Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 32
VISSIR ÞÚ … … að eingöngu er hægt að sjá regn- boga ef maður snýr baki í sólina? … að á hverri sekúndu senda taugarn- ar í líkamanum um hundrað milljón mismunandi skilaboð til heilans? … að Hershey’s kossar heita kossar því þegar vélin býr þá til lítur það út eins og hún sé að kyssa færibandið? … að eini staðurinn þar sem er flagg- að alla daga, allt árið um kring er tunglið? … að sjaldgæfasti demanturinn er grænn demantur? … að sumarið á plánetunni Úranus er í 21 ár og veturinn líka? … að Saharaeyðimörkin stækkar um það bil um einn kílómetra á mánuði? … að sólin er 330.330 sinnum stærri en jörðin? … að 22 bein eru í höfði mannsins? … að þú andar að meðaltali 23.000 sinnum á dag? … að manneskja er með meðvitund í um átta sekúndur eftir að höfuðið á henni er tekið af? … að dósaopnarinn var fundinn upp 48 árum eftir að dósin var kynnt á markaðinn? … að um það bil milljón sniglar eru framreiddir á veitingastöðum á ári hverju? … að engin fita er í gulrótum? … að fyrst var hægt að fá gos í plast- flöskum árið 1970. … að Kínverjar nota 45 milljarða af matarprjónum á hverju ári? … að loftfyllt dekk voru notuð á reið- hjól áður en þau voru notuð undir bíla? … að permanent í hár var fundið upp árið 1906 af Þjóðverjanum Karl Lud- wig Nessler? … að ein af hverjum tíu manneskjum í heiminum býr á eyju? … að líkurnar á því að verða fyrir eld- ingu eru sex hundruð þúsund á móti einum? … að meðalskólaárið í heiminum eru tvö hundruð dagar? … að í Ástralíu eru 150 milljónir kinda en sautján milljónir af fólki? … að árið 1870 voru fleiri Írar búsettir í London en í Dublin? … að mengunin í bænum Cubato í Brasilíu er svo svakaleg að hvorki skor- dýr né fuglar sjást þar lengur og bæj- arstjórinn sjálfur neitar að búa þar? … að tónleikahaldari á Hawaí seldi þúsund miða á tónleika Spice Girls sem aldrei stóð til að halda? Maðurinn var handtekinn og sagðist hafa þurft peninga fyrir nef- og kynskiptaaðgerð. 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR8 Arna Schram er varaformaður Blaðamannafélagsins og blaða- maður á Morgunblaðinu. Í hverju felst starfið? Á Morgunblaðinu er ég þingfréttaritari og þá sit ég þingfundi og fylgist með þingumræðum og skrifa um þær. Það er mjög skemmtilegt þar sem ég hef mikinn áhuga á stjórnmálum. Ef ég er ekki í því þá skrifa ég innlendar fréttir sem er mjög líflegt og skemmtilegt. Ég var kosinn varaformaður Blaðamannafélagsins fyrir tveimur árum. Helsta vinnan leggst á formanninn, Róbert Marshall, en ég svara fjölmiðlum í fjarveru hans. Síðan sit ég stjórnarfundi og hef staðið að pressukvöldunum þar sem fjallað er um fagleg mál- efni blaðamanna til að stuðla að því að við bætum okkar starf. Hvenær vaknarðu á morgnana? Ég vakna yfirleitt rúmlega átta. Hvað er skemmtilegast við vinnuna? Sem blaðamaður finnst mér skemmtilegast að vera í miðju alls sem gerist og þessi hraði og spenna í starfinu. Í Blaðamannafélag- inu finnst mér pressukvöldin mjög skemmtileg og líka að huga að kjaramálum þar sem kjarasamningar verða lausir næsta vetur. En erfiðast? Það er ekkert erfitt – bara skemmtilegt. Vinkonum mínum finnst einmitt svo skemmtilegt hvað ég er fréttasjúk og ég bara má ekki missa af fréttunum. Hvað gerirðu eftir vinnu? Sinni dóttur minni. Hvað gerirðu á kvöldin? Ég klára að lesa blöðin og fylgist með fréttunum. Síðan les ég og slappa af. Hvenær ferðu að sofa? Ég er algjör næturhrafn þannig að ég fer yfirleitt að sofa eftir mið- nætti, svona um eittleytið. Ég er samt alltaf að reyna að sofna fyrr.„Vinkonum mínum finnst einmitt svo skemmtilegt hvað ég er fréttasjúk og ég bara má ekki missa af fréttunum.“ HVUNNDAGURINN SMS LEIKUR HALLE BERRY ER komin í bíó! Viltu miða? Vinningar verða afhenTir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Sendu SMS skeytið BT CATW á númerið 1900 og þú gætir unnið. 9. hver vinnur. Vinningar eru: Miðar á myndina · Catwoman tölvuleikir DVD myndir · Margt fleira. Sjáðu myndina Spilaðu leikinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.