Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART NORÐAUSTAN TIL
Hálfskýjað eða skýjað annars staðar og
yfirleitt þurrt. Hiti víða 10-18 stig að
deginum. Sjá síðu 6
24. ágúst 2004 – 229. tölublað – 4. árgangur
JAFNRÉTTI
EKKI
MÁLIÐ
Varaþing-
maður Fram-
sóknarflokks-
ins segir að
það hefði
verið van-
traust á þann ráðherra sem hefði verið lát-
inn standa upp fyrir Siv Friðleifsdóttur.
Framsóknarkonur reiðast ummæli hans.
Sjá síðu 2
BÖRN ÁN GÆSLU Ekki fá öll grunn-
skólabörn í Reykjavík heilsdagsgæslu. Þetta
skapar foreldrum mikinn vanda. Unnið er
að úrlausn málsins og standa vonir til að
öll börn fái heilsdagsvist. Sjá síðu 4
NEMENDUM FÆKKAR Um 15 pró-
sent landsmanna hófu nám í grunnskólum
landsins í gær. Börnin velta lítið fyrir sér
yfirvofandi verkfalli. Fræðslustjóri Reykjavík-
ur segir aldrei auðveldara að ráða kennara.
Sjá síðu 6
TIL HÖFUÐS ÍBÚÐALÁNASJÓÐI KB
banki kynnti í gær íbúðarlán með 4,4 pró-
senta vöxtum. Bankinn segist vera að standa
við gefin loforð. Vextirnir eru 0,1 prósenti
lægri en vextir Íbúðalánasjóðs. Sjá síðu 8
Pálmi Sigurhjartarson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Syndir á hverjum
degi
● heilsa
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
UTANRÍKISMÁL Hillary og Bill Clint-
on koma til landsins í dag og munu
meðal annars hitta forseta Íslands,
Ólaf Ragnar Grímsson og Davíð
Oddsson forsætisráðherra áður en
þau fara af landi brott í kvöld.
Hillary Clinton er í sendinefnd
bandaríska þingsins sem undan-
farna daga hefur heimsótt Úkra-
ínu, Eistland, Lettland og Noreg.
Formaður nefndarinnar er John
McCain, öldungardeildarþingmað-
ur repúblikana.
Nefnarmenn munu baða sig í
Bláa lóninu um hádegisbil og
snæða síðan hádegisverð í boði
Halldórs Ásgrímssonar utanrík-
isráðherra. Að honum loknum
mun fulltrúi frá Íslenskri nýorku
fræða nefndarmenn um mögu-
leika vetnis sem orkugjafa.
Sendinefndin mun að kynning-
unni lokinni halda áfram ferð
sinni til Bandaríkjanna en
Hillary Clinton mun hitta eigin-
mann sinn og dvelja hér ásamt
honum fram eftir degi. Bill Clint-
on, fyrrum forseti Bandaríkj-
anna, er hingað kominn í einkaer-
indum en hann er á leiðinni til
Írlands að kynna nýútkomna bók
sína, My Life.
Í gær var sendinefnd
öldungadeildarinnar stödd á
Svalbarða og þótti að sögn nokkuð
koma til náttúrufegurðar þar. ■
Á FERÐ Í NAJAF Í GÆR
Fregnir bárust af því í gærkvöld að íbúar Najaf væru margir hverjir á flótta undan loftárásum Bandaríkjahers.
Bill og Hillary Clinton til landsins í dag:
Hitta Davíð og Ólaf Ragnar
Najaf í Írak:
Bardagar
harðna
ÍRAK, AP Bardagar hörnuðu á milli
bandarískra hermanna og íraskra
skæruliða í borginni Najaf í gær.
Bandaríkjamenn hafa fylkt sér
fram og þrýst á skæruliðana að
yfirgefa grafreit sem herskáir
sjíamúslimar hafa komið sér fyrir
við.
Skriðdrekar voru í 250 metra
færi við grafreitinn og leyniskytt-
ur á þökum í nágrenninu og var
skipst á skotum. Skæruliðum við
grafreitinn hefur fækkað mjög
eftir því sem Bandaríkjamenn
hafa sótt fram. Að sögn vitna lét-
ust að minnsta kosti tveir skæru-
liðar og fjórir slösuðust.
Á myndinni hér til hliðar sem
tekin var í gær má sjá bónda á
asnakerru í Najaf. Hann heldur
klút hátt yfir höfði sér til marks
um að hann fari í friðsamlegum
tilgangi á því svæði sem hörðustu
bardagar bandarískra hermanna
og herskárra vígamanna hafa átt
sér stað í borginni. ■
Meðal verka á efnisskrá kammersveitarinn-
ar Ísafoldar sem heldur tónleika í kvöld er
nýtt verk eftir Úlfar Inga Haraldsson. Tón-
leikarnir verða haldnir í Listasafni Íslands
og hefjast stundvíslega klukkan átta.
SJÁVARÚTVEGUR Bergur Ágústsson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
telur að fyrirtæki í Vestmannaeyj-
um hafi orðið af að minnsta kosti
fjögur hundruð milljónum króna á
síðustu tveimur til þremur árum
vegna sértækra aðgerða í sjávarút-
vegi. Sé litið lengra aftur er upp-
hæðin yfir einum milljarði.
Að sögn Bergs hafa margvísleg-
ar ráðstafanir í sjávarútvegi eink-
um bitnað á þeim byggðarlögum
þar sem sjávarútvegur byggist á
aflamarksbátum í kvótakerfinu.
„Þetta er hrein og bein mismunun í
garð Vestmannaeyja,“ segir Berg-
ur.
Hann telur að sé litið lengra en
tvö ár aftur í tímann hafi kostnað-
ur af sértækum aðgerðum valdið
milljarða tekjuskaða fyrir Vest-
mannaeyjar.
Bergur nefnir sérstaklega svo-
kallað útflutningsálag á ferskfiski.
Ef skip flytja til útlanda ferskan
fisk frekar en til hafnar á Íslandi
þá dragast tíu prósent aukalega frá
kvóta viðkomandi skips. „Ég sé
bara engin rök fyrir þessu að einu
eða neinu leyti. Þetta hefur komið
afskaplega illa fyrir okkur Eyja-
menn,“ segir Bergur.
Hann segir þessa reglu bitna á
þeim sem starfa í ferskfisksút-
flutningi og útilokar ekki að slík
mismunun kunni að brjóta í bága
við reglur Evrópska efnahags-
svæðisins. Þá segir hann að tilflutn-
ingur fiskveiðiheimilda frá afla-
marksskipum, einkum til smábáta,
bitni mjög á Vestmannaeyjum.
„Þetta bitnar á stöðum sem hafa
spjarað sig. Eins og landsmenn
vita þá eru Eyjarnar byggðar upp á
sjávarútvegi og ekki í svo mörg
önnur hús að venda. Menn hafa
gert þetta af miklum þrótti og
myndarskap og það virðist vera
þannig að menn séu að draga úr
okkur tennurnar með þessum að-
gerðum og draga máttinn úr
grunnstoðum okkar byggðarlags.
Það get ég ekki sætt mig við,“ seg-
ir Bergur Ágústsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum.
Hann segir að bæjaryfirvöld
hyggi á aðgerðir til að bregðast við
þeim niðurstöðum sem bæjarstjóri
hefur komist að.
thkjart@frettabladid.is
Hlunnfarnir um milljarð
Aðgerðir til stuðnings línubátum og landvinnslum hafa kostað Eyjamenn að minnsta kosti fjögur
hundruð milljónir á síðustu tveimur árum, segir bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum.
JOHN MCCAIN OG HILLARY CLINTON
John McCain, formaður sendinefndar öldungadeildarþings Bandaríkjanna og Hillary
Clinton gáfu sér tíma í myndatöku þar sem þau voru stödd á Svalbarða.
● úr leik eftir þrjár þrautir
Ólympíuleikarnir:
▲
SÍÐA 20
Er Jón Arnar
orðinn of gamall?
Anita Briem:
Fékk aðalhlutverk
í spænskum hrolli
● óskabyrjun hjá nýútskrifaðri leikkonu
Menntastofnanir:
Hugað að
sameiningu
MENNTAMÁL Forystumenn Tækni-
háskólans og Háskóla Reykjavík-
ur hafa átt viðræður undanfarnar
vikur um samvinnu eða samruna
skólanna tveggja.
Mennta-
málaráðu-
n e y t i ð
hafði frum-
kvæði að
viðræðun-
um. Er það
mat ráðuneytisins og skólanna
tveggja að með sameiningu skól-
anna felist sóknarfæri fyrir ís-
lenskt samfélag. Nú eru 14 hund-
ruð nemendur í Háskóla Reykja-
víkur og tæplega eitt þúsund í
Tækniháskólanum. Skólarnir hafa
báðir unnið að uppbyggingu náms
í rekstrar- og viðskiptafræði og
eru greinarnar kenndar í báðum
skólunum. ■
Julianna Rose Mauriello:
Leikur Sollu
stirðu í Latabæ
● ætlar að læra íslensku áður en hún fer heim
SÍÐA 30
▲ ▲
SÍÐA 38