Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 38
22 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR Á FLUGI Þórey Edda komst í úrslit með stökki upp á 4,40. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR Þórey Edda á góða möguleika í stangarstökkskeppninni í dag. Níu af efstu stangarstökkskonum heims eru úr leik. ÓLYMPÍULEIKAR Þórey Edda El- ísdóttir hefur keppni í úrslit- um í stangarstökki kvenna á Ólympíuleikunum í Aþenu í dag. Þórey Edda á ágæta möguleika í úrslitakeppn- inni en aðeins sex stang- arstökkskonur af fimmt- án sem skipa efstu sæt- in á heimslistanum komust í úrslitakeppn- ina. Níu af bestu stangarstökkskon- um heims gerðu ógilt eða felldu lágmarkshæð og komust e k k i áfram. Þórey Edda stökk 4,40 metra í undanrásunum sem verður að teljast viðunandi ár- angur. Hún átti erfitt upp- dráttar til að byrja með og felldi meðal annars byrjunar- hæðina, 4,15 metra, einu sinni og 4,30 metra í tvígang. Hún flaug þó yfir 4,40 metra í fyrstu tilraun. Þórey Edda kenndi um hraðri braut og dýpri stokki en venjan er og er það líkleg ástæða þess að svo margar færar stangar- stökkskonur féllu úr leik. Meðal þeirra sem féllu úr leik er bandaríska stangarstökks- konan Stacy Dragila en besta stökk hennar á árinu er 4,83 metrar. Heimsmethafinn Yelena Is- inbayeva og Svetlana Feofanova, báðar frá Rúss- landi, eru taldar vera í sér- flokki þegar í úrslitin er kom- ið og líklegt að þær muni skipa sér í efstu sætin. Isin- bayeva á besta stökk ársins og núverandi heimsmet, 4,90 metra, og Feofanova á best 4,88. Þórey Edda sagði eftir und- anrásirnar að mikil barátta yrði um þriðja sætið ekki síst í ljósi þess að Stacy Dragila væri dottin úr keppni. „Ég yrði mjög ánægð að stökkva 4,50 metra og held að það myndi duga mér í topp átta. Allt ofan á það yrði bónus,“ sagði Þórey Edda en Íslands- og Norðurlandamet hennar er 4,60 metrar sem hún setti fyrr á árinu og er það fimmta besta stökk ársins af þeim sem eru í úrslitum. Stangars tökkskeppnin hefst klukkan 17.55 í dag og verður í beinni útsendingu á RÚV. Þórey Edda á möguleika STAÐAN Á HEIMSLISTANUM ÓLYMPÍULEIKAR Íslenska karlalands- liðið í handbolta mætir því brasil- íska í dag í leik um níunda sætið á Ólympíuleikunum í Aþenu. Brasilíumenn voru taldir með slakasta liðið í B-riðli en komu öllum á óvart þegar þeir lögðu Egypta að velli 26-22 og tryggðu sér þar með rétt til að leika um níunda sætið. Stefán Arnaldsson, handknatt- leiksdómari, dæmdi tvo leiki hjá Brasilíumönnum í riðlakeppninni – gegn Frökkum og Grikkjum. Stefán segir Brasilíumenn vera með skemmtilegt lið. „Þetta er eina liðið sem mér finnst hafa tekið framförum meðan á keppni hefur staðið. Þetta er lið sem gefst ekki upp og spilar allt til enda,“ segir Stefán. Hættulegustu leikmenn Bras- ilíu eru Adalberto Silva, sem hef- ur skorað nítján mörk á Ólympíu- leikunum og Bruno Souza, sem er markahæstur Brasilíumanna með 22 mörk. Souza hefur leikið með Göppingen í Þýskalandi en íslenski landsliðsmaðurinn Rúnar Sigtryggsson lék þar einnig um tíma. „Þetta er ungt og skemmtilegt lið sem spilar hraðan bolta. Það spilar oftast 5-1 vörn eða fram- liggjandi 6-0 vörn og bindur sig ekki mjög fast við ákveðnar stöður,“ segir Stefán og er ekki frá því að Brasilía geti veitt Íslendingum harða keppni. „Þeir geta orðið okkur skeinu- hættir ef við förum ekki að öllu með gát. Íslenska liðið er að svekkja sig á árangrinum á með- an Brassarnir eru ánægðir með árangurinn hjá sér. Á venjuleg- um degi ættum við að vinna þá en það getur allt gerst. Strákarnir okkar verða að rífa sig upp og klára þetta mót. Við erum með betri menn í öllum stöðum,“ segir Stefán. Stefán hefur aðeins fylgst með öðrum liðum á Ólympíuleikunum en segir erfitt að spá fyrir um hvaða lið á eftir að fara alla leið. „Ég sá báða tapleikina hjá Þjóð- verjum og þeir virka ekki eins sterkir og áður. Króatarnir eru mjög seigir enda ríkjandi heims- meistarar. Annars tel ég að þessi tvö lið ásamt Frökkum og jafnvel Spánverjum eigi eftir að leika til úrslita. Þetta eru jöfn lið og það er alltaf spurning um dagsform- ið,“ segir Stefán Arnaldsson. ■ ÓLAFUR STEFÁNSSON Það mun mikið mæða á Ólafi Stefánssyni í dag eins og síðustu daga. Hann hefur lýst því yfir að þetta kunni að vera síðasta stór- mótið hans með íslenska landsliðinu. ÞÆR SEM KOMUST Í ÚRSLIT: Yelena Isibayeva, Rússlandi 4,90 Svetlana Feofanova, Rússlandi 4,88 Anna Rogowska, Póllandi 4,71 Monika Pyrek, Póllandi 4,67 Þórey Edda Elísdóttir, Íslandi 4,60 Anzhela Balakhonova, Úkraínu 4,57 ÞÆR SEM ERU ÚR LEIK: Stacy Dragila, Bandaríkjunum 4,83 Kellie Suttle, Bandaríkjunum 4,67 Caroline Hingst, Þýskalandi 4,66 Tatyana Polnova, Rússlandi 4,62 Andrea Dutoit, Bandaríkjunum 4,60 Tracy O’Hara, Bandaríkjunum 4,58 Chelsea Johnson, Bandaríkjunum 4,57 Mary Sauer, Bandaríkjunum 4,57 Írakar hvergi bangnir Íraska landsliðið í knattspyrnu lætur stríðsástandið í landi sínu ekkert á sig fá og stefnir ótrautt á verðlaunapall á Ólympíuleikunum. Írakar áttu bronshafa í kraftlyftingum á Ólympíuleikunum í Róm 1960 og er biðin því orðin ansi löng eftir verð- launapeningi. Leikmenn liðsins segjast mæta óhræddir til leiks og það sé eng- in pressa á þeim. „Við erum búnir að standa okkur með sóma og núna er stefnan sett á eitt af þremur efstu sæt- unum“ sagði Emad Mohammed, miðju- maður Íraka. Liðið mætir Paragvæ í undanúrslitum í dag og er hugur í írösku leikmönnunum. Þjálfari liðsins, Adnad Hamad, fullyrðir að sínir menn vilji gefa fólki í Írak eitthvað til að gleðj- ast yfir. „Okkur líður öllum illa yfir stríð- inu heima fyrir en vonumst til að geta glatt okkar fólk með sigri.“ Kaninn klár í keflavík Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur í meistaraflokki kvenna, segir að búið sé að ganga frá samningi við erlendan leikmann sem mun spila með liðinu í vetur. „Hún heitir Reshea Bristol og er 1,78 á hæð. Hún kemur frá Arizona-há- skólanum og er góð viðbót á öflugan mannskap,“ segir Sverrir. Að sögn Sverr- is getur Bristol spilað allar bakvarða- stöður sem og lítinn framherja. Að sögn Hermanns Helgasonar, for- manns Keflavíkur, er stefnt að klára út- lendingamálin í þessari viku hjá meist- araflokki karla. „Hlutirnir ættu að vera komnir á hreint fyrir helgi,“ sagði Her- mann í samtali við Fréttablaðið. Gikkir eru miður sín Grikkir, sem eru gestgjafar ólympíuleik- ana í ár, eiga ekki sjö dagana sæla þeg- ar kemur að lyfjamisnotkun hjá þátttak- endum leikana. Hver ógæfufréttin á fætur annarri dynur á heimamönnum og er mönnum ekki skemmt. Nú síðast fundust anabólískir sterar í vöru- skemmu gríska þjálfarans, Christo Tseko, í rannsókn sem stendur nú yfir. Rannsóknin beinist fyrst og fremst að grísku spretthlaupurunum Kostas Kenteris og Katerina Thanou en þau sviðsettu mótórhjólaslys til að losna við lyfjapróf. Þau neituðu ætíð að hafa tek- ið inn lyfin. Meðan á rannsókninni stóð fannst meðal annars töluvert magn af efedríni í fórum Tsekos. Lögmaður Tsekos sagði að það væri ekkert ólög- legt af því sem Tsekos flytti inn og hann væri saklaus af öllum ásökunum. Spretthlaupararnir eru ekki einu Grikkirnir sem hafa gert í buxurnar á Ólympíuleikunum því kraftlyftingakapp- inn Leonidas Sampanis var sviptur bronsverðlaunum eftir að niðurstöður lyfjaprófs reyndust jákvæðar. Stefán Arnaldsson handknattleiksdómari: Brassarnir eru skeinuhættir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.