Tíminn - 31.07.1973, Side 6
6
TÍMINN
Þriöjudagur 31. júll 1973.
UR
! URvali
Formót og umdæmis
þing Rótaryklúbba
Ufl OG SKARTGRIPIR
KORNELlUS
JONSSON
SKÖLAV0RÐUSTIG8
BANKASTRÆTI6
18588-18600
A myndinni eru, taliö frá vinstri: Ólafur Guömundsson umdæmisstjóri, Ove Arkil, fulltrúi forseta
Itotary International, Ilelge Sem-Jacobsen, fulltrúi norrænu umdæmanna, Hjörtur Eiríksson, verðandi
umdæmisstjóri og Valgarö Thoroddsen, umdæmisstjóraefni 1974-1975.
Framkomu
ÍSÍ í
vínsölu-
mólum
mótmælt
Mælt með
FORMÓT og 26. umdæmisþing
islenzku Rótarýklúbbanna, var
haldiö að Laugarvatni dagana 22.
og 23. júni s.l. undir stjórn um-
dæmisstjóra, Ólafs Guömunds-
sonar, bankaútibústjóra i
Stykkishólmi.
Rótarýklúbbarnir i Ólafsvik og
Stykkishólmi sáu um allan undir-
búning þingsins, en formaður
undirbúningsnefndar var séra
Hjalti Guðmundsson, sóknar-
prestur i Stykkishólmi.
Þingið var fjölsótt og voru þátt-
takendur alls um 170, að með-
töldum gestum. Sérstakur fulltrúi
Rotary International, Ove Arkil
frá Haderslev i Danmörku sat
þingið ásamt konu sinni. Ellen.
Þá var og mættur fulltrúi frá nor-
rænu umdæmunum, Helge Sem-
Jacobsen frá Osló og kona hans,
Helene. Fluttu þeir báðir ávörp
o g kveðjur.
Fyrri daginn fór formótið fram,
en það er haldið til þess að kynna
viðtakandi forsetum og riturum
starfið. Umræðustjórar voru
séra Hjalti Guðmundsson og
Alexander Stefánsson, oddviti i
Ólafsvik.
Umdæmisþingið fór fram
seinni daginn. Það hófst með
ávörpum og kveðjum, ársskýrslu
umdæmisstjóra og reikningum
s.l. Rótaryárs. Síðan var sérstak-
ur þáttur á dagskrá, sem helgað-
ur var Vestmannaeyjum: Har-
aldur Guðnason, fyrrverandi um-
dæmisstjóri bókavörður i Vest-
mannaeyjum, flutti ræðu og sýnd
var ný kvikmynd af eldsumbort-
unum i Vestmannaeyjum, sem
gerð var af Ernst Kettler o.fl.
Ætlunin er, siðar meir, að senda
eintök af þessari kvikmynd til
sýningar i Rótarýklúbbum á
Norðurlöndum, en þeir hafa safn-
að allverulegri upphæð til upp-
byggingar i Vestmannaeyjum.
Valgarð Thoroddsen var
kjörinn umdæmisstjóri fyrir
Rótarý árið 1974-1975.
Þingið samþykkti að senda
kveðjur til nýstofnaðs Innrahjóls-
klúbbs i Reykjavik, sem er
klúbbur eiginkvenna Rótarý-
félaga á Reykjavikursvæðinu.
Þinginu lauk með kvöldfagnaði,
sem Alexander Stefánsson
oddviti i Ólafsvik, stjórnaði. Vil-
hjálmur Þ. Gislason hélt aðal-
ræðu kvöldsins og Ólafur Guð-
mundsson setti viðtakandi um-
dæmisstjóra Hjört Eiriksson
frkvstj. á Akureyri inn i embætti.
Hjörtur er ásamt konu sinni, Þor-
gerði Arnadóttur, nýkominn frá
fræðslumóti i Lake Placid i
Bandarikjunum og allsherjaþingi
Rótarýfélaga i Lausanne i Sviss.
Sunnudaginn 24. júni óku móts-
gestir til Skálholts og hlýddu
messu hjá séra Hjalta Guð-
mundssyni, en að henni lokinni
hélt hver til sins heima.
Húsnæðismiðlun
forgangsrétti
strætisvagna
framhaldsskólanema
BINDINDISFÉLAG ökumanna
liefur sent blaöinu svolátandi
samþykktir, er það hefur gert:
„Stjórn BFÖ telur, að með þvi
að heimila vinveitingar á þeim
eina degi vikunnar, miðvikudegi,
sem vera átti „þurr dagur”, sé
enn eitt óheillaspor stigið i undan-
látssemi við áfengisneytendur,
sem allsstaðar vilja óhindraða
áfengissölu meö öllum hörmung-
um, sem henni eru samfara.
Það verður að teljast stór-
furðulegt, að l.S.l., sem
ætla mætti aö hafa ætti aö
kjörorði: „heilbrigð sál i hraust-
um likama”, skuli með þessi vera
beinn eða óbeinn aðili að aukinni
áfengisneyzlu.”
„Stjórn Bindindisfélags
ökumanna lýsir stuðningi sínum
við framkomna beiðni frá
Strætisvögnum Reykjavikur, um
að vagnarnir hafi forgangsrétt i
umferðinni, er þeir aka frá bið-
stöðvunum, enda verði forgangur
þessi greinilega gefinn til kynna
með stefnumerkjum og vel
auglýstur aftan á vögnunum.
Stjórn BFÖ telur að ákveönar
reglur umþennan forgang vagn-
anna dragi úr slysahættu i um-
ferðinni, vegna þess að nú þegar
veita sumir ökumenn vögnunum
þennan forgang, en aðrir ekki.
Stjórn BFÖ telur mikilvægt að
Strætisvögnunum verði gert
auðvelt að komast leiðar sinnar,
þar sem þeir veita þorra
almennings mikilvæga þjón-
ustu.”
A HVERJU hausti fiykkist stór
hópur námsmanna utan af lands-
byggðinni til Reykjavikur, til
þess aö leggja stund á nám viö
einhverja menntastofnunina I
borginni. Flestir þessir nemendur
sækja til höfuðborgarinnar vegna
þess aö þeir eiga ekki annars
kost, þær menntastofnanir sem
þeir vilja sækja fyrirfinnast ekki I
heimabyggöinni. t Reykjavik eru
margir sérskólar, sem ekki eru
starfræktir annars staðar á
landinu og má i þvi sambandi
minna á Verzlunarskólann,
Kennaraskólannt Tækniskólann,
Hjúkrunarskólann og svo
auövitaö Háskólann. Dreifbýlis-
menn, sem vilja njóta menntunar
i einhverjum þessara skóla, eiga
ekki annars kost, en aöfiytja til
Reykjavikur á meöan á náminu
stendur.
Undanfarin ár hefur borið mjög
á þeim vanda aö dreifbýlis
nemendurnir hafa átt erfitt með
að afla sér hentugs húsnæðis á
meöan á námstímanum stendur.
Stafar þessi vandi bæði af þvi, aö
leigumarkaðurinn i Reykjavik, er
þegar yfirfullur og svo hinu að
nemendum utan af landi, sem til
Reykjavikur sækja hefur fjölgað
að mun. Ætla má að á þessu
hausti verði þessi vandi sérlega
mikill, þar eð þrengst hefur veru-
lega á húsnæðismarkaðinum i
Reykjavik i vetur, vegna
jarðeldanna i Vestmannaeyjum.
Segja má, að allt ibúðarhæft
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu sé
fullnýtt.
Vegna þessa fyrirsjáanlega
vanda hafa fjölmennustu náms-
mannasamtökin ákveðið að koma
á fót Húsnæðismiðlun framhalds-
skólanema. Námsmannasamtök-
in, sem að Húsnæðismiðluninni
standa eru, Iönnemasambands
Islands, Landssamband islenzkra
menntaskólanema, Stúdentaráð
Háskólans, Samtök Kennara-
nema og Nemendafélag
Verzlunarskólans. Verður megin-
verkefni Húsnæðismiðlunarinnar
aö kanna þörf nemenda fram-
haldsskólanna á Reykjavikur-
svæðinu á húsnæöi og vinna siðan
að lausn á vandanum.
Fulltrúar Húsnæðismiðlunar-
innar hafa átt viðræður við
Magnús Torfa ólafsson mennta-
málaráðherra um málið, og verð-
ur leitazt við að vinna að fram-
gangi málsins I samvinnu við
hann.
Húsnæðismiðlunin opnaði skrif-
stofu á mánudag i Stúdentaheim-
ilinu við Hringbraut og verður
hún opin frá klukkan 17 til 20 fyrst
um sinn, frá mánudegi til föstu-
dags. Simi miðlunarinnar er
26563. Það eru tilmæli forráða-
manna Húsnæðismiðlunarinnar,
að það fólk utan af landi, er hygg-
ur á nám i Reykjavik i vetur og
hefur ekki getað aflað sér hús-
næðis, hafi samband við skrifstof-
una og láti skrá sig sem allra
fyrst. —gj-
Forráðamenn Húsnæöismiölunarinnar á fundi meö fréttamönnum. Frá vinstri Erling ólafsson (SHI),
Kristinn Sigurjónsson (LÍM) Sigtryggur Jónsson (VI), Tryggvi Gunnarsson (SÍKN), Kjartan Gunnars-
son (LIM) og Þorbjörn Guömundsson (INSÍ). Tímamynd Gunnar.
Námskeið fyrir stjórn.
endur þungavinnuvéla
Mánudaginn 10. september næstkomandi
hefst
í KEFLAVÍK
námskeið fyrir stjórnendur þungavinnu-
véla, samanber aðalsamning verka-
mannafélaganna og vinnuveitenda frá 8.
april 1972.
Skráning þátttakenda fer fram á skrif-
stofu Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur, Faxabraut 2, simi 2085, og
skrifstofu Vinnuveitendafélags
Keflavikur, Oliusamlagshúsinu við Vikur-
braut, simi 2121.
Þátttökuskilyrði eru, að hlutaðeigandi
hafi unnið á tæki — jarðýtu, gröfu eða
krana — i a.m.k. 18 mánuði, og hafi
skirteini öryggiseftirlits rikisins um
vinnu á slikum vélum.
Námskeiðið stendur i 2 vikur (a.m.k. 80
klst.) alla virka daga.
Þáttökugjald er kr. 3000.00.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofum ofangreindra samtaka og i
iðnaðarráðuney tinu.
Stjórn námskciðanna.
Sætaáklæði
Höfum fyrirliggjandi
áklæði á allar
tegundir Volkswagen,
Moskowich og Ford
Cortina.
Afgreiðum einnig með stuttum
fyrirvara allar tegundir bifreiða.
Póstsendum um land allt.
CANDELLA H.F.
Ilöfðatúni 4 — Reykjavik — Simar 1-24-65
og 10-4-70
i