Tíminn - 31.07.1973, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 31. júli 1973.
TÍMINN
5
Sjónvarpið byrjar aftur
Miðvikudagur
1. ágúst 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Þotufóikið. Stjáni gerist
glæpon. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Nýjasta tækni og visindi.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.25 Mar.na veiðar, Nýr
brezkur framhaldsmynda-
flokkur um andspyrnu-
hreyfinguna gegn Þjóðverj-
um i heimsstyrjöldinni sið-
ari. Myndirnar gerast að
miklu leyti i Frakklandi og
persónurnar eru bæði
Frakkar og Englendingar.
1. þáttur. Ekki spurt að
leiksiokum. Þýðandi Krist-
mann Eiösson.
22.15 Form og tóm. Annar
þáttur hollenzks mynda-
flokks um nútimalist. Hér er
fjallað um byggingarlist nú-
timans og áhrif mismun-
andi forma og stiltegunda.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
22.30 Dagskrárlok.
Mannaveiðar
Föstudagur
3. ágúst 1973
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Karlar i krapinu. Fyrir-
sát. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.25 Að utan. Umræðuþáttur
um erlend málefni. Umræð-
um stýrir Jón Hákon
Magnússon.
22.05 „Fjögra laufa smárinn”.
Trompetleikarinn Clark
Terry leikur ásamt sin-
fóniuhljómsveit sænska út-
varpsins og tveimur popp-
hljómsveitum. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið)
22.45 Dagskrárlok
Laugardagur
4. ágúst 1973
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Brellin blaðakona.
Brezkur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.50 Hér er gott að una.Þriðji
og siðasti þáttur mynda-
flokksins um borgir og bæi i
Evrópu og kosti þá og galla,
sem borgarlifinu fylgja.
Þýðandi Þórhallur Gutt-
ormsson. Þulur Silja Aðal-
steinsdóttir (Nordvision —
Danska sjónvarpið)
21.20 Lifsins beiskjubikar.
(Les Mauvais coups).
Frönsk biómynd frá árinu
1960, byggð á sögu eftir
Roger Vailland. Leikstjóri
Francois Leterrier. Aðal-
hlutverk Simone Signoret,
Reginald D. Kernan og
Alexandra Stewart. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
Aðalpersóna myndarinnar
er miðaldra kappaksturs-
maður, sem dregið hefur sig
i hlé og býr með konu sinni
úti i sveit. Þau umgangast
fáa, og konan hneigist mjög
til drykkjuskapar. 1 sveit-
inni kynnast þau ungri
kennslukonu, sem hefur
mikil áhrif á lif þeirra.
23.05 Dagskrárlok
Ileilbrigðis- og
tryggingamálaráöuneytið,
30. júli 1973.
LAUST EMBÆTTI
er forseti íslands veitir
Iléraðslæknisembættið i Hofsóshéraði
er laust til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 1973.
Embættið veitist frá 15. september 1973.
Frá Verzlunarskóla
íslands
Vegna húsnæðisskorts verður að fella nið-
ur námskeið i hagnýtum verzlunar- og
skrifstofugreinum fyrir gagnfræðinga,
sem Verzlunarskóli Islands hefur starf-
rækt undanfarin ár. Þetta er hér með til-
kynnt öllum, sem hug höfðu á þátttöku.
Skólastjóri.
AUGLÝSING
um kjörskrá til
kosningar í safnráð
Listasafns íslands
Samkvæmt lögum nr. 15/1969, um Lista-
safn íslands, skulu islenzkir myndlistar-
menn ,,kjósa úr sinum hópi þrjá menn i
safnráð til fjögurra ára i senn, tvo listmál-
ara og einn myndhöggvara. Varamenn
skulu þeir vera, sem flest hljóta atkvæði
næst hinum kjörnu safnráðsmönnum,
tveir listmálarar og einn myndhöggvari.”
Á kjörskrá ,,skulu vera þeir myndlistar-
menn, sem voru á kjörskrá við kosningu i
Félagi islenzkra myndlistarmanna og
Myndlistarfélaginu 1. janúar 1965, en eigi
voru á kjörskrá 1961. Enn fremur skal
jafnan bæta á kjörskrána þeim islenzkum
myndlistarmönnum, sem tvö af eftir-
töldum atriðum eiga við um:
1. að hafa átt verk á opinberri listsýningu,
innanlands eða utan, sem islenzka rikið
beitir sér fyrir eða styður,
2. að hafa a.m.k. einu sinni hlotið lista-
mannalaun af fé þvi, sem Alþingi veitir
árlega til listamanna og úthlutað er af sér-
stakri nefnd, er Alþingi kýs, og
3. að verk hafi verið keypt eftir hann til
Listasafns islands, eftir að lög nr. 53/1961
um Listasafnið tóku gildi.”
Skrá um það, er kjörgengi og kosningarétt
hafa til safnráðs, liggur frami i Listasafni
íslands, við Suðurgötu, dagl. kl. 13.30-16, 1.
ágúst til 31. ágúst 1973.
Kærur út af kjörskránni skulu komnar til
forstöðumanns Listasafns islands fyrir
ágústlok 1973.
Kjörstjórn.
Hagstæd bókakaup
A undanförnum árum hefur Sögusafn Heimilanna gefið út gamlar
skemmtisögur, sem notið hafa mikilla vinsælda hjá almenningi.
Bókum þessum hefur verið mjög vel tekið og eru margar þeirra að
verða uppseldar. Nú hefur útgáfan ákveðið að gera þeim tilboð, sem
vildu eignast allar bækurnar ellefu að tölu. Tilboðið hljóðar upp á
i kr. 5.000.00 og eru þeir, sem vildu sinna þessu beðnir að senda nafn
og heimilisfang ásamt kr. 5.000.00 til Söfusafns Heimilanna, Póst-
hólf 1214, Reykjavik, og fá þeir þá sendar bækurnar um hæl. 1 kaup-
bæti fá þeir að velja sér aðra þeirra tveggja bóka, sem koma út i
bókaflokknum i haust.
Eftirtaldar bækur eru komnar út i bókaflokknum
Sigildar skemmtisögur:
1. Kapitóla eftir E.D.E.N. Southworth.
2. Systir Angela eftir Georgie Sheldon.
3. Astin sigrar eftir Marie Sophie Schwartz.
4. Heiðarprinsessan cftir E. Marlitt.
5. Aðalheiður eftir C. Davies.
6. Vinnan göfgar manninn eftir Marie Sophie Schwartz.
7. Af öllu hjarta eftir Charles Garvice.
8. Gull-Elsa eftir E. Marlitt.
9. Golde Fells leyndarmáliö eftir Charlotte M. Braeme.
10. öriög ráða eftir II. St. J. Cooper.
11. Kroppinbakur eftir Paul Féval.
Og væntanlegar eru á þessu ári:
12. Kynleg gifting eftir Agnes M. Fleming.
13. Arabahöfðinginn eftir E.M Hull.
Bækurnar eru allar innbundnar I vandað band
Þetta hagstæða tilboð stendur aðeins skamman tima, þviaö margar
af bókunum eru senn á þrotum. Útfyllið eftirfarandi pöntúnarseðil
og sendið útgáfunni:
Nafn___________________________________________
Heimilisfang___________________________________
óskar eftir að fá sendan bókaflokkinn Sigildar skemmtisögur, ellefu
bækur frá Sögusafni Heimilanna og fylgir hér með kr. 5.000.00 i
ábyrgðarbréfi. 1 kaupbæti óska ég eftir að mér verði send strax og
útkemurDKynleg giftingD Arabahöfðinginn. (SetjiðXireitinn fyrir
framan þá bók, sem þér óskið eftir).
Sögusafn heimilanna
Pósthólf 1214 — Reykjavik