Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 24.08.2004, Blaðsíða 41
ÞRIÐJUDAGUR 24. ágúst 2004 BRITNEY Gefur út safn sinna vinsælustu laga í nóvember. Britney tekur Bobby Brown Britney Spears ætlar að gefa út safnplötu sinna vinsælustu laga í nóvember. Þar verður að finna tvö ný lög til þess að sefa hörðustu að- dáendurna. Annað þeirra mun vera lagið My Prerogative sem Bobby Brown gerði vinsælt árið 1988. Talið er að lagið sé svar Britney til blaðamanna og gagn- rýnenda sem hafa verið iðnir við að skrifa um truflað einkalíf hennar síðasta árið. Lagið verður á næstu smáskífu stúlkunnar og samkvæmt bandarísku slúður- pressunni hefur piltur, sem er nauðalíkur unnusta hennar Kevin Federline, verið ráðinn til þess að leika á móti henni í myndbandi lagsins. Britney er ekki sú eina sem hefur gert lagið að sínu því breska sjokkpoppsveitin Selfish Cunt flytur lagið á væntanlegri plötu sinni. Hitt nýja lagið heitir Outrageous. Á meðal laga á plötunni verða Toxic, Baby One More Time, (Oops) I Did it Again, Born to Make You Happy, I Love Rock’n Roll, Sometimes og I’m Not a Girl, Not Yet a Woman. ■ Vincent Gallo er kominn upp ákant við blaðið The Village Voice. Hann hafði skrifað grein fyrir blaðið sem hafði lofað honum forsíð- unni í staðinn. Gallo skilaði inn greininni og fékk hrós fyrir, en svo ákvað ritstjórn blaðsins að þeir vildu frekar hafa annan einstakling framan á blaðinu. Gallo varð svekkt- ur og ákvað að draga grein sína til baka. Ritstjóri blaðsins hafði samband við slúður- pressuna og sagði sína hlið á málinu. Gallo varð æfareiður og segir blaðið skulda sér feita afsökunarbeiðni. Trey Parker og MattStone, framleiðend- ur South Park þátt- anna, komu framleið- endum myndarinnar Thunderbirds í opna skjöldu með því að gera brúðumynd sem sýnir persónur myndarinnar í samfarasenum. Félag- arnir undirbúa nú útgáfu kvikmyndarinnar Team America: World Police sem gerir grín af vopnaleit George W. Bush Bandaríkja- forseta í Írak. Þrátt fyrir að myndin sé brúðumynd verð- ur hún stranglega bönnuð öllum undir 18 ára aldri í Bandaríkjunum. Eftir að leikkonan Charlize Theronvann Óskarsverðlaunin hefur hún öðlast það vald að geta hætt við nektarsenur í kvikmyndum líki henni þær ekki. Hún segist þó ekki hafa neitt á móti því að sýna nekt sína í myndum, sé það nauðsynlegt sög- unni. Hún segist ekkert ætla að skipta sér að því hvernig leikstjórar myndi hana, eins lengi og hún fái að sjá atriðið og klippa það út ef henni líkar það ekki. FRÉTTIR AF FÓLKI FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.