Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 13

Tíminn - 07.04.1973, Qupperneq 13
Laugardagur 7. april 1973. TÍMINN 13 v Útgcfandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Hclgason, Tómas Karlsson, Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Timans). Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Kdduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur í Rankastræti 7 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsinga- simi 19523. Aðrar skrifstofur: simi 18300. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands, i iausasölu 18 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. ________________________ Fjölbrautaskólar Alþingi hefur nú afgreitt sem lög frumvarp frá menntamálaráðherra, sem heimilar menntamálaráðuneytinu og Reykjavikurborg að stofna til tilraunaskóla, er nefnist fjöl- brautaskóli. Einnig er ráðuneytinu heimilað að stofna til fjölbreytaskóla i samvinnu við önnur sveitarfélög. Skólinn skal vera fyrir nemendur, er lokið hafa skyldunámi, og veita þeim tiltekin réttindi til sérnáms i framhaldsskólum eða há- skóla; svo og menntunar og þjálfunar i ýmsum starfsgreinum. Samkvæmt þessum nýju lögum er stofnað til nýs skóla, sem ætlað er að annast menntun allra nemenda ákveðins skólahverfis á tilteknu aldursstigi, án tillits til fyrirhugaðrar náms- brautar hvers og eins, og sameinar skólinn þannig i eina heild hinar ýmsu tegundir skóla á framhaldsstigi. í greinargerðinni fyrir frumvarpi mennta- mlaráðherra sagði m.a. á þessa leið: ,,Markmið þeirrar tilraunar, sem felst i stofnun sliks skóla, er sumpart hagkvæmara ytra skipulag, en þó umfram allt breytingar á hinu innra skólastarfi, er miða að þvi að auka jafnrétti nemenda með ólika hæfileika og ólik áhugaefni og að draga úr þvi vanmati og van- rækslu á tilteknum námsbrautum, sem skipt- ingu námsbrauta á aðskildar og ólikar skóla- gerðir hættir til að hafa i för með sér. Jafnframt stefnir tilraunin að þvi að gefa nemendum tækifæri til að velja sér námsbraut i sem fyllstu samræmi við þann áhuga og getu, sem vaxandi þroski þeirra á framhaldsskóla- aldrinum kann að leiða i ljós, og að hverfa frá þeirri hefð, að nemendum sé við ákveðinn ald- ur skipað i skóla, þar sem þeir eru i eitt skipti fyrir öll útilokaðir frá tilteknum námsbraut- um. Sameining sem flestra námsbrauta i einni skólastofnun auðveldar mjög flutning milli námsbrauta og eykur þannig tækifæri nem- enda til að velja sér endanlegan námsferil og starfsferil við sitt hæfi. Megineinkenni fjölbrautaskóla er þvi, að nemendur hans geta valið um fjölbreytt nám og mismunandi námsbrautir, hvort heldur er til undirbúnings undir störf i hinum ýmsu greinum atvinnulifsins eða undir áframhald- andi nám i sérskólum og háskóla eða öðrum menntastofnunum á háskólastigi. Sem dæmi um námsbrautir má nefna menntaskólanám, verzlunarnám, hússtjórnarnám og iðniðju- og tækninám. Þótt svo sé til ætlazt, að skólinn bjóði kennslu allt að stúdentsprófi, er jafn- framt gert ráð fyrir skemmri námsferli, allt eftir eðli þess náms, er nemendur stunda og kröfum þeirra starfa eða sérnáms, sem þeir stefna að”. Að öllum likindum er hér verið að gera til- raun, sem getur átt eftir að setja meginsvip á framhaldsskólakerfið i framtiðinni. Mennta- málaráðherra hefur þvi haft hér frumkvæði um lagasetningu, sem getur átt eftir að teljast hin merkasta. Flestum kemur saman um að framhaldsskólanámið sé einn veikasti hlekkurinn i skólakerfinu og þarfnist mest endurskoðunar og endurbóta. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Baude telur Palme höfuðandstæðinginn AAálaferlin í Gautaborg geta orðið örlagarík 1 GAUTABORG fara nú fram réttarhöld, sem hafa vakiö mikla athygli i Sviþjóö og einnig i Noregi og Dan- mörku. Astæðanerm.a. sú, aö þau kunna aö geta haft sögu- leg áhrif á úrslit þingkosning- anna er fara fram i Sviþjóð i septembermánuði næstkom- andi. Niðurstaða þeirra getur vel ráðið úrslitum um það, hvort flokkur marzista-lenin- ista takist að ná svo miklu at- kvæðamagni frá kommúnista- flokknum, að hann nái ekki hinu tilskilda 4% marki og missi þvi alla þingmenn sipa. Af þvi myndi aftur hljótast, að borgaralegu flokkarnir fengu meirihluta á þingi og rifys- stjórn sósialdemókrata væri úr sögunni að sinni. I stuttu máli eru tildrög umræddra málaferla i Gauta- borg þessi: t mai 1971 var haldin ráðstefna i Gautaborg um alþjóðlega verzlun og við- skipti. Ráðstefnuna sóttu margir þekktir fjármálamenn og kaupsýslumenn viöa að. Pólitisku æskulýðssamtökin litu á þessa ráðstefnu sem „kapitaliska sýningu” og efndu þvi til mótmælaað- gerða. M.a. efndu samtök ungra sósialdemókrata til slikra mótmælaaðgerða. Mót- mælaaðgerðir marxista-lenin- ista urðu miklu sögulegri. beir létu sér ekki nægja dreifiblöö og mótmælaspjöld, heldur beittu steinum, reyksprengj- um og fljótandi litum, sem var varpað að ráðstefnugestum. Fjölmennt lögreglulið skarst I leikinn og kom vil átaka, sem stóðu i marga klukkutima. Eftir átökin voru tveir marxistar-leninistar ákærðir fyrir að haf a misþyrmt einum lögregluþjóninum, m.a. sparkað i andlit hans mörgum sinnum. Hinir ákæröu svöruðu með þvi að ákæra umræddan lögregluþjón fyrir að hafa misþyrmt konu i átökunum og hafi það leitt til þess, að ráðizt var sérstaklega gegn honum. Mörg vitni hafa vottað það með eiði, eða þau hafi séð lög- regluþjóninn misþyrma kon- unni. Læknir hefur einnig gef- ið vottorð um, að hann hafi gert að sárum konunnar. Hinn opinberi ákærandi hefur svar- að þessu með þvi að ákæra vitnin fyrir að hafa svarið rangað eið og lækninn fyrir að hafa gefið ranga skýrslu. Akærandinn telur, að ekkert hafi sézt á konunni eftir óeirð- irnar. Alls eru nú fimm manns i varðhaldi vegna þessara málaferla og 13 hafa verið ákærðir fyrir að sverja rangan eið. Stjórnmál hafa mjög dregizt inn i málaferlin, þvi að marxistar-leninistarnir telja, að hér sé um að ræða pólitisk málaferli gegn þeim, en and- stæðingar þeirra telja, að þeir hafi sett ákæruna á lögreglu- þjóninn á svið i pólitiskum til- gangi. Vist er það, að þeir njóta samúðar ýmissa, sem er heldur kalt til lögregl- unnar. ÞAÐ ÞYKIR nú liklegt, aö rikisstjórn sósialdemókrata haldi þvi aðeins velli i ksoningunum, að Kommú- nistaflokkurinn haldi svipaðri þingsetutölu og nú. Sósial- demókratarnir muni vart gera betur en að halda svipuðu fylgi og i siðustu kosningum. Þá fengu þeir 163 þingsæti, en kommúnistar 17. Samtals fengu þessir flokkar þvi 180 þingsæti af 350 alls. Til þess að Frank Baude, leiötogi flokks marxista-leninista i Svlþjóö. halda þingsætum sinum, þarf Kommúnistaflokkurinn að fá minnst 4% greiddra atkvæða. Hann fékk 4,8% i kosningun- um 1970. 1 skoðanakönnunum að undanförnu hefur hann oft ekki fengið nema um rúml. 4% og tæplega það. Flokkur marxista-leninista hefur hins vegar fengið frá 0,5-0,8% siðan hann kom til sögu. Það er þvi engan veginn útilokað, að hon- um takist að ná svo miklu frá Kommúnistaflokknum, að hann nái ekki 4% markinu. Stundum er þvi sagt i gamni og alvöru, að raunverulega sé kosningabaráttan i Sviþjóð einkum milli þessara tveggja flokka. AF HALFU leiðtoga flokks marxista-leninista yröi grátið þurrum tárum, ef sigur þeirra i kosningunum yrði til þess að fella stjórn sósialdemókrata. Þeir gera sér enga von um að fá þingmenn kjörna, en telja sig hins vegar geta haft veru- leg áhrif á úrslitin, ef þeim tekst að ná þvi marki, að Kommúnistaflokkurinn missi þingmenn sina. Frá sjónarhóli þeirra eru sósialdemókratar höfuðandstæðingarnir, þvi að stefna þeirra beinist raun- verulega að þvi að sætta menn við hið kapitaliska kerfi. Und- ir stjórn þeirra stefni Sviþjóö lika óðfluga i þá átt að verða lögregluriki, eins og málferlin i Gautaborg sýni bezt. Göteborgs-Posten birti nýlega viðtal við formann flokksins, Frank Baude. Hann fór ekki dult með, að flokkur hans væri hreinn byltingar- flokkur, sem stefndi að sósialisku þjóðfélagi. Hann telur útilokaö, að hægt sé að koma sósialisma á eftir lýð ræðislegum og þingræðisleg- um leiðum og allt skraf um að endurbæta núverandi þjóð- félag sé háskasamleg blekk- ing. Núverandi þjóðfélagi verði alveg að kollvarpa og það verði aðeins gert með byltingu neöan frá, en ekki með endurbótum ofan frá, þar sem aöeins sé verið að setja bætur á úrelta og ónothæfa flik. Lýðræðið i Sviþjóö sé ekki nema sýndarmennska, þvi að i raun réttri sé það ekki nema tiltölulega fámennur hópur manna, sem ráði öllu, og i samræmi við það sé þjóðar- auðnum skipt. Marxistar- leninistar stefni að þvi að útrýma þessu kerfi og það verði ekki gert nema með vopnaöri byltingu. Fyrsta skrefið i þá átt sé að ala upp byltingaranda meðal verka- manna og efna til sem flestra ólöglegra verkfalla. Þess vegna beinist starf flokksins mjög að fjölmennustu vinnu- stöðunum og gegn forustu verkalýðssamtakanna. Viður- kenna beri að þetta starf flokksins hafi enn ekki borið mikinn árangur. Þátttöku sina i kosningunum nú noti flokkurinn til að kynna byltingarstefnu sina, en hins vegar hampi hann ekki nein- um serstökum kosningalof- orðum eins og hinir flokkarn- ir. Kjörorð hans verði Stétt gegn stétt. Aukum skæruverk- föllin, Stefnan er sósialiskt verkamannariki, o.s.frv. Fyr- ir flokkinn skipti engu aðal- máli, hvort hann fær þing menn kjörna, eða ekki, heldur notar hann kosningabaráttuna sem liöskönnun og liðsöflun til að undirbúa byltinguna og framtiöarrikið. Þótt ekki sé talið liklegt, að flokkurinn fái verulegt fylgi, stendur þó bæði kommú- nistum og sósialdemókrötum nokkur ótti af honum, en huggun þeirra er sú að þessu sinni, að flokkurinn á aðallega fylgi að fagna hjá ungu fólki sem ekki hefur náö kosninga-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.