Fréttablaðið - 06.09.2004, Síða 20
Húsnúmer þurfa að vera vel staðsett og skýr svo gott sé að lesa
þau. Lýsing er mikilvæg og ber að gæta þess að húsnúmer sjáist
við hvaða birtuskilyrði sem er. Stundum getur þurft að lýsa núm-
erið upp sérstaklega. Ýmsar útgáfur eru til af skemmtilegum hús-
númerum og auk upplýsingagildis geta þau verið mikil prýði.
Amerískar lúxus heilsudýnur
Berðu saman verð og gæði
TURN-FREE
Queen 153x203 cm
Verð frá 89.900.-
ÍBÚÐARHÚS - FRÍSTUNDAHÚS
BYGGÐ ÚR NORSKUM KJÖRVIÐI - NÁTTÚRUVÆN FÚAVÖRN
RC-Hús ehf. Grensásveg 22, Reykjavík - Sími 5115550 netfang rchus@rchus.is
Til leigu
35 fermetra skrifstofupláss á 2. hæð í glæsilegu
húsnæði við Borgartún til leigu strax.
Mjög fín aðkoma og frábært verð fyrir þessa
staðsetningu (um 900 kr. per fermeter + vsk).
Upplýsingar í síma 661-7909.
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Bílskúrsþök eru víðast hvar
vannýttar lendur. Þetta hefur
Guðni Sigurðsson verkfræðing-
ur komið auga á og á þaki tvö-
falds bílskúrs að Reynimel 56 í
Reykjavík hefur hann gert sér
uppeldisstöð fyrir skóg. Rækt-
unin blasir að hluta til við frá
Hofsvallagötunni og prýðir
sannarlega umhverfið. Þarna
eru í uppvexti barrtré af ýmsum
sortum sem eigandinn fer síðan
með upp í Stafholtstungur í
Borgarfirði. Þar á hann hlut í
bújörð sem hann er að klæða
skógi ásamt fleirum. Sumar
trjátegundir kveðst hann rækta
upp af fræi, svo sem birki, elri
og lerki og einnig tekur hann
stiklinga af ösp og víði. „Þetta er
eini staðurinn sem ég hef yfir að
ráða til uppeldis plantnanna og
það er allt í lagi með hann,“ seg-
ir hann um þakið í Vesturbæn-
um og kveðst oft vera þar uppi
að sinna gróðrinum, vökva og
líta eftir. ■
„Byggingin myndi ekki haggast í
sprengingu enda er þetta upphaf-
lega sprengjugeymsla úr heims-
styrjöldinni síðari,“ segir Krist-
inn Brynjólfsson innanhússarki-
tekt um gömlu kartöflugeymsl-
urnar við Rafstöðvarveg í Reykja-
vík. „Veggirnir eru hnausþykkir
og fær fátt stjakað við þeim enda
er byggingarefnið járnbent stein-
steypa,“ segir Kristinn. Sjö sjálf-
stæðar einingar mynda bygging-
una, sem er samanlagt um 1500
fermetrar og er heildarþyngd
stálsins rúmlega 254 þúsund kíló.
Þykkt bárað stálbogavirki liggur
ofan á veggjunum sem fest er
saman með yfir 36.000 öflugum
stálboltum. „Sambærileg efnis-
notkun á sér varla hliðstæðu nú á
tímum,“ segir Kristinn um þessa
merku byggingu sem á sér sér-
staka sögu og fór frá því að hýsa
sprengjur í að geyma kartöflur
borgarbúa.
„Bandaríkjamenn settu hana
upp í Hvalfirðinum en eftir stríð
var hún öll tekin í sundur alveg til
minnstu skrúfu og flutt í heild
sinni á núverandi stað. Upp frá
því gegndi hún hlutverki kartöflu-
geymslu í áratugi, en hingað kom
fólk á hverju hausti með uppsker-
una og geymdi yfir veturinn,“
segir Kristinn, sem heillaðist af
sérstöðu byggingarinnar og ætlar
henni nú nýtt hlutverk og með því
heldur sérstök saga hennar
áfram. „Hér á að rísa hönnunar-
og listamiðstöð með lifandi og
skapandi umhverfi, þar sem haft
er að leiðarljósi að hlutar starf-
seminnar í húsunum styðji hver
aðra,“ segir Kristinn, sem sjálfur
ætlar að reka verslunina Desform
í húsinu þar sem hann selur eigin
hönnun og framleiðslu á sófum.
„Breytingar verða gerðar á útliti
og umhverfi byggingarinnar, sem
mun gera hana að aðlaðandi stað
til að heimsækja. Mikill metnaður
er lagður í listræna útfærslu húss
og lóðar þar sem sérstaðan verður
dregin fram með vönduðum frá-
gangi sem myndar andstæður við
grófleikann sem fyrir er,“ segir
Kristinn, sem áætlar að starfsem-
in verði komin af stað í apríl á
næsta ári. „Hér verða ekki lengur
geymdar neinar sprengjur en ég
get lofað að samt sem áður verður
mikil dýnamík í húsinu,“ segir
Kristinn. ■
Guðni Sigurðsson verkfræðingur:
Stundar trjárækt á þakinu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Kristinn Brynjólfsson ætlar að koma upp stórri hönnunar- og listamiðstöð í gömlu kartöflugeymslunum.
Hönnunar- og listamiðstöðin Ártúnsbrekku:
Hönnun í sprengjugeymslu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Fura, lerki og greni sjást frá götunni.
Innar eru birki og víðir.