Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 2
2 24. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra segir ekki koma til greina að breyta eða draga til baka þá ákvörðun þingflokksins að víkja Siv Friðleifsdóttur úr stóli umhverfisráð- herra í næsta mánuði. Kergja er inn- an flokksins vegna ákvörðunarinnar og segir Halldór það alls ekki rétt að hann viti ekki af slíkum deilum eða sé skeytingarlaus um þær. „Ég hef átt mörg samtöl við fjöl- marga flokksmenn mína frá því að ákvörðunin var tekin og þar sýnist sitt hverjum eins og eðlilegt er. Það var hins vegar krafa þingflokksins að við tækjum við forystu í ríkisstjórn og vegna þess lá fyrir að við misstum eitt embætti. Það er alveg sama hvar sú breyting hefði komið niður, alltaf hefðu einhverjir verið óánægðir.“ Halldór segir ekki fyrirhugað að halda sérstaka fundi vegna þessa máls af hálfu flokksforystunnar og málið var ekki rætt á þingflokksfundi í gær. „Það er ekki nóg að menn séu óánægðir. Menn verða þá að bera fram aðrar tillögur en ég bendi á að ég hyggst gera tillögu um frekari breytingar síðar meir.“ STJÓRNMÁL „Þetta snýst ekki um jafnrétti heldur um stuðning við einstaklinga innan þingflokksins. Tillaga Halldórs var gerð út frá því og það hefði verið vantraust á þann ráðherra sem hefði verið látinn standa upp fyrir Siv Friðleifsdótt- ur,“ segir Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður Framsóknar- flokksins, um ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar að Siv víki úr ráð- herrastóli þegar umhverfisráðu- neytið fer til Sjálfstæðisflokksins 15. september. Á vefsíðunni hrifla.is sagði Guðjón í pistli sem birtist í gær að stuðningsmenn Sivjar og Jónínu Bjartmarz hefðu keppst við að hreyta ónotum í Árna Magnússon félagsmálaráðherra. „Það var vit- anlega eingöngu gert til að skaða Árna enda um að ræða framtíðar- forystumann flokksins sem margir aðrir vildu líka verða. [...] Síðan hefur það gerst að fáeinir, einkum konur, sem einhvern tímann ein- hvers staðar hafa orðið fyrir von- brigðum með eigin framgang í Framsóknarflokknum vitna nú um einhverja meinta þrönga valda- klíku í flokknum sem að því er virðist eigi þar öllu lifandi og dauðu að ráða.“ Sigrún Magnúsdóttir, varamað- ur í Landssambandi framsóknar- kvenna, segir að ummæli Guðjóns um framsóknarkonur dæmi sig sjálf en þau lýsi lítilsvirðingu í garð kvenna. „Vinnubrögð Guðjóns þegar verið var að mynda kjör- dæmasamband í Reykjavík voru mjög gerræðisleg og var hlutur kvenna þar afar fátæklegur,“ segir hún. „Konur í Framsóknarflokknum ætla ekki að láta kúga sig. Við urð- um mjög öflugar um það leyti er við stofnuðum landssambandið og fór- um hraðbyr innan flokksins. Við þurfum að eflast aftur og veit ég að sá kraftur býr í okkur,“ segir hún. Sigrún Jónsdóttir, formaður Fé- lags framsóknarmanna í Reykjavík suður, segist vonast til þess að fund- ur landssambandsins á morgun verði til þess að konur þjappi saman liði. „Við ætlum ekki að gefast upp á flokknum heldur láta heyra í okkur. Það er gífurleg samstaða meðal jafnréttissinnaðra fram- sóknarmanna, jafnt kven- na sem karla,“ segir hún. Hún bendir á að í lögum Fram- sóknarflokksins segi að hvort kyn skuli ekki skipa minna en 40 pró- sent í nefndum og stjórnum flokks- ins. „Niðurstaða fundarins verður vonandi sú að konur sameinist í að bjóða fram krafta sína í allar stjórn- ir innan flokksins og auki þar með hlut sinn. Með því mun konum fjöl- ga í miðstjórn og á flokksþingi og rödd kvenna heyrist betur,“ segir hún. sda@frettabladid.is Iceland Express: Þrauka frekar en að hækka SAMGÖNGUR „Við höfum ekki í hyggju að hækka fargjöld þrátt fyrir hækkanir olíuverðs. Þó að þetta sé hækkun á einum kostnað- arlið þá reynum við að mæta því með því að minnka kostnað ann- ars staðar,“ segir Ólafur Hauks- son, talsmaður Iceland Express. Ólafur segir félagið þrauka frekar en að hækka fargjöld þar sem það sé lággjaldaflugfélag. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um hvort gripið verði til hækkana fargjalda vegna hækkunar olíu- verðs. ■ Bandaríkjaforseti: Fordæmir rógsherferð WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti fordæmir sjón- varpsauglýsingar frá einkaaðilum sem gera lítið úr honum eða John Kerry, mótfram- bjóðanda sínum. Hann hvetur fólk til að láta af slíkum rógi og segir þetta slæmt fyrir kosningarnar. Talsmenn Johns Kerry hafa kallað til hermenn sem voru í Víetnam á sama tíma og hann til að lýsa hetjudáðum hans og drengskap, til að hrekja fullyrðingar um annað sem hafa birst í sjónvarpsauglýs- ingum. Kerry sakaði Bush um að fá aðra til að vinna skítverkin fyrir sig en Bush hefur sjálfur orðið fyrir barð- inu á stuðningsmönnum Kerrys. ■ ■ LEIÐRÉTTING Við gefum aldrei þær upplýsingar hér í Reykjavík. Þetta er höfuðborgin og hér eru allir jafnir. Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík fylltust aðfaranótt sunnudags, eftir að dagskrá Menning- arnætur í miðborginni lauk. Oft er þess getið þeg- ar aðkomumenn brjóta af sér utan höfuðborgar- innar og því forvitnilegt að vita hvort eins stæði á nú. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykja- vík, hefur lýst ánægju með skemmtanahaldið á laugardag og vill ekki tengja það erli næturinnar. SPURNING DAGSINS Geir Jón, voru þetta ekki mest að- komumenn? Sprengjugabb: Íslandsflugi dýrt spaug SAMGÖNGUR Kostnaður vegna sprengjugabbs í flugvél Íslands- flugs hleypur á milljónum, segir Ómar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri flugfélagsins. Servíetta sem á hafði verið skrifað „bomb 9/11“ fannst inni á salerni vélarinnar sem var á leið til Dyflinnar á Írlandi frá Napólí á Ítalíu. „Í framhaldinu var ákveðið að lenda á fyrsta flugvelli sem hefði upp á allan öryggisbúnað að bjóða,“ segir Ómar. Lent var í Lyon í Frakklandi þar sem farang- ur var gegnumlýstur og leit gerð á farþegum, en franska lögreglan fer með rannsókn málsins. Mesti kostnaður flugfélagsins liggur að sögn Ómars í að vélin var ekki komin tímanlega í næstu flugferð og varð því að leigja aðra vél í þá för. ■ FORMAÐUR OG VARAFORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Guðni Ágústsson vill fullvissa jafnréttis- sinna innan flokksins um að Siv eigi aftur- kvæmt í ríkisstjórn en Halldór segir af og frá að breyta núverandi ákvörðun þing- flokksins en bendir á að breytingar séu fyr- fyrirhugaðar síðar meir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R JÓ N AS SO N Halldór Ásgrímsson: Ákvörðuninni verður ekki breytt GEORGE BUSH Biður þá sem standa fyrir rógsherferð í sjónvarpi að láta af því. Líkamsárás: Enn beðið eftir áverkavottorði LÖGREGLA Rannsókn á líkamsárás sem framin var í Öxnadal fimmta ágúst síðastliðinn er á lokastigi að sögn Daníels Snorrasonar, hjá lög- reglunni á Akureyri. Einn maður um þrítugt er grunaður um árásina en talið er hann hafi barið annan mann á svipuðum aldri í höfuðið með hafnaboltakylfu. Sá slasaðist al- varlega og var á gjörgæsludeild í nokkurn tíma en er nú kominn á almenna deild. Daníel segir að enn sé beðið eftir áverkavottorði frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri. Hann segist ekki vita af hverju svona langan tíma taki að fá vottorðið að þessu sinni en hann viti til þess að slíkt geti tek- ið nokkrar vikur. Þá geti það spil- að inn í að sá sem varð fyrir árásinni er enn á sjúkrahúsi. ■ ÓMAR BENEDIKTSSON Ómar segir sprengjuhótun sem fannst á sal- erni í flugvél Íslandsflugs hafa verið dýrt gabb. Rangt bankanúmer var birt með frétt þar sem segir frá söfnun til handa börnum Sri Rahmawati. Rétt bankanúmer er 0139-05- 64466 sem er á kennitölunni 130147 4109 í Múlaútibúi Lands- bankans. ■ VIÐSKIPTI KB banki getur hafið yfirtöku á breska bankanum Sin- ger and Friedlander í dag. Þá lýk- ur sex mánaða tímabili þar sem bankanum var óheimilt að aðhaf- ast frekar við yfirtöku bankans. Sérfræðingar telja ólíklegt að KB banki hefjist handa þegar í stað nú þegar tímabilinu lýkur. „Ég tel að KB banki reyni yfirtöku á breska bankanum en hins vegar hefur hann ekki augljósa hags- muni af því að ráðast hratt til at- lögu,“ segir Atli B. Guðmundsson, hjá Greiningu Íslandsbanka. Flestir eru þeirra skoðunar að KB banki muni ráðast í yfirtöku á bankanum. Innan bankans er þó ekkert gefið upp um áformin. Burðarás á átta prósent í Singer og Friedlander. Ekki er talið lík- legt að bankarnir bítist um bank- ann. Hins vegar er áhætta Burða- ráss ekki talin mikil ef KB banki hættir við af einhverjum orsök- um. Bæði sé breski bankinn í góð- um rekstri og bréfin ekki dýr. Ennfremur að Landsbankinn gæti haft áhuga á kaupum ef KB banki leggi ekki í förina.■ Yfirtaka á Singer and Friedlander: KB banki hinkrar um stund EKKI HLAUPIÐ AF STAÐ Stjórnendur KB banka munu að öllum líkindum hinkra um sinn áður en ráðist verður til atlögu um yfirtöku á breska bankanum Singer and Friedlander. Óvissa er bankanum í hag og kurteisi að ryðjast ekki að veisluborðinu. Málið snýst ekki um jafnrétti Varaþingmaður Framsóknarflokksins segir að það hefði verið vantraust á þann ráðherra sem hefði verið látinn standa upp fyrir Siv Friðleifs- dóttur. Ákvörðunin snúist ekki um jafnrétti heldur skorti Siv stuðning. RÁÐHERRAR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Varaþingmaður flokksins heldur því fram að Siv hafi verið látin víkja úr ráðherrastól því hún njóti ekki stuðnings innan þingflokksins. Jafnrétti hafi ekkert með málið að gera. SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR SIGRÚN JÓNSDÓTTIR GUÐJÓN ÓLAF- UR JÓNSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.