verzlun um 70 millj., vélar og tæki um 20 milljónir, hraðbrautarfram- kvæmdir um 450 milljónir, raf- orkumál um 70 milljónir. Stórir liöi r hefðu hins vegar verið undir áætlun, svo sem álverksmiðjan um 370 milljónir og byggingar á vegum hins opinbera um 240 milljónir. Stórt átak i Þorlákshöfn Ráðherrann sagði siðan, að enn væri óvist um hvort tvö mál yrðu tekin inn i þetta frumvarp, eða af- greidd með sérstökum frum- vörpum. I fyrsta lagi væri nauðsynlegt aö hefja verulegar framkvæmdir i Þorlákshöfn, en ekki var gert ráð fyrir, aö gera þar annað á þessu ári en að undirbúa fram- kvæmdir næsta árs. Vegna jarð- eldanna i Heimaey væri ljóst, að ekki væri hjá þvi komizt, að gera stórt átak. Viöræður stæðu yfir byggingar iðnaðarhúsnæöis til vélvæðingar i iðnaði og hag- ræðingar. Eftirfarandi tölur sýna hve eftirspurn eftir lánum úr sjóönum hefur fariö vaxandi á undanförnum árum: Fjöldi lánsbeiðna.. Upphæð lánsbeiðna .... Afgreidd lán.... 1971 1972 1973 231 mkr. 250 mkr. 290 mkr. 327 mkr 419 mkr. 665 mkr. 127 mkr. 176 mkr. 158 mkr. Af þessum tölum er ljóst, að með ráðstöfunarfé sjóðsins 1973 hefur aðeins tekizt að sinna 23.7% umbeðinnar lánsfjárhæðar. Ef sjóðurinn á að geta sinnt fleiri umsóknum þarf hann að taka að láni stórfé og mun hann að ein- hverju marki gera það á árinu 1973. milli isl. stjórnvalda og fulltrúa Albióðabankans um hugsanlega lánveitingu hans til hafnarfram- kvæmda i Þorlakshöfn. Niður- staða væri ekki enn fengin, en þó ljóst, að verulegt fjármagn myndi alla vega fást til framkvæmda I stórum stil á þessum stað. I öðru lagi væri ljóst, aö hefja þyrfti framkvæmdir á þessu ári vegna þörungavinnslu að Reyk- hólum, en ekki væri enn ákveðið hvernig það mál kæmi fyrir á þinginu. Óhægt að draga úr fram- kvæmdum um landið Ráðherrann benti á, aö það væri sérstakt vandamál, að flestar þær framkvæmdir, sem gripa veröur til vegna náttúru- hamfaranna i Vestmannaeyjum, væru á Suðvesturlandssvæðinu, en flestir virtust nú sammála um að ekki mætti vegna byggðajafn- vægis auka enn á fólksstrauminn til þess svæðis, heldur ætti frekar ao reyna aö draga úr fólks- aukningunni þar með eflingu annnarra svæöa á landinu. Hann taldi, að af þessum sökum væri enn erfiðar en áður að skera niður framkvæmdir út um landið, og eins væri það svo, að erfitt væri að ná samkomulagi um slikt. Það væri auðvelt fyrir menn að leggja til aö skera niður fram- kvæmdir hjá nágranna sinum, en halda öllu óbreyttu hjá sér. Um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar væru, sagði hann að flestir væru þeirrar skoðunar, aö þaö væri frekar of naumt ákveöið en um of veitt. 1910 milljón króna fjár- öflun til Framkvæmda- sjóðs Fjármálaráöherra fjallaði þvi næst um fjármagnsútvegun til fjárfestingasjóöanna, og benti á, að fram kæmu á þinginu sérstök frumvörp um tekjuöflun fyrir Fiskveiöasjóö, Stofnlánadeild landbúnaöarins og Iðnlánasjóö. Þessu til viðbótar væri ákveðið aö afla Framkvæmdasjóði fjár- magns sem næmi alls um 1910 milljónum krónuma. I þessari fjáröflun eru eigin tekjur sjóðsins 130 milljónir, eftirstöðvar af samkomulagi við bankana frá i fyrra 66 milljónir, tekjur vegna áframhaldandi samkomulags við bankana 284 milljónir, tekjur af spariskir- teinalánum 150 milljonir, lán frá Iönþróunarsjóðnum vegna Iðn- lánasjóös um 40 milljónir, og verðtryggt lán frá lifeyrissjóð - unum um 300 milljónir. Þessu til viðbótar er fyrirhugað að taka er- lend lán að upphæð 800 milljónir, og lokslánfrá Seðlabankanum að upphæö um 160 milljónir ef á þarf að halda. Verið að semja við lifeyirssjóðina Ráðherrann sagði, aö sérstök nefnd fulltrúa lifeyrissjóðanna, rikisstjórnarinnar og Seöla- bankans væri aö vinna aö sam- komulagi um framlag úr lifeyris- sjóðunum, sem næmi 300 millj- onum á þessu ári, og yröi þetta framlag verðtryggt. Kvaðst hann vona, að samkomulag tækist, enda væri verulegur áhugi hjá mörgum i lifeyrissjóðunum aö fá hluta af fjármagni sjóðanna verð- tryggt. Skipting fjármagnsins milli fjárfestingasjóða Ráðherrann skýrði siðan stutt- lega með hvaða hætti þetta nýja fjármagn til Framkvæmdasjóðs myndi skiptast milli hinna ýmsu fjárfestingasjóöa. Þannig sagði hann, aö til Stofn- lánadeildar landbúnaðarins færu 300 milljónir, og heföi deildin þá i heild 430-450 milljónir til útlána á þessu ári. Þetta nægði ekki til að fullnægja umsóknum, en hins vegar hefði sú orðið niöurstaðan, að athuguöu máli, að lækka mætti umsóknir frá vinnslustöðvum landbúnaðarins um 70-80 milljonir. Ef þetta fjármagn deildarinnar nægði ekki, yrði að flytja milli ára, og væri svo um fleiri sjóði. Fiskveiðasjóður á að fá 1000 milljónir, og auk þess nýjar aðrar tekjur að upphæð 150 milljónir. Mun sjóöurinn þá hafa um 1500 milljónir til ráðstöfunar, en sjóðs- stjórnin hefur talið sig þurfa um 1730 milljónir á árinu. Eru þetta útgjöld vegna skipakaupa, skipa- smiða og endurbyggingar hrað- frystihúsanna. Aðrir stofnlánasjóöir fá minni hluta af þessu fjármagni, svo sem Byggðasjóður, Lánasjóöur sveitarfélaga og Iönlánasjóður. Afkoman gagnvart útlöndum árið 1972 Fjármálaráöherra vék siöan að afkomu þjóðarbúsins gagnvart útlöndum á siöasta ári. Við- skiptajöfnuðurinn hafi þá verið óhagstæður um 1770 milljónir, Arið áöur, 1971, var hann óhag- Framhald á 17. siðu. Ekki bæði laun og ellilífeyri EJ—Reykjavík Rikisstjórnin lagði i gær fram frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um lif- eyrissjóð starfsmanna rikis- ins, þar sem sett er sú regla, að ,,á meðan starfsmaður gegnir áfram starfi, eftir að hann hefur verið frá þvi leystur, eða hann fær af öðrum ástæðum áfram greidd óskert laun, sem starfinu fyigja, á hann ekki jafnframt rétt til lífeyris”. Launa skattur af tekjum sjó- manna afnuminn EJ—Reykjavik I gær lagði rikisstjórnin fram frumvarp á Alþingi um breytingu á launaskatts- lögunum þess efnis, aö launa- skattur af tekjum sjómanna, lögskráðra á Islenzk fiskiskip, sem aflaö er í tengslum viö úthald skipanna til fiskveiöa, fellur niöur. Er þetta i samræmi við lof- orð, sem rikisstjórnin gaf pegar fiskverö var ákveðið um siðastliöin áramót. Lög um vél- stjóranóm EJ—Reykjavik t gær var frumvarpið um brcytingar á lögum um vél- stjóranám samþykkt sem lög frá Alþingi Hin nýju lög gera ráð fyrir, að námskeiö, sem veiti þá fræðslu, sem þarf til að ljúka 1. stigi velstjóranáms, skuli skólastjóri Vélskólans halda árlega á eftirtöldum stöðum: Reykjavik, Ólafsvik, Isa- firöi, Akureyri, Höfn i Hornafirði og Vestmanna- eyjum Kennslutimi skal vera minnst fimm mánuðir. Tveim tillögum vísað til rík- isstjórnar- innar EJ—Reykjavfk Tveimur þingsályktunartillögum var i gær visaö til rlkisstjórnar- innar. t fyrsta lagivar það tillaga frá Ragnari Arnalds (AB) um að skora á rikisstjórnina að láta undirbúa frumvarp til laga um leigu og sölu ibúðarhúsnæðis, þar sem m.a. væri kveðið á um há- mark húsaleigu og skipulag fast- eignasölu. Var tillögunni visað til rikisstjórnarinnar með 29 atkvæðum gegn 15, en minni- hlutinn vildi láta samþykkja til- löguna. t öðru lagi tillaga frá Stefáni Gunnlaugssyni (A) og fleiri um lánsfé til hitaveituframkvæmda. Var henni visað til rikisstjórnar- innar með 35 atkvæðum gegn 2. FÆR DALVIKUR- HREPPUR KAUP- STAÐARÉTTINDI? EJ— Reykjavik Stefán Valgeirsson (F) og þrir aðrir þingmenn Noröur- landskjördæmis eystra hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um kaupstaöarréttindi til handa Dalvikurkauptúni. Er þar gert ráö fyrir, aö kaupstaðaréttindi þessi taki gildi frá 1. janúar næst- komandi. Frumvarp þetta er flutt að beiðni hreppsnefndar Dal- vikurhrepps, en það eru einkum þrjár ástæður fyrir þvi, að hreppsnefnd vill að Dalvik fái kaupstaöarrétt- indi: að fá inn i kauptúnið, ibúum þess til hægðarauka, alla þá þjónustu, sem bæjar- fógetar veita, að skapa Dal- vikurhreppi þá réttarstöðu, sem kaupstaðir hafa, og að losa Dalvikurhrepp úr tengslum við Eyjarfjarðar- sýslu, þar sem áhrif hreppsins á stjórn málefna sýslunnar miðastviðeinn fulltrúa af tólf, en hluti hreppsins af gjöldum til sýslunnar nam 28.1% árið 1972. Stjórnarfrumvarp: Fastar tekjur Iðn- lónasjóðs auknar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.