Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 2
2 6. september 2004 MÁNUDAGUR
Ný gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar:
Óvíst hvenær framkvæmdir hefjast
GATNAFRAMKVÆMDIR Óvíst er
hvenær framkvæmdir við ný
gatnamót Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar hefjast enda óráðið
hverrar gerðar þau eiga að vera. Í
drögum að matsáætlun eru þrír
kostir tíundaðir, tveggja hæða,
þriggja hæða og svokölluð plan-
gatnamót sem eru gatnamót á einni
hæð, líkt og nú er.
Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar, segir að nefndir
borgarinnar eigi enn eftir að ræða
málið en það verði gert í haust og
fyrri part vetrar. Í kjölfarið þurfi
svo að tryggja fjárframlög frá rík-
issjóði til verkefnisins.
Margir hafa hrifist af hugmynd-
inni um þriggja hæða gatnamót
sem að sögn Árna hefur bæði kosti
og galla. „Svona gatnamótum fylg-
ir hraðari umferð sem gæti aukið
slysahættu, umhverfisáhrifin eru
mikil og svo þarf að skoða vand-
lega hvað gerist á næstu gatnamót-
um á eftir. Lítið vinnst ef umferð-
arþunginn færist bara til.“
Áætlað er að kostnaður við þrig-
gja hæða gatnamót kosti um þrjá
milljarða króna en plan-gatnamót
innan við milljarð. „Það eru önnur
stórverkefni, eins og Sundabrautin,
sem við höfum viljað leggja meira
kapp á og við gerum ekki allt í einu,“
segir Árni Þór. „Enda tel ég, al-
mennt séð, að ekki sé mikill umferð-
arvandi í Reykjavík, ekki miðað við
það sem þekkist annars staðar.“ ■
Neyð í Flórída
Fellibylurinn Frances gekk yfir Flórída í gær. Fjórar milljónir
manna voru án rafmagns. Vindurinn minni en reiknað var með
en gæti tekið aftur upp í kvöld.
FLÓRÍDA, AP Um fjórar milljónir
manns voru án rafmagns í gær í
Flórída eftir að fellibylurinn
Frances gekk yfir ríkið með mikl-
um vindi og úrhellisrigningu. Þök
fuku af húsum, tré rifnuðu upp
með rótum og umferðarljós lágu
eins og hráviði þar sem fellibylur-
inn hafði farið yfir. Tilraun var
gerð til að koma rafmagni aftur á
en vegna veðurofsa þurftu viðgerð-
armenn frá að hverfa.
George Bush lýsti yfir neyðar-
ástandi í þeim sýslum sem Frances
gekk yfir, sem þýðir að íbúar
þeirra og sveitastjórnir geta feng-
ið alríkisaðstoð við endurbygging-
ar vegna þess tjóns sem fárviðrið
veldur. Umfang fellibylsins er það
mikið að óttast er um skemmdir í
næstum öllu ríkinu, tæpum mán-
uði eftir að fellibylurinn Charley
geisaði sem kostaði 27 manns lífið
og olli tjóni upp á tug milljarða
króna. Jeb Bush, ríkisstjóri í Flór-
ída, varaði fólk eindregið við því
að fara út í gær og skoða skemmd-
ir fyrr en yfirlýsing kæmi frá yfir-
völdum þess efnis að hættan væri
liðin hjá.
Eftir að fellibylsviðvörunin kom
fram fóru fram stærstu fólksflutn-
ingar í sögu ríkisins þegar 2,8
milljónir manns var sagt að flýja
heimili sín frá strandsvæðum rík-
isins. Af þeim flýðu 86.000 manns í
neyðarskýli. Rúmlega sexhundruð
manns þurftu að flýja í annað sinn
í gær þegar þak skóla sem þau
höfðu dvalið í fauk að hluta. Óttast
var að fellibylurinn ylli miklum
usla en í gær var ljóst að mesti
krafturinn var farinn úr honum
áður en hann náði ströndum Flór-
ída. Hættustiginu var því lækkað
úr fjögur niður í hættustig eitt.
Hjördís Rut Sigurjónsdóttir,
blaðamaður Fréttablaðsins, sem
stödd er rétt sunnan við Orlando í
Flórída, segir veðrið ekki vera
ofsaveður hjá sér. „Hér er rigning
og meira rok en maður er vanur að
sjá, en þetta er að ganga yfir. Verst
er að hann fer svo hægt yfir og því
hefur hann valdið meiri usla.“
Heldur dró úr veðurofsanum í
gærmorgun en veðurfræðingar
sögðu möguleika á að vindinn taki
aftur upp í kvöld.
svanborg@frettabladid.is
Vesturbakkinn:
Múrinn
stækkar
ÍSRAEL, AP Ísraelar hófu að byggja
nýja hluta aðskilnaðarmúrsins á
suðurhluta Vesturbakkans í
gær, aðeins nokkrum dögum eft-
ir að tveir palestínskir sjálfs-
vígssprengjumenn urðu 16
manns að bana í sprengjutilræði
í bænum Beersheba. Talsmenn
Ísraels sögðu að bygging múrs-
ins væri ekki vegna sprengjutil-
ræðsins en sögðu að reiði al-
mennings hefði gert fram-
kvæmdina brýnni. Alþjóðadóm-
stóllinn í Haag hefur lýst hluta
múrsins í andstöðu við lög en
Ísraelar ætla að sniðganga dóm-
inn. ■
HRINGBRAUTARAPÓTEK
Lokaði tímabundið vegna vopnaðs ráns.
Rán í Vesturbænum:
Ræningi
ófundinn
LEIT Maðurinn sem réðst inn í
Hringbrautarapótek á laugar-
dag vopnaður lofbyssu var
ófundinn þegar Fréttablaðið fór
í prentun í gærkvöld. Hann var
með lambhúshettu á höfði en
myndir náðust af honum á ör-
yggismyndavélar apóteksins.
Einn viðskiptavinur var í
versluninni þegar maðurinn
kom þar inn, veifaði byssunni og
ógnaði starfsfólki. Hann hafði
nokkuð af lyfjum upp úr krafs-
inu. Lögregla hóf þegar víðtæka
leit að manninum en hún hefur
reynst árangurslaus. Viðskipta-
vinir Hringbrautar komu að lok-
uðum dyrum eftir ránið og í til-
kynningu frá versluninni stóð að
verslunin væri lokuð tímabund-
ið vegna vopnaðs ráns. ■
„Nei, mig langaði til þess en ég bjó
í sveit og hippamenningin náði
aldrei þangað.“
Jakob F. Ásgeirsson sagnfræðingur spurði í grein í
Viðskiptablaðinu á dögunum hvort ekki væri tími til
kominn að skynibornir grunnskólakennarar tækju í
taumana og sendu þessa gömlu hippa út á galeið-
una, og átti þar við forystusveit kennara. Eiríkur Jóns-
son er formaður Kennarasambands Íslands.
SPURNING DAGSINS
Eiríkur, ertu hippi?
REYKJANESBÆR
Erilsamt hjá lögreglu á Ljósanótt.
Reykjanesbær:
Handtekinn
með e-töflur
NÆTURLÍF Það var erilsamt hjá lög-
reglunni í Keflavík aðfaranótt
laugardags. Sjö dansleikir fóru
fram í bænum í tilefni af Ljósa-
nótt. Maður var handtekinn á veit-
ingastað með sextán e-töflur og
tvö grömm af amfetamíni innan-
klæða. Frá miðnætti til klukkan
sjö um morguninn voru tilkynntar
fimm líkamsárásir og fimm menn
gistu fangaklefa lögreglu vegna
ölvunar og óspekta. Þá voru höfð
afskipti af á annan tug ungmenna
sem höfðu áfengi um hönd eða
virtu ekki útivistarreglur. Tveir
ökumenn voru handteknir grun-
aðir um ölvun við akstur. ■
Á GRÆNU
Ökumenn bíða þess að geta beygt frá
Kringlumýrarbraut inn á Miklubraut.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
FRANCES Á JENSENSTRÖND, FLÓRÍDA
Rúmlega tvær og hálf milljón manns flýðu strandsvæði Flórída áður en fellibylurinn Frances gekk yfir ríkið.
M
YN
D
A
P
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Næstráðandi Saddams Hussein:
Laufakóngurinn handsamaður
AP BAGDAD Írösk yfirvöld greindu
frá því í gær að næstráðandi
Saddams Hussein, Izzat Ibrahim
al-Douri, sem nefndur hefur
verið laufakóngurinn, hefði ver-
ið handtekinn í Norður-Írak í
gær. Því er haldið fram að hann
hafi verið handtekinn á lækna-
stofu þar sem hann gekkst undir
læknismeðferð en því er haldið
fram að hann þjáist af lungna-
bólgu og þurfi blóðgjöf.
Al-Douri var valdamesti mað-
ur ríkisstjórnar Saddams
Hussein sem enn lék lausum
hala og hafði Bandaríkjastjórn
heitið 60 milljónum króna til
höfuðs honum. Óvissa er um
hvort fregnirnar um handtöku
hans séu sannar en áður hefur
verið sagt frá því að hann hafi
náðst en það ekki verið á rökum
reist. Al-Douri er í sjötta sæti á
lista Bandaríkjahers yfir 55 eft-
irlýsta valdamenn ríkisstjórnar
Saddams. 44 þeirra sem eru á
listanum hafa þegar látið lífið
eða verið handsamaðir. ■
IZZAT IBRAHIM AL-DOURI
Írösk stjórnvöld segjast hafa handtekið
hægri hönd Saddams Hussein, sem nefnd-
ur hefur verið Laufakóngurinn. Hann var
næstráðandi í ríkisstjórn Saddams og sjötti
á lista Bandaríkjastjórnar yfir eftirlýsta
ráðamenn Saddams. Settar höfðu verið 60
milljónir króna til höfuðs honum.
Ígræðsla líffæra úr
svínum í mannfólk:
Hættuminni
en var talið
LÍFTÆKNI Ígræðsla á líffærum úr
svínum í menn er að öllum líkind-
um mun öruggari en áður hefur
verið talið, að því er ný rannsókn
hefur leitt í ljós. Almennur skort-
ur er í heiminum á líffærum til
ígræðslu og telja margir að notk-
un á líffærum úr dýrum, og þá
sérstaklega úr svínum, geti mætt
þörfinni.
Fram til þessa hafa þó rann-
sóknir gefið það til kynna að það
sé langt frá því hættulaust að
græða dýralíffæri í menn. Niður-
stöður nýrrar rannsóknar sem
læknadeild Harvard-háskólans
stóð fyrir sýndu fram á það að
áhættan er mjög lítil. Frumur úr
mönnum og svínum voru græddar
í mýs og kom í ljós að frumur úr
mönnum þrifust vel með frumun-
um úr svínunum. Áður hafði verið
talið að vírusar sem finnast í
svínafrumum geti sýkt mann-
frumur. ■
Veikindi Bills Clinton:
Fer í aðgerð
á næstu
dögum
MILWAUKEE, AP Gert er ráð fyrir því
að Bill Clinton gangist undir hjá-
veituaðgerð á hjarta í dag eða á
morgun. Aðgerðin er fremur al-
geng og þurfa sjúklingar sem
gangast undir slíka aðgerð að
dveljast á sjúkrahúsi í þrjá til
fimm daga eftir aðgerð.
Læknar hafa ekki gefið út yfir-
lýsingu um líðan Clintons en sam-
kvæmt upplýsingum AP-frétta-
stofunnar eru þrjár slagæðar í
hjarta stíflaðar. Hann fékk ekki
hjartaáfall en í yfirlýsingu frá
fjölskyldu Clintons segir að hún
sé mjög fegin því að upp komst
um vandann áður en eitthvað al-
varlegra hefði átt sér stað. ■