Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 1

Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 1
● handboltavertíðin formlega hafin Reykjavík Open í handbolta: ▲ SÍÐA 24 Stjarnan og Haukar sigruðu ● á fyrstu tónleikum vetrarins Liene Circene: ▲ SÍÐA 35 Lettneskur píanóleikari spilar í Salnum ● 41 árs í dag Sverrir Stormsker: ▲ SÍÐA 18 Vaxinn upp úr því að þroskast MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 MÁNUDAGUR STJÓRNARSKRÁ ESB Rætt verður um helstu álitamál varðandi stjórnarskrá Evrópusambandsins í málstofu Lagastofn- unar í Lögbergi klukkan 12.15. Kurt Ebert, prófessor við lagadeild háskólans í Inns- bruck í Austurríki, mun fjalla um mikilvæg- ustu áhrifin sem stjórnarskránni er ætlað að hafa í stækkuðu Evrópusambandi. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG SKÚRAVEÐUR Í BORGINNI Og víða sunnan og vestan til. Bjart með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 10-15 stig, hlýjast fyrir austan. Sjá síðu 6 6. september 2004 – 242. tölublað – 4. árgangur ● hús ● fasteignir Hönnun í sprengjugeymslu Kristinn Brynjólfsson: NEYÐ Í FLÓRÍDA Neyðarástandi lýst yfir í Flórída þegar fellibylurinn Frances gekk yfir. Fjórar milljónir manna voru án rafmagns. Vindurinn minni en reiknað var með. Sjá síðu 2 KAUPIN ATHUGUÐ Kaup Landssím- ans á Fjörgný, sem á sýningarrétt á ensku knattspyrnunni og 26% hlut í Skjá einum, verða tekin til athugunar hjá Samkeppnis- stofnun. Sjá síðu 4 ÓVÍST MEÐ FRAMKVÆMDIR Óvíst er hvenær framkvæmdir við ný gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar hefjast. Áætlað er að kostnaður við þriggja hæða gatnamót sé þrír milljarðar. Sjá síðu 2 SAMSTARF VIÐ OG VODAFONE Norðurljós munu kanna möguleika á sam- starfi við Og Vodafone vegna stafrænnar dreifingar á sjónvarpsefni. Sjá síðu 6 36%50% ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Kvikmyndir 30 Tónlist 30 Leikhús 30 Myndlist 30 Íþróttir 20 Sjónvarp 32 BESLAN, AP Íbúar Beslan hófu að bera fórnarlömb gíslatökunnar til grafar í gær þegar 22 voru jarð- settir. Jarðarfarirnar hófust í bænum þar sem fjöldi syrgjenda kom saman hjá opnum líkkistum þeirra sem grafa átti. Samkvæmt hefð héldu konurnar sig nærri en mennirnir stóðu í röðum og báru eldri fjölskyldumeðlimum samúð- arkveðjur áður en stutt athöfn fór fram. Á meðan jarðað var héldu aðrir áfram að grafa nýjar grafir og höfðu um 150 grafir verið tekn- ar í gær. Þetta voru fyrstu jarðarfarirn- ar af mörgum en að minnsta kosti 350 manns létu lífið og enn er um 200 manns saknað. Því má gera ráð fyrir að tala látinna muni enn hækka. Yfirvöld hafa birt myndir af særðum börnum sem eru of ung til að gefa upp nöfn sín við hliðina á listum yfir nöfn særðra. Víða um bæinn má sjá mæður með mynd af ástvinum sínum, í von um að einhver geti sagt til um af- drif þeirra. Lýst var yfir tveggja daga þjóðarsorg í Rússlandi í dag. Fán- ar munu blakta í hálfa stöng og skemmtiefni tekið af dagskrá sjónvarpsstöðvanna. Enn hefur enginn lýst ábyrgð á gíslatökunni á hendur sér. ■ Þjóðarsorg lýst yfir í Rússlandi: Fórnarlömb borin til grafar SJÓSLYS „Samkvæmt lögum og regl- um ber að skoða bol og vél skipa á tveggja ára fresti,“ segir Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri hjá Siglingastofnun. Í fyrradag sökk Kópnes frá Hólmavík eftir að leki kom að skipinu þar sem þeir voru að veiðum fyrir norðan Húnaflóa. Er þetta sjöunda skipið sem ferst með þessum hætti á árinu og hefur fjöldinn vakið athygli sjóslysa- nefndar sem hyggst leggja til hert- ar eftirlitskröfur á hendur Sigl- ingastofnun. Hermann segir að strangt til tekið sé eftirlitsskylda með skipum ekki lengur á höndum Siglinga- stofnunar. „Í okkar umboði starfa nokkrar skoðunarstofur víða um land og þar er fylgt þeim alþjóð- legu reglum sem flestar þjóðir fara eftir. Skipsskrokka skal sam- kvæmt reglum skoða á tveggja ára fresti en sé um tæringu að ræða á bol skipsins á slíkt að koma í ljós við slíkar skoðanir.“ Jón Ingólfsson, hjá Rannsóknar- nefnd sjóslysa, segir þetta ár vera orðið einsdæmi hvað varðar sjó- slys vegna leka og veltir fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að breyta reglum um skoðun eða bein- línis herða þær. Hann bendir á að jafneinfalt tæki og lekavari hefði getað bjargað þessu skipi sem og öðrum sem svipað hefur orðið ástatt um en reglur kveða aðeins á um að stærri skip hafi slíkan búnað um borð. „Þar er um að ræða lítinn nema sem gerir viðvart um leið og sjór kemst í vélarrúm og þá gefst skipverjum meiri tími til að bregð- ast við aðstæðum og jafnvel hefja dælingu áður en sjór kemst í vél- arnar en þá er fokið í flest skjól.“ Fram hefur komið að áhafnar- meðlimir Kópnes voru þrír talsins en eiga samkvæmt reglum um skip af þessari stærðargráðu að vera minnst fjórir. Jón telur mögulegt að fjórði maður hafi getað breytt einhverju en um slíkt verður aldrei vitað fyrir víst. albert@frettabladid.is Vill hertar reglur um skoðun skipa Rannsóknarnefnd sjóslysa vill herða reglur um ástandsskoðun skipa. Sjö skip hafa farist það sem af er ársins vegna leka í vélarrúmi. Suður-Afríkumaður handtekinn: Sprengju- smíð stöðvuð SUÐUR-AFRÍKA, AP Suður-Afrískur kaupsýslumaður var handtekinn um helgina grunaður um áform um smíði kjarnorkusprengju. Maðurinn, sem á verksmiðju rétt sunnan við Jóhannesarborg, neitar öllum ásökunum. Hann var handtekinn eftir að lögregla og eft- irlitsstofnun Sameinuðu þjóðanna höfðu fylgst með honum um hríð. Talið er að maðurinn geti tengst öðrum Suður-Afríkumanni sem var handtekinn í fyrra og ákærður fyr- ir að smygla búnaði sem notaður er í kjarnorkuvopn til Pakistan. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér þungan dóm. ■ KJARNORKUVERIÐ Í SELLAFIELD Bretar hafa verið kallaðir fyrir æðsta dómstól Evrópusambandsins. Bretar fyrir Evrópudóm- stólinn vegna Sellafield: Aðgerða krafist SELLAFIELD Bretar hafa verið kallað- ir fyrir æðsta dómstól Evrópusam- bandsins vegna ástands mála í kjarnorkuverinu í Sellafield. Þar með varð Bretland fyrsta ríki ESB sem þarf að svara til saka fyrir Evrópudómstólnum vegna kjarn- orkumála. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins hefur skýrt frá því að ákvörðunin um að fara með málið fyrir Evrópudómstólinn þvingi bresku ríkisstjórnina til að láta af mótþróa við að leggja fram skýrslu yfir allt það efni sem geymt er í Sellafield. Jafnframt þurfi stjórn- völd að veita eftirlitsmönnum ESB greiðan aðgang að svæðinu. ■ M YN D A P SYSTUR KVADDAR Systurnar Irina og Alina Tetova voru meðal hinna 22 fórnarlamba Beslan-gíslatökunnar sem jörðuð voru í gær. Þjóðarsorg er nú í Rússlandi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.